1 Staða á vinnumarkaði Ágúst 2014 12. september 2014 Nr. 8/2014 Almennt yfirlit Skráð atvinnuleysi í ágúst 2014 var 3,1%, en að meðaltali voru 5.422 atvinnulausir í ágúst og fækkaði atvinnulausum um 161 að meðaltali frá júlí en hlutfallstala atvinnuleysis breyttist ekki. Í ágúst fækkaði atvinnulausum körlum um 54 frá júlí en að meðaltali voru 2.374 karlar á atvinnuleysisskrá og 3.048 konur en atvinnulausum konum fækkaði um 107 frá júlí og var atvinnuleysið 2,5% meðal karla og 3,8% meðal kvenna. Atvinnulausum fækkaði að meðaltali um 115 á höfuðborgarsvæðinu og var 3,5% í ágúst en var 2,3% á landsbyggðinni en þar fækkaði atvinnulausum um 46 frá júlí. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 4,5%. Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, 1,2%. Fjöldi í vinnumarkaðsúrræðum Í ágúst voru samtals 360 einstaklingar skráðir í vinnumarkaðsúrræði. Þessi úrræði eru greidd af Atvinnuleysistryggingasjóði, en viðkomandi einstaklingar eru í vinnu og teljast því ekki með í atvinnuleysistölum. Þeir skiptust þannig að 280 voru í starfsþjálfun eða hefðbundnum átaksverkefnum, 9 á reynsluráðningu og 31 í sérstökum átaksverkefnum, 22 voru í frumkvöðlastarfi innan fyrirtækja eða stofnana. Þá voru 18 einstaklingar í starfsþjálfun í Fjölsmiðjunni. Fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar Alls voru 5.635 manns atvinnulausir í lok ágúst. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 5.113. Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði samfellt er nú 3.100, fækkaði um 137 frá júlí og eru um 55% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá í ágúst. Fjöldi þeirra sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár samfellt var 1.621 í ágústlok, en 1.654 í júlílok og fækkar því um 33 milli mánaða. Alls voru 818 á aldrinum 18-24 ára atvinnulausir í lok ágúst eða um 14,5% allra atvinnulausra í ágústlok en 887 í lok júlí og fækkar því um 69 milli mánaða. Í lok ágúst 2013 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 1.003 og hefur því fækkað um 185 milli ára í þessum aldurshópi. 4,8 4,9 5,2 5,4 5,7 5,5 5,5 5,3 4,9 4,3 3,9 3,9 4,0 3,8 3,9 4,1 4,2 4,5 4,5 4,5 4,1 3,6 3,2 3,1 3,1 0% 1% 2% 3% 4% 5% 6% 7% 8% 9% 10% ág. sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apr. maí júní júlí ág. sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apr. maí júní júlí ág. Skráð atvinnuleysi ágúst 2012 til ágúst 2014 2013 2014 2012
14
Embed
Ágúst 2014 Skráð atvinnuleysi ágúst 2012 til ágúst 2014 3 ,1 3 ,1 · 2014. 11. 13. · Tafla B2 - Gjaldþrot í ágúst og heildartölur árin 2013 og 2012 ágúst 2014 júlí
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.
Transcript
1
Staða á vinnumarkaði Ágúst 2014
12. september 2014
Nr. 8/2014
Almennt yfirlit
Skráð atvinnuleysi í ágúst 2014 var 3,1%, en að meðaltali voru 5.422 atvinnulausir í ágúst og fækkaði
atvinnulausum um 161 að meðaltali frá júlí en hlutfallstala atvinnuleysis breyttist ekki.
Í ágúst fækkaði atvinnulausum körlum um 54 frá júlí en að meðaltali voru 2.374 karlar á
atvinnuleysisskrá og 3.048 konur en atvinnulausum konum fækkaði um 107 frá júlí og var
atvinnuleysið 2,5% meðal karla og 3,8% meðal kvenna. Atvinnulausum fækkaði að meðaltali um
115 á höfuðborgarsvæðinu og var 3,5% í ágúst en var 2,3% á landsbyggðinni en þar fækkaði
atvinnulausum um 46 frá júlí. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 4,5%. Minnst var atvinnuleysið
á Norðurlandi vestra, 1,2%.
Fjöldi í vinnumarkaðsúrræðum
Í ágúst voru samtals 360 einstaklingar skráðir í vinnumarkaðsúrræði. Þessi úrræði eru greidd af
Atvinnuleysistryggingasjóði, en viðkomandi einstaklingar eru í vinnu og teljast því ekki með í
atvinnuleysistölum. Þeir skiptust þannig að 280 voru í starfsþjálfun eða hefðbundnum
átaksverkefnum, 9 á reynsluráðningu og 31 í sérstökum átaksverkefnum, 22 voru í frumkvöðlastarfi
innan fyrirtækja eða stofnana. Þá voru 18 einstaklingar í starfsþjálfun í Fjölsmiðjunni.
Fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar
Alls voru 5.635 manns atvinnulausir í lok ágúst. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar
5.113. Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði samfellt er nú 3.100, fækkaði
um 137 frá júlí og eru um 55% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá í ágúst. Fjöldi þeirra sem verið hafa
atvinnulausir í meira en eitt ár samfellt var 1.621 í ágústlok, en 1.654 í júlílok og fækkar því um 33
milli mánaða.
Alls voru 818 á aldrinum 18-24 ára atvinnulausir í lok ágúst eða um 14,5% allra atvinnulausra í
ágústlok en 887 í lok júlí og fækkar því um 69 milli mánaða. Í lok ágúst 2013 var fjöldi atvinnulausra
ungmenna 1.003 og hefur því fækkað um 185 milli ára í þessum aldurshópi.
4,8 4,95,2 5,4 5,7 5,5 5,5 5,3
4,94,3
3,9 3,9 4,0 3,8 3,9 4,1 4,24,5 4,5 4,5
4,13,6
3,2 3,1 3,1
0%
1%
2%
3%
4%
5%
6%
7%
8%
9%
10%
ág. sept.okt. nóv. des. jan. feb. mars apr. maí júní júlí ág. sept.okt. nóv. des. jan. feb. mars apr. maí júní júlí ág.
Skráð atvinnuleysi ágúst 2012 til ágúst 2014
2013 20142012
0
3
2
Útlendingar á atvinnuleysisskrá
Alls voru 1.065 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok ágúst, þar af 614 Pólverjar eða um 58% þeirra
útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Flestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru síðast
starfandi í gistinga og veitingagreinum 165 og 149 í þjónustu ýmis konar.
Laus störf
Alls voru 307 laus störf í almennri vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í lok ágúst, flest eða 126 fyrir
þjónustu og umönnunarfólk og 105 fyrir ósérhæft starfsfólk.
Auk lausra starfa hjá Vinnumálastofnun voru 45 störf laus á Starfatorgi í lok ágúst, sem ekki eru
sérstaklega miðluð af Vinnumálastofnun, flest sérfræðistörf eða 36 .
Hlutastörf
Samtals voru 468 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok ágúst í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í
reglubundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tímabundið starf á síðasta skráningardegi í ágúst
Þetta eru 8% af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok ágúst.
Hópuppsagnir og gjaldþrot
Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í ágúst þar sem 12 manns var sagt upp
störfum. Alls fengu 24 launamenn greitt úr Ábyrgðarsjóði launa í ágúst flestir í þjónustustarfsemi
ýmis konar eða 12.
Námskeið og almenn úrræði fyrir atvinnuleitendur Alls voru 257 atvinnuleitendur í námi, á námskeiðum, í grunnúrræðum eða í atvinnutengdum úrræðum í ágúst. Af þeim voru 72 í grunnúrræðum, sem yfirleitt eru stutt námskeið og fjölbreytileg, t.d. námskeið í ferilskrárgerð, starfsleit eða sjálfsstyrkingu og þátttaka í náms- eða vinnuklúbbum og smiðjum. Þá voru 49 einstaklingar í atvinnutengdum úrræðum, s.s. atvinnutengdri endurhæfingu eða þróun eigin viðskiptahugmyndar. Þá voru 74 einstaklingar í ýmis konar námskeiðum, s.s. tungumálanámskeiðum, vinnuvélanámskeiðum og tölvunámskeiðum og 62 einstaklingar voru skráðir í lengra nám og námsleiðir á framhalds- og háskólastigi.
Horfur á vinnumarkaði í september
Almennt breytist atvinnuleysi lítið milli ágúst og september en oftar minnkar það enn m.a. vegna
skólafólks sem fer aftur af vinnumarkaði og í skóla. Í fyrra minnkaði skráð atvinnuleysi úr 4% í ágúst í
3,8% í september. Gera má ráð fyrir því að skráð atvinnuleysi í september verði svipað eða litlu minna
en í ágúst og á bilinu 2,9% til 3,2%.
Mæling á skráðu atvinnuleysi
Í ágústmánuði síðastliðnum voru 113.928 atvinnuleysisdagar skráðir á landinu öllu sem jafngildir því
að 5.422 manns hafi að meðaltali verið atvinnulausir í mánuðinum. Mannafli á vinnumarkaði skv.
áætlun Vinnumálastofnunar var 173.669 í ágúst 2014. Mannaflaspáin byggist á upplýsingum um
mannfjölda 2013 og upplýsingum úr vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar 2013 með tilliti til áætlaðrar
atvinnuþátttöku á árinu 2014 og árstíðarsveiflu í atvinnuþátttöku. Skráð atvinnuleysi er mælt á þann
veg að fjöldi atvinnuleysisdaga er umreiknaður í meðalfjölda einstaklinga, þar sem allir dagar í
hverjum mánuði eru taldir nema laugardagar og sunnudagar og útkomunni deilt í áætlaðan mannafla