Top Banner
Skapandi borg - Stefnan Atvinnustefna – PLANIÐ (aðgerðaáætlun), SKIPULAGIÐ (atvinnumál í aðalskipulagi) og eftirfylgni (atvinnumál og borgarþróun í stjórnkerfinu) Atvinnustefna Reykjavíkurborgar kemur inn á fjölmörg svið borgarrekstrarins og borgarsamfélagsins. Stefna aðalskipulagsins um þróun byggðar, landnotkun og samgöngur skal endurspegla markmið Reykjavíkurborgar um atvinnuþróun. Markmið atvinnustefnu um sérhæfingu svæða og klasamyndun eru sett fram sem sértæk ákvæði í skilgreiningu mismunandi atvinnusvæða. Við gerð hverfis- og deiliskipulags og veitingu byggingarleyfa skal taka tillit til stefnuákvæða um einstök atvinnusvæði framsækin, kraftmikil, samkeppnishæf, skemmtileg, frjálslynd, hagkvæm, skilvirk, öflug, sérstök, tæknivædd, menntuð, lífleg, fjölbreytt borg
66

Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Jun 25, 2015

Download

Documents

Samfylkingin

Skapandi borg - Atvinnustefna Reykjavíkur. Kynning Dags B. Eggertssonar á fundi atvinnumálanefndar Samfylkingarinnar 25. júní 2012
Welcome message from author
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.
Transcript
Page 1: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg - Stefnan Atvinnustefna – PLANIÐ (aðgerðaáætlun), SKIPULAGIÐ (atvinnumál í

aðalskipulagi) og eftirfylgni (atvinnumál og borgarþróun í stjórnkerfinu)Atvinnustefna Reykjavíkurborgar kemur inn á fjölmörg svið borgarrekstrarins og borgarsamfélagsins.

Stefna aðalskipulagsins um þróun byggðar, landnotkun og samgöngur skal endurspegla markmið Reykjavíkurborgar um atvinnuþróun. Markmið atvinnustefnu um sérhæfingu svæða og klasamyndun

eru sett fram sem sértæk ákvæði í skilgreiningu mismunandi atvinnusvæða. Við gerð hverfis- og deiliskipulags og veitingu byggingarleyfa skal taka tillit til stefnuákvæða um einstök atvinnusvæði

framsækin, kraftmikil, samkeppnishæf, skemmtileg, frjálslynd, hagkvæm, skilvirk, öflug, sérstök, tæknivædd, menntuð, lífleg, fjölbreytt borg

Page 2: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg – leiðarljós

• Reykjavík styrki hlutverk sitt sem höfuðborg landsins og forystuafl í vaxandi alþjóðlegri samkeppni um fyrirtæki, vinnuafl og ferðamenn.

• Reykjavík verði í farabroddi í verðmætasköpun, menntun, velferð og lífsgæðum, og axli forystuhlutverk við uppbyggingu og sjálfbæra þróun íslensks samfélags.

• Gera það sem í valdi Reykjavíkurborgar stendur til að atvinnulíf í Reykjavík byggi á fjölbreytni, háu þekkingarstigi, öflugum útflutningi, kynjajafnrétti og verðmætasköpun og styðji þannig við samkeppnishæfni Íslands til skemmri og lengri tíma.

Page 3: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg

Atvinnustefna Reykjavíkur

Græn borg Menningar borg

Ferðamannaborg

Athafna- og nýsköpunarborg

Þekkingar borg

Lífsgæða borg Hafnarborg Höfuðborg

Aðgerðaráætlun undir hverjum lið og stefna um sérhæfingu

atvinnusvæða í aðalskipulagi

Page 4: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapa breiða sátt um hverskonar borg Reykjavík eigi að vera, hvaða atvinnustarfsemi borgarinnar eigi að efla og hvaða tækifæri eigi að skapa fyrir framtíðar atvinnuþróun. Stefna um atvinnuþróun verði sett fram með skýrum hætti í skilgreiningu atvinnusvæða, þar sem hvert svæði fær sitt hlutverk. Jafnhliða sérhæfingu og klasamyndun innan atvinnusvæða verði tryggður sveigjanleiki og fjölbreytni á völdum svæðum.

Menningarborg (tónlistarborgin, bókmenntaborgin, kvikmyndaborgin, hönnunarborgin, sögu…)

Ferðmannaborgin (höfuðborg Íslands, viðburða- og ráðstefnuborgin, heilsuborg, skemmtanaborg, náttúru…)

Höfuðborgin (stjórnsýsla, stofnanir, miðstöð menntunar, heilbrigðisþjónustu, samgangna…)

Þekkingarborgin (háskólaborgin, miðstöð rannsókna og nýsköpunar, hátækni, líftækni, upplýsingatækni…)

Athafnaborgin (verslunar- og þjónustuborgin, fjármálaborgin, iðnaður…)

Lífsgæðaborgin (öryggi, heilbrigði, umhverfi, þjónusta, skólar)Græna borgin (grænn vöxtur, orka, samgöngur, sjálfbærni)Hafnarborgin (miðstöð vöruflutninga, sjávarútvegur, matvælaiðnaður, ferðamennska…)

Page 5: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg - lykilmarkmið

– skapa vaxtarskilyrði fyrir fjölbreytt atvinnulíf– kraftmikil og sjálfbærri borgarþróun, – fjárfesting í lífsgæðum, s.s. mannauði, menntun,

almenningsrýmum, húsnæði, sjálfbærum samgöngum og nauðsynlegum innviðum fyrir framsækið atvinnulíf,

– Góð skilyrði fyrir stofnun og rekstur fyrirtækja, með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki,

– myndun klasa á lykilsviðum þar sem sóknarfæri eru í atvinnulífi,

Page 6: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg - lykilmarkmið

– blómlegt samstarfi borgar, háskóla og atvinnulífs,– markviss markaðssetning borgarinnar gagnvart

ferðafólki, og beinni innlendri og erlendri fjárfestingu í samræmi við atvinnustefnu borgarinnar,

– náið og gott samstarf við alla þá fjölmörgu aðila sem vilja vinna að sömu sýn og markmiðum fyrir Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og framtíðaratvinnulíf á Íslandi.

