Top Banner
Fimmtudagur 27. mars 2014 www.eystrahorn.is Eystrahorn 12. tbl. 32. árgangur www.eystrahorn.is Þann 13, mars sl. opnaði Lyfja nýja og glæsilega verslun í Miðbæ. Af því tilefni var ákveðið að veita tvo peningastyrki til málefna í sveitarfélaginu. Dagvist aldraðra fékk 150.000 kr. styrk sem nýtist þeim vonandi vel við endurbætur á húsnæði sínu. Barna- og unglingastarf Sindra fékk einnig 150.000 kr. styrk til nota í sitt góða og uppbyggilega starf. Afl Starfsgreinafélag hefur framlengt samkomulag við Flugfélagið Erni um ódýr flugfargjöld fyrir félagsmenn milli Hornafjarðar og Reykjavíkur. Samkomulagið gildir út árið. Miðarnir gilda fyrir þá sem eiga félagsskírteini með rauða 2014 límmiðanum. Verð fyrir flug aðra leið verður 9.800 krónur en félagið á ennþá nokkra miða á eldra verði sem er 8.000 krónur. Miðarnir gilda ekki í flug á háannatímabilinu 1. júní 2014 – 31. ágúst 2014 í eftirtalin flug: - 08:55 morgunflug REK-HFN mánudaga, miðvikudaga, og föstudaga - 18:55 síðdegisflug HFN-REK mánudaga, miðvikudaga, föstudaga Miðarnir eru seldir á skrifstofum AFLs á Hornafirði og Djúpavogi. Með samningi þessum vilja Flugfélagið Ernir og AFL Starfsgreinafélag vekja athygli almennings á flugsamgöngum til og frá Höfn í Hornafirði og hversu nauðsynlegar flugsamgöngur eru fyrir samfélagið í heild. Framundan er umfangsmikið kynningarátak á Suðurlandi þar sem ferðaþjónustufyrirtækjum, matvælaframleiðendum, félögum, fyrirtækjum, stofnunum, einstaklingum og öllum öðrum áhugasömum er boðið að taka þátt í. Átakið kallast „Leyndadómar Suðurlands“ og mun standa yfir frá föstudeginum 28. mars til sunnudagsins 6. apríl 2014 eða í 10 daga. Það eru Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), sem standa fyrir verkefninu. Ráðherrar og formaður SASS Ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson munu opna leyndardómana formlega, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni SASS, föstudaginn 28. mars kl. 14:00 við Litlu kaffistofuna. Frá þeim tíma verður öllum landsmönnum og erlendum ferðamönnum, sem staddir eru á landinu boðið að koma á Suðurland og taka þátt í fjölbreyttum viðburðum þessa 10 daga, sem átakið stendur yfir. 0 krónur í Strætó Rúsínan í pylsuendanum á Leyndardómum Suðurlands er frítt í Strætó frá Reykjavík á Suðurland og á öllum leiðum innan svæðisins í boði SASS. Strætó er með mjög öflugt leiðarkerfi á Suðurlandi þar sem hægt er að komast til allra átta án þess að borga krónu á meðan leyndardómarnir standa yfir. Lesefni, bækur og blöð verður í Strætó alla Leyndardómsdagana í boði „bókabæjarins fyrir austan fjall“. Sjá áætlunarferðir á www.straeto.is og upplýsingar um ferðir eru líka gefnar í þjónustuveri Strætó í síma 540-2700 frá 06:00 til 22:00. Sudurland.is Allir viðburðir á Leyndardómum Suðurlands eru kynntir á nýrri og glæsilegri heimasíðu SASS, www.sudurland.is. Þá hefur verið gefið út sérstakt viðburðadagatal, sem verður borðið inn á öll heimili á Suðurlandi. Auk þess verður átakið auglýst mikið í fjölmiðlum og það er með sérstaka Facebookarsíðu, „Leyndardómar Suðurlands“, sem allir eru hvattir til að fara inn á. Á annað hundrað viðburðir Markmiðið með átakinu er að kynna sem mest af Suðurlandi og fá sem flesta gesti til að heimsækja Suðurland. Megininntakið í átakinu er Matur – Saga – Menning. Hér er því kærkomið tækifæri til að lengja ferðamannatímabilið og koma öllum leyndardómum Suðurlands á framfæri. Á annað hundrað viðburðir verða leyndardómsdagana en dæmi um viðburði er tilboð á veitingastöðum, tveir fyrir einn í gistingu, ókeypis í sund, listsýningar, tónleikar, skemmtanir, tilboð á sunnlenskum vörum, tilboð í afþreyingu, opin hús víða á svæðinu og fleira og fleira. F.h. Leyndardóma Suðurlands, Magnús Hlynur Hreiðarsson, verkefnisstjóri Ánægja með flugið Styrkveitingar Adda Birna Hjálmarsdóttir lyfsali, Ester Þorvaldsdóttir og Elísabet Þorsteinsdóttir f.h. Dagvistar aldraðra, Sigurbjörn Gunnarsson framkvæmdastjóri Lyfju og Hanný Ösp Pétursdóttir. 10 daga hátíð að hefjast Esther Helga Guðmundsdóttir MSc. matarfíknarráðgjafi frá MFM matarfíknarmiðstöðinni (www.matarfikn.is), verður á ferðinni hér á Höfn þriðjudaginn 1. apríl og mun halda opinn fyrirlestur um offitu og þyngdarvanda. Titill fyrirlestursins er: GETUR MATUR VERIÐ ÁVANABINDANDI; offita, matarfíkn, átraskanir; orsakir, afleiðingar og lausnir! Fyrirlesturinn er öllum opinn og enginn aðgangseyrir. Hann verður haldinn þriðjudaginn 1. apríl kl. 20:00 í Heppuskóla. Fyrirlestur um offitu og þyngdarvanda
8

