Top Banner
Fimmtudagur 22. september 2011 www.eystrahorn.is Eystrahorn 33. tbl. 29. árgangur www.eystrahorn.is Miðvikudagskvöldið 5. október næstkomandi verður haldið íbúaþing í Mánagarði með yfirskriftinni „Hornafjörður – heilsueflandi bær“. Íbúaþingið stendur yfir frá kl. 18-22 og verður þátttakendum boðið upp á léttan kvöldverð áður en vinnan hefst. Þingið er opið öllum Hornfirðingum, frá 14 ára aldri og upp úr. Fyrirkomulag þess verður með svipuðu sniði og á stóra íbúaþinginu í febrúar síðastliðnum. Megintilgangur þingsins er að skapa vettvang fyrir heildstæða umræðu um lýðheilsu- og forvarnarmál í samfélaginu okkar hér á Hornafirði. Þar verður m.a. leitað svara við spurningunum: Hvar við stöndum í dag, hvert við viljum stefna í nánustu framtíð og hvað þurfum við – bæði hvert og eitt og sem samfélag – að gera til að komast þangað? Háskólasetrið heldur utan um íbúaþingið í samvinnu við fjölmarga aðila sem til samans mynda bakhóp þess: FAS, Grunnskólann, Tónskólann, Krakkakot, Lönguhóla, Sindra, HSSA , Sveitarfélagið og Forvarnarhópinn. Allir ofangreindir aðilar hafa einsett sér að nýta niðurstöður þingsins bæði til þess að efla eigið starf að heilsu- og forvarnarmálum og til þess að geta samþætt það starf enn frekar við það sem aðrir aðilar í samfélaginu eru að gera. Frumkvæði íbúaþinginu kemur frá Forvarnarhópnum en s.l. vor komu fulltrúar hans á fund Háskólasetursins og óskuðu eftir liðsinni setursins við að skipuleggja þing um forvarnarmál í sveitarfélaginu. Eftir því sem umræðan þróaðist lengra og fleiri aðilar komu að henni varð niðurstaðan sú að leggja megináhersluna á almenna lýðheilsu hjá íbúum sveitarfélagsins en þar skipta forvarnir að sjálfsögðu miklu máli ásamt næringu, hreyfingu, geðrækt, samveru og fleiri þáttum. Skráning á þingið hefst fimmtudaginn 22. september 2011 í síma 470-8000 frá kl. 9-15 eða hjá [email protected] og lýkur föstudaginn 30. september 2011. Hornfirðingar eru hvattir til þess að fjölmenna á þingið og láta rödd sína heyrast. Hornafjörður – heilsueflandi bær Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús
8

Eystrahorn 33. tbl. 2011

Mar 01, 2016

Download

Documents

Eystrahorn 33. tbl. 2011
Welcome message from author
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.
Transcript
Page 1: Eystrahorn 33. tbl. 2011

Fimmtudagur 22. september 2011 www.eystrahorn.is

Eystrahorn33. tbl. 29. árgangur www.eystrahorn.is

Miðvikudagskvöldið 5. október næstkomandi verður haldið íbúaþing í Mánagarði með yfirskriftinni „Hornafjörður – heilsueflandi bær“. Íbúaþingið stendur yfir frá kl. 18-22 og verður þátttakendum boðið upp á léttan kvöldverð áður en vinnan hefst. Þingið er opið öllum Hornfirðingum, frá 14 ára aldri og upp úr. Fyrirkomulag þess verður með svipuðu sniði og á stóra íbúaþinginu í febrúar síðastliðnum.Megintilgangur þingsins er að skapa vettvang fyrir heildstæða umræðu um lýðheilsu- og forvarnarmál í samfélaginu okkar hér á Hornafirði. Þar verður m.a. leitað svara við spurningunum: Hvar við stöndum í dag, hvert við viljum stefna í nánustu framtíð og

