Top Banner
Skjólmyndun með girðingum Konungur hálendisins Skordýr sem sýgur blóð til að lifa Upphaf byggingalistar og tenging við náttúruna Bláu nunnurnar Hagleiksfólk í Ólafsgerði Matjurtagarða á fjölbýlishúsalóðir Súkkulaði og rósir 3. tbl. 17. árg. 2009, nr. 57 Kr. 1095.- Sumarhúsið og garðurinn 3. tbl. 2009 Kr. 1095.–
84

Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Mar 28, 2016

Download

Documents

Magazine in Icelandic about cottages and gardening in Iceland.
Welcome message from author
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.
Transcript
Page 1: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Skjólmyndun með girðingum

Konungur hálendisins

Skordýr sem sýgur blóð til að lifa

Upphaf byggingalistar og tenging við náttúruna

Bláu nunnurnar

Hagleiksfólk í Ólafsgerði

Matjurtagarða á fjölbýlishúsalóðir

Súkkulaði og rósir

3. t

bl.

17. á

rg. 2

009,

nr.

57

Kr.

109

5.-

Sumarhúsiðog garðurinn

3. tbl. 2009 Kr. 1095.–

Page 2: Sumarhusid og gardurinn 3.2009
Page 3: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

ÍSL

EN

SK

A S

IA.I

S O

RK

479

57 1

1.09

Sumir heimilisvinir láta lítið fara fyrir sér.

Við vildum samt aldrei án þeirra vera. Þeir

taka vel á móti okkur þegar við komum heim

eftir skemmtilegt kvöld, kveikja ljósin, hita

ofnana og koma upp suðu á bolla af heitu kakói.

Þessir hæglátu heimilisvinir fara ekki fram á neinar

sérstakir þakkir. Þeir eru ánægðir ef heimilisfólkið er

ánægt og nýtur þess að vera til í birtu og yl. Þeir eru

góðir heimilisvinir.

Yljumiljum

• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is

Page 4: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

6 Fasteignagjöld af frístundahúsum í útleigu 1,45%6 Íslenskir könglar í jólaskraut8-13 Merkisgarður í Eyjafirði15-17 Bláu nunnurnar18-19 Alíslenskur jólamarkaður í Heiðmörk20-23 18 Rauðar rósir24 Í garðinum með Jóni Guðmundssyni – Skimað eftir sitkalús25 Skordýr sem sýgur blóð til að lifa26-27 Í garðinum með Jóni Guðmundssyni – Matreiðsla úr garðinum

28 Garðheimar 10 ára30-35 Hagleiksfólk í Ólafsgerði36 Súkkulaði og rósir38-39 Jólasveinar ganga um gólf40-43 Draumagarður fjölskyldunnar44 Hreinsiefni fyrir gólf – kynning Gólfefnaval46-48 Brunavarnir – kynning VÍS49 Fjölbreytt námskeið í ræktun og arkitektúr50-52 Drápuhlíð og Vatnsdalsvatn í Helgafellsveit

54 Matjurtagarða á allar fjölbýlishúsalóðir56-57 Skjólmyndun með girðingum58-62 Upphaf byggingarlistar og tenging við náttúruna63 Bækurnar í bústaðinn64-69 Gamli góði hryggurinn á jólaborðið70-73 Þjónustusíður74 Krossgáta76-79 Konungur hálendisins – himbriminn80 Grýlu þykir barnakjöt besti matur82 Í garðinum með Jóni Guðmundssyni - Skreytingarefni úr garðinum

í byrjun

í miðjunni

að lokum

Efnisyfirlit

4 Sumarhúsið og garðurinn 3. 2009.

Page 5: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

8-13

Útgefandi: Merkurlaut 25 ehf, Sími 578 4800, www.rit.is Ábyrgðarmaður: Auður I. Ottesen, [email protected] Hönnun og uppsetning: Páll Jökull Pétursson, [email protected] Ljósmyndir: Páll Jökull Pétursson, Jón Guðmundsson, Jóhann Óli Hilmarsson, Jónatan Garðarsson og fleiri. Prentun: Oddi. Auglýsingar: Auður I. Ottesen, [email protected]. Móttaka auglýsinga: [email protected] Ritstjórn: Auður I. Ottesen ritstjóri, Páll Jökull Pétursson, Jóhann Óli Hilmarsson. Höfundar efnis: Auður I. Ottesen, Björn Jóhannsson, Gunnar Bergmann Stefánsson, Helga Gunnlaugsdóttir, Hédís Sveinsdóttir, Jóhann Óli Hilmarsson, Jón Guðmundsson, Jónatan Garðarsson, Páll Jökull Pétursson, Steinunn Bergsteinsdóttir, og Vilmundur Hansen. Vinnsla blaðsins: Unnið á Macintosh í

InDesign CS3. Letur í meginmáli er Minion Pro 8,7 p. á 11,5 p. fæti. Prentað á umhverfisvænan pappír. Forsíða: Ljósmynd Páll Jökull Pétursson.

ISSN 1670-5254Efni þessa blaðs má eigi afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta til eða í heild án skriflegs leyfis útgefanda.

Kæru lesendur.

Ég upplifi nú svipaða tíma og fyrir um 25 árum þegar ég sat með prjónana öllum stundum, prjónandi sjöl, vesti, peysur og vettlinga úr kambgarni í öllum regnbogans litum. Ég fletti hannyrðablöðum og teiknaði upp mynstur því á þeim tíma var í tísku að prjóna svokallað „hönsnestrikk” sem voru fremur róttækar fígúrur og tákn, enda var ég þá ung kona. Núna situr maður ekki svo fund eða á kaffihúsi að einhverjir á staðnum séu ekki að prjóna. Meira að segja á tónleikum í kirkju um daginn sá ég að kona á næsta bekk var að fitja upp fyrir barnapeysu og var með marga liti af garni í kjöltunni. Ég fagna þessari breytingu því það er gott fyrir sálina að vera með eitthvað á prjónunum. Að sökkva sér niður í mynstur og úrtökur er áþekkt andlegri íhugun og það er þar sem við íslenska þjóðin erum einmitt stödd núna. Við horfum inn á við og endurmetum gildin og tilgang lífsins.

Aðventan og jólin eru ætíð notalegur tími fyrir flesta, tími þar sem við bjóðum hvert öðru í heitt kakó og smákökur og flykkjumst saman í alls kyns fagnaði. Þetta er sá tími þegar kórarnir flytja óð til jólanna og óratoríur til dýrðar frelsaranum. Handverkið selst

sem aldrei fyrr og við njótum þess að kaupa vettlinga eða sokka sem fallegar gamlar konur hafa prjónað af mikilli ást á elliheimilunum. Þetta er tíminn þegar við sökkvum okkur niður í lestur bóka og tímarita. Vegna þessa gilda höfum við gætt þetta blað öllu því góða sem einkennir þennan tíma - kærleik, glettni, góðum mat og góðri afþreyingu. Við óskum lesendum okkar gleði á aðventunni og gleðilegrar hátíðar um leið og við þökkum samfylgdina á þessu ári.

Leið

arin

n

A u ð u r I . O t t e s e nR i t s t j ó r i , g r e i n a s k r i f

a u d u r @ r i t . i s

Pá l l J ö k u l l Pé t u r s s o nU m b r o t , h ö n n u n ,

l j ó s m y n d u n a u g l y s i n g a r @ r i t . i s

Jóhann Óli HilmarssonGreinaskrif

[email protected]

Jón GuðmundssonGreinaskrif

Jónatan Garðarsson Greinaskrif

Helga Gunnlaugsdóttir Greinaskrif

Steinunn Bergsteinsdóttir Greinaskrif

Vilmundur HansenGreinaskrif

20-23 64-69

Blóm og skreytingar frá versluninni 18 Rauðar rósir.Mynd: Páll Jökull.

Page 6: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Fasteignagjöld af sumarhúsum í einkaeigu eru allt að 0,6% af fasteignamati en gjöldin eru mismunandi á milli sveitarfélaga. Fasteignagjöld af sumarhúsum sem

leigð eru út í atvinnuskyni eru tæplega þrisvar sinnum hærri, eða 1,45%.

Samkvæmt upplýsingum hjá Fasteignaskrá ríkisins bera sumarhús sömu fasteignagjöld og íbúðarhúsnæði, sem er allt að 0,6% af álagningarstofni fasteignamats.

Álagningin getur verið mismunandi milli sveitarfélaga. Í Grímsnes- og Grafningshreppi er hún til dæmis 0,475% en 0,6% í Bláskógabyggð.

Fasteignagjöld allt að 10% aF ársleigu

Örvar Hólmarsson sem rekur sumarhúsaútleigu að Minni Borgum í Grímsnes- og Grafningshreppi segir að aðilar í ferðaþjónustu borgi allt að þrisvar sinnum hærri fasteignagjöld af sumarhúsum en einstaklingar. ,,Núna eru fasteignagjöld einkaaðila í Grímsnes- og Grafningshreppi 0,475% af fasteignamati en ferðaþjónustuaðila 1,45% vegna þess að þeir eru í atvinnurekstri. Síðustu ár hefur færst í vöxt að einkaaðilar leigi sumarhúsin sín til erlendra ferðamanna í gegnum umboðsskrifstofur en borgi samt sem áður 0,6% fasteignagjöld þar sem gjöldin eru hæst og slíkt er fáránlegt. Að mínu mati verður að endurskoða og leiðrétta þennan mun þar sem rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar er mjög erfitt um þessar mundir. Það er ríkið sem dregur lappirnar í málefnum ferðaþjónustunnar og því verður að breyta. Núna fær ríkið hverja krónu, sem það leggur í kynningarstarf erlendis vegna landkynningar, þrjátíufalt til baka og út í hött að

draga saman seglin í þeim málaflokki. Einnig er nauðsynlegt að lækka álögur fasteignagjalda á atvinnurekstur til að bæta stöðu greinarinnar. Nú til dags samsvara fasteignagjöld á sumarhús í ársleigu eins mánaðar sumartekjum af hverju húsi en tekjur af sumarleigu húsanna jafngildir allt að 10% af heildartekjum fyrir útleiguna og það sjá allir að slíkt gengur ekki til lengdar.

Ekki er svo nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar varðandi hækkun á virðisaukaskatti til að bæta ástandið. Það virðist vera vinsælt hjá ráðamönnum þessarar þjóðar að tala um sóknartækifæri í ferðaþjónustu á tyllidögum. Ef þeir halda að greinin eigi að skila þjóðarbúinu sífellt meiri gjaldeyristekjum af sjálfu sér þá er það misskilningur. Það þarf að fjárfesta í störfum og þar með fyrirtækjum í ferðaþjónustu og líta á slíka fjárfestingu til langs tíma. Fyrirtækin þurfa að skila arði til að geta aukið sóknina. Svo einfalt er það,” segir Örvar. n

Fasteignagjöld af frístundahúsum í útleigu 1,45%

Tex ti : V i lmundur Hansen. M ynd: Pá l l Jökul l .

Fasteignamat er gangverð fasteigna, umreiknað til staðgreiðslu, sem ætla má að eignin hefði haft í kaupum og sölum í nóvembermánuði næst á undan matsgerð, miðað við heimila og mögulega nýtingu fasteignarinnar á hverjum tíma. Tilgangur fasteignamats er fyrst og fremst sá að skapa grundvöll fyrir álagningu opinberra gjalda en fasteignamatið er stofn fasteignagjalda, eignarskatts og erfðafjárskatts.

Sumarhús til útleigu í Minni-Borgum í Grímsnesi.

6 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Hver fjölskylda hefur sína siði á aðventu og jólum. jólaskraut skipar stóran sess í hjarta fólks og margir eiga skraut sem hefur fylgt þeim frá bernsku og er þeim

hjartfólgið. Helga gunnlaugsdóttir á akureyri sýnir okkur hér úr safni sínu jólaskraut sem hún hefur gert úr íslenskum könglum. Þetta er jólaskraut sem hefur fylgt fjölskyldunni en fyrsta jólatréð hennar var gert úr könglum og hefur varðveist vel.

litlu húsin eru úr köngulhreistri og eru alltaf vinsæl hjá ungviðinu. Helga kennir okkur hér að gera þau, ásamt ýmsu öðru úr könglum.

Hægt er að búa til lítil falleg hús úr köngulhreistrinu. Fyrst sker maður húsið út úr þykku kartoni eða þunnum pappa í þeirri stærð sem hver vill. Síðan eru hliðarnar límdar

saman og þakið lagt til hliðar. Að því loknu tekur maður stóra

köngla, tekur þá í sundur og límir flögurnar á pappahúsið. Best er að byrja neðst og færa sig upp

á við. Göt eru skilin eftir fyrir hurð og glugga. Þakið er límt á í lokin og klætt með könglaflögunum á sama hátt og veggir hússins. Í lokin er hægt að búa til gluggapósta með eldspýtum.

Jólatré sem búið er til úr könglum er tilvalið þar sem plássið er lítið. Könglarnir eru límdir á vattkeilu og svo skreyttir með rauðum kúlum og nettum borðum. n

Íslenskir könglar í jólaskraut

Page 7: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Stekkjarbakka 6 | sími 540 3300 | www.gardheimar.is

Hvað skyldi ég fá í jólagjöf?

Page 8: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Á bænum Þrastarhóli í arnarneshreppi, skammt frá Möðruvöllum í Hörgárdal, er vísir að skógrækt í fjallshlíðinni. neðan við hana eru nokkrir sumarbústaðir og umhverfis íbúðarhús Vilborgar Pedersen er einn fallegasti garður á norðurlandi. Vilborg stendur keik með slönguna á lofti úti í miðjum garði sínum þegar

erindrekar blaðsins heimsóttu hana seinnipart sumars í eindæma norðlenskri veðurblíðu.

Veðráttan í sumar er búin að vera Norðlendingum hagstæð og nóg þótti Vilborgu um bindinguna yfir garðslöngunni því vart hafði komið deigur dropi úr lofti í þrjár vikur. Garðrækt hefur alltaf verið hennar árátta og hefur í gegnum tíðina veitt henni útrás og slökun frá daglegu amstri, frá barnahópnum og heimili. Það er ekki ofsögum

Merkisgarður í Eyjafirði Tex t i : Auður I . O ttesen . M yndi r : Pá l l Jökul l Pétursson

8 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 9: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

sagt að garðurinn hennar sé einn sá merkilegasti í Eyjafirði. Það eru aðeins 19 ár síðan fyrstu plönturnar voru settar þar niður og trén eru löngu farin að mynda skjól fyrir suðlægar tegundir - eik, hestakastaníu, ávaxtatré og fágætar rósir. Að baki liggja ótal vinnustundir. Vilborg gantast með að það sé stundum erfitt að ná í hana á sumrin og nefnir að ein vinkona hennar hafi verið viss um að hún væri ekki á landinu þegar hún var að reyna að ná í hana í heimasímann dag eftir dag. „Það þýðir náttúrlega ekkert að reyna að ná í mig í síma sem er inni í húsi því þar er ég ekki á sumrin og á vorin dríf ég mig út þegar vel viðrar og er þá að klippa og huga að plöntunum. Ég er samt alltaf með gemsann í vasanum,“ segir Vilborg glettin.

Sonardóttir Vilborgar sem býr í Danmörku gaf henni hrossakastaníu sem hún ræktaði í mjólkurfernu og var bara með einu blaði en er orðin nokkuð stór núna í garðinum hennar í Eyjafirði

Vilborg segir að það sé sama hvernig hún fari með hvíta og rauða bóndarós sem hún á - alltaf skal hún koma með fullt af blómum.

Vilborg tekur fræ af birkinu og sáir, börkurinn er fallega hvítur á litinn. Dönsk hjón gáfu henni tvö birki sem hún nefnir Hans og Vibeku eftir gefendunum.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 9

Page 10: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Morgunverðarhornið þar sem Vilborg situr og fær sér kaffibolla áður en hún hefst handa í garðinum.

BelgBaunir ræktaðar í BakgarðinuM

Vilborg segist hafa alist upp við ræktun og minnist þess að í æsku voru ræktaðar belgbaunir í bakgarðinum að Öldugötu 44 þar sem hún átti heima. „Ég hef alltaf haft ræktun í kringum mig. Ég man vel eftir fullri skál af baunum á eldhúsborðinu og mömmu að pilla baunirnar úr belgjunum. Pabbi ræktaði líka tómata í Aldamótagörðunum í Vatnsmýrinni, þar sem Gróðrarstöðin Alaska var. Matjurtagarðurinn hans var beint niður af Landspítalanum. Þarna ræktaði pabbi ýmislegt grænmeti en hann lét tómatplönturnar skríða undir gleri á jörðinni. Ég man svo vel eftir stikkilsberjasultu sem borin var fram með steikinni en pabbi ræktaði berin í hana. Ég man ekki betur en að allir karlarnir sem ræktuðu þarna hafi verið duglegir matjurtaræktendur.”

danskur uPPruni„Faðir minn var danskur, frá Svenborg á Fjóni.

Hann lærði aldrei íslensku almennilega og fyrir rest hafði hann hvorki vald á dönsku né íslensku. Þegar ég var krakki var ég að fela að hann væri að tala, krakkarnir sögðu að hann talaði svo mikla golfrönsku. Við systkinin skildum hann náttúrlega. Sjálf lærði ég aldrei almennilega að tala dönsku, ég skil hana en tala hana ekki að nauðsynjalausu. Aftur á móti hafa börnin mín sótt dálítið til Danmerkur í nám - kannski að það sé eitthvað í genunum,” segir Vilborg sem er trú uppruna sínum því hún er með nokkur tré frá Danmörku í garðinum. „Ég hef sáð eða alið upp af fræjum og græðlingum plöntur þaðan. Ég veit ekki hvort ég má segja frá því en ég hafði með mér frá Danmörku tvo sprota af svartylli, sem er algengur þarna úti, og kom þeim til. Annar þeirra er orðinn að kröftugu tré en hinn er lakari. Mér

þykir þetta tré afar fallegt, það blómstrar miklu seinna en alaskayllirinn sem er svo algengur, og berin eru svört og æt,” segir hún. Í glettni rifjar hún upp að dætur hennar segi að ekki sé hægt að fara með henni í nokkurn garð, hún sé alltaf stingandi á sig fræjum. „Það er nú satt, ég freistast oft til að næla mér í fræ ef ég get,” segir hún og hlær dátt. „Eikina mína ól ég upp af dönsku akarni en hrossakastaníu ræktaði ég aftur á móti upp af hnotu sem ég kom með frá Svíþjóð, en þar býr ein dætra minna.” Vilborg á líka tré sem hún tók fræ af í Kanada. „Ég hreifst af dögglingsviðnum þegar ég sá hann í breiðum í Kanada. Hann er svo mjúkur og ilmurinn í skóginum heillaði mig þegar við gengum þar um þegar við hjónin vorum þar á ferðalagi. Ég náði mér í köngul og sáði fræinu þegar ég kom heim.”

10 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 11: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

snúningastelPa í sVeitinni„Ég var ein af þeim stríðsárabörnum úr Reykjavík

sem voru send í sveit á sumrin. Ég var mjög heppin með staðina sem ég fór á. Ég var aðeins á fjórða ári þegar ég fór fyrst, og þá til hjónanna á Stóra Núpi í Gnúpverjahreppi. Það voru Ólöf Briem og Jóhann Sigurðsson, en hjá þeim var ég í nokkur ár. Þar var mikill garður með rifsberjarunnum og stór kálgarður þar sem aðallega voru ræktaðar rófur. Eftir að Ólöf dó aðeins 39 ára fór ég að Háholti í sama hreppi og síðan norður að Auðbrekku í Hörgárdal sumarið 1947 þegar ég var 12 ára. Ég var ráðin þar sem snúningastelpa Önnu Einarsdóttur, mikillar sómakonu,” segir Vilborg en Anna var tengdamóður systur hennar. „Anna var mikil garðyrkjukona og ég vann með henni í garðinum þar sem hún var með matjurtir og ræktaði fjölærar plöntur sem hún seldi um allt land. Anna var dugnaðarforkur og ég lærði heilmikið af henni,” segir Vilborg.

Borgarstúlkan settist að í sVeit Vilborg festi ráð sitt og fór árið 1955 að búa með

manni sínum, Jósef Tryggvasyni, á Þrastarhóli og hefur búið í Eyjafirðinum síðan. Hjónin voru með blandaðan búskap og börnin urðu ellefu. Vilborg hefur ræktað upp tvo glæsilega garða, fyrst í kringum gamla bæinn sem nú er notaður sem geymsla, og síðan í kringum húsið sem hún býr nú í. „Umhverfis nýja byggingarstæðið var slétt tún en þegar kom að því að reisa grunninn þá fannst manninum mínum að það myndi standa alltof lágt í landinu þannig að hann lét keyra möl undir grunninn til þess að það stæði hærra. Þannig kom til hallinn í garðinum.” Hjónin fluttu með börnin í húsið 1990 og sama ár byrjuðu þau að móta garðinn. „Fyrstu trén voru aspir sem höfðu verið teknar sem sprotar af öspum sem vaxið höfðu í gamla garðinum síðan 1964, en þær voru þá tveggja metra háar. Til hliðar við garðinn tætti maðurinn minn beð með mjóum tætara og strengdi plast yfir moldina. Plastið

var svo fergjað með borðum og grjóti. Árið eftir setti ég svo niður, ásamt alaskavíði, græðlinga af hreggstaðavíði í limgerðið sem skýlir garðinum.” Nú eru hæstu trén í garðinum orðin yfir sex metra há og limgerðið löngu farið að veita skjól.

VeðriðEldri trén í garðinum halla undan tíðri

suðvestanáttinni sem Vilborg segir aðallega slæma á veturna. „Fjallastrengirnir geta orðið ansi hvassir. Við bjuggum við það í áratugi að þurfa oft að bjarga heyjum því það var svo mikið rok í þessari átt. Meðan trén voru að vaxa á berangrinu þá létu þau undan vindinum og snjóþunganum á veturna. Ljótu trén mín í garðinum eru tvö en þau hafa brotnað svo oft undan snjófargi að þau eru orðin kræklótt. Mig hefur aldrei langað að höggva þau því mér finnst þau hafa unnið til þess að vera til, þó svo að þau séu ekki fullkomin,” segir Vilborg og bætir við: „Æi, við erum svo sem ekki öll fullkomin.”