Eystrahorn 12. tbl. 2014

Mar 24, 2016

Download

Documents

 
Welcome message from author
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.
Transcript
Page 1: Eystrahorn 12. tbl. 2014

Fimmtudagur 27. mars 2014 www.eystrahorn.is

Eystrahorn12. tbl. 32. árgangur www.eystrahorn.is

Þann 13, mars sl. opnaði Lyfja nýja og glæsilega verslun í Miðbæ. Af því tilefni var ákveðið að veita tvo peningastyrki til málefna í sveitarfélaginu. Dagvist aldraðra fékk 150.000 kr. styrk sem nýtist þeim vonandi vel við endurbætur á húsnæði sínu. Barna- og unglingastarf Sindra fékk einnig 150.000 kr. styrk til nota í sitt góða og uppbyggilega starf.

Afl Starfsgreinafélag hefur framlengt samkomulag við Flugfélagið Erni um ódýr flugfargjöld fyrir félagsmenn milli Hornafjarðar og Reykjavíkur. Samkomulagið gildir út árið. Miðarnir gilda fyrir þá sem eiga félagsskírteini með rauða 2014 límmiðanum. Verð fyrir flug aðra leið verður 9.800 krónur en félagið á ennþá nokkra miða á eldra verði sem er 8.000 krónur. Miðarnir gilda ekki í flug á háannatímabilinu 1. júní 2014 – 31. ágúst 2014 í eftirtalin flug: - 08:55 morgunflug REK-HFN mánudaga, miðvikudaga, og föstudaga - 18:55 síðdegisflug HFN-REK mánudaga, miðvikudaga, föstudagaMiðarnir eru seldir á skrifstofum AFLs á Hornafirði og Djúpavogi.Með samningi þessum vilja Flugfélagið Ernir og AFL Starfsgreinafélag vekja athygli almennings á flugsamgöngum til og frá Höfn í Hornafirði og hversu nauðsynlegar flugsamgöngur eru fyrir samfélagið í heild.

Framundan er umfangsmikið kynningarátak á Suðurlandi þar sem ferðaþjónustufyrirtækjum, matvælaframleiðendum, félögum, fyrirtækjum, stofnunum, einstaklingum og öllum öðrum áhugasömum er boðið að taka þátt í. Átakið kallast „Leyndadómar Suðurlands“ og mun standa yfir frá föstudeginum 28. mars til sunnudagsins 6. apríl 2014 eða í 10 daga. Það eru Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), sem standa fyrir verkefninu.