Page 7: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg

Leiðarljós og framtíðarsýn – úr greinargerð

Að skapa vaxtarskilyrði fyrir fjölbreytt atvinnulíf. Að sett verði fram aðgerðaráætlun í atvinnumálum og markviss stefna um atvinnusvæði og hlutverk hvers svæðis í þróun atvinnulífs. Að tryggja rými fyrir atvinnustarfsemi á sviði sjávarútvegs, iðnaðar, flutninga, verslunar- og þjónustu, viðskipta, stjórnsýslu, hátækni, rannsókna og þekkingar, ferðamennsku, menningar og afþreyingar

Öflugt atvinnulíf er forsenda þess að borgin vaxi og dafni. Í Reykjavík eru megin atvinnusvæði höfuðborgarsvæðisins hvort sem litið er til starfsemi á sviði hátækni og þekkingar, háskóla, fjármála, verslunar og þjónustu, opinberrar stjórnsýslu, menningar og lista, ferðaþjónustu, flutninga eða iðnaðar. Styrkur atvinnulífsins í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu er fjölbreytni þess. Skynsamlegt er að viðhalda þessari fjölbreytni og skapa vaxtarskilyrði fyrir sem flestar atvinnugreinar. Jafnhliða þessa er mikilvægt að stuðla að markvissari sérhæfingu svæða innan borgarinnar. Sérhæfð atvinnusvæði leiða til meiri stöðugleika og auka líkurnar á að myndist klasar fyrirtækja á ákveðnu sviði. Með sérhæfðari atvinnusvæðum er auðveldar að skapa samstöðu um ákveðið heildaryfirbragð svæða og kröfur til umhverfisgæða.

Í aðalskipulaginu 2001-2024 er sett fram stefna um sérhæfingu landnotkunar á hverju svæði. Í nýju aðalskipulagi þarf að skerpa frekar á þessari stefnumörkun og tengja við stefnu um gæði byggðar á viðkomandi svæðum; hvar verða lykilsvæði fyrir starfsemi á sviði þekkingar og hátækni, fjármála, verslunar og þjónustu, iðnaðar, menningar og lista?

Efling miðborgarinnar sem kjarni stjórnsýslu, verslunar, þjónustu, menningar og ferðaþjónustu, er lykilatriði í að styrkja atvinnulíf höfuðborgarinnar. Myndun klasa menntunar, rannsókna, vísinda og heilbrigðisþjónustu á Vatnsmýrarsvæðinu er einnig grundvallar þáttur í atvinnuþróun borgarinnar. Endurmat á stefnu um hafnarsvæðin með fjölbreyttari starfsemi að leiðarljósi, ekki síst í gömlu höfninni, er enn fremur eitt af megin viðfangsefnum aðalskipulagsins. Staðarval framtíðarsvæðis fyrir iðnaðarhöfn og grófan og landfrekan iðnað er einnig nauðsynlegur þáttur endurskoðunarinnar.

Gæði umhverfis á atvinnusvæðum borgarinnar er forsenda þess að auka samkeppnishæfni Reykjavíkur.

 

Page 8: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Fjölmargar stefnur og greiningar á stöðu Reykjavíkur koma saman

• Sóknaráætlun• Aðalskipulag• Efnahagsáætlun• Húsnæðisstefna• Samgöngustefna• Umhverfisstefna• Ferðamálastefna• Menntastefna

Page 9: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Þorpið Gróðurhúsið

Skerið Spilaborgin

Sóknaráætlun 2020 - sviðsmyndir

Alþjóðavæðing

Auðl

indi

rLí

fshæ

ttir

+-

+

-

Page 10: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Forsendur vaxtar - atvinnuþróunarSamkeppnisforskot gagnvert erlendum borgum

(af sambærilegri stærð; sviðsmyndir vegna langtíma fjárhagsáætlunar)

• Nyrsta höfuðborg heims• Miðstöð í Norður-Atlantshafi• Hreint loft, hreint vatn, hrein orka (pure energy)

• Nálægð við náttúru (close to nature) – hin náttúrulega umgjörð

• Hefur sérstöðu –náttúra, saga, menning- ferðamannaborg

• Menningarborg (miðað við stærð borgar) – miklir möguleikar í afþreyingariðnaði (tónlistarsenan í Reykjavík er orðin vel þekkt – miklir möguleikar að byggja upp tónlistariðnaðinnn? – afþreytingaiðnaður stendur kreppur vel af sér)

• Lifandi og skemmtileg miðborg – sérstök, áhugaverð

• Hátt hlutfall menntaðs fólks (hlutfall creative class er tiltölulega hátt?)