Vilborg hefur þörf fyrir að sjá út á fjörðinn, út á sjóinn. Yfir sumartímann er daglegur viðburður að sjá skemmtiferðaskipin sigla inn fjörðinn og hefur hún gaman af því að fylgjast með þeim.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 11

Page 12: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Hún minnist þess að oft var svo mikill snjór í garðinum að ekki sást í trén. „Ég man sérstaklega eftir snjóþungum vetri 1995 en þá lagðist allt undan snjóþunganum í garðinum. Ég kalla þessa föl sem kemur núorðið á veturna ekki snjó því áður sást ekki í neitt hérna fyrir snjónum. Maðurinn minn reisti trén við og batt sum þeirra upp og ég hugsaði að fyrst þau lifðu þá ættu þau heimtingu á að standa eins lengi og þau gætu.” Það var ekki eingöngu snjófarg og vindur sem lék gróðurinn oft illa heldur einnig ótímabær vorfrost sem ollu kali í gróðrinum. „Vorin eru oft köld hér og oft þegar norðanáttin er ríkjandi er kalt fram yfir 20. júní. Í vor frysti hér aðfaranótt 19. júní og sá á kartöflugrösunum sem voru þá komin upp, en í þetta sinn kippti annar gróður

sér ekkert upp við frostið. Þetta er allt annað núna þegar skjólið er komið og nú er ég hætt að sjá Þrastarhólsskarð og Þrastarhólshnjúkinn fyrir trjánum.” Vilborg segist dekra pínulítið við það sem hún vill að lifi. „Silkifuran mín hefur vaxið mikið en það er bara fyrir það að ég ver hana á veturna. Ég er að vesenast í kringum hana þegar sólin hækkar á lofti síðla vetrar, skvetti á hana vatni og breiði striga yfir hana svo sólin nái ekki að þurrka nálarnar.”

Matjurtagarðurinn„Það þurfti svona ýmislegt handa þessum börnum og ég ræktaði alltaf grænmeti og á borðum voru heimaræktaðar kartöflur. Það var vinsælt hjá krökkunum að fá nýja rabarbarasultu á nýbakað brauð - ég þurfti að baka mikið af vínarbrauði handa þeim,” segir Vilborg. Grænmetið í matjurtagarðinum vex í kössum sem voru undan rörmjaltakerfi sem þau keyptu eitt sinn. „Ég var alltaf að missa grasið í beðin og það er allt annað að rækta í þessum kössum.”

Auk matjurtanna ræktar Vilborg krydd og vex myndarleg og fyrirferðamikil skessujurt í einu horni matjurtagarðsins. Jurtina segir Vilborg notadrjúga. „Ég þurrka hana, nota hana í kjötsúpuna, set eitt blað með kartöflunum sem ég tek upp um Verslunarmannahelgina og ef ég sýð nýjan fisk þá set ég eitt blað með og svo nota ég hana líka í salat. Eins er gott að nota vel af skessujurtinni með soðnum og brytjuðum sætum kartöflum, gulrótum og venjulegum kartöflum.”

Sjálfbær er orð sem Vilborg segir að sér hafi gengið svolítið illa að læra. „Ætli við hjónin höfum ekki alltaf verið sjálfbær, alltaf haft nóg fyrir okkur. Við áttum kindurnar og lögðum til kjötið, maðurinn minn fór á sjó með trillukarli og fiskaði í soðið, hann hafði alltaf svolítið gaman af því. Við áttum kýrnar í fjósinu og ræktuðum kartöflur og rófur svo við þurftum lítið að kaupa annað en kornvöruna. Ég varð svolítið hissa í vor þegar ég ætlaði að kaupa gulrótarfræ inni á Akureyri - það var uppselt. Það fóru allir að rækta grænmeti. Ætli Íslendingar fari ekki að verða sjálfbærir núna og rækta sitt eigið grænmeti. Vonandi heldur þetta áfram.”

VistVæn„Ég hef aldrei haft neinn safnhaugakassa því ég

hef haft næga mold en ég er komin með grænu tunnuna núna og flokka allt mitt rusl, lífrænt úr eldhúsinu fer síðan í haug í matjurtagarðinum. Svo keyri ég allar afklippur og illgresi í dæld fyrir ofan gamla húsið sem verður þar að mold. Það vex meira hér en maður óskar, ég er alltaf að snyrta og klippa trén og nóg er af illgresinu. Vilborg bregst líka lífrænt við skordýrunum þegar þau gera usla í garðinum. „Það hafa ekki verið óþrif í ár, en ég hef búið til lög úr rabarbarablöðkum sem ég úða svo á trén til að drepa lús og fiðrildalirfur. Ég sýð 2 kg af blöðkum í 3-4 lítrum af vatni þar til þær maukast. Þá blanda ég 1 lítra af grænsápu

Nálapúðinn er þekjandi sígrænn fjölæringur sem er á góðri leið með að klæða brekkuna hjá Vilborgu.

Eitt af beðunum með fjölærum, harðgerðum plöntum.

Í matjurtahorninu ræktar Vilborg kartöflur og fjölda annara matjurta. Þar eru þingvíðissprotar að ræta sig í fötu sem fara síðan í mýrina uppi í fjallshlíðinni.

12 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 13: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

út í og þynni svo löginn með vatni áður en ég sprauta honum á gróðurinn. Þetta hefur gagnast mér og dugði meira að segja á furulús í sumar eftir að ég úðaði tvisvar á fururnar. Dóttir mín, sem er garðyrkjufræðingur í Danmörku, hefur kennt mér sitthvað og hún benti mér á að nota uppþvottalög og spritt á lúsina. Einnig ef ég vildi losna við gras á milli gangstéttarhellna þá ætti ég að nota óþynnta ediksýru. Þetta er allt saman umhverfisvænt og mengar ekki,” segir Vilborg sem lumar á fleiri góðum ráðum. „Ég glímdi við elftingu í byrjun en losnaði við hana með sauðataði. Ég setti sauðatað í holuna þegar ég var að gróðursetja, síðan mold og svo plöntuna og loks sauðatað aftur, þá hvarf elftingin.”

skógrækt í HlíðinniSonur minn sem á hér fjórhjól sagði við mig

þegar ég var að trilla með hjólbörurnar: „Mamma, þú getur notað fjórhjólið og kerruna,” og nú fer ég um allt á fjórhjólinu. Ég keyri ekki í háa drifinu, það lága dugar mér alveg, en ég kemst það sem ég ætla mér.” Auk þess að rækta eigin garð er Vilborg að rækta upp skóg með börnum sínum en nokkur þeirra hafa reist sér sumarhús á landinu. „Ég byrjaði með svolitla skógrækt og hef farið með helling af alaskavíðigræðlingum í fjallshlíðina fyrir ofan skógræktina þar sem við hjónin settum niður greni fyrir margt löngu. Mér finnst engin ástæða til að henda afklippunum ef þær geta lifnað einhvers staðar og veitt skjól.”

ungarnir Flögra HeiM aFtur„Ég hef búið ein hér eftir að maðurinn minn

dó fyrir tveimur árum og ég segi stundum að nú vanti mína hægri hönd þegar það er eitthvað sem ég ræð ekki við sjálf. Ég er hætt öllum búskap, en á reyndar enn einn hest og kind sem dóttir mín

og tengdasonur hýsa fyrir mig. Þau reistu sér hús hér, eru í hrossabúskap og sækja vinnu sína inn á Akureyri,” segir Vilborg og heldur áfram:

„Börnunum snjóar inn um helgar þannig að ég er lítið ein og nýt hjálpar þeirra ef ég þarfnast hennar.” Á sumrin er oft fjölmennt á Þrastarhóli og um hvítasunnuna er sett upp samkomutjald sem er svo tekið niður um göngur. Sterk grind heldur tjaldinu uppi en hún stendur uppi allt árið. Tjaldið og húsgögnin eru geymd í gamla bænum á veturna en hann eru börnin að laga núna svo hann haldi vatni og vindi. „Það er grillað og borðað saman inni í tjaldinu. Oft eru hérna nokkur tjöld og allir í bústöðunum á sama tíma og þá er líflegt hérna hjá mér,” segir Vilborg.

ætlar að rótast í garðinuM eins lengi og Heilsan leyFir„Ég var að fram á nótt hér áður fyrr en

núorðið nenni ég ekki einu sinni í heita pottinn með krökkunum á kvöldin. Ég fer aldrei í pottinn seint á kvöldin því ég er löt eftir kvöldmatinn en krakkarnir njóta þess að horfa á Vindheimajökulinn í miðnætursólinni,” segir Vilborg sem segist vera heilsuhraust en hafi sagt börnunum sínum að þegar hún hætti að geta rótast í garðinum sé tímabært að koma sér á eitthvert elliheimili. Það er nú eitthvað í það því það eru engin ellimerki á frúnni og hún áformar daginn eftir heimsókn okkar í garðinn hennar að fara í ferðalag á vegum Orlofsnefndar húsmæðra í Eyjafirði. „Ég hef ekki farið neitt því ég hef verið bundin við að vökva í sumar en ég ætla að láta gamlan draum rætast og fara með konum hér í firðinum út í Flatey á Skjálfanda. Mig hefur dreymt um það í mörg ár. Ég læt mig ekki vanta,” segir Vilborg og við samfögnum henni að sá draumur skuli rætast.

Tegundirnar í garðinumViburnum edule BessarunniBetula pubescens BirkiSpiraea betulifolia BirkikvisturSalix candida BjartvíðirPopulus tremula Blæösp Syringa reflexa Bogasírena Paeonia officinalis BóndarósPseudotsuga menziesii DögglingsviðurQuercus robur EikLaburnum alpinum FjallagullregnLaburnum x watereri ‚Vossii‘ GarðagullregnLilium bulbiferum Eldlilja Cotoneaster lucidus GljámispillLonicera ledebourii GlæsitoppurSorbus hybrida GráreynirPrunus padus HeggurPicea glauca HvítgreniSorbus cashmiriana Kasmírreynir Aesculus hippocastanum HestakastaníaPrunus avium SætkirsiberRibes glandulosum KirtilrifsSorbus frutescens KoparreynirSalix viminalis KörfuvíðirViburnum lantana LambarunniSalix arbusculoides LækjarvíðirMalus sp. Eplatré af fræiTsuga heterophylla MarþöllAlnus glutinosa RauðelriLonicera tatarica Rauðtoppur Delphinium Elatior hybr. Riddaraspori Dryas octopetala Holtasóley/rjúpnalauf Sorbus RunnareynirSalix caprea SeljaSorbus intermedia Silfurreynir Pinus peuce SilkifuraSorbus sitchensis ssp. sitchensis SitkareynirAlnus sinuata StakelriPhiladelphus coronarius SnækórónaBetula ermanii SteinbjörkSalix phylicifolia ‚Strandir‘ StrandavíðirPopulus tremula ‚Erecta‘ SúlublæöspSambucus nigra SvartyllirSalix viminalis ÞingvíðirSyringa yunnanensis Þokkasírena

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 13

Page 14: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Í lok október ár hvert hittast hressar vinkonur í sumarbústað og koma sér í jólastuð. Þótt ásetningurinn sé að búa til jólaskraut og jólagjafir gefa þær sér góðan tíma til að borða

góðan mat, skrafa og bregða sér í heita pottinn.

Hildur Magnúsdóttir, verslunarhaldari að Borg í Grímsnesi, er ein kvennanna en hinar eru æskuvinkonur hennar úr Smáíbúðahverfinu í Reykjavík, þær Þórhildur Jóhannesdóttir og Helga Stefánsdóttir. Auk þeirra eru í hópnum Halldóra, systir Þórhildar (Tótu eins og hún er alltaf kölluð) og Guðrún Gunnarsdóttir frá Stærri-Bæ í Grímsnesinu. Hildur segir að Guðrúnu hafi þær Tóta kynnst um tvítugt þegar þær unnu eitt sumar saman á Minni Borg og hefur sá vinskapur haldist. „Mamma var nýbúin að kaupa verslunina á Minni Borg og við Tóta unnum þar eitt sumar og kynntumst Guðrúnu á djamminu.” Þær Hildur, Tóta, Helga og Guðrún eru allar á svipuðu reki en þær segja að Halldóra sé örverpið í hópnum. „Ég fékk að koma með stóru systur í saumaklúbbinn og svo passaði Helga mig þegar ég var lítil,” segir Halldóra og bendir á Helgu. „Eftir að ég kom

inn í saumaklúbbinn lækkaði meðalaldurinn umtalsvert en stelpurnar eru ekki deginum eldri en ég í anda.”

dVelja í Bústað eina Helgi á ári Konurnar í saumaklúbbnum Bláu nunnurnar

hittast í október ár hvert og dvelja í sumarbústað yfir helgi. Hildur útvegaði stöllunum bústað í þetta sinn en þær skiptast á að útvega orlofsbústaði. Þessa helgi dvöldu þær í bústað í eigu Olís sem ætlaður er starfsmönnum fyrirtækisins. Áður hafa þær meðal annars verið í orlofsbústöðum Kennarasambandsins. „Bústaðina pöntum við

alltaf á sumrin til að tryggja okkur síðustu helgina í október, en við höfum í mörg ár hist þá helgi og föndrað saman,” bætir Hildur við. Fyrstu skiptin voru þær aðeins yfir eina nótt en eftir að börnin þeirra fullorðnuðust þá hafa þær fjölgað dögunum og nú voru þær komnar í bústaðinn á fimmtudagskvöldi og dvölinni lauk á sunnudagseftirmiðdegi.

Bralla saMan MánaðarlegaEins og títt er með saumaklúbba þá hittast

þær reglulega. Einu sinni í mánuði bralla þær eitthvað saman og oft eru samverustundirnar með

Þótt ásetningurinn sé að föndra og vinna að handverki helgina í bústaðnum þá gefa þær sér tíma til að bregða sér í pottinn. Hér eru þær Hildur, Guðrún, Halldóra og Helga á góðri stund með góðan Mojito í glösunum.

14 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Bláu nunnurnar Tex t i : Auður I . O ttesen . M yndi r : Pá l l Jökul l Pétursson

Page 15: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

óhefðbundnu sniði. „Við höldum jólaboð árlega en það er í eina skiptið sem makar okkar fá að vera með. Við skiptumst á að halda jólaboðin og deilum kostnaðinum. Sú sem heldur það býður upp á þríréttaða máltíð og við njótum þess að vera saman,” segir Helga og þær rifja upp ýmislegt sem gert er í saumaklúbbnum. „Við förum árlega í eina menningarferð saman. Við fórum t.d. og skoðuðum hvað íslenskir hönnuðir eru að gera. Við röltum saman um miðbæ Reykjavíkur á löngum laugardegi og litum inn til allra hönnuða á Skólavörðustíg og Laugavegi,” segir Tóta og vinkonurnar taka undir með henni að það hafi verið virkilega gaman. Þær rifja upp allar ferðirnar í Keiluhöllina og skellihlæja þegar þær tala um köst sem enduðu annars staðar en þeim var ætlað.

„Við skemmtum okkur konunglega, enda er svo hollt að hlæja. Halldóra kastaði einu sinni kúlunni aftur fyrir sig og svo aðstoðuðum við eitt sinn mann á næstu braut og slógum keilurnar niður fyrir hann,” segir Helga og þær vinkonurnar hlæja saman yfir endurminningunum.

Floskúlurnar í hálsmenið ná kringlóttri lögun þegar stungið er ítrekað í þær með nál. Gott er að hafa púða undir þegar stungið er.

Þórhildur er hér að nudda saman tvo þræði svo úr verði einn óslitinn. Hún segir að í gamla daga hafi menn hrækt í lófann áður en þræðirnir voru þæfðir saman. Þegar þráðurinn var fínn kom fyrir að menn sóttu eyrnamerg og nudduðu til þess að ná betri festu, en sú aðferð er aflögð núna.

Floskúlurnar sem stelpurnar gerðu í hálsmenin voru í öllum mögulegum litum.

Halldóra búin að setja sig í stellingar, tilbúin að búa til kúlu úr flosi.

Systurnar Halldóra og Þórhildur að klippa þráð í hálsmen.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 15

Page 16: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Föndur og jólagjaFirÞað er fátt sem þær hafa ekki föndrað saman.

Þær segja að áður fyrr hafi þær verið duglegar að gera jólaskraut en nú eru það jólagjafirnar.

„Ég held bara að við höfum föndrað allt sem hægt er að gera. Við vorum í konfektgerð, svo kom frauðkúlutíminn og síðar duttum við alveg í kántríið og máluðum á tré. Við erum núna í skartgripagerð og hver og ein er með sitt lítið af hverju,” segir Hildur og hinar bæta við að það fari alltaf einhverjar úr hópnum á námskeið og miðli svo hinum af reynslu sinni. Nú séu þær uppteknar af skartgripagerð og vattsaumi.

VattsauMur aðFerð Frá VíkingatíManuM

Tóta og Hildur fóru saman á námskeið hjá Áslaugu Finnsdóttur sem kennir vattsaum, en það er forn aðferð til að búa til vettlinga, sokka og sjöl.

„Vattsaumur er forn prjónamennska frá víkingaöld sem notuð var áður en Íslendingar lærðu að

prjóna. Dóttir mín er víkingur í Rimmugný í Hafnarfirði, og þar má eingöngu vera í klæðum sem eru unnin eða gerð með fornum aðferðum,” segir Tóta, sem var að búa til sokka og vettlinga á hana. „Á Þjóðminjasafninu eru til ljósmyndir af vattsaumuðum vettlingum og sokkum og einnig af sjölum. Þessi forna aðferð er að deyja út en Áslaugu, sem kenndi okkur, er annt um að halda henni á lofti. Á námskeiðinu sýndi hún okkur þykka og mikla peysu á sig sem er nútímaútgáfa, unnin með þessu handbragði.” Tóta heldur áfram að útskýra þessa áhugaverðu

Helga prjónar verklega vettlinga.

16 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Jólasveinn sem búinn er til úr ullarflosi. Hausinn og búkurinn er búinn til með sömu aðferð og floskúlan í meninu.Guðrún og Helga vinna saman í skartgripagerðinni.

Ein úr hópnum fór á námskeið í skartgripagerð og kenndi hinum. Stelpurnar bjuggu til men og eyrnalokka. Í meninu er floskúla fyrir miðju og perlum og steinum síðan raðað beggja vegna og fest svo það haldist á sínum stað.

Hildur prjónar úr pelsgarni trefil og ennisband. Garnið heitir Brazilia liné en það keypti hún í prjónabúð í Hveragerði.

Guðrún í ermum sem hún prjónaði. Skondin flík sem passar vel undir vesti. Ermarnar eru prjónaðar og síðan tengdar saman, áþekkt herðasjali.

Page 17: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

hannyrðaaðferð. Í vattsaum er notuð stór nál úr tré eða beini. Beinnálarnar þóttu hlýjastar í hendi og voru algengastar. Tóta er að prjóna vettling og segir hann verða æ fallegri eftir því sem hún æfist meira. „Vettlingurinn verður voðalega þéttur og ætli hann verði ekki nærri vatnsheldur. Þetta er seinlegt en afskaplega skemmtilegt.”

skartgriPagerð Eftir að hafa fengið sér pítsu og kaffi á eftir

sökktu stöllurnar sér niður í skartgripagerðina. Guðrún hafði lært að búa til skartgripi úr þæfðri ull, perlum og steinum, og kenndi þeim handtökin. Fyrst bjuggu þær til kúlu úr þæfðri ull sem þær pikkuðu í með nál þar til hún varð þétt eins og steinn og með kúlulögun. „Ég lærði að bleyta ullina fyrst og hnoða hana svo saman í kúlu. Síðan stingur maður í vöndulinn með nál þar til hann verður að hnöttóttri harðri kúlu,” segir Guðrún um leið og hún liðsinnir vinkonum sínum sem sitja með púða í kjöltunni og stinga og stinga. Kúlan er fyrir miðju á hálsmeninu og steinarnir festir með jöfnu millibili sitt hvorum megin. Þeir eru festir með því að klemma með ákveðnum festingum eins nálægt kúlunni og hægt er þannig að skrautið sé ekki á flakki. Lengdin á vírnum er 45 sm eða lengri, eftir því hvað menið á að vera langt. „Við keyptum efnið í þessar festar hjá Perlukafaranum í Glæsibæ og hjá Glit. Steinana og perlurnar kaupum við í lengjum og sameinumst um kaupin.“ Stelpurnar sitja einbeittar og setja festingar sitt hvorum megin við steininn og kúluna til að skorða þær. Lokaverkið er að setja festingar á menið.

leyst út Með gjöFEftir meira kaffi og Grand finnst stelpunum tími

til kominn að skella sér í pottinn, nóg sé komið af vinnu þann daginn. Við kveðjum þær hlæjandi og til minningar um heimsóknina gefa þær mér fallegt hálsmen með svartri og grænni kúlu sem þeim finnst einmitt passa við karakterinn minn. Ég þakka þessum skemmtilegu Bláu nunnum samveruna og kveð með bros á vör. n

Mikil gleði og sköpunarkraftur í bústaðnum. Frá vinstri: Guðrún Gunnarsdóttir, þá Helga Stefánsdóttir, og í miðjunni er Hildur Magnúsdóttir. Síðan koma systurnar Halldóra og Þórhildur Jóhannesdætur.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 17

Halldóra er afkastamikil handverkskona og er hér að leggja lokahönd á jóladúk undir jólatréð. Dúkurinn er skreyttur böngsum, hreindýrum og snjókörlum sem eru klipptir úr filti og áður en þeir eru saumaðir fastir er sett örlítið flos undir til að gefa þeim lyftingu.

Page 18: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Auður Árnadóttir blómaskreytir og Ásta Bárðardóttir eru með skreytingar unnar úr efniviði skógarins til sýnis og sölu í skemmunni við Elliðavatn.

Jólamarkaður skógræktarfélags reykjavíkur nýtur vaxandi vinsælda hjá borgarbúum og komu um 10.000 manns í heimsókn á aðventunni í fyrra. Markaðurinn er við elliðavatn

í Heiðmörk og er nú haldinn í þriðja sinn og verður opnaður laugardaginn 28. nóvember og verður opinn allar

helgar fram að jólum.Hann hefur stækkað ár frá ári og verður bæði í gömlu steinbyggingunni og á hlaðinu í kring. Fjölbreytt úrval af íslensku handverki verður þar til sölu, ásamt nýhöggnum íslenskum jólatrjám og úrvali af tröpputrjám sem slógu í gegn á síðasta ári.