Ráðherrar og formaður SASSRáðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson munu opna leyndardómana formlega, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni SASS, föstudaginn 28. mars kl. 14:00 við Litlu kaffistofuna. Frá þeim tíma verður öllum landsmönnum og erlendum ferðamönnum, sem staddir eru á landinu boðið að koma á Suðurland og taka þátt í fjölbreyttum viðburðum þessa 10 daga, sem átakið stendur yfir.

0 krónur í StrætóRúsínan í pylsuendanum á Leyndardómum Suðurlands er frítt í Strætó frá Reykjavík á Suðurland og á öllum leiðum innan svæðisins í boði SASS. Strætó er með mjög öflugt leiðarkerfi á Suðurlandi þar sem hægt er að komast til allra átta án þess að borga krónu á meðan leyndardómarnir standa yfir. Lesefni, bækur og blöð verður í Strætó alla Leyndardómsdagana í boði „bókabæjarins fyrir austan fjall“. Sjá áætlunarferðir á www.straeto.is og upplýsingar um ferðir eru líka gefnar í þjónustuveri Strætó í síma 540-2700 frá 06:00 til 22:00.

Sudurland.isAllir viðburðir á Leyndardómum Suðurlands eru kynntir á nýrri og glæsilegri heimasíðu SASS, www.sudurland.is. Þá hefur verið gefið út sérstakt viðburðadagatal, sem verður borðið inn á öll heimili á Suðurlandi. Auk þess verður átakið auglýst mikið í fjölmiðlum og það er með sérstaka Facebookarsíðu, „Leyndardómar Suðurlands“, sem allir eru hvattir til að fara inn á.

Á annað hundrað viðburðirMarkmiðið með átakinu er að kynna sem mest af Suðurlandi og fá sem flesta gesti til að heimsækja Suðurland. Megininntakið í átakinu er Matur – Saga – Menning. Hér er því kærkomið tækifæri til að lengja ferðamannatímabilið og koma öllum leyndardómum Suðurlands á framfæri. Á annað hundrað viðburðir verða leyndardómsdagana en dæmi um viðburði er tilboð á veitingastöðum, tveir fyrir einn í gistingu, ókeypis í sund, listsýningar, tónleikar, skemmtanir, tilboð á sunnlenskum vörum, tilboð í afþreyingu, opin hús víða á svæðinu og fleira og fleira.

F.h. Leyndardóma Suðurlands, Magnús Hlynur Hreiðarsson, verkefnisstjóri

Ánægja með flugið

Styrkveitingar

Adda Birna Hjálmarsdóttir lyfsali, Ester Þorvaldsdóttir og Elísabet Þorsteinsdóttir f.h. Dagvistar aldraðra, Sigurbjörn Gunnarsson framkvæmdastjóri Lyfju og Hanný Ösp Pétursdóttir.

10 daga hátíð að hefjast

Esther Helga Guðmundsdóttir MSc. matarfíknarráðgjafi frá MFM matarfíknarmiðstöðinni (www.matarfikn.is), verður á ferðinni hér á Höfn þriðjudaginn 1. apríl og mun halda opinn fyrirlestur um offitu og þyngdarvanda. Titill fyrirlestursins er: GETUR MATUR VERIÐ ÁVANABINDANDI; offita, matarfíkn, átraskanir; orsakir, afleiðingar og lausnir! Fyrirlesturinn er öllum opinn og enginn aðgangseyrir. Hann verður haldinn þriðjudaginn 1. apríl kl. 20:00 í Heppuskóla.

Fyrirlestur um offitu og þyngdarvanda

Page 2: Eystrahorn 12. tbl. 2014

2 EystrahornFimmtudagur 27. mars 2014

Sögustund í bókasafninu á laugardögum

Sögustundin verður kl. 11:30 á laugardögum. Sögur og ýmislegt fleira skemmtilegt.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

Starfsfólk Menningarmiðstöðvar

Bifreiðaskoðun á Höfn 7., 8. og 9. apríl.