• Frjálslynt samfélag – hátt hlutfall yngra fólks (20-35 ára)

• Höfuðborg með fjölbreyttu atvinnulífi (öflugri en miklu stærri “provincial town” í Evrópu)

• Þróað heilbrigðiskerfi (mikilvægt á tímum öldrunar og lýðheilsusjónarmiða)

• Gott menntakerfi (gera þarf betur til að mæta

þörfum innflytjenda) – háskólaborg (háskólaborgir standa betur af sér kreppur en aðrar borgir)

• Öflugt velferðarkerfi• Góð hverfi, öflugt félgsstarf, friðsælt• Stjórnsýslumiðstöð-stofnanaborg (afleidd

þekkingarstarfsemi, menntað vinnuafl, standa kreppur að jafnaði betur af sér)

• Miðstöð viðskipta og vöruflutninga• Mikilvæg höfn í N-Atlantshafi• Mikilvægt flugumferðarsvæði í N-

Atlantshafi

Page 11: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Forsendur vaxtar - atvinnuþróunarVeikleikar gagnvert erlendum borgum (af sambærilegri

stærð; sviðsmyndir vegna langtíma fjárhagsáætlunar)

• Landfræðilega afskekkt, einangrun, fjarlægð frá markaði (vaxandi samgöngukostnaður, umhverfisáhrif flugsamgangna – á móti kemur bætt upplýsingatækni/samskipti)

• Alþjóðlegur flugvöllur of langt í burtu? • Ekki virkur þátttakandi í

alþjóðasamfélaginu?• Veðurfar (kostur á tímum global warming)

• Náttúruvá (þó ekki á Reykjavíkursvæðinu)

• Tungumálið – lítill menningarheimur• Einsleitt samfélag – síður móttækilegt

fyrir fjölmenningarsamfélaginu?• Bakland innanlands sérlega lítið hvað

varðar fólksfjölda (vex lang hægast höfuðborga Norðulanda)

• Gæði byggðar í Reykjavík misjöfn – of dreifð byggð og einsleit landnotkun (dregur ekki að sér menntaða heimsborgara?) – skortur á þéttri borgarbyggð með gæðum í umhverfinu

• Einhæfar samgöngur og óvistvænar• Ósamtíga höfuðborgarsvæði – of

mörg sveitarfélög – skortur á samvinnu í skipulags- og atvinnumálum

Page 12: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Forsendur vaxtar - atvinnuþróunarSamkeppnisforskot gagnvert innlendum bæjum (sviðsmyndir vegna langtíma fjárhagsáætlunar)

• Sterk fjárhagsstaða borgarsjóðs• Hagstæð aldursamsetning íbúa• Hátt menntunarstig vinnuafls• Sterkar menntastofnanir• Öflug velferðarþjónusta• Mikið menningarframboð• Góð veitingahús og hótel• Tónlistar- og ráðstefnumiðstöð

• Söguleg miðborg• Mikið ónotað land undir íbúðir og

atvinnustarfsemi• Lítið af ónotuðu húsnæði• Þéttari og blandaðri byggð• Öflug miðsvæði, atvinnukjarnar

og hafnarsvæði• Gæði í útivistarsvæðum / skipulag

útivistarsvæða / betri hjólastígar

Page 13: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg - planið Atvinnustefna – PLANIÐ (aðgerðaráætlun), SKIPULAGIÐ (atvinnumál í

aðalskipulagi) og eftirfylgni (atvinnumál og borgarþróun í stjórnkerfinu)Atvinnustefna Reykjavíkurborgar kemur inn á fjölmörg svið borgarrekstrarins og borgarsamfélagsins.

Stefna aðalskipulagsins um þróun byggðar, landnotkun og samgöngur skal endurspegla markmið Reykjavíkurborgar um atvinnuþróun. Markmið atvinnustefnu um sérhæfingu svæða og klasamyndun

eru sett fram sem sértæk ákvæði í skilgreiningu mismunandi atvinnusvæða. Við gerð hverfis- og deiliskipulags og veitingu byggingarleyfa skal taka tillit til stefnuákvæða um einstök atvinnusvæði

framsækin, kraftmikil, samkeppnishæf, skemmtileg, frjálslynd, hagkvæm, skilvirk, öflug, sérstök, tæknivædd, menntuð, lífleg, fjölbreytt borg

Page 14: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg - Stefnan Atvinnustefna – PLANIÐ (aðgerðaráætlun), SKIPULAGIÐ (atvinnumál í

aðalskipulagi) og eftirfylgni (atvinnumál og borgarþróun í stjórnkerfinu)Atvinnustefna Reykjavíkurborgar kemur inn á fjölmörg svið borgarrekstrarins og borgarsamfélagsins.

Stefna aðalskipulagsins um þróun byggðar, landnotkun og samgöngur skal endurspegla markmið Reykjavíkurborgar um atvinnuþróun. Markmið atvinnustefnu um sérhæfingu svæða og klasamyndun

eru sett fram sem sértæk ákvæði í skilgreiningu mismunandi atvinnusvæða. Við gerð hverfis- og deiliskipulags og veitingu byggingarleyfa skal taka tillit til stefnuákvæða um einstök atvinnusvæði

framsækin, kraftmikil, samkeppnishæf, skemmtileg, frjálslynd, hagkvæm, skilvirk, öflug, sérstök, tæknivædd, menntuð, lífleg, fjölbreytt borg

Page 15: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Græna borgin

Mynd: Marcus Hansson, flickr.com/marcus_hansson

Page 16: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Græna borgin – leiðarljós

„Grænn vöxtur er leið til að styðja við bættan efnahag á sama tíma og dregið er úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og

mengun, úrgangur minnkaður, farið betur með auðlindir jarðar og líffræðilegri

fjölbreytni viðhaldið. Borgarsamfélög gegna stóru hlutverki við að innleiða grænan vöxt.