hvað þurfum við – bæði hvert og eitt og sem samfélag – að gera til að komast þangað? Háskólasetrið heldur utan um íbúaþingið í samvinnu við fjölmarga aðila sem til samans mynda bakhóp þess: FAS, Grunnskólann, Tónskólann, Krakkakot, Lönguhóla, Sindra, HSSA , Sveitarfélagið og Forvarnarhópinn. Allir ofangreindir aðilar hafa einsett sér að nýta niðurstöður þingsins bæði til þess að efla eigið starf að heilsu- og forvarnarmálum og til þess að geta samþætt það starf enn frekar við það sem aðrir aðilar í samfélaginu eru að gera.Frumkvæði að íbúaþinginu kemur frá Forvarnarhópnum en s.l. vor komu fulltrúar hans á fund Háskólasetursins og óskuðu

eftir liðsinni setursins við að skipuleggja þing um forvarnarmál í sveitarfélaginu. Eftir því sem umræðan þróaðist lengra og fleiri aðilar komu að henni varð niðurstaðan sú að leggja megináhersluna á almenna lýðheilsu hjá íbúum sveitarfélagsins en þar skipta forvarnir að sjálfsögðu miklu máli ásamt næringu, hreyfingu, geðrækt, samveru og fleiri þáttum. Skráning á þingið hefst fimmtudaginn 22. september 2011 í síma 470-8000 frá kl. 9-15 eða hjá [email protected] og lýkur föstudaginn 30. september 2011.Hornfirðingar eru hvattir til þess að fjölmenna á þingið og láta rödd sína heyrast.

Hornafjörður – heilsueflandi bær

Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús

Page 2: Eystrahorn 33. tbl. 2011

2 EystrahornFimmtudagur 22. september 2011

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonAðstoð: ................ Ásta ÁsgeirsdóttirPrentun: ............. Leturprent

ISSN 1670-4126

Arnar Þór Guðjónsson háls-, nef- og eyrnalæknir verður með stofu 29. og 30. septemberTímapantanir í síma 470-8600 virka daga. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.

Garðyrkjufélag Íslands er opið öllum sem áhuga hafa á garðyrkju, gróðri og ræktun, sem vilja fegra umhverfi sitt og deila áhuga sínum með öðrum. Innan félagsins starfa deildir víðsvegar um landið og hér í Hornafirði var deildin Þyrnirós starfandi til langs tíma. Svæðisdeildir hafa staðið fyrir garðagöngum, plöntuskiptum, fyrirlestrum og fleiru á sínu svæði. Nú viljum við vekja Þyrnirós aftur úr dvala sínum og verður endurstofnunarfundur á Hótel Höfn þriðjudaginn 4. október n.k. kl.19.30. Allir félagar Garðyrkjufélags Íslands á svæðinu eru sjálfkrafa skráðir í deildina og nýir félagar eru velkomnir, hægt er að skrá sig í félagið á fundinum eða á heimasíðu félagsins www.gardurinn.is Þar eru einnig upplýsingar um félagið, klúbba innan þess og ýmislegur fróðleikur um gróður. Áhugasamir sem tilbúnir eru að gefa kost á sér í stjórn deildarinnar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu Garðyrkjufélags Íslands í síma 522-7721 eða á netfangið [email protected]. Í tengslum við endurstofnfundinn verður Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur og ávaxtatrjáaræktandi á Akranesi með fyrirlestur um ræktun ávaxtatrjáa á Íslandi. Ávaxtaklúbbur er starfandi innan GÍ og eru félagar í klúbbnum nú að undirbúa pöntun á plöntum sem gróðursetja á næsta vor. Aðgangseyrir er 500 kr fyrir félagsmenn og maka, en 1.000 kr fyrir aðra á fyrirlesturinn.

UPPSKERUHÁTÍÐ MARKAÐSSTOFU SUÐURLANDSMarkaðsstofa Suðurlands býður ferðaþjónustufyrirtækjum sem eru aðilar að markaðsstofunni á Uppskeruhátið 28. október n.k. á Hótel Hvolsvelli.