Í elsta húsinu við Elliðavatn, sem var byggt 1860 og þar sem þjóðskáldið Einar Benediktsson fæddist, verður til sölu og sýnis efniviður úr skóginum sem starfsmenn félagsins, ásamt þeim Ástu Bárðardóttur og Auði Árnadóttur blómaskreyti, hafa unnið undanfarna mánuði. Þar verður hægt að fá eldivið, köngla, trésneiðar, furugreinar og nálar, trédrumba, börk og mosa og

Alíslenskur jólamarkaður í Heiðmörk

18 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 19: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

allt efni sem nýtist í fallega hurðakransa, borðskraut eða sem jólatrésskraut. Á hverjum markaðsdegi koma tónlistarmenn í heimsókn, harmóníkuleikarar, trúbadorar og kór. Einnig verða flutt stutt fræðsluerindi og rithöfundar lesa upp úr nýjum bókum sínum. Í Gamla salnum er síðan búið að innrétta notalega kaffistofu þar sem verða ilmandi vöfflur og kakó. Þegar nær dregur jólum opnar Jólaskógurinn í Hjalladal en þar gefst fólki tækifæri til að fara í skóginn, velja sér alíslenskt tré og höggva það sjálft. Það er notalegt að komast úr ys og þys borgarlífsins og fara í heimsókn í Heiðmörkina, sem hentar ekki síður til útivistar og skoðunar að vetri til en á sumrin.

Borgarstjórinn í Reykjavík mun með viðhöfn opna Jólaskóginn í Hjalladal þann 12. desember kl. 11, en þá mætir Hanna Birna Kristjánsdóttir og heggur jólatré fyrir sig og fjölskyldu sína. Jólaskógurinn er opinn tvær síðustu helgarnar fyrir jól, 12.-13. og 19.-20. desember frá kl. 11-16. Á staðnum eru eldhressir jólasveinar sem aðstoða börn og foreldra þeirra við að velja sér og höggva jólatré. Mikil stemmning er á staðnum og í boði Skógræktarfélagsins nýtur fólk þess að fá sér heitt kakó við varðeld sem logar glatt alla jólatrjáadagana. Aðeins eitt verð er á jólatrjánum í Jólaskóginum, 4.900 kr., óháð stærð og tegund, en þetta er sama verðið þriðja árið í röð. Í skóginum er að mestu stafafura en inni á milli leynist eitt og eitt greni. Stafafuran hefur þann góða kost að halda barrinu lengi og því óþarfi að vera með ryksuguna á lofti yfir hátíðirnar.

Í Rjóðrinu, skammt frá bænum, verður Barnastund alla daga, varðeldur, leikir og

lestur úr nýjum barnabókum. Eins og vera ber mun síðan jólasveinninn heilsa upp á gestina.

Ólafur Ólafsson, Óli Finnski, hefur höggvið í eldinn fyrir þá sem vilja kynda upp með íslenskum eldiviði um jólin.

Á undanförnum árum hefur verið mjög vinsælt að koma í Heiðmörk og kaupa sér jólatré, velja það og fella sjálfur. Hér er ánægð stúlka að koma með tréð sitt.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 19

Page 20: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Þrátt fyrir samdrátt á flestum sviðum samfélagsins er uppgangur í blómabúðinni 18 rauðum rósum. Menn verða umhyggjusamari og kærleiksríkari í ríkjandi ástandi og grípa með sér litlar gjafir, blómvönd eða kerti og servíettur, þegar ættingjar og vinir eru heimsóttir. tíðarandinn er að breytast aftur, fólk hefur meiri

tíma og vill gleðja hvert annað.Tex t i : Auður I . O ttesen M yndi r : Pá l l Jökul l Pétursson

18 Rauðar rósir í Hamraborg er ein af sjö blómaverslunum í Kópavogi. Sigríður Gunnarsdóttir og Vignir Garðarsson eru eigendur hennar og Didda, eins og Sigríður er alltaf kölluð, var búin að vinna víða í blómaverslunum áður en hún og eiginmaður hennar stofnuðu 18 Rauðar rósir 20. október 2006. Það hjálpaði til að þar hafði áður verið blómabúð í ein 32 ár í Blómahöllin sem þeir Jón Ragnarsson og Bóas ráku. Didda ákvað strax í byrjun að hafa ekki þann langa afgreiðslutíma sem tíðkaðist í blómaverslunum á þeim tíma. „Flestar blómaverslanir voru opnar til níu öll kvöld. Ég kærði mig ekki um þennan fáránlega afgreiðslutíma. Við höfum opið til klukkan 19 virka daga, en til kl. 20 á föstudags- og laugardagskvöldum. Á sunnudögum er opið frá 13-17. Þetta hefur mælst vel fyrir,” segir hún. Í 18 Rauðum rósum vinna auk hennar tveir blómaskreytar - Valgerður J. Guðjónsdóttir sem lauk námi í blómaskreytingum frá Garðyrkjuskóla ríkisins 1998, og Lilja Ingvarsdóttir sem lærði blómaskreytingar í Blómaskóla Ingvars Strand í Svíþjóð.

nútíMalegur stíll og glaMúrValgerður J. Guðjónsdóttir hefur unnið við blómaskreytingar í 15 ár og segir

Íslendinga nýjungagjarna - þeir vilji þó allir fá sína hýasintuskreytingu en í nýjum búningi. „Nú til dags eru skreytingar nútímalegar, gler er mikið notað og fólk vill glamúr. Svo eru alltaf einhverjir sem eru íhaldssamir og við sinnum þeim einnig. Það eru þá helst einkertaskreytingarnar sem fólk vill svipaðar, þær seljast alltaf. Það hefur aukist mikið að gera skreytingar úr gerviblómum, sem er hið besta mál. Þær endast ár eftir ár og núna eru margir sem horfa í kostnaðinn. Þær henta þeim sem hafa ofnæmi fyrir lifandi gróðri og margir gefa ástvinum sínum sem búa á elliheimilum eða dvelja á sjúkrahúsum slíkar skreytingar.” Valgerður segir enn eina breytinguna vera þá að fólk fái sér vönd með ferskum blómum á aðfangadagsmorgun til að skreyta jóladagana.

náttúrulegt eFni í leiðaskreytingarLeiðisskreytingar kaupa menn á leiði ástvina sinna rétt fyrir jólin og bjóða 18

rauðar rósir fjölbreytt úrval þeirra. Valgerður segir að sér finnist fallegast að hafa þær skreytingar alveg náttúrulegar. „Við skreytum alltaf sígrænar greinar og leiðiskrossa og það nýjasta eru falleg basthjörtu. Þau eru gerð þannig að blómum er stungið í oasis-kubb sem settur er í mitt hjartað - einfalt, þægilegt og afar fallegt.” Valgerður notar auk sígrænu greinanna köngla af furu, greni og elri í skreytingarnar.

Ekki er leyfilegt að vera með logandi kerti á elliheimilum og útbúa þær því skreytingar sem henta þar. Leiðaskreyting hér að neðan

20 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 21: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Tignarleg skreyting úr silkiblómum eftir Lilju.

„Ég nota líka ýmsar trjágreinar og afskorin blóm. Ilex er með falleg ber, er sígrænn og alveg tilvalinn í skreytingar sem eiga að vera utandyra. Fínlegt hvítt brúðarslörið fer vel með sígrænum greinum og þola alveg svolítið frost. Rósirnar nota ég líka en þær þola illa mikið frost þó að þær haldist samt ágætlega þótt frjósi.” Hún bætir því við að þær stöllur í 18 rauðum rósum útbúi bæði hefðbundnar leiðisgreinar og sinni séróskum viðskiptavinanna.

einFaldleikinn, krydd og greniilMur skaPa jólasteMMninguna

Fyrir jólin leggur Lilja Ingvarsdóttir áherslu á stílhreinar skreytingar heima hjá sér, náttúrulegar og svolítið töff skreytingar. „Ég bjó lengi í Svíþjóð en þar eru skreytingarnar afar hefðbundnar. Þeirra aðventuskreyting er eins ár eftir ár - fjögur kerti í bastkörfu, og þeir eru alltaf með hýasintur. Við erum allt öðruvísi, við viljum breyta til og erum ævintýragjörn. Aðspurð

Sigríður Gunnarsdóttir, Didda, með hundinn sinn lengst til hægri. Á myndinni eru einnig blómaskreytarnir Valgerður J. Guðjónsdóttir til vinstri, og Lilja Ingvarsdóttir í miðjunni.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 21

Page 22: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

segist hún njóta aðventunnar og jólanna. „Ég hef gaman af því að skreyta fyrir jólin og finnst best að hafa hlýlegt og náttúrulegt andrúmsloft í kringum mig. Ég vil finna grenilyktina, finna lifandi efni í höndunum á mér,” segir hún og bætir við að lyktin skipti hana töluverðu máli. „Ég fer alltaf til þeirra Steinars Björgvinssonar og Hólmfríðar Finnbogadóttur í Þöll hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar rétt fyrir jólin til að njóta lyktarinnar. Stemmningin þar er þannig að mér finnst ég vera komin í paradís. Eldur logar í stórri tunnu, greniilminn leggur á móti manni og inni er boðið upp á kakó og ilmandi piparkökur. Stemmningin minnir mig meira á útlönd en íslenskan veruleika.”

Þrátt fyrir nýjungagirni er rauði liturinn samt alltaf klassískur. „Jólastjarnan, rauðir túlípanar og rósir seljast alltaf vel og amarilis-laukurinn er aftur að ryðja sér til rúms,” segir Valgerður og minnist þess að fyrir síðustu jól hafi fengist jólarós, fjölær planta sem blómstrar um jólaleytið. „Jólarósin er komin í verlanir og ég á von á að hún verði vinsæl því það er svo fallegt að hafa hana úti með grænum greinum.”

jólatréð stórt og skrautlegtDidda segist vera mikið jólabarn en eftir að hún opnaði verslunina gefst

lítill tími til að skreyta heima við. „Ég hef verið með stórt jólatré heima sem á fara þúsund hvítar ljósaperur og þúsund hlutir. Oft hafa vinkonur mínar komið og verið með mér að skreyta tréð því það tekur þónokkurn tíma, en vegna anna náði ég ekki að skreyta tréð í fyrra. Ég hef víða keypt skraut á tréð og bæti við á hverju ári,” segir Didda en þrátt fyrir fjöldann er jólatréð stílhreint því hún notar eingöngu gyllt, hvítt, silfrað eða kremlitað skraut á það.

Valgerður gerði þessa fallegu borðskreytingu þar sem hún notar rauðar rósir, lifandi greinar og logandi ljós í bland við skrautlegar kúlur og filtlauf.

22 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 23: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 23

Page 24: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Sitkalús (Elatonium abietinum) getur oft verið til vandræða í görðum og þá eingöngu í grenitrjám. Þessi litla blaðlús er þeirri náttúru gædd að vera að allan veturinn og þolir yfir

-10°C án þess að kenna sér meins. Helstu merki um þennan vágest er að trén byrja að gulna innan frá. Veðraskemmdir á greni og öðrum sígrænum gróðri er oftast yst á trjánum en lúsin byrjar að sjúga þróttinn úr nálunum innst í trjánum. lús þessi fjölgar sér aðallega með kynlausri æxlun allt árið um kring, ekki síst á haustin og veturna en líka stundum á vorin. sitkalús þrífst ekki vel á meðan tré eru í vexti og er því oftast lítið um hana yfir hásumarið.

Þó að segja megi að tegundin hafi bandarískt nafn, en Sitkabær sem lúsin er kennd við, er á Baranoff-eyju í Alaska, þá er hún nú samt upprunnin í Mið-Evrópu en getur lagst illa á bandarískar grenitegundir eins og blágreni (Picea engelmanii) og sitkagreni (Picea sitchensis). Ef sitkalúsar verður vart í garðinum getur verið æskilegt að bregðast við. Lúsin er að vísu agnarsmá en gular barrnálar eru glögg vísbending um innrás lúsarinnar og ef nálarnar eru grannt skoðaðar sjást lýsnar vel. Lúsin byrjar að tína tölunni við

-12-15°C en alltaf eru þó einhver dýr sem lifa af. Ungar lýs þola betur frost en gamlar, eða allt að

-25° C. Þar sem ekki er hægt að stóla á frostið er stundum ráð að úða stöku tré, enda leiðinlegt að missa sparitréð í lús en barrið getur nánast allt farið af trjám í slæmum tilfellum. Oftast ná trén sér nú, en það geta samt liðið mörg ár þar til þau verða fín aftur.

Hægt er að nota frostlausa og þurra daga til þess að úða tré ef þurfa þykir og er hægt að nota ýmsar gerðir af skordýraeitri, eins og Permasect, Decis og Trounch. Nokkuð hefur borið á sitkalús í haust og er rétt að huga að grenitrjám ef þau eru í garðinum. Þó skal alltaf hafa hugfast að aldrei er nauðsynlegt að úða tré - þau ná sér oftast á endanum og þetta er alltaf matsatriði. Sumir vilja bara að náttúran hafi sinn gang og sleppa því að úða tré. n

Skimað eftir sitkalús

Tex ti : Jón Guðmundsson. M yndi r : Pá l l Jökul l

Til vinstri er greni sem er illa farið af völdum sitkalúsar. Á innfelldu myndinni sérst hvernig sitkalúsin drepur nálar grenitrjánna.

Hægt er að sjá sitkalúsina á barrnálunum ef vel er að gáð.

24 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

GRÓANDINN

Page 25: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Skógarmítill (Ixodes ricinus) er lítið skordýr sem bæst hefur í skordýrafánuna á íslandi. Fyrsti skógarmítillinn sem fannst hér á landi var tekinn af þúfutittlingi í

surtsey í maí 1967, þá nýkominn frá vetrarstöðvum sínum í evrópu. Þar með var staðfest að hann gæti borist hingað til lands með farfuglum. Það var svo ekki fyrr en 1998 að hann fannst í annað sinn og er þá ekki tekið tillit til sögusagna og lýsinga fólks á svipuðum fyrirbrigðum fram að þeim tíma.

Upp frá því fór tilfellum fjölgandi og voru flest þeirra tilkynnt á Suðvesturhorninu þar sem skógarmítlar fóru að finnast á fólki og hundum eftir útivist í íslenskri náttúru, og í nokkrum tilfellum einnig hjá fólki sem hefur verið í útlöndum. Þeir fundarstaðir skógarmítla, sem tilkynntir hafa verið til Náttúrufræðistofnunar, eru frá Vogum á Reykjanesi og austur í Hornafjörð, og þar fyrir utan á Patreksfirði, í Skagafirði og á Egilsstöðum og hafa þeir fundist frá því snemma sumars og fram eftir hausti.

skógarMítlar nærast á BlóðiSkógarmítill er lítill hryggleysingi, náskyldur

kóngulóm og öðrum mítlum. Hann þarfnast blóðs á öllum stigum lífsferlisins, frá ungviði og upp í fullþroskað dýr. Lífsferli þeirra skiptist í þrennt - lirfu, ungviði og fullorðið dýr. Á hverju stigi lífsferlis síns þarfnast þeir blóðs. Eftir því sem þeir þroskast, stækkar blóðgjafinn. Lirfan

lifir einkum á smáum dýrum, svo sem fuglum og músum, en finnst einnig á stærri dýrum, t.d. hundum og köttum. Fullorðnir blóðmítlar lifa aftur á móti eingöngu á stórum spendýrum, sem hérlendis eru hundar, kettir, sauðfé, nautgripir og hestar. Á flestum stöðum spannar lífsferli blóðmítla 2-3 ár en það fer nokkuð eftir loftslagi og hversu mikla fæðu þeir ná í. Erlendis þrífast blóðmítlar best á svölum og frekar rökum stöðum. Þá má finna á ýmiss konar grónum svæðum, oft þar sem gróður er hár, til að mynda í melgresi og á grónum árbökkum, runnavöxnum ökrum og í skógum. Ungviðið líkist fullorðnum dýrum en hefur aðeins þrjú pör fóta í stað fjögurra. Fullorðin dýr geta orðið allt að 11 mm að lengd en ungviðið 1-5 mm. Skógarmítill er að öllum líkindum orðinn landlægur hér á landi og útbreiðslusvæðið er að færast norður á bóginn með hlýnandi loftslagi. Í maí 2009 fundust ungviði skógarmítils á nýdauðum steindepli í Reykjavík.

skógarMítlar geta Verið sMitBerarSkógarmítill er varasamur því hann getur borið

alvarlega sýkla sem hann smitar fórnarlömb sín með, til að mynda bakteríu sem nefnist Borrelia burgdorferi, en hún getur valdið alvarlegum skaða á taugakerfi manna og skepna og veldur svokölluðum Lyme-sjúkdómi. Einkenni þessa sjúkdóms eru hiti, höfuðverkur, lið- og vöðvaverkir, þreyta og jafnvel þunglyndi, auk þess sem hringlaga útbrot á húð eru áberandi einkenni. Ef ekkert er að gert getur sjúkdómurinn haft áhrif á hjarta og taugakerfi, en í langflestum tilfellum er hægt að vinna bug á sjúkdómnum með sýklalyfjum. Þess ber þó að geta að þessi baktería er ekki í öllum skógarmítlum heldur þurfa þeir að hafa nærst á blóði sýkts dýrs til þess

að vera smitberar. Þar sem þeir nærast aðeins einu sinni á hverju lífsstigi getur hver mítill aðeins sýkt eina manneskju og sjúkdómurinn berst ekki á milli manna.

Að sögn Erlings Ólafssonar, skordýrafræðings hjá Náttúrufræðistofnun, er rétt að benda fólki á að vera á varðbergi og leita læknis ef það verður fyrir biti og finnur einhver einkenni, svo sem útbrot í húð. Það tekur meira en sólarhring fyrir bakteríuna að berast úr mítli í hýsil og er því mikilvægt að leita strax læknis ef grunur leikur á biti skógarmítils. Einnig er hundaeigendum bent á að fylgjast vel með hundum sínum, sérstaklega eyrum þeirra, innanverðum framfótum og lærum, og athuga hvort þessi kvikindi hafi tekið sér bólfestu þar. Bryndís Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir greindi frá því í viðtali í Læknablaðinu að ekki hefði enn verið staðfest að skógarmítlar á Íslandi bæru í sér Borrelia burgdorferi og þar til það kæmi óyggjandi fram væri ekki hægt að fullyrða neitt. Hún sagði einnig að þar sem skógarmítillinn væri landlægur væri fólk vant því að leita að honum á líkama sínum eftir útivist í skógi eða graslendi og hann er í sjálfu sér hættulaus ef hann er tekinn af húðinni innan við sólarhring eftir að hann nær að festa sig. Bakterían sem veldur Lyme-sjúkdómi í mönnum kemst ekki í blóðrás hýsilsins nema að mítillinn sjúgi blóð mjög lengi. Hérlendis er fólk ekki vant þessu skordýri og því er full ástæða til að vara við því. n

Náttúruf ræðistofnun, Er l ing Ólafsson , www.ni . i s .

Sk ógrækt r ík i s ins , Edda S . Oddsdótt i r og Br ynja

H rafnk elsdótt i r, www.sk ogur. i s .

M yndi r : E r l ing Ólafsson .

Skordýr sem sýgur blóð til að lifaÚtbreiðsla skógarmítils er í Evrópu á milli 39° og 65°N frá Portúgal og Írlandi, austur til Volgu í Rússlandi og þaðan suður til N.-Afríku. Hann finnst í Færeyjum og nú síðari ár á Íslandi.

Ungir skógarmítlar

Skógarmítill eftir að hafa nærst.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 25

Page 26: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Blaðlauks og kartöflusúpa.

Matreiðslan úr garðinumTex ti og myndi r : Jón Guðmundsson.

Það er ekki nóg að rækta bara matjurtir, það þarf líka að tryggja að þær séu nýttar og það er nú allur gangur á því hvernig það gengur fyrir sig. Mér hefur þótt

best að hafa nóg af hugmyndum og uppskriftum á vísum stað til þess að geta gripið til þegar það á við.

Í rauninni er hægt að matbúa heilu máltíðirnar með nánast eingöngu heimaræktuðu hráefni, hvort sem um er að ræða matarmiklar súpur, pottrétti eða ofnrétti. Einnig er hægt að nota margt í ferskt salat og er til að mynda heimaræktað hvítkál, gulrætur og rófur kjörið í hrásalat á veturna þegar ferskt blað- eða höfuðsalat er ekki lengur til staðar í garðinum. Þessar tegundir geymast líka langt fram eftir vetri í þokkalegri geymslu.

Sumar tegundir matjurta getur beinlínis verið gott að rækta til þess að eiga til vetrarins og á

það helst við um allt rótargrænmeti en líka þær tegundir sem gott er að frysta. Ég hef ræktað rauðrófur í áraraðir, aðallega til þess að eiga í rússneska rauðrófusúpu yfir veturinn, enda með betri máltíðum sem hægt er að fá á köldu vetrarkvöldi.

Það eru líka til fjölmargar góðar súpuuppskriftir þar sem kartöflur eru í lykilhlutverki og góð súpa með grófu brauði er hin besta máltíð. Matarmiklar bökur er líka hægt að gera úr heimaræktuðu grænmeti. Rabarbara og ber er gott að eiga í frystinum yfir veturinn og nota í eftirrétti og fleira sem hugurinn kann að girnast hverju sinni.

Blaðlauks- og kartöflusúpaÞessi súpa stendur alltaf fyrir sínu og grænmetið

í henni auðræktað í hverjum garði. Súpuna má líka bera fram kalda eða setja í blandara og mauka hana, en mér hugnast hún best heit og að finna fyrir grænmetinu ómaukuðu í henni.

Blaðlaukur.

900 g blaðlaukur450 g kartöflur50 g smjör2 sellerístönglar1-1½ lítri grænmetissoðSalt og svartur piparMúskat2-3 dl rjómi2 msk. saxaður graslaukur

Hreinsið blaðlaukinn og skerið í þunnar sneiðar. Afhýðið kartöflurnar og skerið í teninga. Bræðið smjör í potti við meðalhita og steikið kartöflurnar og laukinn í sjö mínútur. Hrærið stöðugt í á meðan. Bætið í söxuðu selleríi og grænmetissoði og látið kryddið út í. Látið súpuna malla við lágan hita í 20-25 mín. Setjið rjómann út í en látið súpuna ekki sjóða meira. Stráið graslauk yfir áður en súpan er borin fram. n

26 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Gróandinn

Page 27: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Rauðrófusúpa. Rauðrófa.Ýmsar útgáfur eru til af rauðrófusúpum en

þessi er bæði góð og einföld. Ekki spillir svo fyrir að allt grunnhráefnið er heimaræktað.

