Ágúst 2011 · tölublað 89 Fréttabréf Félags tónlistarskólakennara Kjarasamningurinn snýst um starfskjör og faglega þróun Undanfarin ár hafa miklar breytingar verið að eiga sér stað í starfsemi tónlistarskóla. Þar má fyrst nefna starfstímann sem hefur verið að styttast og þjappast saman jafnt og þétt. Flestir þekkja þróunina í Reykjavík og ákvörðun Reykjavíkurborgar um 32 kennsluvikur í tónlistarskólum borgarinnar sem lengdi vinnuviku tónlistarkennara í 50 klst. Síðan fór vikufjöldinn niður í 30 vikur og vinnuvika tónlistarkennara var orðin 53 klst. sem kallar á tæplega 11 klst. vinnudag! Samþjöppun kennslutímabils kallar á aukinn nemenda- fjölda í umsjón kennara! Samþjöppun kennslutímabils felur í sér hækkun á vikulegri kennsluskyldu sem þýðir aukinn nemendafjöldi í umsjón kennara. Aukinn nemendafjöldi útheimtir aukna vinnu við t.d.: Undirbúning kennslu, gerð einstaklingskennsluáætlana, verkefnaval, undirbúning vegna tónleika, prófa, samleiks, skýrslugerðir og umsagnir, foreldrasamstarf o.fl. Stytting kennslustunda/skert þjónusta við nemendur kallar á aukinn nemendafjölda í umsjón kennara! Í ofan á lag hefur þjónusta við nemendur verið skert á undan- förnum árum og dæmi eru um að kennslutímar hafi verið styttir allt niður í 20 mínútur á viku. Styttri kennslustundir kalla á aukinn nemendafjölda í umsjón kennara sem aftur útheimtir aukna vinnu samanber upptalningu að framan. Forsendur eldri kjarasamnings tónlistarkennara brostnar Af þessu leiðir að kennarar eru nú með mun fleiri nemendur en gengið hefur verið út frá við gerð kjarasamninga. Í kjarasamn- ingum er kveðið á um að tónlistarskólar skuli aðlaga starfstíma sinn að starfstíma grunnskóla á sama svæði og ef því væri fylgt fæli það í sér 19-20 klst. kennsluskyldu á viku. Starfshlutfall kennara hefur farið lækkandi samhliða fækkun kennsluvikna en nemendum í umsjónarhópi kennara hefur stór- lega fjölgað vegna þessarar samþjöppunar á kennslutíma og einnig sökum styttingar á kennslustundum nemenda og aukinnar samkennslu/hópkennslu. Nýjum kjarasamningi er ætlað að leiðrétta starfskjör kennara Nýjum kjarasamningi er ætlað að leiðrétta starfskjör kennara sem hafa tekið á sig auknar byrgðar, í tengslum við fækkun kennsluvikna og styttingu kennslutíma nemenda, án þess að fá greitt fyrir. Starfskjör kennara geta haft mikil áhrif á þróun faglegs starfs í tónlistarskólum og það er hluti af fagmennsku kennara að berjast fyrir bættum kjörum í hvívetna. Kennarar og stjórnendur þurfa að vera vel meðvitaðir um breytingar í þeirra starfsumhverfi og hvaða áhrif þær kunna að hafa bæði á starfskjör og faglega þróun. Frá undirritun kjarasamnings aðfararnótt 31. maí sl. Á myndinni eru Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samn- inganefndar SÍS og Sigrún Grendal, formaður FT.
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.
Transcript
Ágúst 2011 · tölublað 89
Fréttabréf
Félags tónlistarskólakennara
Kjarasamningurinn snýst um
starfskjör og faglega þróun
Undanfarin ár hafa miklar breytingar verið að eiga sér stað í
starfsemi tónlistarskóla. Þar má fyrst nefna starfstímann sem
hefur verið að styttast og þjappast saman jafnt og þétt. Flestir
þekkja þróunina í Reykjavík og ákvörðun Reykjavíkurborgar
um 32 kennsluvikur í tónlistarskólum borgarinnar sem lengdi
vinnuviku tónlistarkennara í 50 klst. Síðan fór vikufjöldinn
niður í 30 vikur og vinnuvika tónlistarkennara var orðin 53 klst.
sem kallar á tæplega 11 klst. vinnudag!
Samþjöppun kennslutímabils kallar á aukinn nemenda-
fjölda í umsjón kennara!
Samþjöppun kennslutímabils felur í sér hækkun á vikulegri
kennsluskyldu sem þýðir aukinn nemendafjöldi í umsjón
kennara. Aukinn nemendafjöldi útheimtir aukna vinnu við t.d.:
Undirbúning kennslu,
gerð einstaklingskennsluáætlana,
verkefnaval,
undirbúning vegna tónleika, prófa, samleiks,
skýrslugerðir og umsagnir,
foreldrasamstarf o.fl.
Stytting kennslustunda/skert þjónusta við nemendur kallar
á aukinn nemendafjölda í umsjón kennara!
Í ofan á lag hefur þjónusta við nemendur verið skert á undan-
förnum árum og dæmi eru um að kennslutímar hafi verið styttir
allt niður í 20 mínútur á viku. Styttri kennslustundir kalla á
aukinn nemendafjölda í umsjón kennara sem aftur útheimtir
aukna vinnu samanber upptalningu að framan.
Forsendur eldri kjarasamnings tónlistarkennara brostnar
Af þessu leiðir að kennarar eru nú með mun fleiri nemendur en
gengið hefur verið út frá við gerð kjarasamninga. Í kjarasamn-
ingum er kveðið á um að tónlistarskólar skuli aðlaga starfstíma
sinn að starfstíma grunnskóla á sama svæði og ef því væri fylgt
fæli það í sér 19-20 klst. kennsluskyldu á viku.