Hátíðargestur er Ólöf Ýr Atladóttir ferðamálastjóri og veislustjóri verður Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri Rangárþingi eystra.

Sjá nánari dagskrá á www.markadsstofa.is

Mætum og sýnum samstöðu, skemmtum okkur saman.

Skráning [email protected] eða í síma 483 5555

AtvinnaÓska eftir röskum starfsmanni í brettasmíðiUpplýsingar gefur Bjössi í síma 893 5444

Íbúð til leigu84 fm. íbúð til leigu. Er laus strax.Upplýsingar í síma 478-2110

Þyrnirós vaknar á ný

Bifreiðaskoðun á Höfn 3., 4. og 5. október

Tímapantanir í síma 570 9090 fyrir kl. 16:00 föstudaginn 30. september.

Næsta skoðun 14., 15. og 16. nóvember.

Þegar vel er skoðað

Uppskera úr Lóninu

Page 3: Eystrahorn 33. tbl. 2011

3Eystrahorn Fimmtudagur 22. september 2011

Aflabrögð 12. - 18. septemberNeðangreindar upplýsingarnar eru um veiðafæri, fjölda landana,heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.Sigurður Ólafsson SF 44 .... humarv ..... 1 .... 14,7 blandaður afliSkinney SF 20 ..................... humarv ..... 1 .... 43,9 humar 4,6Þórir SF 77 .......................... humarv ..... 1 .... 43,0 humar 5,5Steinunn SF 10 .................... botnv ......... 2 .. 107,2 ýsa 61,7Guðmundur Sig SU 650 ..... lína ............. 5 .... 32,2 þorskur 21,1Ragnar SF 550 ..................... lína ............. 6 .... 36,8 hýsa/þorskurDögg SU 118 ....................... lína ............. 5 .... 62,7 þorskur 52,8Auðunn SF 48 ..................... handf ......... 1 ...... 0,7 ufsi 0,5Herborg SF 69 .................... handf ......... 2 ...... 1,2 ufsi/þorskurHúni SF 17 .......................... handf ......... 1 ...... 0,6 þorskur 0,4Siggi Bessa .......................... handf ......... 1 ...... 0,5 ufsi 0,4Stígandi SF 72 ..................... handf ......... 1 ...... 0,8 þorskur 0,5

Heimild: www.fiskistofa.is

Umboðsaði l i

Þann 11. september fór fram verðlaunaafhending Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda en hún var haldin í 20. sinn. Athöfnin fór fram í höfuðstöðvum Marel, sem verið hefur bakhjarl keppninnar frá upphafi. 40 hugmyndir voru valdar úr þeim 1.872 sem bárust frá 46 grunnskólum víða um land en 12 hugmyndir af þeim voru verðlaunaðar. Einn nemandi úr Grunnskóla Hornafjarðar, Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir í 6. bekk var ein af þessum 40. Guðrún Ása fór suður og tók þátt í smiðju þar sem hún bjó til kynningarplakat og hlutinn sem hún hannaði en það er forláta tertuskeri. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaunin og flutti hátíðarávarp. Mennta- og menningarmálaráðherra Svandís Svavarsdóttir, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur sjálfir hugmyndir sínar fyrir gestum.

www.hornafjordur.is/grunnskoli

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda

Boðað er til félagsfundar í Ríki Vatnajökuls ehf þriðjudaginn 27. september kl. 20:00

í fyrirlestrarsal Nýheima.Dagskrá

Skýrsla stjórnar um starfið frá aðalfundi•

Afhending verðlauna í ljósmyndasamkeppninni • Myndaðu Ríki Vatnajökuls

Starfsemi Íslandsstofu kynnt - Hermann Ottósson • framkvæmdastjóri þróunarsviðs Íslandsstofu

Gerð svæðisbundinna heimasíðna á netinu • og markaðssetning þeirra Gunnar Thorberg Internet markaðsráðgjafi

Allir eru velkomnir

RÝMINGARÚTSALA

50 - 70 % afslátturOpið virka daga kl. 10:00 - 18:00 og laugardaga kl. 13:00 - 15:00