Rauðrófusúpa5 rauðrófur2 laukar3 gulrætur½ lítri rifið hvítkál2 msk. smjör1½ lítri grænmetissoð1 lárviðarlaufSalt og pipar1 msk. sítrónusafi1 msk. söxuð steinselja1 dl sýrður rjómi

Ræturnar eru flysjaðar og skornar í lengjur og steiktar í smjörinu í nokkrar mínútur. Soðinu hellt yfir og hvítkáli og lárviðarlaufi bætt út í. Súpan er soðin í um hálfa klukkustund og þá söltuð og krydduð eftir smekk og sítrónusafanum bætt í. Ausið á diska og setjið saxaða steinselju og 1 msk. af sýrðum rjóma á hvern disk. Berið fram með grófu brauði. n

Ofnbakað graskerOfnbakað grasker er sannkallaður veislumatur

og er hægt að notast við ýmsar tegundir. Ég hef gjarnan notað hubbard-grasker en það má líka notast við butternut eða einhver önnur. Ef fólk hefur gróðurhús má rækta þar flest af grunnhráefninu í þessari uppskrift. Einnig eru rauðlaukur, timían, oregano og steinselja auðræktuð úti í garði. Uppskriftin er fyrir fjóra.

2 meðalstór grasker4-5 msk. olía2 marðir hvítlauksgeirar1 tsk. timían

1 tsk. oregano1 lítið eggaldin, skorið í bita1 gul paprika, skorin í bita1 rauð paprika, skorin í bita2 niðursneiddir rauðlaukar 200 g kirsuberjatómatar2 msk. brauðrasp2 msk. söxuð steinselja2 msk. parmesanostur2 msk. saxaðar ólífur100 g fetaostur

Hitið ofninn í 200 gráður. Skerið graskerin í tvennt og hreinsið innan úr þeim. Skerið síðan rákir ofan í aldinkjötið, bæði langsum og

þversum, og setjið síðan graskerin á fat. Blandið saman olíu, kryddi og hvítlauk í skál og penslið með hluta olíunnar ofan í graskerin. Bakið í ofni í 30-40 mín. Setjið eggaldin, papriku og rauðlauk í annað mót og blandið því sem eftir er af olíunni saman við og bakið í 30-35 mín. Setjið tómatana út í síðustu 10 mín. Blandið saman raspi, steinselju, parmesanosti og ólífum. Takið grænmetið og setjið ofan í graskerin ásamt fetaosti. Stráið raspblöndunni yfir og bakið áfram í 10 mín. Berið fram með góðu brauði og salati. n

Bakað fyllt grasker með fylltum sveppum.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 27

Page 28: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Verslunin garðheimar var opnuð 2. desember 1999 og fagnar því 10 ára afmæli í ár. Markmið garðheima hefur frá upphafi verið að stuðla að áhuga almennings á

garðrækt og að hlúa að umhverfi sínu nær og fjær. á undanförnum árum hefur sú þróun orðið í garðmenningu íslendinga að garðurinn er mun meira notaður sem „önnur stofa„ heimilisins og fólk hefur lært að meta þau auknu lífsgæði sem notkun garða hefur upp á að bjóða.

Garðheimar eru nú farsælt fjölskyldufyrirtæki í stöðugri þróun. Börn hjónanna Jónínu Sigríðar Lárusdóttur og Gísla H. Sigurðssonar, sem stofnuðu Garðheima, eru sífellt að koma meira inn í reksturinn og koma til með að stýra fyrirtækinu í framtíðinni ásamt þeim starfsmönnum sem eru hluthafar og hafa starfað með frá upphafi.

Jónína og Gísli segja að í kjölfar kreppunnar hafi orðið sprenging í heimilisræktun á krydd- og matjurtum og mun fleiri prófa sig áfram með því að sá fyrir hinum ýmsu plöntum. Þau segja að þar fari saman meiri tími fólks fyrir tómstundir og aukinn áhugi á að gera eitthvað heilbrigt með fjölskyldunni ásamt því að spara í leiðinni. Þetta á ekki eingöngu við um fólk sem hefur yfir garðskika að ráða, fólk sýnir æ meiri áhuga á að rækta á svölum og í gluggakistum og koma Garðheimar til móts við þessar þarfir með ýmsum hentugum lausnum.

Garðheimar Gróðurvörur reka heildsölu fyrir garðyrkjubændur og segja þau hjónin að þróunin í atvinnugarðyrkjugeiranum hafi verið sú að garðyrkjustöðvum hafi heldur fækkað. Þær eru jafnframt að stækka og tæknivæðast meira, en framleiðsla á grænmeti, svo sem gúrkum og tómötum allt árið, varð möguleg með lýsingu. Enn sem komið er, er þó framleiðsla svo til eingöngu miðuð við innanlandsmarkað.

Í verslun Garðheima er hugað að fleiru en gróðri og ýmsu honum tengdum. Í versluninni fá hunda- og kattaeigendur allt sem þeir þarfnast og einnig er þar deild með föndurvörum. Verið er að vinna að nýjustu viðbótinni - kaffihúsi sem stefnt er að því að opna vorið 2010. n

Garðheimar 10 ára

Gísli H. Sigurðsson og Jónína S. Lárusdóttir eigendur garðheima ásamt starfsfólki sínu.

28 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 29: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins

Danfoss hf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 510 4100 • veffang: www.danfoss.is

Heita vatnið er einhver ódýrasta orka til húshitunar sem við eigum völ áEn það er sjálfsagt að fara eins vel með hana og við getum

Í yfir 50 ár hefur Danfoss stjórnbúnaður staðið vörð um nýtingu heita vatnsins

MAKING MODERN LIVING POSSIBLE

Dýrmæt orkulind, en ekki ótæmandi

Við höfum í áratugi verið leiðandi íframleiðslu stjórnbúnaðar fyrir hitakerfiog séð notendum um allan heim fyrirbúnaði og lausnum, sem gerir líf þeirraþægilegra.

Við erum eini framleiðandinn á markað-inum sem sérhæfðir sig í framleiðslustjórnbúnaðar ásamt varmaskiptum ogtengigrindum fyrir hitakerfi.

Við leggjum metnað okkar í að finna réttulausnirnar fyrir viðskiptavini okkar hverjarsem stærðirnar, þarfirnar eða kröfurnarkunna að vera.

Við bjóðum fjölþætt úrval búnaðar tilhitakerfa svo sem:

Ofnhitastilla

Gólfhitastýringar

Þrýstistilla

Hitastilla

Mótorloka

Stjórnstöðvar

Varmaskipta soðna og boltaða

Úrval tengigrinda á lager

• Sérsmíðaðar tengigrindur og stöðvarfyrir allt að 25 MW afl

Page 30: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Kristín barnabarn Margrétar og Ólafs unir sér vel að malla í drullubúinu sínu.

30 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Í landi núpa í aðaldal stendur lítill fallegur bústaður í lyngi vöxnu hrauni, spölkorn frá einni af fegurstu ám landsins, laxá í aðaldal. Helga gunnlaugsdóttir heimsótti

heiðurshjónin Margréti Baldursdóttur og ólaf einarsson, sem tóku á móti henni af miklum myndarskap með alíslenskri kjötsúpu.

Í gegnum tíðina hafa þau hjónin átt nokkra húsbíla sem Ólafur hefur dundað við að innrétta. Hann hefur verið útsjónarsamur við að finna út hvernig best er að nýta hvern krók og kima.

Bústaðurinn þeirra í Aðaldalnum hefur leyst bílana af hólmi og hjónin eyða þar hverri frístund. Bústaðurinn er lítill og notalegur og þar er öllu haglega fyrir komið eins og áður var gert í bílunum.

MikilFengleg náttúra Þær eru margar stundirnar sem þau hjónin hafa

notið þess að sitja á pallinum við bústaðinn. „Við njótum útiverunnar hér í kvöldkyrrðinni,” segir Ólafur og bætir við að þeim þyki líka stórkostlegt að ganga niður að Laxá sem rennur skammt frá bústaðnum. Náttúrufegurðin er mikilfengleg og þau hjónin segja að gott berjaland sé allt í kring, þau nýta sér þá auðlind og tína ber á hverju hausti.

Á göngu niður að ánni varar Ólafur við gjótunum sem hann segir vera víða og vissara sé að halda sig á göngustígunum til að missa ekki skóna sína niður í þær.„Rétt við bústaðinn eru tvær stórar gjótur. Ef mikið vatn er í ánni þá myndast lítil tjörn í annarri þeirra, en þegar hún er þurr er gjarnan tjaldað þar,” segir Ólafur. Í sumar sem leið bjó hann til tröppur niður í gjótuna sem er nær bústaðnum. „Ég er mjög ánægð með tröppurnar því þær falla svo vel að umhverfinu og eru lítt áberandi,” segir Margrét.

Hagleiksfólk í Ólafsgerði Tex t i : Helga Gunnlaugsdótt i r. M yndi r : Helga Gunnlaugsdótt i r og Margrét Ba ldursdótt i r

Page 31: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Bústaðurinn þeirra í Aðaldalnum hefur leyst húsbílana af

hólmi og hjónin eyða þar hverri frístund.

Haganlega gerðar tröppur niður í eina af gjótunum.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 31

Page 32: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Í eldhúsinu er öllu einstaklega haganlega vel fyrir komið. Allt á sinn stað og ekkert vantar.

Svefnloftið er fyrir ofan eldhúsið. Stiginn leggst upp að veggnum þegar ekki er verið að nota hann.

Ólafur er mikill hagleikssmiður og hefur hann smíðað margt í bústaðnum. Hér er hann að smíða grindverkið á pallinum.

32 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 33: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Margrét nýtir sér hina frábæru vinnuaðstöðu sem Ólafur hefur útbúið fyrir hana.

Inni í bústaðnum er gott að vera, þó hann sé ekki stór. Hér sitja Ólafur og Margrét í stofunni.

öllu er Haganlega Fyrir koMiðÍ Ólafsgerði er hver einasti fersentímetri vel

nýttur. „Hér er allt sem við þurfum, það vantar bara þvottavélina í bústaðinn til að geta haft hér fasta búsetu,” segir Margrét um leið og hún leggur diska á borð í litlum eldhúskrók. Þegar hún kemur með ilmandi kjötsúpu á borðið segir hún að þótt eldhúsið sé agnarlítið sé allt þar sem þau hjónin þurfa til eldunar. „Hér er bakaraofn, eldavél og meira að segja örbylgjuofn.” Ólafur bætir því við að þrátt fyrir smæð hússins sé í því gistirými fyrir fjóra. „Hjónaherbergið er lítil lokrekkja og einnig er gistirými á svefnlofti sem er yfir hluta hússins. Yfir vetrarmánuðina tökum við rafmagnið af húsinu en það er fljótlegt að ná upp hita í því. Í miklum frostum sofum við stundum á svefnloftinu til að nýta hitann,” segir hann.

Við hlið bústaðarins stendur lítið baðhús en lítil snyrting er inn af eldhúsinu í sjálfum bústaðnum.

„Við ákváðum strax að byggja sérstætt baðhús. Það er líka gott fyrir gesti sem tjalda hérna því þá þurfa þeir ekki að fara inn á okkur á nóttunni heldur hafa sína einkaaðstöðu,” útskýrir Ólafur.

FjölHæF HandVerkskonaHandlagni íbúanna í Ólafsgerði leynir sér ekki,

bæði innan dyra og utan. Víða í lyngi vöxnu landinu eru handverk og listmunir Margrétar sem hefur frá barnsaldri fengist við málun og teikningu, sauma og prjónaskap. Auk þess hefur hún unnið að vefnaði samkvæmt gömlum hefðum og munstrum með jurtalitaðri íslenskri ull. Hún hefur einnig unnið með íslenskar víðigreinar í körfur og búið til leirmuni. „Hvers konar sköpun hefur alltaf heillað mig. Ég gekk í skóla að Laugum í Reykjadal, útskrifaðist fyrst frá Héraðsskólanum og síðar frá Húsmæðraskólanum. Á Laugum naut ég leiðsagnar framúrskarandi listkennara sem lögðu grunn að því sem seinna varð. Í gegnum árin hef ég sótt mörg námskeið, auk þess að stunda nám við myndlistaskólann á Akureyri um árabil,” segir hún. Að auki sótti hún námskeið til Danmerkur og Svíþjóðar. „Í Svíþjóð lærði ég að flétta úr tágum, svokallaða Bastabinne-aðferð sem er gamalt handverk sem Svíar hafa haldið við og lagt mikið upp úr að kenna til að það gleymist ekki.” Aðferðina segir hún nokkuð sérstaka, en tágarnar eru unnar úr nýhöggnu

Hér má sjá myndina sem Margét vann úr garni sem hún litaði með sortulyngi sem hún bjargaði undan húsinu áður en það var byggt.

Yfir vetrarmánuðina er rafmagnið tekið af húsinu en það er fljótlegt að ná upp hita í því. Í miklum frostum sofa þau

Margrét og Ólafur stundum á svefnloftinu til að nýta hitann.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 33

Page 34: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

greni sem er svo soðið til að losa um tágarnar. „Þær eru notaðar í reipi og ýmsa nytjamuni, t.d. töskur, og einnig eru þær vinsælar í naghringi fyrir lítil börn. Svo þegar þessir munir eru orðnir slitnir er hægt að nota þá sem brenni í arin,” segir Margrét sem hefur lengi fengist við að búa til muni úr tágum. Verkin hennar hafa farið víða um heim. Meðal annars hefur hún selt þau til Ítalíu, Japans og Kanada.

sortulyngið úr náttúrunni notað í MyndVerk

Margrét hefur einnig fengist við jurtalitun og vefnað og er ætíð með eitthvað á prjónunum. „Ég lita sjálf þráðinn í verkin mín og nota ýmislegt úr náttúrunni til litunar. Þegar ég horfi á haugarfa sé ég fyrir mér fallega grænt ullarband en ekki lélega uppskeru,” segir hún og hlær. Mörg verka Margrétar prýða bústaðinn og eitt þeirra óf hún fljótlega eftir að bústaðurinn var reistur.

„Myndina óf ég úr ullarbandi og bómullargarni. Áður en Óli gróf fyrir grunninum að húsinu þá færði ég mig á milli þúfna og hirti allt sortulyngið sem annars hefði farið undir bústaðinn. Ég notaði lyngið síðan til að lita bandið í verkið. Það má því segja að lyngið sé í myndinni.” Auk sortulyngsins notar hún m.a. til litunar snarrótarpunt, asparlauf, gulvíði, lúpínu og rabarbararót. Einnig krapprót og kaktusalús, en hana fær hún að utan.

góð Vinnuaðstaða Fyrir HandVerkskonuna

Aðstaðan til jurtalitunar og fleiri verka batnaði til muna þegar pallurinn var stækkaður fyrir handverkskonuna. Settur var upp útivaskur og

rafmagn leitt að vinnuaðstöðunni. Barnabarn þeirra Ólafs og Margrétar, hún Kristín litla, á bú þar rétt hjá þar sem hún bakar drullukökur og er stutt fyrir hana að ná sér í vatn í baksturinn til ömmu. „Hún Kristín mín hefur mikið verið með okkur í sveitinni. Henni líður vel hér og er ýmislegt að stússa. Hún grípur gjarnan í að skola bandið fyrir hana ömmu sína.” Síðastliðið vor var svo komið upp aðstöðu til að reykbrenna leirmuni sem gerir Margréti einnig kleift að vinna að leirlist í bústaðnum.

gott að Vera í BústaðnuM yFir áraMótin

Hjónin segja allt aðra tilfinningu að vera í bústaðnum á veturna en sumrin. Kyrrðin sé meiri og áhrifaríkt sé að upplifa stjörnubjartan himininn og norðurljósin. Þau hafa tvisvar dvalið í bústaðnum yfir áramót og í bæði skiptin var afar stillt veður og auð jörð. Þau nutu þess þá ríkulega að vera fjarri öllum skarkala. nÁ www.brandugla.net eru upplýsingar um handverkskonuna og verk hennar.

Kristín, barnabarn þeirra Margrétar og Ólafs aðstoðar ömmu sína við litun á garninu.

Litað garnið hengt til þerris í bústaðnum.

34 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 35: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Untitled-4_mix.indd 1 11/20/09 3:41:20 PM

Jurtalitað garnið tilbúið til notkunar. Leimunir eftir Margréti sem hún hefur brennt í ofni í bústaðnum.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 35

Page 36: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Súkkulaði og rósir er lítil ævintýraleg verslun á Hverfisgötunni þar sem fegurð blómanna og angan af súkkulaði er dáleiðandi. edda Heiðrún Backman stendur þar vaktina síðdegis flesta daga og tekur blíðlega á móti viðskiptavinum sínum. en hvers vegna ætli henni hafi dottið í hug að stofna þessa dýrindisverslun?

ástæðuna segir hún vera þá að ein fyrsta æskuminningin um föður hennar, þegar hún var lítil stúlka uppi á skaga, var þegar hann kom úr höfuðborginni og færði henni fulla öskju af sælgæti. Hún var þá þriggja ára. edda Heiðrún fór með allt nammið og gaf börnunum í hverfinu. Þegar hún kom inn um kvöldið var allt nammið búið. Pabbi hennar innti hana eftir því hvers vegna hún hefði gefið allt nammið sitt. „Því að þau langaði svo mikið í það,” svaraði sú stutta.

Súkkulaði er ástríða Eddu Heiðrúnar sem ekki bara selur súkkulaði heldur fræðir einnig viðskiptavini sína um það. „Súkkulaði er leyndardómur og var álitið guðlegt fyrirbæri. Í fleiri hundruð ár var súkkulaðidrykkurinn aðeins framleiddur fyrir konunga,“ útskýrir Edda Heiðrún og bætir því við að heitt súkkulaði sé hinn eini sanni ástardrykkur.

Hún vill að fólk geti leitað í rólegheit í Súkkulaði og rósum - gefi sér tíma innan um blómin og fallega gjafavöruna sem Edda Heiðrún hefur

valið af kostgæfni. Fallegar skreytingar, handunnin íslensk kerti, bókmenntir og tónlist og ýmislegt gómsætt. Hún býður 100% (hreint) súkkulaði, súkkulaði með alls konar kryddi, húðaðar möndlur, hnetur og kaffibaunir. Auk þessa nýtur verslunin hugmyndaflugs hennar en í hverjum mánuði velur Edda Heiðrún einn rithöfund til að kynna verk sín. Einnig velur hún listamann mánaðarins og skreyta falleg listaverk veggi búðarinnar.

Í Súkkulaði og rósum eru í boði fagmannlega gerðar skreytingar fyrir öll tilefni, afskorin blóm og árstíðabundin pottablóm. Jólastjörnurnar eru komnar í verslunina og þar er líka úrval fallegra jólaskreytinga. Páll Brinks Fróðason, gamalreyndur í faginu, réð sig til Eddu Heiðrúnar í haust og segir miklar annir fyrir jólin. „Við erum með úrval skreytinga fyrir aðventuna og jólin, sem og leiðaskreytingar er nær dregur hátíðunum. Jafnframt því sinnum við öðrum verkefnum en við Edda Heiðrún leggjum áherslu á að þjóna af alúð þeim sem missa ástvini sína og gerum vandaðar útfararskreytingar,” segir Páll sem aðhyllist náttúrulegan stíl í aðventu- og jólaskreytingum sínum. „Ég er ekki mikið fyrir glysið, mér finnst fallegast að nýta það sem er að hafa úr náttúrunni. n

Vers lunin Súk kulaði og rós i r er opin f rá k luk k an 11-18 a l la v i r k a daga .

Súkkulaði og rósirTex t i : Auður i . O ttesen . M yndi r : Pá l l Jökul l Pétursson

Páll Brinks Fróðason er enginn viðvaningur í garðyrkju, enda unnið við hana síðan hann var smápolli. Hann er skrúðgarðyrkjumeistari og vann lengst af við það fag. Páll keypti Blómastofuna á Eiðistorgi 1993 en seldi hana um aldamótin. Dögg keypti hann 1996 en seldi hana fyrir tveimur árum og flutti þá til Suður-Frakklands. Nú er hann kominn heim og vinnur hjá Eddu í Súkkulaði og rósum.

Edda Heiðrún Backman leikkona er einstök og það er verslunin hennar, Súkkulaði og rósir, líka.Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson.

36 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 37: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Óskum ykkur öllum gleðilegra jólog velfarnaðar á komandi ári.

Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.

Gleðileg jólÞ ökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.Steinasteinn ehf

Gleðileg jólMinnum á

gjafabréf okkar henta vel til

jólagjafa

Gleðileg jólF arsælt komandi ár

Þ ökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

Page 38: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Þeir eru sakleysislegir þessir jólasveinar sem voru á ferðinni í Heiðmörk fyrir síðustu jól.

Síðasti jólasveinninn kemur til byggða á aðfangadag og á jóladag leggur sá fyrsti af stað aftur til síns heima. einu sinni á ári gera þessir skrýtnu kallar sér ferð í bæinn með

tilheyrandi hlátrasköllum, hurðaskellum og fíflalátum. síðustu áratugi hafa þeir fært börnunum eitthvað í skóinn og gefið þeim sælgæti á jólaskemmtunum. ímynd jólasveinsins hefur breyst mikið með árunum en áður voru þeir tröll og mannætur.

Sigfús Sigfússon, sem einkum safnaði þjóðsögum á Austurlandi, sagði að jólasveinarnir væru í mannsmynd, klofnir upp í háls, með klær fyrir fingur, kringlótta fætur og engar tær.

,,Þeir eru illir að eðlisfari og líkastir púkum og lifa mest á blótsyrðum manna og óvönduðum munnsöfnuði og eru rógsamir og rángjarnir, einkum á börn.”

Nú til dags líkjast þeir fremur fíflalegum miðaldra offitusjúklingum, hallærislegum trúðum og búðarfíflum en ógnvekjandi tröllum.

litliPungur og örVadruMBurJólasveinarnir eru synir Grýlu og Leppalúði er

að öllum líkindum faðir þeirra, en Grýla var ekki við eina fjölina felld því áður en hún kynntist Lúða átti hún vingott við Bola og Gust og átti með þeim fjölda tröllabarna. Núna eru flestir sammála um að jólasveinarnir séu þrettán og heiti Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottasleikir, Askasleikir, Hurðaskellir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur og Kertasníkir.

