Uppskriftir 8. þáttur BBQ Ribeye Grillsamloka • 2 stk Ribeye steikur 225gr. (Skåre) • 4 stk hamborgarabrauð, stór • ½ gúrka • 3 msk ylliblómaedik frá Meyers • 1 msk sykur • 3 stk laukar • 4 msk Hunt’s Hickory BBQ sósa • 4 portobello sveppir • 4 sneiðar feitur ostur (t.d Ísbúi) • 2 stk heilsutómatar stórir, sneiddir • 4 stór blöð Íssalat • Filippo Berio ólífuolía • Meyers eplaedik • Japanskt mayonnaise • Hunt’s sinnep • salt og pipar Grillað kartöflusalat • 700 gr íslenskar kartöflur (helst Gullauga) • 3 msk Lehnsgaard sinnep, stærk • safi og börkur úr ½ sítrónu • 100 ml ólífuolía • 50 gr súrar gúrkur • 40 gr blaðlaukur, saxaður • 15 gr piparrót, rifin • 20 gr dill, saxað • gróft sjávarsalt og svartur pipar 1. Aðferð: Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar og setjið sykur, smá salt og ylliblómaedik saman við, látið standa í um 30 mín og hellið þá vökvanum af. Afhýðið laukana, skerið til helminga, dressið með ólífuolíu og salti og grillið í 30 mín eða þar til þeir eru orðnir vel mjúkir í gegn (notið efri grindina á grillinu eftir fyrstu 10 mínúturnar). Skerið þá í þunna strimla og hrærið saman með BBQ sósunni. Kryddið steikurnar með salti og pipar, grillið í 2 mínútur á hvorri hlið og látið svo hvíla í 4 mínútur. Skerið steikurnar í 5mm þykkar sneiðar. Dressið portobello sveppina með olíu, salti og ögn eplaediki, grillið á ávalari hliðinni í 2 mínútur, snúið svo við og setjið ostinn ofan á og grillið þar til osturinn hefur bráðnað. Skerið og grillið brauðin í stutta stund og setjið samlokuna saman í þessari röð frá botni. Majónes og BBQ lauksultan sett á brauðbotninn, leggið salatblað og tómatsneiðar þar ofan á, því næst kemur kjötið í sneiðum svo portobello sveppurinn og að lokum gúrku- sneiðarnar. Að endingu fer smá sinnep í brauðlokið, það ofan á og þá er samlokan klár. 2. 3. 4. 5. 1. 2. 3. Aðferð: Grillið kartöflurnar þar til þær eru orðnar mjúkar og skerið svo í jafnstóra bita. Hrærið saman sítrónusafa, sinnepi og ólífuolíu. Smakkið til með salti og pipar. Saxið létt yfir súru gúrkurnar og blandið svo öllu vel saman í skál og berið fram. Vín: Adobe Reserva Carmenere / Lífrænt ræktað Lýsing: Hér er kröftugt og bragðmikið vín, ilmur af kirsu- berjum, kryddi, einkum svörtum pipar. Flauelsmjúk tannín með góðan þroska og gott jafnvægi. Með mat: Frábært vín með BBQ.