VERSLUN STEINGRÍMS, Skólabrú 2

Felix Gíslason hefur verið valinn í 17 ára unglingalandsliðið í blaki. Blaðið hafði samband við kappann og sagðist honum svo frá. Liðið tekur þátt í Norðurlandamótinu núna sem fer fram í Svíþjóð. Mér finnst þetta mikill heiður og ég er mjög spenntur að taka þátt í þessu verkefni enda búið að vera draumur minn síðan ég var smá polli að komast í eitthvert landslið. Þetta kom þannig til að við Kolbrún Birna Ólafsdóttir vorum valin til að taka þátt í afrekshópi þar sem valið fór fram. Kolbrún Birna var svo óheppin að vera meidd og geta ekki beitt sér sem skyldi og verður að bíða að þessu sinni. Þar sem ég verð sjálfur að standa straum af kostnaði við ferðina hefur verið leitað til ýmissa aðila hér með styrki og er ég mjög þakklátur fyrir hvað það hefur gengið vel. Ég vil fá að þakka þjálfurum mínum Huldu Laxdal, Róbert, Sævari Þór og Brynjúlfi fyrir alla kennsluna og stuðninginn svo og félögum mínum því þetta er svo góður félagsskapur. Felix hefur stundað æfingar samviskusamlega og á örugglega eftir að standa sig vel og honum fylgja óskir um gott gengi.

Landsliðsmaður

Page 4: Eystrahorn 33. tbl. 2011

4 EystrahornFimmtudagur 22. september 2011

Dagana 23. og 24. september nk. mun Kiwanisumdæmið Ísland-Færeyjar halda sitt 41. umdæmisþing á Höfn í Hornafirði. Til þings eru skráðir 140 fulltrúar sem hafa atkvæðisrétt en á milli 150-160 Kiwanifélagar verða á þingi, en talið er að gestir á Höfn á vegum hreyfingarinnar verði um 300. Sérstakir gestir þingsins eru Jerome Hennekens Evrópuforseti, Paul Mannes umdæmisstjóri Norden og Oscar Knight sérlegur ráðgjafi umdæmisins Ísland-Færeyjar. Núverandi umdæmisstjóri er Óskar Guðjónsson Kiwanisklúbbnum Eldey og lætur hann nú af störfum eftir tveggja ára setu, viðtakandi umdæmisstjóri er Ragnar Örn Pétursson úr Kiwanisklúbbnum Keili í Keflavík. Það sem ber einna hæst á þessu þingi, er að í fyrsta skipti í sögu hreyfingarinnar verður kona, Hjördís Harðardóttir, kjörumdæmisstjóri, og mun hún taka við að ári liðnu sem umdæmisstjóri. Þá verður kynning á nýju heimsverkefni þar sem Kiwanis hyggst safna 110 millj. USD fyrir Eliminate-verkefnið til að útrýma ungbarnastífkrampa

Kiwanisþing

Sundleikfimin hefst á ný fimmtudaginn 22. september kl. 10:30

Vinsamlega athugið breyttan tíma

Félag eldri hornfirðinga

Sundleikfimi

Hinn árlegi haustfundur Félags eldri Hornfirðinga

verður haldinn í Ekru sunnudaginn 25. september nk. kl. 15:00

Kaffi og meðlæti að venju

Félagsstjórnin

Haustfundur

ATVINNANorðlenska auglýsir eftir verktaka í svíðningu í sláturhúsi fyrirtækisins á Höfn.

Sláturtíð hófst 20. september og stendur til 28. október nk.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Karlsson vinnslustjóri í síma 840 8870.

Umsóknir skulu berast Jónu Jónsdóttur, starfsmannastjóra í síma 840 8805 eða á netfangið [email protected].