Áður gengu þeir undir ýmsum nöfnum sem oft og tíðum voru staðbundin, eins og til dæmis í Fljótunum þar sem nöfnin Pönnuskuggi, Guttormur, Bandaleysir, Lampaskuggi og Klettaskora koma fyrir, og í Mývatnssveit þekktust nöfn eins og Flórsleikir og Móamangi. Á Ströndum voru þeir þrettán eða fjórtán og báru önnur nöfn sem koma fram í eftirfarandi nafnaþulum:

Tífall, TúturBaggi, LúturRauður, ReddaSteingrímur, SleddaLækjaræsir, Bláminn sjálfurBlámans barniðLitlipungur, Örvadrumbur.

Tífall og Tútur,Baggi og Hrútur,Rauður og Redda,Steingrímur og Sledda,sjálfur Bjálfinn og Bjálfans barnið,Bitahængir, Froðusleikir,Gluggagægir og Styrjusleikir.

Jólasveinarnir á Ströndum höfðu líka þá sérstöðu að vera giftir páskadísunum sem koma til byggða fyrir norðan um páskaleytið.

Fara uM Með ránuM og HrekkjuMSkömmu eftir að kristni var lögtekin hér á landi

bjó fyrir austan maður sem hét Steinn. Kona hans hét Guðrún og áttu þau tvö börn, Illuga og Sigríði. Guðrún var guðhrædd og kirkjusækin en Steinn fremur gefinn fyrir forneskju. Einu sinni þegar Guðrún var á leið til messu á jólunum biður hún Stein að fylgja sér. Hann tók því illa, segist þó munu gera það en ekki vera við tíðir. Steinn fylgir konu sinni á áfangastað en heldur svo heim. Þegar kona hans kemur heim daginn eftir lá Steinn í rúminu og var fámáll en segir: ,,Eigi veit ég hvort

Jólasveinar ganga um gólf- klofnir upp í háls með klær fyrir fingur, kringlótta fætur og engar tær.

Tex t i : V i lmundur hansen. M ynd: Pá l l Jökul l .

38 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 39: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

ég hefði svo fljótt aftur horfið í gærkveldi ef ég hefði þá vitað það sem ég veit nú.”

Leið nú fram að næstu jólum og biður Guðrún bónda sinn aftur að fylgja sér til kirkju og gerir hann það ásamt Illuga syni þeirra. Þegar þau koma að kirkjunni biður Steinn Illuga að fylgja sér aftur heim og segir að hann þurfi að sýna honum nokkuð. Feðgarnir halda heim og þegar þangað er komið ganga þeir í skemmuna og bíða þar um stund. Skömmu seinna sýnist Illuga að stafninn á skemmunni hverfi og inn gangi tveir hvítklæddir menn með líkkistu og fjöldi anda í humátt á eftir þeim. Andarnir spyrja hvítklæddu mennina frétta af mönnum, bæði góðum og vondum, en aðallega voru þeir forvitnir um börn. Illuga fannst standa kaldur gustur af öndunum og heyrði á tali þeirra að þeim geðjaðist einkum að illum mönnum og guðlausum.

Seinna þegar Illugi sagði frá atburðinum könnuðust menn við andana og kölluðu þá jólasveina og sögðu þá illa og ganga um byggðir um jólin með ránum og hrekkjum, einkum við börn.

koMa á selskinnsBátuMAð sögn Sigfúsar Sigfússonar koma

jólasveinarnir til landsins í byrjun jólaföstunnar á ,,selskinnsbátum vestan frá Grænlandsóbyggðum eða, að sumra sögn, austan frá Finnmörk og kalla sumir byggðarlag þeirra Fimnam. Þeir leggja að landi í leynivogum undir ófærum, geyma báta sína í hellum og halda huldu yfir þeim uns þeir fara aftur nærri þrettánda.”

Að sögn Sigfúsar skipta jólasveinarnir sér á bæina þegar þeir koma að landi og ,,hér þekkjast þeir oft varla frá púkum og árum af verknaði sínum og eru ill-kaldir sem hafís og heljur. [...] Jólasveinar eiga kistur sem þeir bera menn á brott í.”

kattarVali koM til HjálParÍ þjóðsagnasafni Sigfúsar er meðal annars að

finna eftirfarandi sögu um viðureign jólasveinsins og manns á bænum þar sem jólasveinninn hélt til um jólin. ,,Einu sinni var maður á ferð og kom að læk eða á. Sá hann að þar sátu margir menn í röð við ána og héldu allir á sömu þurrkunni og þurrkuðu sér allir í einu á henni þegar þeir höfðu þvegið sér. Sá maðurinn, þegar hann gætti betur að, að þetta voru allt jólasveinar og bjuggu sig undir vistarverur sínar. Einn þeirra lenti auðvitað á heimili hans. Maðurinn var fjósamaður. Hann var orðgætinn og stilltur maður og því ekki neinn vinur jólasveinsins. Einu sinni mættust þeir í fjósdyrum og ræðst jólasveinninn á fjósakarl. Eigast þeir lengi við allt þangað til fjósakarl hefur hann undir og kaffærir hann í fjóshaugnum. Þá æpir jólasveinninn hátt og kvað við:

Kattarvali, kom þú hér,kæri bróðir, hjálpa mér:Heyrðist fjósakarli tekið undir. Kom þá

jólasveinninn sem var á hinu búinu og varð fjósamaður að flýja. En aldrei áttust þeir oftar við svo getið sé.”

að draga jólasVeina og jólaMeyjarJónas Jónsson frá Hrafnagili segir frá

einkennilegri jólaskemmtun í bók sinni Íslenzkir þjóðhættir, en leikurinn virðist til þess gerður að para ungt fólk um jólin, svipað því og gert var í leikbrúðkaupum sem tengdust við vikivakaleiki.

,,[...] víða tíðkast, að rita upp á miða alla þá, sem koma á jólaföstunni og fram á aðfangadag. Þetta heita jólasveinar og jólameyjar. Svo er dregið um miðana á jólanóttina, konur draga drengi, en piltar stúlkur. Ef margir hafa komið, falla mörg nöfn í hlut, og dregur þá hver einn miða úr sínum hóp, og verður það, sem hann eða hún hlýtur, hans eða hennar jólamey eða jólasveinn um jólin. Stundum gefur þá einn heimamanna, sem til þess er kjörinn, allar persónurnar saman með því að lesa upp vísu úr einhverri ljóðabók, sem hann flettir upp í blindni.,,

Þekktur gluggagægirUm miðja síðustu öld fara jólasveinarnir að

mildast og taka á sig alþjóðlega mynd rauðhvíta jólasveinsins. Þeir verða vinir barnanna og færa þeim gjafir í skóinn síðustu dagana fyrir jól og eru ómissandi á jólaskemmtunum. Íslensku jólasveinarnir halda þó þeim sið að vera hávaðasamir og hrekkjóttir og ekki er laust við að börnin séu enn hrædd við þá. Hræðsla barnanna er fullkomlega eðlileg. Fullorðið fólk hikar ekki við að segja börnunum að þessir ókunnugu miðaldra offitusjúklingar, sem ganga um í skrýtnum fötum, komi í herbergið til þeirra á nóttunni og taki óþekk börn og þau sem ekki vilja fara snemma í rúmið. Og einn þeirra er meira að segja þekktur gluggagægir. n

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 39

Page 40: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Garðabær er fallega gróinn og umgjörð hans til fyrirmyndar. Barnvænt umhverfi bæjarins og gott umferðarskipulag var það sem heillaði þau Mána

svavarsson og Þuríði jónsdóttur þegar þau vildu stækka við sig og leituðu að draumahúsinu fyrir tveimur árum. Húsið fundu þau við skógarhæð og þar líður þeim vel ásamt þremur börnum sínum, tvíburunum grétari og eldey 11 ára, og rakel sem er sjö ára. garðurinn við húsið er einstakur og reyndar gatan öll. skógarhlíð var valin fegursta gata bæjarins fyrir nokkrum árum.

Hjónin bjuggu áður í Hlíðunum í Reykjavík, en fluttu þaðan um páskana 2007. „Við fluttum úr íbúð sem var orðin í það þrengsta fyrir okkur fimm. Ég ólst upp í einbýli í Fossvoginum og það var draumurinn að komast í eitthvað svipað; einbýlishús á einni hæð,” segir Máni. Er þau leituðu að húsi voru þau að leita að hverfi þar sem stutt væri fyrir börnin á leiksvæði og í skóla. Einnig var stórt atriði að þau þyrftu ekki að fara yfir stórar umferðargötur. „Þetta var eitt af því sem við höfðum í huga þegar við fórum að leita að hentugu húsnæði. Svo duttum við niður á þetta hús með garði í grónu hverfi og hér var allt sem okkur langaði í. Draumurinn var að geta brugðið sér út og kallað á krakkana í mat þar

sem leiksvæðið væri í nágrenninu.” Máni segir umferðarþungann mikinn á höfuðborgarsvæðinu og hann hefði ekki getað hugsað sér að búa í hverfi þar sem aðeins ein leið væri út úr því. „Það eru margar leiðir út úr þessu hverfi. Maður heyrir sögur þar sem er aðeins ein leið út úr hverfinu og það taki fólk óratíma að komast leiðar sinnar á álagstímum. Það má ekki mikið út af bregða svo umferðin teppist ekki.”

Mikil gróska í garðinuM Fyrri eigendur hússins byggðu það og segir Máni

að þeir hafi hugsað vel um lóðina. „Garðurinn er gróinn og þarfnast umönnunar svo eftir að við keyptum húsið fengum við Þuríður

Draumastaður fjölskyldunnarTex ti : Auður I . O ttesen . M yndi r : Pá l l Jökul l Pétursson

40 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 41: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Tré skyggja ekki á síðdegis-sólina og hennar er notið á skjólsælum stað framan við húsið þar sem oft er setið úti á kvöldin.

Bekkur sunnan megin við húsið þar sem morgunsólarinnar er notið.

Dögglingskvistur í blóma er einn af mörgum blómstrandi runnum í garðinum.

Skriðmispill er tilvalinn til að nota með grjóti. Hér vex hann fram af tilhöggvinni hleðslu úr grágrýti.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 41

Page 42: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

garðyrkjumann til að ganga með okkur um garðinn til að fá ráð við umhirðu hans. Hann sagði að þessi garður væri einn af þeim sem væri fljótur að vaxa úr sér ef maður væri ekki duglegur að klippa og snyrta og hann hvatti okkur til að vera óhrædd með klippurnar.” Þegar Máni er spurður um tegundir í garðinum þá segist hann ekki þekkja öll plöntuheitin, en hann sé þó að læra þau smátt og smátt. Hann segist pumpa starfsfólk gróðrarstöðvanna og hefur verið duglegur að fara á netið að leita sér upplýsinga. „Ég vann fimm sumur við garðyrkju hjá Karli Guðjónssyni skrúðgarðyrkjumeistara. Við unnum mikið eftir teikningum arkitekta sem huguðu að náttúrunni. Það var ofsalega gaman og mér finnst ég vera pínu kominn í þetta aftur. Við notum garðinn mjög mikið, meira en ég bjóst við.”

FótBoltaVöllur í BakgarðinuMBak við húsið er grasræma milli húss og

limgerðis og þar eru lítil fótboltamörk. Þar

eru þau Rakel og Grétar að spila fótbolta með tilþrifum og skrækjum. Við stöldrum við og fylgjumst um stund með börnum sem kunna sitthvað fyrir sér í list knattspyrnunnar. Þó að sú litla sé á inniskónum þá gefur hún bróður sínum lítið eftir. Máni segir að það hafi verið mikill mosi í grasfletinum á þessari mjóu ræmu á bak við húsið eins og gerist oft norðan við hús. „Við fundum ráð til að losna við mosann, sem var að setja upp fótboltamörk. Við vorum búin að eyða heilmiklum tíma í að raka mosann og gata svörðinn en það hafði engin áhrif. Nú stórsér á mosanum því krakkarnir róta honum upp í fótboltaleiknum,” segir Máni og horfir til barnanna spila hæstánægð á eigin fótboltavelli. Þegar Grétar er spurður um hvernig honum líki að búa í Garðabæ segir hann það vera fínt. Þegar veðrið er gott og hann nennir ekki að vera lengur í tölvunni þá fer hann oft út í fótbolta. n

Vestan við húsið er skuggsýnt því gróðurinn er þéttur og hár. Þessi leið að bakgarðinum er heillandi því þar er líkast því að maður gangi inn í þéttan skóg. Mikið er af blómstrandi runnum í garðinum sem gera hann litríkan. Hér er ilmandi blóm hansarósarinnar (Hansa Rugaosa). Rifsberjarunnar eru meðfram austurhlið garðsins og höfðu fuglarnir tekið sinn toll. Garðurinn er fallega skipulagður og gróðurinn myndar þétta heild. Fagmaður sem hjónin fengu til sín í garðinn eftir að þau fluttu sagði að þau þyrftu að munda klippurnar til að viðhalda honum því plöntuvalið væri með þeim hætti að hann yxi fljótt úr sér. Máni hefur mikla ánægju af að stússa í garðinum – það minnir hann á æsku hans en hann bjó í Fossvoginum sem barn. Honum þykir ekki tiltökumál að munda klippurnar og heldur þannig vextinum niðri.

Systkinin Rakel og Grétar spila oft fótbolta á velli á bak við hús og gulltryggja þar með að enginn mosi vaxi í grasinu.

Rakel, sem er aðeins sjö ára, tekur þátt í umönnun gróðursins af lífi og sál.

Máni kann sitthvað fyrir sér í garðyrkju en hann vann fimm sumur hjá Karli Guðjónssyni skrúðgarðyrkjumeistara. Hér er hann að brjóta brumið á fjallafuru til hálfs til að þétta hana.

42 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 43: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 43

Page 44: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Það er ríkt í okkur íslendingum að taka allt í gegn og þrífa hvert skúmaskot heimilisins fyrir jólin. úrval hreingerningarefna er mikið og misgott. gólfefnaval lumar á

afbragðs ræstiefni, bóni og lakki fyrir viðargólf, vínildúk og flísar, og mælum við með þessum efnum. Þau eru auðveld í meðförum og árangurinn er góður. Framleiðandi efnanna sem þeir bjóða er sænska fyrirtækið aB Bona sem hefur framleitt hreinsiefni og viðarlakk sem gólfefnaframleiðendurnir Berg & Berg, khärs, karelia upofloor og tarkett nota á gólfefni sín.

Gunnar Þór Jóhannesson hjá Gólfefnavali segist vera einstaklega ánægður með virknina og hversu miklum stakkaskiptum gólfin taka með hreinsiefnunum frá AB Bona. „Við seljum tvenns konar ræstingarefni frá AB Bona. Fyrst er að nefna Bona Care Floor Cleaner, sem er sérstaklega hannað til að þrífa allar gerðir lakkaðra viðargólfa. Hitt efnið er fyrir gólfefni eins og linoleum, vínildúka, keramikflísar og vínilflísar og heitir Bona Care Hardfloor Cleaner. Bæði hreinsiefnin eru auðveld í meðförum, þau eru tilbúin til notkunar og þarf aðeins að spreyja þeim á gólfflötinn og þrífa með jöfnum strokum,” segir Gunnar sem segir að sænska fyrirtækið framleiði sérstakar moppur til að auðvelda alla ræstingu á gólfum. „Moppurnar sem þeir selja

eru í þremur litum og hefur hver sitt hlutverk. Með þessum efnum sem ég nefndi áðan er gólfið þrifið með moppu sem býr yfir mörgum kostum.

„Moppurnar frá þeim eru í þremur litum og er hver þeirra sérhæfð til ákveðinna nota. Þær eru ofnæmisprófaðar og í þeim er örtrefjaþráður sem virkar einstaklega vel á óhreina fleti og tekur í sig mikið magn af óhreinindum. Moppurnar má þvo í þvottavél.”

Viðarlakk og eFni Fyrir olíuBorin ViðargólF

Auk hreinsiefnanna selur Gólfefnaval einnig efni til að þrífa olíuborin viðargólf. „Við erum með Bona Soap, sem er snilldarefni í góðu alkalísku jafnvægi með það eitt í huga að næra og um leið þrífa viðargólf. Menn eru oft í vandræðum með þrif á olíubornum flötum og þetta efni léttir fólki vinnuna þar sem það nærir og þrífur samtímis,” segir Gunnar. Hann segir annan vanda með viðargólf vera slit á þeim – margir pússi þau upp en það sé hægt að auka endingu þeirra með efni sem Gólfefnaval selur og ætti fólk að prófa það áður en gripið er til kostnaðarsamra aðgerða. „Við erum með Bona Care Refresher viðhaldslakk sem er sérstaklega framleitt fyrir allar gerðir vatnslakka. Það er auðvelt í notkun og gefur viðargólfinu einstaklega fallegan gljáa. Ég hef séð mikla breytingu á gólfi þar sem Bona Care Refresher var notað en það er ætlað fyrir viðargólf þar sem er mikil umferð og álag. Það ætti að reyna þetta áður en gripið er til þess að

pússa upp lakkið og lakka aftur því það er hægt að endurnýja útlit viðargólfsins á ódýrari hátt með þessari aðferð.”

Gunnar Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Gólfefnavals með ný hreinsiefni frá Bona Care.

Bona Care Floor Cleaner ræstiefnið sem notað er á lakkað viðargólf og Bona Care Hardfloor sem er notað til að þrífa vínildúk og flísar. Þessi efni fást í eins og fjögurra lítra pakkningum.

Gólfið er þrifið á eftirfarandi hátt: 1. Ryksugið gólfið eða strjúkið það með

Bona rykmoppu til að ná upp ryki og ló sem safnast fyrir á viðargólfinu. Bona Care rykmoppan er auðveld í notkun og er gott að nota hana daglega til léttra þrifa.

2. Spreyið Bona Care viðarhreinsi á um 10–15 sm flöt á gólfinu í einu.

3. Bláa Bona Care örtrefjamoppan er vætt og síðan strokið með henni rakri langsum eftir þeim hluta gólfborðanna, flísanna eða dúksins, sem búið var að spreyja með hreinsiefninu. Þetta er endurtekið þar til búið er að þrífa allt gólfið.

4. Bona Care Floor Cleaner sem er sérstaklega hannað ræstingarefni til að þrífa allar gerðir lakkaðra viðargólfa.

5. Bona Care gólfhreinsir er fyrir linoleum-

dúka, sem og vínilgólfefni.

Gólfefnaval er til húsa að Vatnagörðum 14, 104 Reykjavík, sími 517-8000. www.golfefnaval.is.

44 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

KY

NN

ING Hreinsiefni fyrir gólf

Tex t i : Auður I . O ttesen . M ynd: Pá l l Jökul l Pétursson

Page 45: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

viðhaldiðAllt fyrir

eða lítið!er of stórt

ekkert verkefni

Gott viðhald á sumarbústaðnum sparar stórfé til lengri tíma.

Þú færð allt fyrir viðhaldið á sumarbústaðnum í næstu BYKO verslun.

Staðsetningu á næstu BYKO verslun er að finna á www.BYKO.is

EXPO

· w

ww

.exp

o.is

Page 46: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Hörmuleg slys geta orðið í húsbrunum, bæði gríðarlegt eignatjón og alvarleg líkamstjón og jafnvel geta þau valdið dauða. sumarhúsið og garðurinn

leitaði til ragnheiðar davíðsdóttur, forvarnarfulltrúa Vís, og bað hana að gefa lesendum ráð varðandi brunavarnir á heimilinu og í bústaðnum.

BrunaVörnuM er Víða áBótaVantHyggindi og forvarnir geta bjargað miklu í

eldsvoða og segir Ragnheiður að VÍS sé mjög umhugað um brunavarnir, vegna þess að það getur verið um líf og heilsu fólks að ræða. „Að bjarga mannslífi skiptir öllu máli. Það er hægt að bæta allt annað, húsið sjálft og innbúið, og því er afar mikilvægt að huga vel að forvörnum varðandi bruna,„ segir Ragnheiður og bendir á að það sé skyldutrygging á öllum húseignum en ekki skylda að tryggja innbúið. „Margir hús- og bústaðaeigendur hafa ekki áttað sig á þessu, þótt þeir séu tryggðir þarf að endurskoða þær tryggingar og vera við því búin að uppfæra þær ef við bætast nýjar eignir; t.d. ef sófasettið er endurnýjað eða þvottavélin. Það eru því miður mörg dæmi um að það hafi orðið altjón á húsum og fólk hafi verið verulega vantryggt. Það er því nauðsynlegt að endurmeta verðmæti innbúsins reglulega, sérstaklega þegar fjölskyldan stækkar.”

Þekkja rýMingarleið í reykMekki„Það er eitt atriði sem ég veit að nánast engir

sumarhúsaeigendur hafa gert ráð fyrir og það er rýmingarleiðin út úr bústaðnum,“ segir Ragnheiður. „Hugsum okkur að við séum á hóteli og fyrir framan okkur er skilti, sem lýsir flóttaleiðum, innan á hurð herbergisins. Þar sést merkt hvar maður er í húsinu og hvar næsti neyðarútgangur er. Á heimilinu eða í bústaðnum getur verið erfitt að finna leiðina út ef allt fyllist af reyk. Fólk ætti að ræða hvernig á að bregðast við ef það kviknar í, allt fyllist af reyk og það sést ekki handaskil. Það er ekki fráleitt að hafa teikningu af bestu leiðinni út úr húsinu uppi á vegg,“ segir Ragnheiður og bætir við að það viti ekki allir að það á að skríða eftir gólfinu því reykurinn leitar upp. „Ég myndi ráðleggja fólki að huga vel að brunavörnum og rýmingarleiðum og þá sérstaklega á efri hæð í bústöðum.“

Flóttaleiðir út uM glugga á eFri HæðuM

Mikil hætta getur orðið ef eldur kviknar í bústað þar sem ekki eru gerðar ráðstafanir með flóttaleiðir frá svefnlofti, sem algeng eru í bústöðum. „Í sumum bústöðum með svefnlofti er aðeins lúga upp á loftið og þar er kannski einn lítill gluggi sem stundum er ekki einu sinni opnanlegur. Oftast eru það börnin sem leika sér og sofa uppi, kannski allt niður í 3ja ára. Það er mikilvægt að búið sé að kynna fyrir öllum í fjölskyldunni hvað á að gera ef kviknar í og allt fyllist af reyk. Það er ekki eldurinn sem drepur fólk eða veldur því mestum skaða heldur reykurinn. Sérstaklega er litlum börnum hættara við skaða í lungum heldur en fullorðnum,” segir Ragnheiður og bendir á að það sé í eðli lítilla barna

og húsdýra, t.d. hunda og katta, að fela sig ef þau verða hrædd og í stórum eldsvoðum erlendis hafa börn fundist á ólíklegustu stöðum þar sem þau voru að fela sig gegn hættunni. „Vegna þessa er mikilvægt að allir séu meðvitaðir um hvað eigi að gera þegar kviknar í. Það er skylda að vera með brunastiga og að útgönguleið sé tryggð á efri hæðum bústaða. Það eru til brunavarnastigar sem eru mjög þægilegir og einfaldir og eru festir undir gluggann að innan. Stiginn er settur út um gluggann þegar hætta steðjar að og getur fólk þá klifrað niður.”

aldrei á að nota Vatn á Brennandi Feiti„Ef kviknar í potti með feiti má alls ekki nota

vatn eða léttvatn til að slökkva slíkan eld heldur nota pottlok eða eldvarnarteppi til að kæfa eldinn. Ef eldvarnarteppi er ekki fyrir hendi er hægt að kæfa eldinn með því að rennbleyta handklæði sem brugðið er yfir hann. Ég vara fólk við að taka pott sem logar í og ganga með hann í gegnum húsið til að fara með út. Eldurinn leitar í áttina að manni og eykur því hættuna.” Ragnheiður bendir á að eldvarnarteppi geti ekki slökkt allan eld, en þá er gott að hafa léttvatnsslökkvitæki á heimilinu eða í bústaðnum. „Léttvatn er nokkurs konar froða og tekur á nánast öllum tegundum

Ragnheiður ráðleggur fólki að huga vel að brunavörnum

og rýmingarleiðum og þá sérstaklega á efri hæð í

bústöðum.