Starfshlutfall kennara hefur farið lækkandi samhliða fækkun
kennsluvikna en nemendum í umsjónarhópi kennara hefur stór-
lega fjölgað vegna þessarar samþjöppunar á kennslutíma og
einnig sökum styttingar á kennslustundum nemenda og
aukinnar samkennslu/hópkennslu.
Nýjum kjarasamningi er ætlað að leiðrétta starfskjör
kennara
Nýjum kjarasamningi er ætlað að leiðrétta starfskjör kennara
sem hafa tekið á sig auknar byrgðar, í tengslum við fækkun
kennsluvikna og styttingu kennslutíma nemenda, án þess að fá
greitt fyrir.
Starfskjör kennara geta haft mikil áhrif á þróun faglegs
starfs í tónlistarskólum og það er hluti af fagmennsku
kennara að berjast fyrir bættum kjörum í hvívetna.
Kennarar og stjórnendur þurfa að vera vel meðvitaðir um
breytingar í þeirra starfsumhverfi og hvaða áhrif þær
kunna að hafa bæði á starfskjör og faglega þróun.
Frá undirritun kjarasamnings aðfararnótt 31. maí sl.
Á myndinni eru Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samn-
inganefndar SÍS og Sigrún Grendal, formaður FT.
Nýjum kjarasamningi er ætlað að leiðrétta
starfskjör kennara
Samkennsla og nemendur í hlutanámi:
„Vegna annarrar umsjónar en kennslu, sem vegur þyngra vegna
nemenda í hlutanámi eða samkennslu skal koma til greiðsla
álags með stuðlinum 1,2368 (sbr. framhaldsnám). Kennslu-
stund í samkennslu uppreiknast með stuðlinum 1,2368. Álag
vegna hlutanemenda reiknast á þann mínútufjölda sem vantar
upp á að kennsla nemenda nái 60 mínútum.“
Með þessu ákvæði er verið að tryggja að greiðslur fylgi
þegar fjöldi nemenda í umsjónarhópi kennara eykst með
auknum fjölda nemenda í hlutanámi eða samkennslu.
Við gerð kjarasamninga er eftir sem áður byggt á þeim starfs-
aðstæðum kennara að þeir hafi um 20 nemendur í fullu námi í
sínum umsjónarhópi. Þær starfsaðstæður hafa hins vegar gjör-
breyst mjög víða og nemendahópur kennara hefur allt að tvö-
faldast. Nýjum samningi er ætlað að bregðast við þessum
breyttu starfsaðstæðum.
Starfstími tónlistarskóla:
„Skóladagar nemenda skulu vera á tímabilinu 20. ágúst til 5.
júní og skal starfstíminn aðlagaður starfstíma grunnskóla á
sama svæði þannig að frávik nemi ekki meira en tveimur
vikum.“
Með ákvæðinu er verið að stöðva þá þróun að sveitarfélög
geti misnotað innbyggðan sveigjanleika í kjarasamningnum
með einhliða ákvörðunum um að stytta kennslutímabil
skóla, hækka vikulega kennsluskyldu kennara og minnka
þjónustu við nemendur.
Með því að skýra hvað „aðlögun“ felur í sér með skilgreindu
leyfilegu fráviki er staðinn vörður um vikulega vinnuskyldu
kennara en sem dæmi þá er vikuleg vinnuskylda kennara 45,3
klst. í skóla sem er 35 vikur.
Nýtt námsefni!
1) Í fyrsta lagi er staðinn vörður um vikulega
kennsluskyldu kennara sem hefur gríðarlega mikil
áhrif á starfskjör þeirra.
2) Í öðru lagi er kveðið á um greiðslu álags vegna
aukinnar vinnu sem hlýst af auknum nemendafjölda
í umsjón hvers kennara.
Kynning á nótum á punktaletri
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og dauf-
blinda einstaklinga hefur ákveðið að bjóða upp á kynningu á
nótum á punktaletri í haust. Notkun punktaletursnótna hefur
ekki staðið fólki til boða hérlendis hingað til, hvorki nem-
endum né kennurum. Punktaletursnótur geta hins vegar skipt
sköpum þegar kemur að tónlistarmenntun hjá blindum og veru-
lega sjónskertum einstaklingum og því er mjög mikilvægt að sá
möguleiki sé fyrir hendi.
Hópur fólks fór héðan til Noregs í maí síðastliðnum til að
fylgjast með námskeiði í punktaletursnótum og kynna sér þær
kennsluaðferðir, kennsluefni og annað sem notast er við þar í
þeim efnum. Ferðin gekk mjög vel og hefur verið unnið úr
þeim upplýsingum nú í sumar sem aflað var í Noregi í þeim
tilgangi að koma upp kennslu punktaletursnótna á Íslandi.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin vill bjóða öllum þeim
kennurum sem hafa áhuga að mæta og kynna sér betur hvernig
punktaletursnótur virka, mikilvægi þeirra og hvernig hægt er að
nota þær samhliða hefðbundnu tónlistar- og hljóðfæranámi svo
nemandinn njóti góðs af.
Kynningin mun fara fram miðvikudaginn 14. september frá kl.
17:00-19:00 í húsakynnum Þjónustu og þekkingarmiðstöðvar-
innar í Hamrahlíð 17 og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig
með því að hafa samband við undirritaðan sem einnig veitir
frekari upplýsingar. Einnig er hægt að skrá sig á heimasíðu