Söngvakeppnin Vín 2015 Gefin eru stig í 12 flokkum. Fyrir hvert lag er merkt við alla flokka sem eiga við. Fimm flokkar gefa mínus- stig, en sjö flokkar plús-stig. Í lokin eru mínus-stigin dregin frá plús-stigunum og fæst þannig samtala fyrir hvert atriði. Berið svo saman þau tíu lög sem fá flest stig á blaðinu við þau tíu lög sem komast áfram í undankeppnina. Sé ósamræmi þar á milli er það vegna þungrar pólitískrar undiröldu í Eurovision, ekki af því að stigablaðið er ónákvæmt. Munið að hafa gaman af keppninni og hrópa: „Áfram Ísland!“ Seinni undankeppni • Fimmtudaginn 21. maí • kl. 19.00 UNDAN2 01 Litháen Monika & Vaidas / This Time 02 Írland Molly / Playing With Numbers 03 San Marínó Anita & Michele / Chain of ... 04 Svartfjallaland Knez / Adio 05 Malta Amber / Warrior 06 Noregur Mørland & Debrah / A Monster ... 07 Portúgal Leonor Andrade / Há Um Mar ... 08 Tékkland Marta & Václav / Hope Never Dies 09 Ísrael Nadav Guedj / Golden Boy 10 Lettland Aminata / Love Injected 11 Aserbædsjan Elnur / Hour Of The Wolf 12 Ísland Maria Olafs / Unbroken 13 Svíþjóð Måns Zelmerlöw / Heroes 14 Sviss Mélanie René / Time To Shine 15 Kýpur John / One Thing I Should ... 16 Slóvenía Maraaya / Here For You 17 Pólland Monika / In The Name Of Love Ákveddu þig-stigið – Engin leið að átta sig á því hvers konar tónlist er verið að spila - allt út um allt! Stjórnmála-stigið – Mig langar að gefa þessu lagi mínus-stig, þó ég hafi enga góða ástæðu til þess. Fjarstýringarstigið – „Gövöðmenngóur“ hvað þetta er leiðinlegt lag! Hvað er á hinni stöðinni? Kormákar og Skjaldar-stigið – Keppendur eru óvenjulega vel snyrtir og smekklegir til fara. Staðalbúnaðarstigið – Reykur, vindur, sprengingar og þessháttar hjálpartæki Janet Jackson-stigið – Þessir búningar eru ekki alveg að þjóna sínu hlutverki! Komrad-stigið – Fær örugglega stig frá Austur-Evrópuþjóðum. Schengen-stigið – Lagið er á tungumáli sem enginn í partýinu skilur. Topp 10-stigið – déskoti er þetta grípandi/gott/skemmtilegt lag! Conchitu-stigið – Keppandi skartar myndarlega grónu skeggi og ber það nokkuð vel. Lay Low-stigið– Hugljúft lag sem fær þig til að hugsa um ástina og lífið ... eða langa í heitt bað. Eivarar-stigið – Keppandi er berfættur, eða í mjög óvenjulegum skófatnaði. Einnig: Fjaðrir. Samtals Mínus-flokkar Plús-flokkar Elín Esther • 2015