Hann er lykiltækifæri fyrir Reykjavík.“

Page 17: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Græna borgin• Lykilverkefni:

1. Græn innkaup2. Grænar samgöngur og vistvænir orkugjafar.

Gasgerðarstöð – metan. Rafbílar. Endurnýjun strætó og bifreiðaflotans. Zip car

3. Græn orka fyrir græna atvinnustarfsemi4. Græn atvinnusvæði. Gagnaver5. Endurvinnsla6. Umhverfisvottun og innleiðing grænna skrefa

Page 18: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Ferðamannaborgin

Mynd: Helgi Halldórsson, flickr.com/8058853@N06

Page 19: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Ferðamannaborgin – leiðarljós

„Reykjavík verði eftirsóttur áfangastaður ferðamanna allt árið um kring og með því verði rennt styrkari stoðum undir fjölbreytt atvinnulíf

og menningarstarf í borginni. Áhersla verði lögð á ráðstefnur og alþjóðlega viðburði, menningu og

heilsuferðaþjónustu.“

Page 20: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Ferðamannaborgin - verkefni

• Lykilverkefni:1. Vetrarferðamennska2. Ráðstefnuskrifstofa Reykjavíkur3. Viðburðarskrifstofa Reykjavíkur4. Borgarhátíðarsjóður5. Þríhnjúkagígur/Eldfjallagarður á Reykjanesi6. Nýsköpun í ferðaþjónustu

Page 21: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Þekkingarborgin

Mynd: Bernard McManus, flickr.com/80332278@N00/

Page 22: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Þekkingarborgin

• Lykilverkefni:1. Þekkingaruppbygging í Vatnsmýri – sameiginleg

þróun og markaðssetning2. Samstarfsvettvangur borgar, háskóla og

Landspítalans3. Lóðir fyrir stúdentagarða4. Nýsköpunarmiðstöð/-var5. Alþjóðlegir skólar á leik- og grunnskólastigi6. Samstarf grunn- og framhaldsskóla

Page 23: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Menningarborgin

Mynd: Sean Connors, flickr.com/eyeline-imagery

Page 24: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Menningarborgin

• Lykilverkefni:1. Reykjavík beiti sér fyrir byggingu Listaháskóla

Íslands á stjórnarráðsreit2. Kvikmyndir3. Tónlist4. Bókmenntir5. Viðburðir og sviðslistir6. Myndlist og hönnun

Page 25: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Höfuðborgin

Mynd: Johannes Martin, flickr.com/johannesmartin/

Page 26: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Höfuðborgin• Lykilverkefni:1. Ný miðstöð almenningssamgangna í Vatnsmýri2. Lifandi miðborg

1. Göngugötur og grænn Hlemmur3. Betri tengsl við alþjóðaflugið

– Könnun á léttlestarmöguleikum4. Öflug alþjóðatengsl

– Samstarfsborgir og alþjóðlegar fjármálastofnanir– Tækifæri kortlögð og nýtt í samstarfsverkefnum,

styrkjum og hagstæðum lánum

Page 27: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Hafnarborgin

Mynd: Christine Zenino, flickr.com/chrissy575

Page 28: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Hafnarborgin

• Lykilverkefni:1. Lifandi fiskihöfn2. Flutningahöfn3. Ferðaþjónustuhöfn4. Siglingar5. Sameining hafna á höfuðborgarsvæðinu6. Hrein höfn – Hafnarböð

Page 29: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Ungt fólk og atvinnumál

• Lykilverkefni:1. Atvinnutorg og virkniaðgerðir2. Lánatryggingasjóður ungs fólks3. Starfsnám og tímabundnar lærlingastöður4. Virknimiðstöð í Breiðholti 5. Regluleg greining á atvinnuleysi og notendum

fjárhagsaðstoðar

Page 30: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Vinnumarkaðsaðgerðir

• Lykilaðgerðir:1. Atvinnuátaksverkefni með VMS2. Innleiðing úrræða sem gengið hafa vel í

öðrum sveigtarfélögum3. Frumkvöðla og nýsköpunarstuðningur4. Starfsnám og tímabundnar lærlingastöður

Page 31: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Lífsgæðaborgin

Mynd: Helgi Halldórsson, flickr.com/8058853@N06/

Page 32: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Lífsgæðaborgin – leiðarljós

„Megináhersla í stefnu, fjárfestingu og skipulagi Reykjavíkurborgar er á lífsgæði fyrir

alla íbúa. Ásýnd og ímynd Reykjavíkur endurspegli skapandi hugsun íbúa hennar

þar sem mannlíf og umhverfi er haft í fyrirrúmi og gott er að búa.“

Page 33: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Lífsgæðaborgin- húsnæðismál

• Lykilverkefni:1. Uppbygging leigumarkaðar2. Námsmannaíbúðir3. Lóðir fyrir félagsleg byggingafélög4. Lóðir fyrir ný og öflug leigufélög

Page 34: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Lífsgæði – (aðal)skipulag

• Lykilverkefni:1. Gæðastefna um manngert umhverfi2. Gatan sem borgarrými3. Lífleg hverfi4. Borgarvernd5. Vistvæn byggð6. Stefna um hæðir húsa

Page 35: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Lífsgæðaborgin - fjárfestingarstefna

• 1. Gott búsetuumhverfi – þétting byggðar• 2. Góðir skólar og góð almannaþjónusta• 3. Opin svæði, torg og leiksvæði - áætlun• 4. Sundlaugaáætlun

– Viðbygging við Sundhöllina– Fossvogs-laug (með Kópavogi)

Page 36: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Lífsgæðaborg - samgöngur

• 1. Greiðar og hagkvæmar samgönguteningar til og frá borginni og við umheiminn

• BSÍ- ný miðstöð almenningssamgangna• 2. Góðar tengingar hjólreiða, strætó og

gangandi innan borgarinnar• 3. Efling strætó• 4. Hjólreiða-áætlun• 5. 6. Léttlestakerfi – könnun

Page 37: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Athafnaborgin

Mynd: Sylvain Thiebaut, flickr.com/sylvainthiebaut

Page 38: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Athafnaborgin – leiðarljós