Tímapantanir í síma 570 9090 fyrir kl. 16:00 föstudaginn 4. apríl.

Næsta skoðun er 19., 20. og 21. maí.

Þegar vel er skoðað

Sögustundin verður kl. 11:30 á laugardögum.

Sögur og ýmislegt fleira skemmtilegt. Hlökkum til að sjá sem flesta!

Starfsfólk Menningarmiðstöðvar

Stólar og borð til söluEr með til sölu 4-6 manna matarborð og bólstraða stóla við, allt úr beiki. Selst ódýrt. Allar upplýsingar veittar í síma 478-1550 og 896-6412. Ásmundur Gíslason Árnanesi-gistihúsi.

Leyndardómur Löngustínuverður afhjúpaður á Humarhöfninni dagana 28. mars - 6. apríl 2014 þegar við blótum

hina einu sönnu humargyðju.

Síðan siglum við inn í humarsumarið á fullri ferð með opnun alla

daga frá kl. 18:00

Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts

Helgu MagnúsdótturSérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðuausturlands.

Ragnar Arason og aðstandendur

HafnarkirkjaSunnudaginn 30. mars

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00.

Sveinbjörg Jónsdóttir djáknanemi prédikar.

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

BrunnhólskirkjaSunnudaginn 30. mars

Messa kl. 14:00

Sveinbjörg Jónsdóttir djáknanemi prédikar.

Prestarnir

Kaþólska kirkjanSunnudagur 30. marsBörnin hittast kl. 11:00.Hl. messa kl. 12:00.Skriftir frá kl. 11:00.Eftir hl. messu er öllum gestum boðið að þiggja kaffiveitingar.Allir hjartanlega velkomnir.

“Opin æfing” á Smyrlabjörgum 5. apríl Laugardagskvöldið 5. apríl ætla þeir félagarnir Sigurgeir á Fagurhólsmýri og Sigjón á Brekkubæ ásamt fleira góðu fólki að vera með opna harmónikkuæfingu á Smyrlabjörgum .

Fyrirhugað er að byrja æfinguna um klukkan 20:30

Allir eru velkomnir og þeir sem vilja mega koma með harmónikkur með sér og spila með , aðrir geta stigið dans eða bara setið og hlustað og spjallað.

Endilega kíkið við og eigum góða stund saman þann 5. apríl.

Úr trjábol með trjónu fína varð til ungfrú Langústína.

Hún er ekki til sölu er í dýrlingatölu

ég votta henni virðingu mína.

Hún Höfninni vernd sína veitir og víst er að bæinn skreytir

þegar hátíð með humri er haldin að sumri

hún sælkera soðningu heitir.

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Snorri Snorrasonlögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlariSími 580-7915

fákaLeiraFallegt og velskipulagt einbýlishús, 149,2 m² ásamt 29,8 m² sambyggðum bílskúr samtals 179 m², 4 svefnherbergi, steypt bílastæði, steyptar og hellulagðar stéttar og verönd með skjólveggjum.

DaLbraut „MjóLkurstöðin“Um er að ræða 658 m² atvinnuhúsnæði. Góð lofthæð, auðvelt að breyta innréttingu. Laust fljótlega.

kirkjubrautRúmgott 137,1 m² einbýlishús ásamt 19,3 m² sólstofu og 42,7 m² bílskúr, samtals 199,1 m². Húsið er nú með 4 svefnherbergjum og möguleiki er á 5 herbergjum.

Nýtt á skrá

Page 3: Eystrahorn 12. tbl. 2014

3Eystrahorn Fimmtudagur 27. mars 2014

28. mars til 6. apríl 2014

Leyndardómar SuðurlandsFormleg

opnun við Litlu

Kaffistofuna

þann 28. mars

kl. 14:00

Ráðherrarnir Sigurður Ingi Jóhannsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni SASS, munu opna Leyndardóma Suðurlands.

Alla viðburði má finna inni á www.sudurland.is

Frítt í Strætó á SuðurlandiSamtök sunnlenskra sveitarfélaga bjóða frítt í Strætó alla leyndardómsdagana. Sjá áætlunarferðir á www.straeto.is og upplýsingar eru gefnar í þjónustuveri Strætó í síma 540-2700 frá 06:00 til 22:00.

