Fimmtudagur 8. júlí 2010 Eystrahorn Eystrahorn 27. tbl. 28. árgangur Næsta blað kemur út 12. ágúst Heimsmeistarar frá upphafi: 2009 Hrefna Laufey Kristmundsdóttir, Fáskrúðsfirði 2008 Þorbergur Torfason, Hala í Suðursveit 2007 Halldór Pétursson, Reykjavík 2006 Magnús Hjartarson, Reykjavík 2005 Páll Hermannsson, Reykjavík 2004 Björn Arnarson, Reynivöllum í Suðursveit 2003 Birgir Björnsson, Höfn 2002 Gísli Jóhannsson, Brunnum í Suðursveit 2001 Hildur Steindórsdóttir, Hvammi í Lóni 2000 Margrét Eyjólfsdóttir, Höfn 1999 Margrét Eyjólfsdóttir, Höfn 1998 Örn Þór Þorbjörnsson, Höfn HM í HM Föstudaginn 2. júlí var sýningin Svavar Guðnason, Rökræður hugans opnuð í Nýheimum. Af þessu tilefni afhenti Karl Ómar Jónsson sveitarfélaginu formlega gjöf úr dánarbúi Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars en hún lést í febrúar 2008. Áður hafði Ásta fært sveitarfélaginu fjölda verka eftir Svavar auk þess sem aðrir hafa gefið verk hans til Hornafjarðar. Ásta hélt áfram að tryggja hag Svavars eftir andlát hans og lagði mikla áherslu á að æviverki hans yrði sýndur sá sómi sem hann og þau bæði eiga skilið. Verkin sem færð eru sveitarfélaginu nú eru olíuverk og vatnslitamyndir auk teikninga, krítarmynda og skissubóka, samtals um 130 verk. Auk listaverka fylgdi gjöfinni munir úr búi þeirra hjóna, sófi frá foreldrum Svavars, bækur og munir tengdir starfi hans og ævi. Fyrir átti sveitarfélagið um 130 verk og heildarfjöldi því um 260 verk eftir Svavar Guðnason. Gjöf Ástu til Hornfirðinga er grunnur að myndarlegu safni um ævi og störf Svavars og ber gjöfin vitni þeirri umhyggju sem hún bar fyrir manni sínum, arfleifð hans og heimasveit þar sem verkin eiga hvar best heima. Vorið 2011 stendur til að opna sýningasal þar sem verk Svavars verða til sýnis auk þess sem sýningar verða settar upp með verkum annarra listamanna í fortíð og nútíð. Á sýningunni í Nýheimum má skoða margt það sem fylgdi málverkagjöfinni auk þess sem hægt er að horfa á heimildamyndir og viðtalsþætti við Svavar. Sýningin verður opin á opnunartíma Bókasafnsins til loka ágúst. Mikil ánægja er hvernig til tókst með humarhátíðina í ár. Allir sem blaðið hefur haft samband við, jafnt þeir sem stóðu að hátíðinni og atriðum sem og almennir þátttakendur telja að hátíðin hafi farið einstaklega vel fram. Valdimar Einarsson framkvæmdastjóri hátíðarinnar hafði þetta að segja; Hátíðin gekk ljómandi vel þrátt fyrir rigninguna og að dagskráin riðlaðist aðeins vegna þess. Allir viðburðir voru vel sóttir enda góð og vönduð dagskrá. Það var greinilegt að fólk var í hátíðarskapi og ekki þurfti að hafa afskipti af neinum á 700 manna balli í íþróttahúsinu. Það er alveg óhætt að hrósa unga fólkinu framkomu þess þegar á heildina er litið. Starfsfólk tjaldstæðins á sömuleiðis hrós skilið hvernig það tók á málum og leysti mál þeirra sem lentu í vandræðum vegna bleytu. Skreytingarnar vöktu athygli og það má búast við að humarliturinn verði áfram einkennislitur hátíðarinnar á næstu árum. Fjórtánda Heimsmeistaramótið í HornafjarðarMANNA fór fram á Humarhátíðinni. Yfir 100 keppendur mættu til leiks. Aldrei fyrr hefur úrlitakeppnin verið jafn spennandi og í ár. Í níumanna úrslitum voru allir jafnir á tveimur borðum af þremur og þurfti að spila bráðabana til að fá úrslit. Í lokarimmunni milli þriggja spilara fór Gunnar Ásgeirsson, Höfn með sigur af hólmi, annar varð Magnús Sigurðsson , Reykjavík og Björn Ólafsson Suðursveitungur og fyrrverandi Hornafjarðarmeistari varð í þriðja sæti. F.v. Magnús Sigurðsson, Gunnar Ásgeirsson og Björn Ólafsson. Hjalti Þór Vignisson og Karl Ómar Jónsson við afhendingu gjafarinnar. Dýrmæt gjöf Vel heppnuð Humarhátíð
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.