Í þessum bústað kviknaði út frá glóð í arninum. Mynd: VÍS.

46 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnafulltrúi hjá VÍS.

KY

NN

ING Brunavarnir

Tex t i : Auður I . O ttesen . M yndi r : Pá l l Jökul l Pétursson og V ÍS

Page 47: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

bruna. Ef kviknar í klæði, húsgögnum eða timbri getur oftast verið best að nota garðslönguna til þess að ráða niðurlögum eldsins.”

eldVarnartePPi gagnlegt á sMáVægilegan eld„Við höfum lagt höfuðáherslu á að menn séu

með eldvarnarteppi á heimilinu og í bústaðnum. Mistökin sem fólk gerir er að hafa þau á röngum stað. Efst í huga margra er að hafa þau sem næst eldavélinni eða bakaraofninum. Það er náttúrlega alls ekki rétt. Ef það kemur upp eldur þá er hann nálægt þeim sem stað sem teppið er hengt upp og fólk kemst jafnvel ekkert að því. Við leggjum áherslu á að eldvarnarteppið sé nærri útgöngudyrunum þar sem tekur aðeins augnablik að ná í það,” segir Ragnheiður.

„Eldvarnarteppið kemur að góðum notum við margan smávægilegan eld, t.d. ef það kviknar í út frá kerti, í rafmagnstækjum eða í pottum á eldavélinni,” segir hún.

rjúFið strauM á raFtækjuMTal okkar berst að heimilistækjunum,

þvottavélum, þurrkurum og eldhústækjum. Ragnheiður segir að það sé algengara en nokkurn grunar að það kvikni í þvottavélum. „Ég vil benda öllum á að rjúfa alveg strauminn á þvottavélum og þurrkurum með því að taka tengilinn úr sambandi ef um slíkt er að ræða. Aldrei á að láta loga ljós á vélunum, jafnvel þótt ætlunin sé

að koma daginn eftir eða eftir viku. Meðan ljós er á vélinni er enn straumur á henni. Annað sem ég vil vara við er það að láta þessar vélar vinna á meðan fólk sefur.” „Þar fór það,” segir spyrillinn við þessari athugasemd Ragnheiðar því oft hefur hann sett í eina vél fyrir háttinn. Ragnheiður varar hann við og segir: „Nei, það gerir þú aldeilis ekki! Aldrei að setja í þvottavél áður en þú ferð að sofa.” Úps, þar hef ég það, hugsar spyrillinn. „Það er skömminni skárra að setja í vél áður en maður fer í vinnuna, en á meðan fólk er sofandi er algert bann því reykurinn sem kemur frá logandi þvottavél getur verið svo lúmskur,” bætir hún við til skýringar. „Það eru ekki síður nýlegar þvottavélar sem geta klikkað eins og gamlar og því á fólk ekki von á. Það kviknaði einu sinni í þvottavél hjá mér, glænýrri. Ég bjó þá í miðbænum og þvottahúsið var niðri í kjallara þar sem svefnrýmið var líka. Reykurinn sem kom frá vélinni var kolsvartur því vélin var eins og þær eru núna - að mestu úr plasti. Þvottavélarheilinn er flókinn og mikið víravirki. Þegar ryk þyrlast inn í vélarrúmið við vindinguna er heilinn eins og ryksuga sem dregur að sér rykið. Fínt rykið leggst á leiðslurnar og svo þarf ekki nema örlítinn neista til að kvikni í. Neisti getur myndast þegar stýrikerfið í þvottavélinni skiptir um kerfi og sá neisti getur kveikt í ef fínt ryk er til staðar. Vegna þessarar hættu ráðleggjum við fólki að láta vélarnar ekki vinna á nóttunni. Þetta á líka við um þurrkara, sem er þó miklu

einfaldara tæki, en það hefur einnig kviknað í þeim.” Spyrjandinn er þögull og hugsar með sér að hann þurfi að breyta um lífsstíl. Það er eins og Ragnheiður hafi lesið hugsanir hans því hún segir: „Þetta er eitthvað sem fólk venur sig á. Við hjá VÍS höfum fengið margar tjónatilkynningar þar sem hefur kviknað í þvottavélum á nóttunni og það er því ástæða til að vara við því að hafa þær í gangi. Þarna gæti þó reykskynjarinn bjargað og það er ekki síður nauðsynlegt að vera með þá í þvottahúsinu en annars staðar. Ég þekki mörg dæmi um að reykskynjarinn hafi vakið fólk þar sem kviknaði í þvottavél og þar með afstýrt miklu tjóni.”

reykskynjarar Bjarga MannslíFuMReykskynjarar eru nauðsynlegir í öllum

híbýlum, en Ragnheiður segir að ekki sé sama hvar þeir eru hafðir. Afleitt sé að hafa þá yfir eða nærri eldavélinni eða brauðristinni því þrálát villuboð, þegar reyk leggur frá ristaða brauðinu eða af matseldinni, hafa valdið því að fólk tekur rafhlöðuna úr þeim. „Reykskynjarar eiga að vara fólk við og koma að mestu gagni þegar við erum sofandi og því ættu þeir að vera í hverju einasta svefnherbergi. Þegar við erum að nota eldavélina þá þurfum við engan reykskynjara til að sjá hvort kviknar í. Vissulega getur kviknað í inni í eldhúsinu að nóttu og þá liðast reykurinn í reykskynjarann sem er nærri eldhúsinu en hann þarf ekki endilega að vera þar inni,” segir

Þetta er það sem eftir stendur af 50 fm sumarhúsi sem varð eldinum að bráð. Mynd: VÍS.

sumarhúsið og garðurinn3. 2009 47

Page 48: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Tepruskapurinn má ekki vera á kostnað öryggisins. Þótt einhverjum finnist reykskynjarar ljótir eða eldvarnarteppið ekki fara vel á vegg þá vill enginn upplifa að það verði ástæða þess að hægt var að koma í veg fyrir tjón eða dauða ástvina.

Ragnheiður. Hún hugsar oft til unglinganna sem eru með fullt af rafmagnstækjum í herberginu sínu. „Krakkar nú til dags eru með fullt af græjum í herberginu sínu - tölvur, DVD spilara og þess háttar, allt í gangi, spilandi fram á nótt - og svo læsa þau að sér í ofanálag. Hvað ef kviknar í inni hjá þeim? Hvað vekur þau? Reykur er lengi að fara fram á gang og í millitíðinni gæti manneskjan verið dáin. Meðal annars vegna þessa er svo mikilvægt að reykskynjarar séu hafðir í svefnrýmum þar sem þeir koma að mestu gagni.”

skiPtið uM raFHlöður árlegaRagnheiður segir að reykskynjarar eigi að

vera festir upp í loft, en alls ekki á vegg. Þeir séu ódýrir þannig að kostnaðurinn ætti ekki að vera hindrun. „Reykskynjari kostar ekki mikla peninga og rafhlaðan í þá er á um 400 krónur. Þetta er upphæð sem fólk ætti ekki að spara,” segir hún og minnir á að rafhlaða í reykskynjara dugar yfirleitt

í eitt ár. „Reykskynjararnir eru þeim eiginleikum búnir að láta vita þegar rafhlaðan er að verða búin,“ segir Ragnheiður og bætir því að auðvelt sé að fylgjast með því á heimilinu. Hún bendir jafnframt á að hann geti verið að pípa í bústaðnum á þeim tíma sem enginn er þar. „Heima skiptum við um rafhlöðu um leið og reykskynjarinn fer að tísta, en í sumarbústaðnum getur tíst í þrjá daga og enginn er á staðnum til að heyra það. Svo mætir fólk í bústaðinn að vori og allir halda að það sé í lagi með reykskynjarann. Vegna þessa er góð regla að hafa einhvern ákveðinn dag sem skipt er um rafhlöður. Ég mæli með því að það sé gert í byrjun aðventu, alveg óháð því hvort reykskynjarinn hafi tíst eða ekki. Heima hjá mér skiptum við um rafhlöðurnar 1. desember því það er svo mikil brunahætta tengd jólunum. Í bústaðnum væri hægt að skipta í fyrstu heimsókn að vori og setja þá nýja rafhlöðu í hvern einasta reykskynjara.” Þetta eru þarfar ábendingar og eru lokaorð Ragnheiðar Davíðsdóttur, forvarnarfulltrúa VÍS.

Miklar skemmdir eftir bruna út frá kaffivél. Mynd: VÍS.

Illa leikið eldhús eftir bruna sem átti upptök sín í kaffivél. Mynd: VÍS. Hafið eftirfarandi í huga:• Gætiðþessaðhönnunraflagnasé

eftir byggingareglugerð.

• Fúskiðaldreimeðlagninguraflagna- fagmenn eiga að sjá um raflagnir og frágang þeirra.

• Fariðvelyfirbrunavarniráheimilinuog í bústaðnum. Reykskynjarar eiga að vera í öllum rýmum, eldvarnarteppi miðsvæðis og slökkvitæki þar sem auðvelt er að komast að því.

• Eldvarnarstigar og opnanlegurneyðarútgangur er krafa á efri hæð í bústöðum.

• Varist að leggja fatnað árafmagnsofna.

• Muniðaðtakaraftækiúrsambandiá kvöldin og þegar heimilið eða bústaðurinn er yfirgefinn.

• Geriðrýmingaráætluneftilbrunakemur til að flýta fyrir björgun.

• Aldrei skal skilja eftir logandikertaljós og fara skal varlega með opinn eld.

• Reykurinn leitar upp og eru þeirsem sofa á svefnlofti í bústaðnum í mestri hættu. Gerið áætlun umhvernig eigi að koma út þeim börnum sem leika sér eða sofa ásvefnlofti.

• Tryggið að gluggi á efri hæð séopnanlegurogþaðséhægtaðfaraút um hann niður brunastiga.

• Geriðáætlunefbörneruekkifærumað fara sjálf niður brunastigann.

48 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 49: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Leiðbeinendur:

➊ Helgarnámskeið að Minni Borg í Grímsnesi

Í fyrsta sinn verður boðið upp á helgarnámskeið með gistingu, morgunverði, grilli um kvöldið og samverustund í heita pottinum. Annars vegar er fjölþætt nytjajurtanámskeið og hins vegar sérhæft námskeið fyrir sumarhúsaeigendur. Námskeiðin eru þríþætt, hver hluti þrjár klukkustundir.

Laugard. og sunnud. Verð kr. 29.800.-

Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar og Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson arkitektar.

➋ Matjurtaræktun

Námskeið um ræktun, umhirðu, geymslu og notkun matjurta. Greint er frá hefðbundnum og óhefðbundnum ræktunaraðferðum, sagt frá um 40 tegundum og yrkjum, ásamt því að fjalla lítillega um hollustu og lækningamátt matjurta og helstu aðferðir við geymslu og matreiðslu.

Tveggja kvölda námskeið, kl. 19-21.30. Verð kr. 12.800.-

Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar.

➌ Námskeið um ræktun kryddjurta

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu tegundir kryddjurta sem ræktaðar eru utandyra, í eldhúsglugganum eða undir ljósi. Lært er að þekkja kryddjurtirnar, geymsluaðferðir og hvernig þær eru notaðar í matargerð.

Eitt kvöld, kl 17-18.30. Verð kr. 3.850.-

Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar.

➍ Ræktun ávaxtatrjáa

Ávaxtatrjárækt á Íslandi eykst frá ári til árs með tilkomu harðgerðra sérvalinna yrkja. Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur hefur undanfarin ár viðað að sér þekkingu og harðgerðum yrkjum. Árlega uppsker hann epli, bragðgóð kirsuber, plómur og perur, og miðlar hann af þekkingu sinni á námskeiðinu.

Tveggja kvölda námskeið, kl. 19-21. Verð kr. 12.800.-

Leiðbeinandi: Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur.

➎ Ræktun í sumarhúsalandinu

Námskeið fyrir landeigendur, sumarhúsaeigendur og skógræktendur um ræktun, mismunandi landgerðir og jarðvegsbætur. Aðstoðað er við val og umhirðu á gróðri og fjallað um áhrif veðurs og skjólgjafa. Farið verður í skipulag lands, göngustígagerð og ótal hugmyndir veittar.

Tveggja kvölda námskeið, kl. 19-21.30. Verð kr. 12.800.-

Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur.

➏ Ber allt árið

Námskeið um ræktun berjarunna og trjáa sem gefa æt ber. Farið er yfir ræktun þeirra og umhirðu. Þátttakendur fá hugmyndir um ótal möguleika á notkun berjanna, uppskriftir að berjahlaupi, berjasultu, marmelaði og réttum þar sem berin þjóna lykilhlutverki.

Eitt kvöld, kl. 17-18.30. Verð kr. 3.850.-

Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar.

➐ Handbók húsbyggjandans - frá hugmynd til veruleika

Fjallað er um byggingu frá upphafi til loka framkvæmda, alla áfangana. Skipulag, hönnun og hugsun. Einnig um byggingaleyfi, fjármögnun og efnisval.

Tveggja kvölda námskeið, kl. 19–21.30. Verð kr. 12.800.-

Leiðbeinendur: Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson arkitektar.

➑ Sumarhús frá draumi til veruleika

Fjallað er um skipulag, byggingaleyfi, hugmyndir og hönnun. Fjármögnun, efnisval og verkið frá upphafi til loka framkvæmda. Fjallað verður um mismunandi útfærslur og hagkvæm sumarhús sem byggja má í áföngum.

Tveggja kvölda námskeið, kl. 19–21.30. Verð kr. 12.800.-

Leiðbeinendur: Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson arkitektar.

➒ Umhverfi og skipulag

Þriggja kvölda námskeið um skipulag. Hvaða gildi hefur skipulag? Hvert stefnum við í skipulagsmálum í borginni? Framtíðarsýn. Fjöldi dæma skoðuð.

Þriggja kvölda námskeið, kl. 19-21.30. Verð kr. 18.750.-

Leiðbeinendur: Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson arkitektar.

Tekið verður við skráningum í síma 578-4800

og á www.rit.is. Tímasetning námskeiðanna

verður auglýst er nær dregur en þau hefjast

um miðjan janúar 2010. Frekari upplýsingar

fást á www.rit.is.

Námskeið í ræktun og arkitektúr - tilvalin tækifæris- og jólagjöf – skráning hafin á www.rit.is

áframhald verður á vinælum námskeiðum sem haldin voru á vegum tímaritsins á höfuðborgarsvæðinu og víða um land síðastliðið vor. Boðið verður upp á námskeið í nytjajuartarækt, umhirðunámskeið og námskeið fyrir sumarhúsaeigendur og skógræktarmenn. til viðbótar verður í fyrsta sinn boðið upp á námskeið tengdum arkitektúr. leiðbeinendur á námskeiðunum ættu allir

að vera lesendum vel kunnir, en það eru þau auður i. ottesen, garðyrkjufræðingur og ritstjóri sumarhússins og garðsins, og jón guðmundsson garðyrkjufræðingur. auk þeirra verða arkitektarnir Hlédís sveinsdóttir og gunnar Bergmann stefánsson hjá eon arkitektum með námskeið.

Auður I . O ttesen Jón Guðmundsson H lédís Sve insdótt i r Gunnar Bergmann Stefánsson

Merkurlaut 25 ehfSími 578 4800 – www.rit.is

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 49

Page 50: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Vatnsdalsvatn er nánast falið í lítilli dalkvos sem hefur myndast milli seljafells, skálafells og drápuhlíðarfjalls á norðanverðu snæfellsnesi. staðurinn er

skammt frá stykkishólmi og auðvelt að finna vatnið með því að aka þjóðveg nr. 57, sem liggur austur Helgafellssveitina í áttina að skógarströndinni, skammt frá vegamótunum að stykkishólmi. ekið er aðeins stuttan spöl frá vegamótunum þangað til komið er að bílastæði rétt utan vegar. Þar er áberandi skilti skógræktarfélags stykkishólms sem vísar á skógræktarsvæði Vatnsdals sem er um 50 ha að stærð.

Leiðin upp hlíðina í áttina að Vatnsdalsvatni og elsta skógræktarsvæðinu við rætur Drápuhlíðarskriðunnar sést nokkuð vel. Þegar mikil bleytutíð hefur verið getur slóðin verið torfarin vegna þess hve jarðvegurinn er leirkenndur, en það er líka hægt að fylgja lækjarfarveginum upp að vatninu. Þegar komið er upp að jaðri Drápuhlíðar blasir vatnið við og útfall stíflunnar þar sem áður var vatnsból Stykkishólmshrepps, en svo nefndist sveitarfélagið áður en Stykkishólmur fékk kaupstaðarréttindi 1987. Þar er lítið tréskýli yfir vatnsstútinn og fleiri vatnsveituminjar sem senn munu hverfa, enda engin not fyrir þau lengur.

Þrátt fyrir að vatnið sé frekar lítið er þar smábleikja ásamt hornsílum og amast skógræktarfólk ekki við því þótt rennt sé fyrir fisk. Þess ber að geta að samkvæmt gamalli þjóðsögu missti ekkja ein sem bjó í Drápuhlíð tvo syni sína sem drukknuðu í Vatnsdalsvatni. Hún lagði þau álög á Vatnsdalsvatn að allir skyldu drukkna sem reyndu veiði þar uns 20 hefðu drukknað. Það fylgir sögunni að 19 manns hafi drukknað í vatninu og það þykir ætíð óráðlegt að storka örlögunum. Mikil kyrrð ríkir við vatnið

og speglast Drápuhlíðarfjallið fallega í því þegar veður er stillt, enda getur verið afar skjólsælt í þessu gróna dalverpi. Hafa ber í huga að sólin hverfur af vatninu snemma kvölds á sumrin og þá getur snöggkólnað. Það er því vissara að hafa yfirhöfn meðferðis þó að hlýtt sé í veðri.

klukkustundar gangurHægt er að ganga umhverfis vatnið en svæðið

suðaustanvert við það getur verið votlent. Auðvelt er þó að feta sig ofar í brekkurnar þar sem þurrara

Drápuhlíð og Vatnsdalsvatn í HelgafellssveitTex ti og myndi r Jónatan Garðarsson

Drápuhlíðargrjót var eftirsóknarvert í veggklæðningar og hleðslustein í eldstæði.

Í Vatnsdalsvatni er smábleikja og er leyfilegt að veiða þar.

50 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 51: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Við bílastæðið er skilti frá Skógræktarfélagi Stykkishólms.

Fjölbreytt gróðurfar er við vatnið, og byrjað var að planta trjám þar fyrir 50 árum, eða 1959.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 51

Page 52: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

reynist. Ganga umhverfis vatnið tekur ekki langan tíma og er ágætt að gefa sér góða klukkustund og njóta þess sem þar er að sjá. Gróðurfar er fjölbreytt á þessum slóðum og ágætis berjaland síðla sumars. Byrjað var að planta út trjám við vatnið um 1959 en ræktunargirðingin var stækkuð 1990.

Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson töldu Drápuhlíðarfjall eitt það merkilegasta á landinu og voru sannfærðir um að gull væri að finna þar. Magnið reyndist hins vegar vera of lítið til að vinna það.

Fjallið er úr margra milljón ára súru gosbergi sem sést m.a. á því að ofarlega er surtabrandslag með steingerðar jurta- og skógarleifar. Litríkt líparít og basalt eru mest áberandi steintegundirnar og var Drápuhlíðargrjótið eftirsóknarvert á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar. Var það selt í stórum stíl og notað til að klæða veggi og sem hleðslusteinn í eldstæði. Nú er alfarið bannað að taka grjót og steingerðar jurtaleifar úr Drápuhlíðarfjalli.

Víðsýnt aF toPPnuMMargir leggja leið sína á Drápuhlíðarfjall sem er

527 m y.s. þar sem það rís hæst. Útsýni af fjallinu er mikið og það er vel þess virði að leggja á sig að klífa fjallið. Þeir sem vilja ekki fara alveg svona hátt láta sér nægja Skálafell eða Seljafell sem eru bæði auðveld uppgöngu. Þaðan er fallegt að horfa á sólarlagið á sumrin þegar himinn og haf renna saman og Breiðafjörðurinn verður einn glitrandi ævintýraheimur með allar eyjarnar sínar.

á söguslóðuM eyrByggjuGamla alfaraleiðin lá meðfram Vatnsdalsvatni,

yfir Vatnshálsinn sem er austanvert við vatnið og inn með Seljabrekkum niður í Innsveitina eins og svæðið frá Hólum að botni Álftafjarðar var nefnt fyrrum. Þarna eru merkar slóðir því Seljabrekkur koma við sögu í Eyrbyggju. Snorri goði á Helgafelli og menn hans drápu Vigfús bónda í Drápuhlíð þar sem hann var við

kolagerð ásamt þremur þrælum sínum. Talið er að gróskumikill skógur hafi verið í Seljabrekku á söguöld, enda komu Snorri og menn hans Vigfúsi að óvörum þar sem hann var við kolabrennuna. Það er vel þess virði að glugga í Eyrbyggju um leið og farið er um þessar slóðir, þótt það sé ekki nauðsynlegt því þeir sem vilja njóta náttúrunnar verða ekki sviknir af heimsókn í Vatnsdal undir Drápuhlíð. n

Fallegt er við Vatnsdalsvatn.

