Fréttabréf NOrðlingaSKÓLA Skólaárið 2011 - 2012 9. desember 2011 Nr. 5 verður í Norðlingaskóla mánudaginn 19. desember kl. 16:00 - 19:00. DAGSKRÁ HELGILEIKUR - Á Völlum, heimasvæði 3. og 4. bekkjar sýna nemendur helgileik kl. 16:15 og 17:30. JÓLAFÖNDUR - Í Lundi verður jólaföndur í boði. FÓÐUREPLI - Í Hádegismóum verða búin til fóðurepli fyrir fuglana. DANSAÐ Í KRINGUM JÓLATRÉÐ - Í Mörkinni verður dansað í kringum jólatréð kl. 17.00 og 18:00 undir stjórn 5. – 7. bekkinga. JÓLASÖGUSTUND - Í Víkum heimasvæði 1. og 2. bekkjar verður boðið upp á jólasögustund með nemendum í 7. – 10. bekk. TÓNLISTARSKÓLINN - Nemendur í Norðlingaskóla sem stunda nám í Tónlistarskóla Árbæjar koma fram í Glym og spila kl. 16:00 og 17:00. JÓLAMYNDATAKA - Á Markarhorni verður hægt að taka, eða láta taka, jólamyndir af nemendum. Myndirnar verða vistaðar á netinu í stað útprentunar. Nemendur í 8. – 10. bekk aðstoða. SÖNGLEIKURINN GREASE - Nemendur í unglingadeild sýna söngleikinn GREASE kl. 16:30 og 18:00 í Íþróttahúsi. VEITINGAR - Í Mörkinni verður boðið upp á veitingar að hætti nemenda í 8. – 10. bekk. ÓSKILAMUNIR. Alls konar fatnaður og ýmsir aðrir óskilamunir verða á borðum í andyri skólans. Foreldrar og nemendur eru hvattir til að kanna hvort þar leynist eitthvað í þeirra eigu. Ábyrgðamenn fréttabréfs: Sif Vígþórsdóttir og Ellert Borgar Óskum nemendum, foreldrum, vinum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Starfsfólk Norðlingaskóla Jólin 2011 Kveðja frá Norðlingaskóla