Ætlum að hafa opið til kl. 21:00 fimmtudaginn

22. september og bjóða uppá

15% afsláttaf öllum vörum

þann dag

Verið velkominATH

Opið á laugardag kl. 13:00 - 15:00

Vetraropnunartími Heimamarkaðsbúðarinnar

FISKIDAGAR á þriðjudögum og miðvikudögum, opið kl.15:00 - 18:00

Opið á laugardögum kl.13:00 - 16:00.

Ýmsir skemmtilegir viðburðir framundan, nánar auglýst síðar.

Kiwanisklúbbarnir stuðla að ýmsum góðum verkefnum og málum.

Page 5: Eystrahorn 33. tbl. 2011

5Eystrahorn Fimmtudagur 22. september 2011

Afmælishátíð Skinneyjar-Þinganess á laugardaginn tókst vel og eru forráðamenn fyrirtækisins ánægðir með daginn. Á fimmta hundrað gesta komu í heimsókn og kynntu sér starfsemi fyrirtækisins og þáðu veitingar. Þorvarður Árnason hjá Háskólasetrinu og Daníel Imsland sáu um kynningarefni sem greinilega vakti áhuga gestanna og Ingólfur á Kaffihorninu sá um veitingar. Svo sáu tvíburarnir Bragi og Andri harmonikkuleikarar um að sjómannalögin hljómuðu á svæðinu. Forráðamenn Skinneyjar-Þinganess vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem komu að undirbúningi og framkvæmd afmælisdagskrárinnar svo og þeim fjölmörgu gestum sem heimsóttu fyrirtækið þennan dag.

Mikill fjöldi kom í heimsókn

Page 6: Eystrahorn 33. tbl. 2011

6 EystrahornFimmtudagur 22. september 2011

Vinningar í síðsumarhappdrætti Sindra komu á eftirtalin númer:Sjónvarp Philips 42“ frá Nettó á miða nr 2701. Kvöldverður og gisting með morgunmat f/2 á Hótel Flúðum á 2. miða nr 594Myndavél Pnanasonic ZX3 frá Heimilstækjum á miða nr 4713. Úttekt í Húsasmiðjunni á miða nr 5854. Flug með Erni Höfn- Rvk-Höfn á miða nr 4345. Flug með Erni Höfn- Rvk-Höfn á miða nr 5546. Hoppukastali í einn sólahring frá Hopp á miða nr 4887. Humarveisla fyrir 2 á Kaffi Horninu á miða nr 2438. Úttekt í Sportex á miða nr 2109. Úttekt í Sportex á miða nr 12210. 15 miða kort í sundlaug Hornafjarðar á miða nr 41711. Minniskubbur frá Martölvunni á miða nr 41612. Minniskubbur frá Martölvunni á miða nr 23613. Minniskubbur frá Martölvunni á miða nr 50514. Minniskubbur frá Martölvunni á miða nr 31115. 16“ pizza frá Trölla á miða nr 45516. 16“ pizza frá Trölla á miða nr 12017. 16“ pizza frá Trölla á miða nr 49118. 16“ pizza frá Trölla á miða nr 41519. 16“ pizza frá Trölla á miða nr 55820.

Vinningshafar geta haft samband við framkvæmdastjóra Sindra í síma 8686865 eða á Hafnarbraut 25 og fengið afhentan vinning sinn gegn framvísun vinningsmiðans.Knattspyrnudeild Sindra þakkar öllum sem tóku þátt með því að kaupa miða og óskar vinninghöfum til hamingju.

Happdrætti Sindra

OPIÐ HÚSOpið hús verður hjá Rauða krossinum að Víkurbraut 2 laugardaginn 1. október frá kl. 13 -15.

Aðalfundur Karlakórsins Jökuls verður haldinn í Safnaðarheimili Hafnarkirkju

mánudaginn 3. október kl. 20:00Venjuleg aðalfundarstörf

Kórinn auglýsir eftir söngmönnum í allar raddir

Fatasaumur - barnaföt18. kennslustundir • Verð kr. 24.000.-

Í þessum áfanga verður farið í saum á barnafötum og saumað pils/buxur og hettupeysa.