Leiðarljós:• Stefnufesta og fyrirsjáanleiki• Stuðningur við samkeppni• Einfalt og skilvirkt eftirlit• Rekjanlegar ákvarðanir• Aðgengilegar upplýsingar

Page 39: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Athafnaborgin – þjónusta, stjórnsýsla og innviðir

• 1. Þjónustustefna, sjálfsafgreiðsla og endurhugsun á þjónustuver í Höfðatorgi

• 2. Hagfelt skattaumhverfi• 3. Öruggt aðgengi að orku• 4. Ljósleiðaratengingar á hagstæðu verði

Page 40: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Athafnaborgin – stuðningur

• Aðstoð við ungt fólk fyrstu skrefin• Startpakki fyrir frumkvöðla?• Atvinnuþróun og markaðssetning • Samstarf við fjármálastofnanir (innl/erlendar)

– Almenn lán– Smálán– Lánatryggingasjóður ungs fólks– Styrkir

Page 41: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Atvinnustefna – samstarf og eftirfylgni• Gera þarf tillögu um samstarfvettvang til að

framfylgja atvinnustefnu borgarinnar• Formlegt samstarf við fulltrúa skóla- og

atvinnulífs, sbr. Danmörk• Ráðgjafaráð um samkeppnishæfni• Systraborgir og tengslanet• Annað

– Opnir fundir um drög að atvinnustefnu– Reglulegir hádegisfundir borgarstjóra í Höfða

Page 42: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Atvinnumál og borgarþróun – staðsetning í stjórnkerfinu

• Skilgreina þarf ábyrgð og utanumhald um atvinnumál og eftirfylgni með borgarþróun í stjórnkerfi borgarinnar– Á ákveðnu sviði?– Á nýrri skrifstofu í ráðhúsi?– Í sjálfstæðri einingu?

Page 43: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg Atvinnustefna – PLANIÐ (aðgerðaráætlun), SKIPULAGIÐ (atvinnumál í

aðalskipulagi) og eftirfylgni (atvinnumál og borgarþróun í stjórnkerfinu)Atvinnustefna Reykjavíkurborgar kemur inn á fjölmörg svið borgarrekstrarins og borgarsamfélagsins.

Stefna aðalskipulagsins um þróun byggðar, landnotkun og samgöngur skal endurspegla markmið Reykjavíkurborgar um atvinnuþróun. Markmið atvinnustefnu um sérhæfingu svæða og klasamyndun

eru sett fram sem sértæk ákvæði í skilgreiningu mismunandi atvinnusvæða. Við gerð hverfis- og deiliskipulags og veitingu byggingarleyfa skal taka tillit til stefnuákvæða um einstök atvinnusvæði

framsækin, kraftmikil, samkeppnishæf, skemmtileg, frjálslynd, hagkvæm, skilvirk, öflug, sérstök, tæknivædd, menntuð, lífleg, fjölbreytt borg

Page 44: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg - atvinnusvæði• Leiðarljós:

„Að skapa vaxtarskilyrði fyrir fjölbreytt atvinnulíf. Í nýju aðalskipulagi verði sett fram markviss stefna um atvinnusvæði og hlutverk hvers svæðis í þróun atvinnulífs. Þar verði tryggð rými fyrir atvinnustarfsemi á sviði sjávarútvegs, iðnaðar, flutninga, verslunar- og þjónustu, viðskipta, stjórnsýslu, hátækni, rannsókna og þekkingar, ferðamennsku, menningar og afþreyingar.“

Page 45: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Aðalskipulag 2010-2030

Forsendur atvinnuþróunar og skipulags atvinnusvæða

• Höfuðborgarsvæðið einn atvinnumarkaður – eitt borgarsvæði

• Áætlanir svæðisskipulagsins 2001-2024 (við staðfestingu 2002) lagðar til grundvallar við mótun nýs aðalskipulags – s.s. megin breytingar í atvinnuþróun, vægi einstakra atvinnugreina (aukið vægi þjónustugreina/þekkingarsamfélagsins) og þörf fyrir atvinnuhúsnæði

• Áætlanir nýs aðalskipulags eru að mestu í takt við svæðisskipulagið. Samkvæmt miðspá

þarf að byggja um 50 þúsund fermetra af nýju atvinnuhúsnæði

Page 46: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Aðalskipulag 2010-2030

Lágspá (0,68%) Miðspá (0,87%) Háspá (1,04%)0

10,000

20,000

30,000

40,000

50,000

60,000

70,000

40,000

50,000

60,000

Áætluð árleg (nettó) aukning atvinnuhúsnæðis 2010-2030

Page 47: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Möguleg uppbyggingÁætlað aukning byggingarmagns á eldri og nýrri atvinnusvæðum (frumdrög, júní 2010)

Page 48: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

+45.000

+100.000

+25.000

+50.000

+50.000

+80.000

+40.000

Stækkun atvinnuhúsnæðis (m2) Reykjavík vestur

+30.000

+100.000

+60.000

+25.000

+50.000

+100.000

+115.000

+70.000

+30.000

+65.000

+50.000

+35.000

+130.000

+80.000

www.adalskipulag.is

+ 490.000 m2

+ 440.000 m2

+ 250.000 m2

Page 49: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

+40.000

+100.000

+150.000

+50.000

+140.000

+25.000

+25.000

+50.000

+50.000

+25.000

+100.000

+100.000

+50.000

Stækkun atvinnuhúsnæðis (m2)

Reykjavík austur

www.adalskipulag.is

+ 690.000 m2

Reykjavík 2010-2030:Max 1.200.000 m2 eða 60.000 m2 á ári

Eftir 2030:Miðað við svipaða uppbyggingarþörf áfram, duga atvinnusvæðin fram yfir 2060 (m.v. það nýtingarhlutfall sem nú er ráðgert)

Page 50: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Megin markmið

Atvinnusvæði – sérhæfing og forgangsröðun

Sérhæfing atvinnusvæða leiðir til meiri stöðugleika, heildastæðari götumynda og auka líkur á að klasar fyrirtækja á ákveðnu sviði myndist. Lögð verði áhersla á að klára uppbyggingu á þegar skipulögðum atvinnusvæðum, ekki síst á svæðum sem hafa miðlæga legu. Við deiliskipulag nýrra svæða eða endurskoðun deiliskipulags eldri svæða, verði ávallt horft til stefnu um sérhæfingu atvinnusvæða, áætlaðrar eftirspurnar eftir atvinnuhúsnæði og stefnu um jafnari dreifingu starfa.