Gengið í Seljabrekkum og í fjarska sést sumarhúsasvæðið í landi Saura ásamt Sauravatni og í fjarska eru nokkrar eyjar á Breiðafirði

52 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 53: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Einstakar bækurfyrir ræktendur

Áskrift 578 4800www.rit.is

Merkurlaut 25 ehf.Hamrahlíð 31,105 Reykjavík

Sími 578 4800 • www.rit.is

Fást í öllum helstu bókaverslunum.

InniGarðar ehf. Lyngháls 4, 110 ReykjavíkSími 534 9585, www.innigardar.is

Fallegt vatnsræktarkerfimeð öllu sem til þarf

Árangursríkt og skemmtilegt

kerfi fyrir allt áhugafólk um

heimaræktun.

ÍSL

EN

SK

A S

IA.I

S S

FG

420

40 0

4.20

08

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 53

Page 54: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Á þessari lóð við fjölbýlishús í Árbæ er tilvalið að skipuleggja matjurtagarð og gefa íbúum hússins tækifæri til að rækta þar ýmsar nytjajurtir.

Öll fjölskyldan getur sameinast um ræktun

og þar sem margir rækta saman myndast

skemmtilegt félagslíf og því fylgir alltaf vellíðan.

Matjurtagarða á allar fjölbýlishúsalóðirTex ti : Auður I . O ttesen . Te ik n ing : Margrét Back man lands lagsark í tekt . M yndi r : Pá l l Jökul l

Víða er gott rými á lóðum fjölbýlishúsa fyrir tilvonandi matjurtagarð íbúanna, eins og sést hér við fjölbýlishús í Breiðholti. Margrét Bachman hefur hér teiknað garðaskipulag með tíu 30 fm reitum sem eru girtir og aðgreindir með berjarunnum.

Áhugi á matjurtaræktun síðastliðið vor varð svo mikill að matjurtafræ seldust upp í landinu, ekki bara einu sinni heldur þrisvar. aðstandendur sumarhússins

og garðsins stóðu fyrir fjölmörgum námskeiðum í nytjajurtarækt. Þau sóttu um 400 manns og af þeim voru um 75% sem aldrei höfðu ræktað grænmeti áður, né komið að annarri ræktun. áhuginn kviknaði jafnt hjá ungu fólki sem þeim eldri, og ekki bara þeim sem höfðu aðgang að garði heima við heldur einnig þeim sem búa í fjölbýlishúsum. Þeir ætluðu að rækta á svölunum eða að taka á leigu ræktunarskika hjá sveitarfélögum. óhætt er að segja að þessi breyting á áhugasviði fólks sé tilkomin vegna breyttra gilda í þjóðfélaginu í kjölfar efnahagshrunsins.

Fjölbýlishúsalóðir á Íslandi eru tilvalinn staður til að rækta grænmeti og aðrar nytjajurtir. Þar er víða yfirdrifið pláss sem er lítið eða ekkert notað. Hví skyldu ekki áhugasamir íbúar, sem svo gjarnan myndu vilja fá tækifæri til að rækta á litlum skika við heimili sitt, fá að nýta plássið?

Með þetta í huga hafa þær Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur og Margrét Backman landslagsarkitekt áformað að bjóða húsfélögum fjölbýlishúsa og öllum þeim sem þess óska, aðstoð við að skipuleggja nytja- og/eða matjurtagarða á lóðum sínum. Í tilboðinu felst að Margrét teiknar ræktunarsvæðið en áform þeirra eru að það sé afgirt og að hver ræktandi fái reit sem er frá 25-50 fm að stærð. Auður veitir faglegar ráðleggingar, útbýr ræktunarskipulag og heldur námskeið fyrir notendurna. n

Forráðamenn húsfélaga, garðeig-endur og aðrir sem hafa áhuga á að kynna sér tilboð þeirra Auðar og Margrétar hafi samband í síma 578-4800 eða á netfangið [email protected].

Frekari upplýsingar um tilboð Auðar og Margrétar er að finna á heimasíðu Sumarhússins og garðsins, www.rit.is.

54 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 55: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 55

Page 56: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Eitt vinsælasta umræðuefnið þegar fólk hittist er veðrið. Þá er rætt um sól, úrkomu og rok. Það er ekki að ástæðulausu því samkvæmt mælingum er ísland

eitt vindasamasta land heims. logn er því veður sem varir stutt og útivist því oft háð því að finna eða skapa skjólgóða staði. Þessir staðir þurfa líka að snúa þannig að sólin eigi gott með að skína á þá. Þannig er það samspil skjólmyndunar og sólargangs sem skiptir mestu máli fyrir útivistariðkun á sólardögum í garðinum. í þessari grein er farið yfir helstu atriðin sem snúa að því að bæta skjól í görðum og þá sérstaklega með notkun skjólveggja.

HVernig Hagar Vindurinn sér?Aðalforsendan fyrir því að geta myndað skjól er

að vita hvaðan vindurinn blæs. Með því að hafa upplýsingar um ríkjandi vindáttir á hverjum stað má fá nokkuð góða mynd af því fyrir hvaða áttum þarf að skýla. Í þröngum fjörðum er algengast að vindurinn blási inn eða út fjörðinn og þarf því bara að skýla fyrir tveimur áttum. Á suðvesturhorni landsins, þar sem vindurinn getur blásið úr öllum áttum, þarf einnig að taka tillit til þess veðurs sem fylgir hverri vindátt. Algengast er þar að suðlægum áttum fylgi skýjað veður og rigning en að sólskin fylgi norðlægum áttum. Fyrir flesta skiptir máli að skýla fyrir þeim vindum sem gjarnan eru ríkjandi í „sólbaðsveðri„ og á höfuðborgarsvæðinu eru það norðlægar áttir og hafgolan.

Því nær sem garðurinn er sjónum, því meira tillit þarf að taka til áhrifa hafgolu. Á sólskinsdögum hitnar landið meira en sjórinn og þá streymir loftið frá hafinu og inn á landið. Hafgolan nær sjaldan meiri hraða en 10 m/s. Það er samt þess virði að gera ráð fyrir áhrifum hennar þegar verið er að reisa skjólveggi því hún er algengust á góðviðrisdögum þegar önnur vindáhrif eru lítil eða engin. Hafgolu gætir aðallega frá hádegi, þegar sólin hefur hitað landið, og streymir þá vindurinn frá hafinu.

Á hverjum stað eru einnig ríkjandi vindáttir. Þetta eru þær áttir sem algengast er að vindurinn blási úr. Ríkjandi vindáttir geta verið mismunandi eftir árstíðum. Sumum vindáttum fylgir yfirleitt rigning eða væta en aðrar eru algengari í björtu

veðri og því þurrari. Þetta er bæði breytilegt eftir landshlutum og eftir því hver afstaða fjalla er. Þannig hefur til dæmis Esjan þau áhrif að þegar norðaustanátt er yfir landinu geta verið austan-, norðaustan-, norðan- eða norðvestanáttir, allt eftir því hvar á höfuðborgarsvæðinu maður er staddur. Á suðvesturhorni landsins er algengasta áttin suðaustlæg. Þetta er jafnframt ein vætusamasta áttin. Önnur mjög algeng átt er norðlæg og norðaustlæg. Þessum norðlægu áttum fylgir yfirleitt bjart veður og sólskin. Þess vegna er mikilvægt þegar verið er að hanna útivistarsvæði í garðinum að skýla sig fyrir þessum áttum því útivistin er skemmtilegust í björtu og þurru veðri. Annar fylgifiskur staðbundinna vindátta eru trekkir milli húsa en baráttan við þá getur verið erfið.

Helstu aðFerðir Við að Mynda skjólÞað eru margar leiðir til að mynda skjól í görðum

en þörfin er mismikil og fer eftir aðstæðum. Einn mikilvægasti skjólgjafinn í venjulegum garði er íbúðarhúsið sjálft. Lögun þess og hvernig það er staðsett á lóðinni getur orðið til þess að mynda mjög gott skjól eitt og sér. Það eru einnig til dæmi þess að í ákveðnum vindáttum magni afstaða og staðsetning hússins upp trekki. Þegar þetta gerist þarf að skoða þessa staði vel og athuga hvort hægt er að beina trekknum frá setu- og sólbaðssvæðum. Það sem er erfiðast að eiga við er þegar vindar blása ofan af þaki, en þá getur lega skjólveggja jafnvel magnað áhrif vindanna. Besta leiðin til þess að nýta það skjól sem húsið myndar er að nota skjólveggi sem beina vindinum utar í garðinn og gera það að

Skjólmyndun með girðingumTex ti og te ik n ingar : B jörn Jóhannsson lands lagsark i tekt

Um skjól, vinda og sól

Skjól

Skjól

Skjól

Myndirnar sýna hvernig samspil húss og girðinga hefur áhrif á myndun vindhvirfla og skjóls.

56 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 57: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

SkjólSkjól

Björn Jóhannsson landslagsarkitekt hefur mikla reynslu af verkefnum sem snúa að skjólmyndun. Hann hefur útfært fjölda garða og sumarhúsalóða.www.landslagsarkitekt.isNetfang: [email protected].

Skjólsvæði

SkjólsvæðiSkjólsvæði

Skjólsvæði

SkjólsvæðiSkjólsvæði

verkum að skjólsvæðin við húsið verða stærri. Skjólveggirnir eru ýmist gerðir úr timbri, steypu eða þá hlaðnir. Í mörgum tilfellum er einnig hægt að notast við umhverfisvænni aðferðir eins og gróður, hæðir og hóla.

HlutVerk girðinga Við skjólMyndun

Það fyrsta sem þarf að hafa í huga þegar verið er að mynda skjól er hvernig vindur hagar sér. Það skiptir miklu máli að átta sig á því að við skrúfum ekki fyrir vindinn með því að setja upp skjól heldur erum við að beina vindinum annað. Ef settur er upp veggur þvert á vindstefnuna þá erum við ekki að stoppa vindinn því loftið í vindinum verður alltaf að fara eitthvað. Vindur lyftir sér yfir vegginn og smýgur einnig fram hjá honum. Þannig myndast skjólsvæði hlémegin við vegginn. Vindurinn hverfur ekki heldur þrýstir hann sér yfir vegginn og myndar skjólsvæði hlémegin við hann, en að sama skapi er trekkurinn mjög sterkur efst á veggnum þar sem hann er að þrýsta sér yfir. Ef skjólveggir eru reistir án þess að hugsa áhrif þeirra til enda er alltaf hætta á að í sumum áttum verði til hvirflar. Þannig getur t.d. skjólveggur

hlémegin við hús tekið á móti vindi frá þakinu og beint honum inn á dvalarsvæðið.

HVað Ber að Varast?Það er lykilatriði þegar verið er að mynda skjól

með girðingum að huga bæði að því hvaðan vindurinn kemur og hvert hann fer. Þegar girðing er reist myndar hún skjól upp í ákveðna hæð og í ákveðna fjarlægð frá veggnum hlémegin. Þess vegna þarf að huga að því hvað er að gerast í nokkurra metra fjarlægð skjólmegin við vegginn. Ef einhver fyrirstaða er getur vind auðveldlega slegið til baka. Eins getur skjólveggur sem skýlir fyrir einni átt myndað vindgildrur í annarri. Algengt er að reistir séu veggir sem skýla gegn

suðaustanáttum sem geta verið vætusamar og áberandi þegar regnið dynur á gluggum. Þessir veggir geta svo myndað trekt fyrir norðanátt og jafnvel leitt vindinn inn í garðinn þar sem áður var skjól.

Vindasömustu svæðin eru oft við horn húsa. Með því að reisa vegg út frá horni í sömu átt og vindstefnan, er oft hægt að fá stórt skjólsvæði með litlum tilkostnaði. Þannig er vindurinn leiddur frá horninu og áfram út í garðinn. Það skiptir því máli að kynna sér vel hvernig húsið snýr gagnvart höfuðáttunum, sem og kynna sér ríkjandi vindáttir og hafgolu á svæðinu.

Vindurinn nýttur til gagnsÞótt aðalbaráttan snúist um að búa til skjól er

það vel þess virði að velta því fyrir sér til hvers eigi að nýta vindasamari hluta garðsins, t.d. þá staði sem vindur hefur magnast vegna staðsetninga skjólveggja. Slíkur staður er upplagður fyrir þvottasnúrur því góður blástur er ómissandi til þess að þvotturinn þorni sem fyrst. Eins geta grasflatir ætlaðar til boltaleikja verið hafðar þar sem aðeins gustar um leikmenn. n

Skýringarmyndir sem sýna hvernig skjólveggir geta bæði magnað upp vind og eins myndað skjól.

Með því að beina vindinum í ákveðna átt frekar en að girða þvert á, er hægt að mynda stærri skjólsvæði.

Það er lykilatriði þegar verið er að mynda skjól með girðingum að huga bæði að því hvaðan vindurinn kemur

og hvert hann fer.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 57

Page 58: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

EON arkitektar :

Upphaf byggingalistar og tenging við náttúrunaTex ti : H lédís Sve insdótt i r og Gunnar Bergmann Stefánsson. M yndi r : Pá l l Jökul l Pétursson o. f l .

Lífið er hringrás sem birtist í ótal myndum.Þróun samfélagslegs og manngerðs umhverfis á uppgangstímum hefur tilhneigingu til að færa manninn frá náttúrunni og upphaflegum gildum.

58 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 59: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Í ísland hefur gengið í gegnum ótrúlegar sveiflur á síðustu 60 árum. Bláfátæk þjóð fyrir stríð, framfarastig lágt og lífsgæði bág í samanburði við nágrannaþjóðirnar. Fram eftir

síðustu öld var algengt að búið væri í torfbæjum hér á landi.

Torfbæirnir eru frumstæð hús, þeim svipar til jarðhýsa sem voru fyrsta byggingarform manna á tímum nýsteinaldar. Aðalbyggingarefnið í kofunum var mold og torf, líkt og í íslensku torfbæjunum. Jörðinni var lyft upp og burðarbitar úr trjám, sem þaktir voru jarðvegi, mynduðu þak. Fræðimenn hafa í gegnum tíðina talið hina frumstæðu „kofa” forfeðra okkar vera upphaf menningar og hins eiginlega forms byggingalistar.

Samkvæmt kenningum fræðimannsins Laugiers um byggingalist er upphaf og uppspretta hennar í sínu einfaldasta formi þrjú rótföst tré í náttúr-

unni með samanflétt-aða trjáboli, með opi á milli þeirra þar sem greinar þeirra mætast í mæni og mynda þak. Laugier var uppi á 18. öld.

Við Íslendingar erum eflaust nær upprunanum en flestar vestrænar þjóðir. Við þekkjum rætur okkar og náttúran gegnir stóru hlutverki í okkar daglega lífi. Hugmyndir sem leiða til samruna bygginga

og náttúru koma sterkt fram í sögu íslenskrar byggingalistar og eru sýnilegar víða um land. Eftir efnahagsuppgang síðustu ára erum við nú í endurskoðunarferli þar sem horft er aftur til hinna upprunalegu gilda og leitað er svara í upprunanum, líkt og fræðimaðurinn Laugier gerði.

Þessi uppbygging á skýli sem mótað er úr náttúrunni í sinni einföldustu mynd er í raun frummynd allrar byggingalistar.

Arkitektúr í náttúrunni – náttúran í arkitektúrnum

skýli, Manngert rýMi á jörð eða oFan í jörð.Eon ark i tektar 2001 .

Í hlaðna húsinu hér að ofan er óregluleg náttúran beisluð og falin bak við snilldarlega hleðslu. Líta má á þetta mannvirki sem þverskurð í náttúruna, og hvernig maðurinn vinnur með hana. Upp úr moldargólfinu rís hleðslan - fyrst óregluleg og frumstæð eins og náttúran sjálf, en síðan tilhöggvin og í öguðu formi. Lýsandi dæmi um að maðurinn reynir að temja Móður náttúru. Ofan á hleðslurnar á gafli mannvirkisins kemur annars konar burðarvirki - timburflekar með mjóum, lóðréttum opum sem minna á samspil sólargeisla og trjástofna, skugga og ljóss.

Hefðbundið lag á íslenskum torfbæ.

Hlaðið skýli sem Víglundur gerði með tveimur aðferðum. Neðri hlutinn er hlaðinn samkvæmt fornri hleðsluhefð, en efri hlutinn er nútímaleg útfærsla. Á gafli hússins, ofan við hleðsluna, berst inn birta sem lýsir upp skýlið.

Hlaðinn tyrfður veggur verður hluti náttúrunnar.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 59

Page 60: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Húsið í trjánuMGrenihvammur, byggt 2006 . Eon ark i tektar.

Annað gott dæmi um hús sem fellur vel að náttúrulegu umhverfi sínu, er Grenihvammur, hús sem er órjúfanlegur partur af skóginum og skógurinn órjúfanlegur partur af húsinu. Timburklæddir veggfletir, súlur og gluggakarmar inni í húsinu tengjast stofnum grenitrjánna sem umlykja það og eru sem náttúrulegt framhald af skóginum. Þakið er sem trjákróna sem skýlir íbúum þess og uppfyllir húsið á þann hátt þá tilfinningu sem leitað er eftir þegar fólk vill komast aftur til upprunans í kyrrlátri náttúrunni, burt frá skarkala borgarlífsins.

Grenihvammur. Húsið er órjúfanlegur partur af skóginum.

Ofan á þaki Heklusetursins rís Heklustofa upp úr grasi og hraunlögðu þaki byggingarinnar.

Inngangurinn í Heklusetur er sem gengið sé inn í hraunvegg.

EON arkitektar :

Heklusetur - eldFjallaMiðstöð á íslandiEon ark i tektar 2001-3

Í Heklusetrinu er líkast því sem kraftar jarðar hafi ýtt upp jarðvegi og hrauni og myndað pláss fyrir bygginguna sem hefur verið komið þar fyrir. Heklusetrið samlagast umhverfi sínu á þann hátt að það lítur út fyrir að hraunbreiðunni hafi verið lyft upp til þess að koma húsinu fyrir undir henni. Þakið er hrauni lagt, hleðslur og hraunlagðir veggir mynda gjár, og ofan frá er upplifunin af byggingunni sem hún sé lítill kofi inni í hrauni lagðri rétt.

Hér er um að ræða nýbyggingu, hannaða annars vegar inn í krefjandi landslag sem mótast hefur af nálægð eldfjallsins Heklu og hins vegar byggða á aldagömlum hefðum í íslenskri byggingalist. Þannig mótar upplifunin á landslaginu bygg-inguna með tilvísun í söguna. Byggingin er síbreytileg þegar gengið er í kringum hana og innandyra, þar sem hvert sjónarhorn gefur nýja upplifun og skilning á umhverfinu. Náttúruleg

efni einkenna bygginguna, þar sem hraun er í aðalhlutverki og Hekluhraunið þannig notað sem byggingarefni á hefðbundinn og nýstárlegan

hátt. Þök hússins eru bæði lögð hrauni og torfi og þak ráðstefnusalarins er ein hraunbreiða þar sem hraunið lekur niður þakkantinn eins og það hafi storknað þar.

saFn neðanjarðarSafnið í Heklusetrinu er byggt ofan í hraunið

og landið gengur yfir þannig að samspil hrauns og torfs í frágangi utanhúss vitnar í íslenska sögu. Grunnurinn að tæknilegri útfærslu byggingarinnar er að beita nútímatækni og að fella bygginguna inn í landslagið með hefðbundnum fornum, íslenskum aðferðum. Landslagið umlykur bygginguna og samanstendur ytri umgjörðin af þakgörðum í mismunandi hæðum. Þannig er þak ráðstefnusalarins mosavaxin hraunbreiða sem teygir sig í átt til Heklu og Búrfells. Ofan á byggingunni er síðan herbergi sem rís upp úr landinu og frá vissu sjónarhorni virðist sem þarna sé einungis eitt lítið manngert rými.

60 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 61: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Katrínarhús fellur vel að umhverfi sínu.

Víkingalaug að leiruBakka, saMsPil Hrauns og VatnsEon ark i tektar 2001

Hraunbreiðunni er lyft upp og hún notuð sem efniviður í manngert umhverfi Víkingalaugar í Hekluhrauni, skammt frá Heklusetrinu í Land-sveit. Þegar maður nálgast þetta mannvirki er sérstök upplifunin sú að landið hafi verið rofið og gengið sé niður úr grasflöt eftir sprungu sem heit laug hefur myndast í. Laugin er mynduð af affallsvatni frá hitaveitunni í Heklusetrinu, en hugmyndin að Víkingalauginni er tilkomin út frá nýtingu þessa affallsvatns. Vatninu er stýrt þannig að það myndar foss sem rennur niður hraunið og ofan í laugina. Óreglulegar en skipulagðar hraunhleðslur mynda skurð eða gönguleið um staðinn og náttúrulegt skjól fyrir skiptiaðstöðu baðgesta. Ásamt vatninu er notkun hraunsins og hleðslan áhrifamikil og enn áhrifameiri þegar Hekla blasir við laugargestum þegar þeir eru ofan í lauginni.

Síðasti hluti gönguleiðarinnar að lauginni er í gegn um hraunhól með hlöðnum veggjum sitt hvorum megin. Yfirumsjón yfir þessu verki hafði Róbert Róbertsson skrúðgarðyrkjumeistari.

Óviðjafnanlegt útsýni er fyrir gesti laugarinnar, Hekla blasir við í öllu sínu veldi.

„Mótun byggingalistarinnar út frá sögu lands og þjóðar, sjónræn upplifun og tenging hennar við umhverfið er okkur mikilvæg. Við höfum lagt metnað okkar í að vinna út frá þeim grunni þar sem við höfum haft tækifæri til, og tenging verka okkar við umhverfið er sýnileg á mörgum stöðum. Markmið

okkar er að sameina nútíma arkitektúr og rótgróna íslenska siði og venjur í byggingarlist í eina heild. Sú heild virkar fyrir íslenskt veðurfar og náttúru og passar inn í hið hraða hátæknisamfélag nútímans.“

Eon arkítektar, Hlédís og Gunnar

aF jörðu ertu koMinHús í K jós , byggt 2007 . Eon ark i tektar.