Transcript
Fimmtudagur 8. júlí 2010 Eystrahorn
Eystrahorn27. tbl. 28. árgangur
Næsta blað kemur út 12. ágúst
Heimsmeistarar frá upphafi:2009 Hrefna Laufey Kristmundsdóttir, Fáskrúðsfirði2008 Þorbergur Torfason, Hala í Suðursveit2007 Halldór Pétursson, Reykjavík2006 Magnús Hjartarson, Reykjavík2005 Páll Hermannsson, Reykjavík2004 Björn Arnarson, Reynivöllum í Suðursveit2003 Birgir Björnsson, Höfn2002 Gísli Jóhannsson, Brunnum í Suðursveit2001 Hildur Steindórsdóttir, Hvammi í Lóni2000 Margrét Eyjólfsdóttir, Höfn1999 Margrét Eyjólfsdóttir, Höfn1998 Örn Þór Þorbjörnsson, Höfn
HM í HM
Föstudaginn 2. júlí var sýningin Svavar Guðnason, Rökræður hugans opnuð í Nýheimum. Af þessu tilefni afhenti Karl Ómar Jónsson sveitarfélaginu formlega gjöf úr dánarbúi Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars en hún lést í febrúar 2008. Áður hafði Ásta fært sveitarfélaginu fjölda verka eftir Svavar auk þess sem aðrir hafa gefið verk hans til Hornafjarðar. Ásta hélt áfram að tryggja hag Svavars eftir andlát hans og lagði mikla áherslu á að æviverki hans yrði sýndur sá sómi sem hann og þau bæði eiga skilið. Verkin sem færð eru sveitarfélaginu nú eru olíuverk og vatnslitamyndir auk teikninga, krítarmynda og skissubóka, samtals um 130 verk. Auk listaverka fylgdi gjöfinni munir úr búi þeirra hjóna, sófi frá foreldrum Svavars, bækur
og munir tengdir starfi hans og ævi. Fyrir átti sveitarfélagið um 130 verk og heildarfjöldi því um 260 verk eftir Svavar Guðnason. Gjöf Ástu til Hornfirðinga er grunnur að myndarlegu safni um ævi og störf Svavars og ber gjöfin vitni þeirri umhyggju sem hún bar fyrir manni sínum, arfleifð hans og heimasveit þar sem verkin eiga hvar best heima. Vorið 2011 stendur til að opna sýningasal þar sem verk Svavars verða til sýnis auk þess sem sýningar verða settar upp með verkum annarra listamanna í fortíð og nútíð. Á sýningunni í Nýheimum má skoða margt það sem fylgdi málverkagjöfinni auk þess sem hægt er að horfa á heimildamyndir og viðtalsþætti við Svavar. Sýningin verður opin á opnunartíma Bókasafnsins til loka ágúst.
Mikil ánægja er hvernig til tókst með humarhátíðina í ár. Allir sem blaðið hefur haft samband við, jafnt þeir sem stóðu að hátíðinni og atriðum sem og almennir þátttakendur telja að hátíðin hafi farið einstaklega vel fram. Valdimar Einarsson framkvæmdastjóri hátíðarinnar hafði þetta að segja; Hátíðin
gekk ljómandi vel þrátt fyrir rigninguna og að dagskráin riðlaðist aðeins vegna þess. Allir viðburðir voru vel sóttir enda góð og vönduð dagskrá. Það var greinilegt að fólk var í hátíðarskapi og ekki þurfti að hafa afskipti af neinum á 700 manna balli í íþróttahúsinu. Það er alveg óhætt að hrósa unga fólkinu
framkomu þess þegar á heildina er litið. Starfsfólk tjaldstæðins á sömuleiðis hrós skilið hvernig það tók á málum og leysti mál þeirra sem lentu í vandræðum vegna bleytu. Skreytingarnar vöktu athygli og það má búast við að humarliturinn verði áfram einkennislitur hátíðarinnar á næstu árum.