Leikfélag Hornfjarðar og FAS sýna leikritið

Blúndur og blásýra í Mánagarði. Leikstjóri er Eyvindur Karlsson.

- Frumsýning 3. apríl kl. 20:00.- Önnur sýning 6. apríl kl. 20:00.- Þriðja sýning 7. apríl kl. 20:00.- Fjórða sýning 8. apríl kl. 20:00.- Fimmta sýning 9. apríl kl. 20:00.Takmarkaður sýningarfjöldi.Miðaverð 2.500 kr. (tökum ekki kort).Miðpantanir í síma 478 1462 frá kl. 19:00 sýningardaga.

SumarvinnaSkinney – Þinganes hf. óskar eftir að ráða sumarstarfsfólk 16 ára og eldra til almennra fiskvinnslustarfa í sumar.

Tekið er við umsóknum til 4. apríl.

Vinsamlega hafið samband í síma 470-8111 eða á netfangið [email protected] og sækið um.

Aðalfundur Björgunarfélags Hornafjarðar verður haldinn á Hótel Höfn þriðjudaginn 1. apríl kl 19:30.

Dagskrá: - Skýrsla stjórnar

- Skýrsla gjaldkera- Kosningar- Önnur mál

Aðalfundur Krabbameinsfélags Suðausturlands

verður haldinn í fundarsal Afls á Víkurbraut þann 3. apríl nk. kl. 20:00.• Venjuleg aðalfundarstörf, kosning í stjórn og önnur mál.• Kynning á starfsemi Ráðgjafaþjónustu

rabbameinsfélagsins í Skógarhlíð.

Kaffi á könnunni og allir áhugasamir hvattir til að mæta.

Krabbameinsfélag Suðausturlands.

Sjálfstæðisfólk og stuðningsfólk D-listans

Sjálfstæðisfélögin í Austur-Skaftafellssýslu halda opinn almennan fund mánudaginn 31. mars nk. kl. 20:00 í Sjálfstæðishúsinu. Framboðslisti sjálfstæðismanna vegna sveitarstjórnarkosninganna 31. maí nk. verður kynntur á fundinum.

Sjálfstæðisfélögin í Austur-Skaftafellssýslu

Minnum á súpufundina í Sjálfstæðishúsinu

á laugardögum kl. 11:30.

Page 4: Eystrahorn 12. tbl. 2014

Tilboðin gilda 27. mars – 6. apríl 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

-50%-40%

GrísarifBBQ - alvöru gæði!Verð per kílóÁður 1.498

749,-

kjúklinGapoppdanpo-240 gVerð per pk

498,-

BayonneskinkaVerð per kílóÁður 1.989

1.195,-

-33%

GrísaBóGurhringskorinnkílóVerðÁður 889

596,-

-50%

GrísakóteletturferstkílóVerðÁður 1.949

975,-

rækjur -500GsmÁar - ódýrt fyrir heimiliðpakkaVerðÁður 598

550,-

-30%

-25%

nautalunDirVerð per kílóÁður 4.989

3.492,-

kálfa riBeyefrosið 2-2,5kgVerð per kílóÁður 3.989

2.992,-

kjúklinGaBorGarardanpo-240 gVerð per pk

498,-

corDon Bleudanpo-240 gVerð per pk

598,-

kjúklinGurBringur/lundir900/700 Gr poki

1.698,-

kjúklinGanaGGardanpo-320 gVerð per pk

598,-

arla Buko4 tegundirVerð per pkVerð frá

382,- snofrisk125 gVerð per pkÁður 498

423,-

cociosúkkulaðimjólk 250 mlVerð per stk

199,-

-25%

kjúklinGur heill, læri eða leGGirverð per pk 599,-

Mikið úrval af

hágæða dönskuM kjötvöruM

frá tuliP

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

finthakket skinkesalat175 g

389 krstk

kylling&bacon salat175 g

398 krstk

reje salat175 g

389 krstk

æggesalat175 g

298 krstk

Page 5: Eystrahorn 12. tbl. 2014

Tilboðin gilda 27. mars – 6. apríl 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