Lögð er áhersla á eflingu núverandi atvinnukjarna, með auknu byggingarmagni og kröfum um meiri umhverfisgæði. Styrkja þarf og klára uppbyggingu á sérhæfðum svæðum eins og Borgartúni, áður en ráðist verður í skipulag nýrra atvinnukjarna fyrir skrifstofur. Miklir möguleikar er á að skapa sterka atvinnukjarna í Skeifunni og Höfðunum, sem tengjast samgönguásnum, þegar til lengri tíma er litið. Aðalskipulagið gerir ráð fyrir nýjum kjörnum í Vatnsmýri sem einkum tengjast rannsóknum, nýsköpun og háskólunum. Nýjum atvinnusvæðum í útjaðrinum, í Hólmsheiði og á Esjumelum, er ætlað að taka við landfrekari atvinnustarfsemi sem nú er á miðlægum atvinnusvæðum. Óþrifaleg og mengandi starfsemi verður staðsett á nýju iðnaðarsvæði á Álfsnesi 

Page 51: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Nordisk regionplankonferens28-29 april 2008, Malmö/Köbenhavn

+150.000 m2

110.000 m2

40.000 m225.000 m2

Sorpa

+55.000 m2

+20.000 m2+60.000 m2

45.000 m2

+25.000 m2

+75.000 m2

+20.000 m2

+20.000 m2

+35.000 m2

+40.000 m2

+20 íbúðir

+25.000 m2 +30.000 m2

+25.000 m2

+25.000 m2

+30.000 m2+100.000 m2

Reykjavík 2030 – aukning atvinnuhúsnæðis(0,87% íbúafjölgun á ári – 60 þúsund m2 á ári)

Page 52: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

+85.000 m2

112.000 m2

+330.000 m2

640.000 m2

+17.000 m2

17.000 m2

+160.000 m2

310.000 m2

+74.000 m2

180.000 m2

+160.000 m2

420.000 m2

+200.000 m2

470.000 m2

+65.000 m2

500.000 m2

+65.000 m2

210.000 m2

+40.000 m2

40.000 m2

Reykjavík 2030 – aukning atvinnuhúsnæðis

Page 53: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Lykiluppbyggingarsvæði fyrir atvinnulífið - stefna og skilgreiningarEftirfarandi svæði verða skilgreind í nýju aðalskipulagi sem kynnt verður í október 2011

Page 54: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Miðborgin - stefna• Efla miðborgina sem kjarna stjórnsýslu, menningar, ferðaþjónustu,

verslunar og þjónustu auk fjölbreyttrar íbúðarbyggðar. Miðborgin verði ávallt fyrsti valkostur við staðarval stjórnsýslu- og menningarstofnana ríkis og borgar.

• Á jaðarsvæðum miðborgar, til austurs og vesturs, verði lögð sérstök áhersla á fjölbreytta starfsemi, s.s. á sviði nýsköpunar, hönnunar, lista, matarmenningar og menningartengdrar ferðaþjónustu.

• Tryggð verði vaxtarskilyrði fyrir kjarnastarfsemi miðborgarinnar og þar með fjölgun starfa í miðborginni. Gætt verði þess að aukning byggingarmagns og þróun byggðar verði í góðu samræmi við hið sögulega byggðamynstur miðborgarinnar (sjá stefnu um Borgarvernd, Verndarsvæði innan Hringbrautar)

Page 55: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Hlemmur-Skeifa-Höfðar-Keldur. • Á miðborgarás sem teygir sig frá jaðri miðborgarinnar, við Hlemm, austur í Skeifu

og síðar meir í Ártúnshöfða og að landi Keldna í lengri framtíð, verði stuðlað að frekari þróun og uppbyggingu fjölbreyttrar verslunar, þjónustu og blandaðrar starfsemi í skrifstofum sem þjónar höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu.

• Í jaðri miðborgar við Hlemm og um Holtin verði, í bland við íbúðarbyggð, áhersla á fjölbreytta starfsemi á sviði nýsköpunar, hönnunar, lista, sérvöruverslana og smáiðnaðar.

• Við Suðurlandsbraut og í Múlum verði áfram unnið að uppbyggingu og þróun skrifstofuhúsnæðis fyrir margvíslega starfsemi, auk fjölbreyttrar verslunar- og þjónustu.

• Skeifan verði endurskipulögð með aukningu byggingarmagns fyrir skrifstofur og íbúðir. Alhliða verslun og þjónusta, á jarðhæðum byggingu, verður áfram kjarnastarfsemi svæðisins.

• Í Súðarvogi verði lögð áhersla á starfsemi á sviði nýsköpunar, hönnunar og smáiðnaðar, auk íbúðarbyggðar.

• Höfðar þróist smám saman, samhliða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis við Elliðaárvoginn, sem fjölbreytt atvinnusvæði skrifstofa, verslana og þjónustu auk smáiðnaðar. Landfrekur og mengandi iðnaður víkur af svæðinu.