Fjórtánda Heimsmeistaramótið í HornafjarðarMANNA fór fram á Humarhátíðinni. Yfir 100 keppendur mættu til leiks. Aldrei fyrr hefur úrlitakeppnin verið jafn spennandi og í ár. Í níumanna úrslitum voru allir jafnir á tveimur borðum af þremur og þurfti að spila bráðabana til að fá úrslit.
Í lokarimmunni milli þriggja spilara fór Gunnar Ásgeirsson, Höfn með sigur af hólmi, annar varð Magnús Sigurðsson , Reykjavík og Björn Ólafsson Suðursveitungur og fyrrverandi Hornafjarðarmeistari varð í þriðja sæti.
F.v. Magnús Sigurðsson, Gunnar Ásgeirsson og Björn Ólafsson. Hjalti Þór Vignisson og Karl Ómar Jónsson við afhendingu gjafarinnar.
AflabrögðSamantekt um aflabrögð frá 21. júní til 4. júlí. Neðangreindar upplýsingarnar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.Skinney SF 20 ..................... humarv ....3 ...37,9 ......humar 8,9 (heill)Þórir SF 77 .......................... humarv ....2 ...35,8 ......humar 11,0 (heill)Hvanney SF 51 ................... dragn ........5 ...29,7 ......blandaður afliSólborg RE 270 ................... dragn ........1 .....8,6 ......blandaður afliStormur KE 1 ...................... dragn. .......4 ...29,0 ......blandaður afliBeta VE 36 .......................... lína ............2 .....4,9 ......blandaður afliAuðunn SF 48 ..................... handf ........3 .....3,6 ......ufsi 2,7Dögg SF 18 ......................... handf ........5 ...18,3 ......ufsi 17,1 Hanna SF 74 ........................ handf ........5 .....3,7 ......ufsi 2,7Siggi Bessa SF 97 ............... handf ........3 .....8,1 ......ufsi 5,8Silfurnes SF 99 ................... handf ........4 .....3,3 ......ufsi 2,5Sævar SF 272 ...................... handf ........4 .....8,5 ......ufsi 8,2Von SF 2 .............................. handf ........2 .....2,2 ......ufsi 1,6Ásgrímur Halldórsson SF 250 landaði 260 tonnum af makríl og 540 tonnum af síld. Jóna Eðvalds SF 200 landaði 390 tonnum af makríl og 570 tonn síld.
Ragnar Sigurðsson fæddist í Hvammi í Lóni þann 18. júní 1930 og lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn þann 1. júlí 2010. Ragnar var sonur hjónanna Sigurðar Snjólfssonar f. 17. janúar 1893, d. 19. mars 1949 og Guðrúnar Halldórsdóttur f. 17. apríl 1892, d. 3. maí 1988. Systkini Ragnars eru Ingibergur f. 29. mars 1923 og Steinunn Margrét f. 16. maí1925. Ragnar vann á sínum yngri árum við gerð brúarinnar yfir Jökulsá í Lóni, stundaði sjómennsku frá Höfn og ýmislegt annað tilfallandi en hefur að mestu stundað búskap
um ævina. Ragnar hóf sambúð árið 1964, með Bertu Kristjönu Káradóttur f. 3.nóvember 1936, d. 13. febrúar 1999. Giftu þau sig árið 1966 og eignuðust þau 6 börn. Sigríði Þorbjörgu f. 1966 er í sambúð með Stefáni Páli Óskarssyni f. 1967 og eiga þau tvö börn, Guðrúnu Bertu og Ragnar Pál. Sigrúnu f. 1968 var gift Bjarne Erik Andersen f. 1951, d. 2010 Eiga þau eitt barn saman Mariu, hún þrjú börn frá fyrri samböndum, Eðvarð, Kristjönu Lilju og Einar Bjarna. Drengur f. 1973, d. 1973 Anna Halldóra f. 1974 er gift Þórði Ólafsson f. 1945 og eiga þau tvö börn Kristján Inga og Guðmund Jón. Kári f. 1975 Sigurður Ragnarsson f. 1977 er í sambúð með Guðrúnu Fjólu Andersen og eiga þau 1 barn saman, Ragnar Andra, en hún á tvö börn úr fyrri samböndum,Bjarneyju Bertu og Særós Svönu. Ragnar verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju föstudaginn 9. júlí 2010 kl. 13:00 jarðsett verður í Stafafellskirkjugarði.
Andlát
Tilboð25% afsláttur af öllum fjölærum blómum, trjám
og skrautrunnum. Tilboði lýkur laugardaginn 10 júlí.