-50%-40%

GrísarifBBQ - alvöru gæði!Verð per kílóÁður 1.498

749,-

kjúklinGapoppdanpo-240 gVerð per pk

498,-

BayonneskinkaVerð per kílóÁður 1.989

1.195,-

-33%

GrísaBóGurhringskorinnkílóVerðÁður 889

596,-

-50%

GrísakóteletturferstkílóVerðÁður 1.949

975,-

rækjur -500GsmÁar - ódýrt fyrir heimiliðpakkaVerðÁður 598

550,-

-30%

-25%

nautalunDirVerð per kílóÁður 4.989

3.492,-

kálfa riBeyefrosið 2-2,5kgVerð per kílóÁður 3.989

2.992,-

kjúklinGaBorGarardanpo-240 gVerð per pk

498,-

corDon Bleudanpo-240 gVerð per pk

598,-

kjúklinGurBringur/lundir900/700 Gr poki

1.698,-

kjúklinGanaGGardanpo-320 gVerð per pk

598,-

arla Buko4 tegundirVerð per pkVerð frá

382,- snofrisk125 gVerð per pkÁður 498

423,-

cociosúkkulaðimjólk 250 mlVerð per stk

199,-

-25%

kjúklinGur heill, læri eða leGGirverð per pk 599,-

Mikið úrval af

hágæða dönskuM kjötvöruM

frá tuliP

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

finthakket skinkesalat175 g

389 krstk

kylling&bacon salat175 g

398 krstk

reje salat175 g

389 krstk

æggesalat175 g

298 krstk

Page 6: Eystrahorn 12. tbl. 2014

Við höfum trú á framtíðinniFátt er mikilvægara en að tryggja æsku landsins örugga og bjarta framtíð.Við höfum trú á framtíðinni á Hornafirði og því unga fólki sem þar býr.

Við óskum öllum sem fermast á árinu til hamingju með þennan merkilega áfanga.Umboðsaði l i

Umboðsaðili

Olíuverzlun Íslands hf.

Við óskum eftir starfsfólki í 100% störf og í sumarafleysingar á þjónustustöð Olís á Höfn.

Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.

Um starfið og hæfni

• Starfið felur í sér almenna afgreiðslu, áfyllingar vöru, vörumóttöku, þrif, þjónustu við viðskiptavini og annað tilfallandi.

• Unnið er á tvískiptum vöktum.

Áhersla er lögð á ríka þjónustulund, stundvísi, snyrtimennsku og hæfni í mannlegum samskiptum.

PIPA

R\TB

WA

· S

ÍA ·

140

880

Skilyrði er að umsækjendur hafi hreint sakavottorð og séu reyklausir.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Róbert í síma 840 1718.

Umsókn ásamt ferilskrá skal senda í tölvupósti á netfangið [email protected], fyrir 6. apríl nk.

Einnig er hægt að sækja um á www.olis.is.

100% starf á Höfnog sumarafleysingar

Page 7: Eystrahorn 12. tbl. 2014

Viltu vinna 50.000 Aukakrónur?Fylgstu með Aukakrónuleiknum sem hefst 27. mars. Þú tekur þátt í leiknum með því að fylla út þátttöku- miða og greiða með Aukakrónu- eða A kortinu þínu hjá samstarfsaðilum Aukakróna á Hornafirði.

» Hægt verður að nálgast þátttökumiða hjá öllum samstarfsaðilum á Hornafirði frá og með 27. mars til 11. apríl.

» Veglegir vinningar verða dregnir út frá samstarfsaðilum og tveir heppnir fá 50.000 Aukakrónur.

» Kynntu þér úrval samstarfsaðila á farsímavefnum l.is eða á landsbankinn.is.

Allir sem eiga Aukakrónukort geta tekið þátt í leiknum eins oft og þeir vilja. Þeir sem ekki eru í Aukakrónum geta sótt um kort á www.aukakronur.is eða í útibúi Landsbankans.