Page 56: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Suðurbugt-Mýrargata-Grandagarður. Miðborgarás til vesturs

Á miðborgarás sem teygir sig frá jaðri miðborgarinnar við Suðurbugt, um Slippasvæði og vestur á Grandagarð verði þróuð fjölbreytt miðborgarstarfsemi sem tekur mið af nálægð við sjávarsíðuna.

Á svæðinu verði einkum lögð áhersla á fjölbreytta starfsemi á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu, matarmenningar, hönnunar, lista og nýsköpunar auk fjölbreyttrar verslunar, þjónustu og íbúðarbyggðar.

Uppbygging taki mið af markmiðum rammaskipulags svæðisins frá Örfirisey að Austurhöfn

Page 57: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Vatnsmýrin. Vaxtarpóll á sviði rannsókna, hátækni og nýsköpunar

Á atvinnusvæðum í Vatnsmýrin er lögð höfuðáhersla á uppbyggingu og þróun háskóla og rannsóknastarfsemi, fyrirtækja og stofnana á sviði hátækni og nýsköpunar, heilbrigðisvísinda og líftækni og heilbrigðisþjónustu. Auk þess er gert ráð fyrir almennri verslun og þjónustu, sem styður við kjarnastarfsemina og íbúðum.

Fjölbreytt uppbygging á þessum sviðum, á svæðum við Háskóla Íslands við Suðurgötu, á Vísindagarðasvæðinu við Njarðargötu, svæði NLSH við Hringbraut, Hlíðarendasvæðinu og við Háskólann í Reykjavík við Öskjuhlíð, mun gera það að verkum að í Vatnsmýri myndast smám saman öflugur kjarni sem getur orðið vaxtarpóll framtíðar uppbyggingar atvinnu í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu.

Jafnhliða atvinnuuppbyggingu á einstökum svæðum í Vatnsmýrinni þarf að tryggja öflug innbyrðis tengsl svæðanna, tengsl þeirra við útivistarsvæði, nálæg íbúðarhverfi og miðborgina.

Skipulag og uppbygging atvinnukjarna taki mið af markmiðum um heildarskipulag Vatnsmýrar (sjá kaflann Vatnsmýri)

Page 58: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Borgartún-Kirkjusandur

Stuðlað að ferskari þróun og uppbyggingu starfsemi á sviði fjármála, viðskipta, ráðgjafar og stjórnsýslu, auk almennrar verslunar, þjónustu og íbúða. Í skipulagi svæðanna verði gerðar ákveðnar gæðakröfur um hönnun bygginga og ekki síður umhverfisins milli þeirra.

Lögð verði áhersla á að klára uppbyggingu við Borgartún, með frekari sérhæfingu svæðisins og endurhönnun í huga, áður en ráðist er í þróun nýrra skrifstofusvæða.

Page 59: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Sérhæfð atvinnusvæði

Reykjavíkurhöfn verði tryggð vaxtarskilyrði í Örfirisey, Sundahöfn, Gufunesi (til 2030) og Álfsnesi, til að mæta framtíðarþörfum vöruflutninga, hafnsækinnar starfsemi og sjávarútvegs.

Sett verði fram skýr stefna um mismunandi hlutverk hafna innan Reykjavíkur og landþörf þeirra, grundvölluð á greiningu á líklegum vexti í vöruflutningum, sjávarútvegi og hafnsækinni starfsemi.

Sköpuð verði vaxtarskilyrði fyrir hefðbundinn iðnað, vörugeymslur og aðra landfreka og óþrifalega starfsemi á nýjum svæðum í jaðri borgarinnar; í Hólmsheiði, Esjumelum og á Álfsnesi

Page 60: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Kraftmikið atvinnulíf höfuðborgar – fjölbreytni, vaxtarskilyrði og lykilsvæði

Í Reykjavík eru megin atvinnusvæði höfuðborgarsvæðisins og landsins alls hvort sem litið er til starfsemi á sviði hátækni og þekkingar, háskóla, fjármála, verslunar og þjónustu, opinberrar stjórnsýslu, menningar og lista, ferðaþjónustu, flutninga eða iðnaðar. Styrkur atvinnulífsins í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu er fjölbreytni þess.

Skynsamlegt er að viðhalda þessari fjölbreytni og skapa vaxtarskilyrði fyrir sem flestar atvinnugreinar. Tryggt verði rými fyrir atvinnustarfsemi á sviði sjávarútvegs, matvælaframleiðslu, grænnar orkunýtingar, heilbrigðisvísinda og heilsuþjónustu, iðnaðar, vöruflutninga, verslunar- og þjónustu, viðskipta, stjórnsýslu, upplýsingatækni, hátækni, rannsókna og þekkingar, ferðamennsku, menningar og afþreyingar.

Jafnhliða áherslu á fjölbreytt atvinnulíf, verði á hverjum tíma í gangi átak til eflingar valinna atvinnugreina á sviði nýsköpunar (smart jobs) og menningar.

Page 61: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Öflug og vel skipulögð atvinnusvæði

Að sett verði fram markviss stefna um atvinnusvæði og hlutverk hvers svæðis í þróun atvinnulífs. Stuðlað verði að sérhæfingu svæða til að tryggja meiri stöðugleika, heildastæðari götumyndir og auka líkur á að klasar fyrirtækja á ákveðnu sviði myndist.

Að efla núverandi atvinnukjarna, einkum þá sem eru með miðlæga legu, með auknu byggingarmagni og tryggja þannig betri nýtingu þeirra og skapa grundvöll að frekari sérhæfingu þeirra.

Á miðlægum svæðum víki landfrek og óþrifaleg atvinnustarfsemi fyrir þéttari atvinnu- og íbúðarbyggði. Starfsemi af þessu tagi verði fundinn staður á nýjum sérhæfðum atvinnusvæðum í útjaðri byggðar.