Nemendur ná góðum tökum á saumaferlinu sem nýtist áfram við alhliða saumaskap á öðrum flíkum.

Efni ekki innifalið

Kennt í handmenntastofu Grunnskóla Hornafjarðar

26., 28. september, 3. og 5. október kl. 16:00 - 19:00

Leiðbeinandi: Unnur Garðarsdóttir

Dalshraun 13 • 220 Hafnarfjörður • Sími 565 0000Fax 555 3332 • [email protected] • www.glerborg.is

SÍMI: 565 0000

PVC-uGLUGGARHURÐAROG GLERÁ Íslandi er síbreytileg veðrátta alþekkt.Þess vegna ættu Íslendingar að veljavandaðar byggingavörur sem standast erfið veðurskilyrði og krefjast lágmarks viðhalds.

Komdu við á söluskrifstofu okkar að Dalshrauni 13í Hafnarfirði og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu.Við bjóðum upp á greiðsluskilmála við allra hæfi.

Öll framleiðsla fyrir Glerborg er CE vottuð

Aðalsteinn Aðalsteinsson og Elísabet Einarsdóttir taka við fyrsta vinningnum úr hendi Gunnars Inga knattspyrnukappa.

Page 7: Eystrahorn 33. tbl. 2011

Kjaramálaráðstefna Verkamanna-deildar AFLs StarfsgreinafélagsHótel Framtíð – Djúpavogi – 30. sept. – 1. okt.

Föstudagur 30. septemberkl. 15:45 – Fundargögn afhent.kl. 16:00 – Setning ráðstefnu – Jóna Járnbrá Jónsdóttir, formaður Verkamannadeildar.kl. 16:10 – Ávarp – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLskl. 16:20 – Evrópusambandsumræðan – Skúli Thoroddsen.kl. 16:40 – Kaffihlékl. 17:00 – Hinn íslenski launamaður og EB – Guðmundur Gunnarsson, fyrrv. formaður RSÍkl. 17:30 – Framtíðarsýn í landbúnaði – innan EB eða utan – Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslandskl. 18:00 – Kaffihlékl. 18:10 – Vinnuhópar (vinnuhópar skipa ritnefnd ályktunartillögu)kl. 19:10 – Fundarhlékl. 19:30 – Langabúð opnar – fordrykkur – Tónlist til skemmtunarkl. 20:00 – Kvöldverður í boði AFLs Starfsgreinafélags

Laugardagur 1. októberkl. 08:00 – Morgunverður kl. 09:00 – Þróun peningamála, málefni neytenda og húsnæðismál. Breytir aðild að EB einhverju?– Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍkl. 10:00 – Kaffihlékl. 10:30 - Umræðuhóparkl. 12:15 – Hádegisverður kl. 13:00 – Félagsfundur AFLs Starfsgreinafélags 1. Kjör fulltrúa á þing SGS 2. Önnur málkl. 13:20 – Pallborð Guðmundur Gunnarsson Erna Bjarnadóttir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri SVN Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs Ólafur Darri Andrason – hagfræðingur ASÍ - Stjórnandi Skúli Thoroddsen

kl. 14:00 – Líkamsæfingarkl. 14:15 – Ritnefnd kynnir ályktunartillögukl. 15:00 – Umræðurkl. 15:30 – Ályktunartillaga borin upp.Kl. 15:45 – Ráðstefnuslit.kl. 16:00 – Óvissudagskrákl. 18:30 – Komið til Djúpavogs – léttar veitingar í Sambúð - heimferð

Skráning hjá [email protected] – síma 4700 303.

Ath. gisting á Djúpavogi í boði félagsins á meðan húsrúm í hótelinu leyfir. Félagið mun

skipuleggja ferðir frá öllum þéttbýlisstöðum á félagssvæðinu eins og tilefni verður til.

Vinsamlega verið í sambandi við starfsmann AFLs, Gunnar Smára, í ofangreindu síma-

númeri vegna ferða og/eða gistingar.

Page 8: Eystrahorn 33. tbl. 2011