Einnig ýmis sumarblómatilboð meðan birgðir endast.
Verið velkomin
Gróðrarstöðin Dilksnesi
Opið virka daga 13 – 18, laugardaga 11 – 15.
Sími 849-1920
Vinningsnúmerið í kúadellulottóinu var J6. Enginn sótti vinninginn og verður vinningsupphæðinni
varið til líknarmála í héraðinu.
3Eystrahorn Fimmtudagur 8. júlí 2010
w w w . i n n i . i s
HafnarbrautTil sölu er 3.000m² lóðarréttindi ásamt eldra 25 m² sumarhúsi.Lóðin er innarlega í sumarhúsabyggðinni, afgirt með neysluvatnsborholu.
Stafellsfjöll í Lóni
Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902
Vel staðsett og glæsileg ca 420 m² fasteign miðsvæðis á Höfn. Eignin skiptist í verslunarrými og íbúð á 2 hæðum ásamt bílskúr.Einstakt tækifæri, að eignast þessa fallegu eign.
Góð 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð, útgangur út stofu út á verönd.Gott útsýni og frábær staðsetning.
SandbakkiNýtt á skrá
Handan við hornið
á SkjáVarpinu í kvöld fimmtudag kl. 21:00.
Enginn má missa af þessu
Eystrahorn hafði samband við Sveinbjörgu frjálsíþróttakonu sem er að gera það gott á alþjóðamótum og sagði hún þetta; "Ég var valin til að keppa í hástökki í íslenska landsliðinu sem fór í Evrópubikarkeppni til Möltu, en þar varð ég í 6. sæti af 15 keppendum. Áður hafði ég tekið þátt í Norðurlandameistaramóti í Danmörku í 7 þraut þar sem ég náði 4.815 stigum í þraut sem gaf mér þátttökurétt á
Evrópubikarkeppni sem fram fór í Israel 26.-27. júní. Þar bætti ég mig í 4 greinum af sjö og endaði með 5.123 stig sem er 4. besti árangur íslenkrar konu í þraut. Síðan bætti ég mig í langstökki þar, ég stökk 6.10 m sem er akkúrat lágmarkið fyrir Heimsmeistaramót 19 ára og yngri sem fram fer í Moncton í Canada 18.-26. júlí. Það er líklega stærsta mót sem ég hef tryggt mér inn á til þessa. "
Sveinbjörg að gera það gott
Sími 4781550 • www.arnanes.is
Bjóðum upp á kvöldverð(aðrar máltíðir ef pantað er með góðum fyrirvara)
Úrvals hráefni úr ríki VatnajökulsHumar, bleikja, þorskur ofl.Nautakjöt frá Seljavöllum,
lamba- og hrossakjöt úr héraði.Grænmeti að mestu úr garðinum
og nýjar kartöflurÞorgrímur Tjörvi Halldórsson
sér um eldamennsku.
Verið velkomin!
Bókhaldsstofan ehf. og KPMG rituðu undir samstarfssamning föstudaginn 2. júlí 2010. Samningurinn felur í sér að KPMG opnar starfsstöð með löggiltum endurskoðanda í sama húsnæði og Bókhaldsstofan ehf. að Krosseyjarvegi 17 á Höfn. Markmið samningsins er að veita viðskiptavinum samningsaðila góða alhliða þjónustu hvað varðar bókhald, skattamál, ráðgjöf og endurskoðun. KPMG hefur víðtæka reynslu af reikningsskilum og endurskoðun smærri og stærri aðila og hefur m.a. starfað mikið fyrir sveitarfélög og sjávarútvegsfyrirtæki.
Hjá KPMG starfa einnig fjölmargir sérfræðingar á sviði skattamála og fyrirtækjaráðgjafar. Við sama tilefni skrifuðu KPMG og Sveitarfélagið Hornafjörður undir samning um endurskoðun ársreikninga sveitarfélagsins fyrir árin 2010 til 2014. Forsvarsmenn beggja aðila telja að þeir samningar sem undirritaðir hafa verið séu öllum aðilum til hagsbóta og styðji við gróskumikið atvinnulíf á svæðinu. Einnig sé mikilvægt að geta boðið upp á sérfræðiþjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila og skattamála heima í héraði.
KPMG opnar starfstöð á Hornafirði
Sveinbjörg ásamt móður sinni og þjálfara, Guðrúnu Ingólfsdóttur.