Að stuðla að uppbyggingu atvinnusvæða í grennd við íbúðarbyggð og uppbyggingu íbúða í grennd við atvinnukjarna og draga þannig úr vegalengdum milli heimila og vinnustaða. Að leitast við að jafna sem mest dreifingu starfa og uppbyggingu atvinnukjarna um borgina og tryggja jafnara umferðarflæði á stofnbrautum á álagstímum.

Lögð verði áhersla á að klára uppbyggingu á þegar skipulögðum atvinnusvæðum, ekki síst á svæðum næst miðborginni, áður en ráðist er í uppbyggingu nýrra svæða.

Page 62: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Skapandi borg - viðaukiLeiðarljós og drög að sýn í nýju aðalskipulagi 2030 (frumdrög)

Sviðsmyndir í langtíma fjárhagsáætlun,

Sóknaráætlun 2020, 20/20

Page 63: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Forsendur vaxtarÁætlanir og viðmið svæðisskipulagsins 2001-2024 (m.s.br.)

Endurskoðun áætlana m.v. íbúaspá nýs aðalskipulags

Page 64: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Svæðisskipulag 2001-2024

Alls Skrifstofur/verslun Iðnaður/vörugeymslur Sérhæft húsnæði0

10,000

20,000

30,000

40,000

50,000

60,000

53,000

36,000

1,100

16,000

Meðal aukning atvinnuhúsnæðis (nettóaukning í fermetrum) á ári í Reykjavík samkvæmt svæðisskipulaginu 2001-2024

(við gildistöku)

Page 65: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Þróun til ársins 2030. Áhrif íbúafjölgunar á landþörf og eftirspurn húsnæðis (íbúaspá byggð á spá Hagstofu desember 2008/júlí 2010)

Háspá A Miðspá B Lágspá C

Hlutdeild í íbúafjölda Íslands árið 2030 40,4% 38,9% 37,5%

Íbúavöxtur (reiknuð meðalfjölgun á ári frá 2009-2030) 1,04% 0,87% 0,68% Íbúafjöldi grunnárs 2010 (byrjun árs 2011/LUKR) (lágspá, Rvík fylgir landinu) 118.787 118.787 118.787

Íbúafjöldi árið 2030 148.919 143.396 138.176 Fjölgun íbúa til 2030 30.132 24.609 19.389

Fjölgun íbúa á ári - meðaltal til 2030 1.507 1.230 969

Fjöldi íbúða - grunnár 2010 (byrjun árs) (LUKR 2011 -febrúar) 49.766 49.766 49.766

Fjöldi íbúa á íbúð - grunnár 2010 2,39 2,39 2,39

Fjöldi íbúa á íbúð - viðmið (m.v. línulega lækkun í 2,100 árið 2050 - mið af svæðisskipulagi og þróun aldurskiptingar) 2,243 2,243 2,243

Íbúðafjöldi árið 2030 66.393 63.930 61.603

Reiknuð íbúðaþörf v/fjölgunar íbúa 13.434 10.971 8.644

Reiknuð íbúðaþörf v/ fækkunar í heimili 3.193 3.193 3.193

Íbúðaþörf 2010-2030 16.627 14.164 11.837

Árleg íbúðaþörf - meðaltal til árins 2030: 831 708 592 Fjölgun starfa (atvinnuhlutfall verði 0,527 árið 2030, ný störf reiknuð útfrá þessu hlutfalli fyrir nýja íbúa*) 15.880 12.969 10.218

Atvinnuhúsnæði á hvert nýtt starf - fermetrar á starf (þjónustuhúsnæði s.s. skólar innifalið) 70 70 70

Atvinnuhúsnæði - áætluð aukning í fermetrum (nettóaukning húsnæðis) 1.111.569 907.826 715.260

Atvinnuhúsnæði - árleg aukning (nettóaukning húsnæðis) 55.578 45.391 35.763

Atvinnusvæði - landþörf (0,7 í lóðahlutfall og 0,5 í meðalnýtingu - 33% húsnæðis byggist upp vegna betri nýtingar á byggðum svæðum) 281 229 181

Atvinnusvæði - árleg landþörf nýrra svæða 13 11 8

Magn íbúðarhúsnæðis

Meðalstærð nýrra íbúða 80 fermetrar - 2,243 íbúar á íbúð 593.019 505.197 422.192

Meðalstærð nýrra íbúða 100 fermetrar 741.274 631.496 527.740

Meðalstærð nýrra íbúða 120 fermetrar 889.529 757.795 633.288

Page 66: Atvinnustefna reykjavíkur 2011 2016-2030 - myndir

Atvinnusvæði - atvinnustefnaLykil spurningar

• Liggur fyrir skýr atvinnustefna fyrir borgina?• Hverskonar borg er Reykjavík í dag og til framtíðar? • Hverjir verða undirstöðu atvinnuvegir Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins í

framtíðinni? Er fjölbreytnin styrkleiki atvinnulífsins?• Er sú stefna sem lögð er til grundvallar í gildandi aðalskipulagi og svæðisskipulagi góð

og gild? Áhersla á “þekkingarstarfsemi” og klasamyndun. Skrifstofuhverfi á miðlægum svæðum en landfrekari og grófari starfsemi víkur til jaðarsvæða.

• Hvernig er hægt að tryggja framfylgd atvinnustefnu í aðalskipulagi? Hvernig er hægt að nota aðalskipulagið og skipulagsáætlanir til að stuðla að farsælli atvinnuþróun?

• Endurspeglar skipulag atvinnusvæða í gildandi aðalskipulagi nokkurn veginn þá atvinnustefnu sem við viljum sjá fyrir borgina? Þarf að gera einhverjar grundvallar breytingar?