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

50.000 Aukakrónur

Page 8: Eystrahorn 12. tbl. 2014

Leyndardómar Suðurlands á Hótel Höfn

28. mars - 6. apríl Suðræn TAPAS stemming að hætti José Garcia matreiðslumeistara. Borðapantanir í síma 478-1240.

Laugardagur 29. mars Tónleikar með Eyjólfi Kristjánssyni kl. 22:00 - 24:00. Verð fyrir matargesti kr. 1.000,- annars kr. 1.700,- Borðapantanir í síma 478-1240

Laugardagur 5. apríl Konukvöld – veislustjóri Guðlaug Elísabet Tapas – Tíska – Taumlaus gleði. Verð kr. 2.900,- Miðapantanir í síma 478-1240.

GAMAN SAMAN Í NÝHEIMUM Íbúum boðið í Nýheima vikuna 31. mars – 4. apríl

Starfsfólk innan Þekkingarsetursins Nýheima bjóða Hornfirðinga velkomna að líta í Nýheima vikuna 31. mars – 4. apríl. Hús hugmynda, nýsköpunar, menntunar, menningar, rannsókna, tækifæra og skemmtunar.

Mánudagur 31. mars – MATÍSDAGURINN kl. 10.30-12:00 Sérfræðingar Matís til viðtals kl. 11:30-12:15 Kynning á matvælum frá matvælaframleiðendum kl. 12:15 Hádegisfyrirlestur í boði Matís. Léttur hádegisverður í boði. kl. 13:30-16.00 Sérfræðingar Matís til viðtals Kl. 16:00-18:00 Ókeypis námskeið: "Fagleg vinnubrögð, örugg matvæli" (Skráning hjá [email protected]. Skráningarfrestur til 28. mars og ALLIR VELKOMNIR)

Miðvikudagur 2. apríl kl. 12:15 Leyndardómar Vetrarbrautarinnar. Myndasýning í fyrirlestrasal af stjörnum og fyrirbærum í Vetrarbrautinni kl. 15:00-16:00 Fornleifafræðsla fyrir börnin kl. 10:00-16:00 Vinnustofa í „Upplifunarferðaþjónustu“ á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Ríki Vatnajökuls. Haldið á Humarhöfninni og kostar 3.500 kr. (hádegisverður og kaffi innifalið). Skráning hjá [email protected] fyrir 31. mars.

Fimmtudagur 3. apríl kl. 12:00 Norðurljósamynd í fyrirlestrasal

Föstudagur 4. apríl NÝHEIMADAGURINN Kl. 11.30-13:00 Súpa í boði fyrir gesti og gangandi. Starfsemi Nýheima kynnt í formi skemmtilegrar leiksýningar :) Tónlistaratriði.

Ráðstefna um menntamál í sveitarfélaginu Hornafirði

í Nýheimum laugardaginn 29. mars kl. 10:00Dagskrá:10:00 - 10:10 Setning, Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri 10:10 - 10:30 framþróun; menning og viðhorf Jón Torfi Jónasson prófessor við HÍ 10:30 - 10:50 Heiltæk forysta – betri menntun Anna Kristín Sigurðardóttir, lektor við Hí 10:50 - 11:10 Hlutverk leikskóla; menntun eða þjónusta, Arna H. Jónsdóttir lektor við HÍ11:10 - 11:30 Hvernig bæta má námsárangur Framtíðarsýn Reykjanesbæjar, Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri 11:30 - 11:50 Að kortleggja framtíðina, taka stefnu og halda henni. Tryggvi Thayer verkefnisstjóri Menntamiðju við HÍ 11:50 - 12:30 Hádegissúpa í boði hússins12:30 - 13:10 Hópastarf um spurningar út frá efni framsögumanna13:10 - 14:00 Skil hópa 14:00 - 14:50 Pallborð og umræður með framsögumönnum14:50 - 15:00 Samantekt og ráðstefnuslit Ráðstefnustjóri er Arna Ósk Harðardóttir formaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. Skráning á ráðstefnuna er hjá [email protected]

Allt áhugafólk um menntun í sveitarfélaginu er hvatt til að mæta