Katrínarhús er á margan hátt áþekkt skýli sem lætur lítið yfir sér í náttúrunni. Undir klett-unum rís húsið, byggt og klætt náttúrulegum efnum. Klæðning hússins er óáborin Jatoba-timburklæðning, sem veðrast á náttúrulegan hátt, samlagast og verður með tímanum partur af umhverfi sínu. Efni eins og þetta breytist í útliti eftir veðri og með tímanum blandast það smám saman jörðinni á ný. Húsið er lýsandi dæmi um hvernig manngert skýli getur risið upp úr landinu og verið partur af náttúrunni sem það er í. Þakið er klætt lyngi og tilsýndar lítur út fyrir að húsinu hafi einfaldlega verið lyft upp úr jörðinni. Á því eru fletir úr náttúrulegum efnum sem mynda skjól fyrir veðri og vindum. Hið stórfenglega umhverfi flæðir svo um stóra gluggafleti inn í húsið.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 61

Page 62: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Í gegnum tíðina hafa menn leitað leiða til að

laga hið manngerða skýli að náttúrunni og í nútíma

arkitektúr hafa meistararnir samið sinn óð til náttúrunnar.

trén eru uMgjörð uM íVerurýMinResearch House 1932 - R ichard Neutra

Húsið er óður arkitektsins Neutra til upprunans. Þróun glers sem byggingarefnis hefur á seinni tímum skapað óendanlega möguleika á samruna innri rýma og náttúru sem nýtt er til hins ítrasta í húsi Neutra. Notkun glers í ytra byrði byggingarinnar gerir nánd við náttúruna mikla þannig að glerið í burðarvirki hússins, sem mótað er úr trjánum, er hluti af heildarmynd. Arkitektinn var heillaður af náttúrunni og það kemur sterkt fram í þessu húsi sem hann byggði fyrir sjálfan sig.

FullkoMinn saMruni Hins Mann-gerða og Hins náttúrulega uMHVerFisWayfarers Chapel 1951 - Frank L loyd Wr ight J r.

Glerkirkjan Wayfarers Chapel er dæmi um einstaka byggingalist þar sem náttúran fléttast saman við fíngert burðarvirki bænahússins og verður órjúfanlegur partur af upplifuninni. Byggingarefnin eru tekin beint úr náttúrunni, úr nærliggjandi umhverfi. Grjótið og trén eru tengd saman með gegnsæju glerinu og er sem altarið standi í miðjum trjálundinum.

Manngerð innsetning í náttúrunaCorbus ier –uppl i fum f rumstæðan ste ina ldar ark i tektúr

í nút ímalegr i k i r k ju .

Notre Dame du Hut er hið einfalda manngerða skýli, útfært í kapellu, þar sem hið mjúka náttúrulega form byggingarinnar, með yfirgnæfandi þaki, minnir á einfalda leirkofa með stráþökum. Slíkir kofar voru fyrstu skýlin sem

menn gerðu úr þeim efnum sem landið hafði upp á að bjóða. Hér sést að með einföldum formum er auðvelt að reisa tilkomumikla byggingu sem vísar í náttúruna og hefðir mannsins, og er í fullkominni sátt við umhverfið án þess að missa sjálfstæði og stíl.

Tréhús framtíðarinnar, samruni tæknilegra

framfara og afturhvarfs til hugmyndanna um „Primitive

hut”.

Húsin í trjánuM, o2-Húsið.Átök milli „framúrstefnu” byggingalistar

og náttúru, framandi hlutir, lífræn form og framtíðarsýn í skóginum.

Hugmyndin er sú að í framtíðinni muni menn leita aftur til hugmynda um húsið í trénu, en á róttækan hátt. Framtíðarhugmyndum bandaríska arkitektsins Buckminsters Fuller um byggð form er stillt varlega upp í náttúrunni í greinum trjánna, eins og skúlptúr án röskunar á umhverfi sínu. Trén verða undirstaða og umgjörð svífandi hluta og framúrstefnulegar hugmyndir um íverustað. Buckminster Fuller er þekktur fyrir hugmyndir sínar um kúluhús sem byggð eru upp af þríhyrningum.

Húsin í trjánuM, FaB Húsið.Samruni „framúrstefnu”-byggingalistar og

náttúru. Náttúran tekur yfir hið manngerða.

Hér er hugmyndin sú að í framtíðinni leiti menn aftur til náttúrunnar á róttækan hátt - afturhvarf til upprunans, sbr. kenningar Laugiers um „Primitive hut”. Í stað þess að byggja húsin munum við rækta þau. Í stað þess að áherslan sé á umhverfisvænt umhverfi húsa þá verður húsið sjálft umhverfið. Í FAB–húsi er vexti trjáa og annarra náttúrulegra efna stýrt á róttækan hátt utan um hugmyndir mannsins um „að rækta hús sitt”, sem þannig verði virkur þátttakandi í hinni lifandi náttúru. n

Verður hin manngerða náttúra framtíðarinnar stórborgir þar sem skýjakljúfar verða að frumskógi sem leysa þann náttúrulega af hólmi?

Eco tréhúsið. Fab húsið.

EON arkitektar :

62 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 63: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

B æ k u r í b ú s t a ð i n n

Í Kvosinni Æskuminningar og bersöglismál

Skrudda endurútgefur bók Flosa Ólafssonar sem kom fyrst út fyrir 27 árum og er það vel við hæfi er við minnumst eins skemmtilegasta og ástsælasta leikara þjóðarinnar.

Á baksíðu bókarinnar lýsir Flosi Ólafsson sjálfum sér með eftirfarandi hætti, sem er lýsandi fyrir skopskyn hans og skapgerð: ”Ég held ég sé tiltölulega meinlaust grey. Ég á það til að vera dálítið illkvittinn, en það er þá bara í nösunum á mér. Ég hef svolítið gaman af því að ganga fram af fólki og þá auðvitað helst fólki sem hefur gott af því að gengið sé fram af því. Þeir sem mig þekkja vita að ég vil ekki gera flugu mein, nema það sé

mjög aðkallandi, en þeir sem þekkja mig ekki halda yfirleitt að ég sé illmenni. – Stundum hef ég, svona með sjálfum mér, verið að óska þess að ég væri svolítið gáfaðri en ég er því satt að segja er ég nú hálfgerður bjáni. En þá hugsa ég bara í leiðinni: - Ég er þó enn sæmilega til heilsunnar.” Frábærlega skemmtileg bók sem allir ættu að lesa!

Útgefandi er Skrudda, sjá www.skrudda.is.

Kaupalkinn í New York

Kaupalkinn í New York eftir Sophie Kinsella er sjálfstætt framhald af bók hennar, Draumaveröld kaupalkans, sem sló rækilega í gegn. Hún fjallar um hina jákvæðu og hrifnæmu Becky, sem segir kannski ekki alltaf alveg satt, en er samt alltaf jafneinlæg og

heillandi. Lífið leikur við Rebeccu Bloomwood. Hún starfar sem fjármálaráðgjafi í virtum sjónvarpsþætti. Hún á fullkominn kærasta. Nýja mottóið hennar er að kaupa aðeins það sem hún þarf nauðsynlega á að halda - og það er sko (næstum) ekkert mál! Ekki versnar það þegar henni býðst að fara til New York, þar sem sjónvarpsstöðvarnar keppast um að funda

með henni og hún kemst í kynni við alveg stórkostleg fyrirbæri - sýnishornaútsölu.

Útgefandi Bókaútgáfan Salka, sjá www.salka.is.

Heitar laugar á Íslandi

Heitar laugar er athyglisverð bók eftir þau Jón G. Snæland og Þóru Sigurbjörnsdóttur og fjallar um hinar heitu laugar í náttúru Íslands. Greint er bæði frá

ósnortnum náttúrulaugum og manngerðum laugum sem skemmtilegt er að skoða og njóta. Þær eru bæði í byggð og óbyggðum og á misfjölförnum slóðum.

Við mælum með þessari bók fyrir ferðalanga sem vilja bregða sér í heitt bað á ferðum sínum um landið. Góður kostur við bókina er að henni fylgja GPS-punktar allra lauganna sem fjallað er um, en þær eru

á annað hundrað. Ljósmyndir eru af þeim öllum og fjörlegar leiðar- og náttúrulýsingar gera bókina að ómissandi förunaut á ferðalögum. Loks eru vönduð kort í bókinni til að auðvelda notkun hennar.

Útgefandi Skrudda, sjá www.skrudda.is.

Súpa og stóll

Súpa og stóll, sem Salka gefur út, er bráðsniðug bók þar sem 30 einstaklingar úr ýmsum áttum fá það verkefni að breyta stól og gefa honum sitt svipmót. Eðalkokkurinn Snorri Birgir Snorrason velur svo og útfærir dýrindisuppskriftir að súpum sem honum finnst henta þessum einstöku stólum.

Af frumleika og listfengi tekst Sigrúnu Sigvaldadóttur og Ragnhildi Ragnarsdóttur hjá Hunangi að hanna glæsilega og skemmtilega bók. Áslaug Maack Pétursdóttir tók viðtöl við stólafólkið og ljósmyndir Áslaugar Snorradóttur setja svo punktinn yfir i-ið.

Útgefandi Bókaútgáfan Salka, sjá www.salka.is.

Góðielskhuginn

Á kaldri vetrarnóttu er löngu brottfluttur Íslendingur allt í einu staddur á Seltjarnarnesi fyrir utan heimili æskuástarinnar. Þau áttu saman sjö mánuði fyrir

17 árum en hafa ekki sést síðan. Hún hefur aldrei vikið úr huga hans. Hvað gerist í nótt? Ævilok eða nýtt upphaf? Góði elskhuginn er heillandi saga um ást og aðskilnað, einsemd og eftirsjá, hamingju og vonbrigði – og amerískan geðlækni sem skrifar raunveruleikaskáldsögu með fræðilegu ívafi. Steinunn Sigurðardóttir hefur um langt árabil verið í

hópi virtustu og vinsælustu rithöfunda þjóðarinnar, bæði heima og erlendis. Ísmeygileg gamansemi, fágaður stíll og einstök innsýn í heim ástarinnar eru einkenni þessarar glæsilegu skáldsögu.

Útgefandi Bjartur bókaforlag, sjá www.bjartur.is.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 63

Page 64: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Steinunn Bergsteinsdóttir býður ykkur girnilegar uppskriftir að hátíðarmat sem auðvelt er að matbúa, jafnvel í sumarhúsinu fyrir þá sem kjósa að eyða jólunum þar.

Síðustu ár finnst mér sem lagt hafi verið of mikið upp úr því að hafa eitthvað óvenjulegt og dýrt í jólamatinn. Jólin verða ekkert notalegri þótt á borðum sé sebrahestur og meðlætið framandi grænmeti og exótískir ávextir sem kosta hvítuna úr augunum. Ég ólst upp við að það væri lambahryggur á aðfangadagskvöld og mér þykir upplagt að taka þann sið upp aftur - íslenskt skal það vera!

alíslenskur laMBaHryggur Með ölluAð þessu sinni býð ég ykkur upp á lambahrygg með villisveppasósu og með honum

sykurbrúnaðar kartöflur með kanil, gulrætur og snjóbaunir með engifer og mandarínum, sætar kartöflur með ferskum döðlum, heslihnetum og rósmarín og plómusulta með púrtvíni.

Gamli góði hryggurinn á jólaborðið

Tex t i : S te inunn Bergste insdótt i r. M yndi r : Pá l l Jökul l Pétursson

Lambahryggur með villisveppasósu1 vænn lambahryggurSmjör, hvítlaukssalt og piparNokkrir negulnaglar 1 bolli vatn

Hitið ofninn í 190°C. Skerið tvær rákir í lambahrygginn eftir endilöngu og stingið nokkrum negulnöglum í. Nuddið síðan hrygginn á báðum hliðum með smávegis af mjúku smjöri og kryddið hann vel með hvítlaukssalti og svörtum pipar. Leggið hann í ofnskúffu og hellið vatninu í skúffuna. Látið í heitan ofninn og steikið í um 1½ klst. Ef ykkur finnst sem hann sé að dökkna of mikið er gott að leggja álpappír yfir síðasta sprettinn.

Villisveppasósa250 g sveppir500 g villisveppir80 g smjör 250 ml rjómi1 tsk. Dijon sinnep1 tsk. balsamik-edikHvítlaukssalt og svartur piparSoðið af hryggnum2 msk. maizena-mjöl

Sneiðið sveppina og skerið frosnu villisveppina líka aðeins meira niður. Enn betra er að nota villisveppi sem þið hafið sjálf tínt og fryst um sumarið. Setjið frosna villisveppina á pönnu og hitið og látið allt vatn fara úr þeim. Þegar vatnið er soðið af er smjörinu bætt á pönnuna ásamt hinum sveppunum og allt steikt vel. Kryddið með hvítlaukssalti og pipar. Takið hluta af sveppunum frá og látið á fatið með hryggnum. Hellið rjómanum yfir það sem eftir er á pönnunni og hrærið vel. Þegar hryggurinn er steiktur þá hellið soðinu í litla skál, veiðið dálítið af fitunni ofan af og hellið síðan soðinu í sósuna og smakkið til með Dijon sinnepi og balsamik-ediki. Hrærið maizena-mjölið út í smá köldu vatni og þykkið sósuna aðeins. Það má líka bara nota tilbúinn sósujafnara.

Jólin nálgast

64 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 65: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 65

Page 66: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Brúnaðar kartöflur með kanil1 kg smáar kartöflur1 dl sykur50 g smjör3 msk. rjómi1 tsk. kanill

Sjóðið og flysjið kartöflurnar. Hitið sykurinn á pönnu, lækkið hitann þegar hann byrjar að renna og passið að hann brúnist en brenni ekki. Bætið nú smjöri út í og hrærið. Stráið síðan kanilnum yfir og hrærið. Hrærið þá rjómanum út í líka og hrærið allt vel. Nú eru kartöflurnar látnar saman við og þeim velt til og frá í góða stund. Lækkið hitann, leyfið þessu að standa smástund og hrærið í annað slagið.

Sætar kartöflur með döðlum og heslihnetum1 kg sætar kartöflur, skornar í teninga100 g saxaðar heslihnetur100 g ferskar saxaðar döðlur 1 tsk. rósmarínSmá steinselja80 g brætt smjör1 msk. Dijon sinnep2 msk. hlynsíróp

Flysjið kartöflurnar og skerið þær í teninga. Sjóðið í 8-10 mínútur og fylgist vel með að þær fari ekki í mauk. Sætar kartöflur þurfa styttri suðu en venjulegar kartöflur. Skerið heslihnetur í tvennt og ristið létt á pönnu í örlitlu smjöri, bætið rósmaríninu út í og geymið.

Bræðið smjörið og hrærið sinnepi og sírópi saman við. Látið heitar kartöflurnar í fat og blandið hnetum og döðlum saman við. Hellið smjörblöndunni yfir og veltið til. Fallegt er að saxa smá steinselju yfir.

Þetta er líka mjög gott með hamborgarhrygg.

Gulrætur og snjóbaunir með mandarínum og engifer500 g sneiddar gulrætur200 g snjóbaunir (líka kallaðar sykurbaunir), skornar í tvennt1 mandarína - og rifinn börkurinn1 msk. rifið engifer3 msk. hlynsírópSmjör til steikingar

Snöggsjóðið sneiddar gulræturnar. Rífið börkinn af mandarínunni og takið svo utan af henni og saxið hana. Hitið smávegis smjör á pönnu og setjið allt út í smjörið.

66 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 67: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Plómusulta500 g dökkar plómur3/4 bollar sykur1 tsk. kanill½ tsk. negull½ dl balsamik-edikNokkur saltkorn

Skerið plómurnar í tvennt og takið steininn úr. Skerið síðan í þunna báta, látið allt í pott og sjóðið smástund. Lækkið hitann og hrærið vel í. Látið krauma þar til þykknar aðeins.

Þessi sulta er afskaplega góð með villibráð og eins með ýmsum kæfum. Hún geymist a.m.k. í viku í ísskáp, en ef þið viljið geyma hana lengur er betra að frysta hana.

Eplabaka með valhnetum6 stór Jonagold epliSafi úr einni sítrónu1 bolli hveiti1 bolli púðursykur200 g mjúkt smjör1 msk. kanill100 g grófsaxaðar valhnetur

Þið þurfið stórt eldfast fat. Hitið ofninn í 180°C. Takið utan af eplunum, saxið þau í meðalstóra bita og látið í eldfasta fatið. Það má vera kúffullt því eplin rýrna við baksturinn. Dreypið sítrónusafanum jafnt yfir. Blandið nú öllum þurrefnum saman í skál og síðan mjúka smjörinu og myljið þetta vel saman með fingrunum. Látið hneturnar út í síðast. Nú er deigmylsnunni dreift vel yfir eplin, fatið látið í ofninn og bakað í eina klukkustund eða svo. Gott er að breiða smá álpappír yfir ef deigið virðist vera að dökkna of mikið. Deigið á að verða hart og stökkt að ofan og eplin vel bökuð og mjúk og safarík. Berið bökuna fram volga með rjóma, en þess má geta að hún er engu að síður góð köld.

Eftirréttirnir eru þrír - stór og mikil eplabaka með valhnetum, en eplin eru góðir vetrarávextir, bakaður hrísgrjónabúðingur með sólberjasósu en hann er skemmtileg tilbreyting frá hinu hefðbundna Ris a la mande, og að lokum púrtvínslegnar sveskjur. Þær klikka aldrei og ekki er lengi verið að leggja í þær.

Eftirréttir sem klikka ekki

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 67

Page 68: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Púrtvínslegnar sveskjur500 g sveskjur½ bolli vatn½ bolli púrtvín½ bolli sykur

Allt látið í vel lokað ílát og hrist saman. Sveskjurnar eru bestar ef þær eru látnar standa í kæli í leginum í a.m.k. viku og verða bara betri með tímanum. Það getur varla verið til auðveldari uppskrift og samt er þetta alveg ómótstæðilega gott.

Berið fram kalt með hálfþeyttum rjóma.

Bakaður hrísgrjóna-búðingur2 bollar soðin hrísgrjónTæplega ½ bolli sykur2 egg2 bollar mjólk1 msk. vanilludropar1 tsk. salt60 g smjör1 heil afhýdd mandla

Hitið ofninn í 190°C. Látið einn bolla af hrísgrjónum í pott og 2½ bolla af vatni. Látið suðuna koma upp og minnkið á allra minnsta hita, setjið lokið á og látið sjóða í 20-30 mínútur, eða þar til allt vatnið er horfið. Í pottinum eru núna tveir bollar af soðnum hrísgrjónum. Hrærið smjörið saman við meðan grjónin eru heit. Blandið nú öllu hinu saman í stórri skál og látið grjónin í síðast. Þessu er síðan hellt í eldfast fat og bakað í ofni í 45-55 mín.

Hrísgrjónabúðingurinn er borðaður kaldur eða ylvolgur. Með honum ber ég fram sósu og þeyttan rjóma. Sá sem finnur möndluna fær vonandi möndlugjöf. Mamma hafði oft svuntu í möndlugjöf og sá sem fékk hana varð að sjá um uppvaskið með henni. Þetta fannst henni fyndið en yfirleitt fylgdi konfektkassi með og allir hjálpuðust að við uppvaskið.

Sólberjasósa1 bolli Ribena-saft1 bolli vatn3-4 msk. góð sólberjasulta, helst heimagerð1 tsk. maizena-mjöl til þykkingar

Látið vatnið í lítinn pott, pískið maizena-mjölið vel saman við, bætið svo saft og sultu út í og látið sjóða í smástund.

68 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 69: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Rúsínukonfekt með chili500 g rúsínur300 g 70% súkkulaði eða suðusúkkulaði1-2 fínsöxuð chili ½ tsk. chili-duft, eða meira eftir því hve djarft fólk er

Bræðið súkkulaðið og látið chili-duftið út í. Losið rúsínurnar vel í sundur og látið í stóra skál ásamt smátt söxuðum chili-piparnum. Passið að engin fræ fylgi. Hellið nú súkkulaðinu yfir og blandið vel með sleif. Látið drjúpa úr teskeið á pappírsklædda bökunarplötu og kælið. Einnig má setja allt úr skálinni á plötuna og dreifa vel og brjóta svo í bita eftir að súkkulaðið kólnar.

Súkkulaðibitakökur með salthnetum og Rice Crispies1 bolli sykur1½ bolli púðursykur250 g mjúkt smjör2 egg1 msk. vanilludropar½ tsk. salt2¼ bolli hveiti1 tsk. matarsódi300 g dökkt saxað súkkulaði1 bolli salthnetur1 bolli Rice Crispies

Hitið ofninn í 190°C. Hrærið egg og sykur saman með sleif, og svo smjör, vanilludropa og salt í stórri skál. Mælið hveitið, látið matarsódann út í, stráið þessu smátt og smátt út í skálina og hrærið. Bætið svo súkkulaðibitum, hnetum og Rice Crispies saman við.

Takið með teskeið og látið á plötu með bökunarpappír og bakið í 8-10 mínútur.

rúsínukonFekt Með CHili-PiParEkki reikna ég með að allir þessir eftirréttir verði á borð bornir sama kvöldið en

jólahátíðin er löng. Þeir koma sér vel í jólaboðum svo þið getið áreiðanlega fundið tilefni til að prófa þá alla. Með kaffinu og koníakinu eftir matinn er rúsínukonfekt með chili-pipar en það hefur þá tvo kosti að þeir fullorðnu fá að hafa það út af fyrir sig í friði fyrir börnum, og svo borðar maður sjálfur ekki yfir sig af því það er svolítið sterkt. Ómissandi eru svo súkkulaðibitakökur og þessar eru líka með salthnetum og Rice Crispies. Eins og ég tók fram fyrr þá er auðvelt að útbúa sumt áður en farið er í bústaðinn og taka með, eins og konfektið, smákökurnar og bakaða hrísgrjónabúðinginn eða púrtvínssveskjurnar.

Það þarf ekki flóknar græjur til að útbúa þessa rétti - eplabökuna gerði ég alveg í höndunum og það tókst vel. n

Verði ykkur að góðu og gleðileg jól. Steinunn B.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 69

Page 70: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Alhliða

Krókhálsi 10, 110 Reykjavík

Sími: 898 1931www.arinvorur.is

sótHreinsieFniFyrir skorsteina

og reykrör „Því umhverfið

skiptir máli„

grænMeti í áskriFt

[email protected]íMi 486 8966

laugarási 801 selFoss

Garðyrkja ehf - Innflutningur

Steinþór Einarsson skrúðgarðyrkjumeistari

Sími 564 1860 gsm 893 5470Fax 564 2860

Nátthagi Garðplöntustöðvið Hvammsveg í Ölfusi

801 SelfossiSími: 698-4840, 483-4840

Netfang: [email protected]: www.natthagi.is

Barrtré, lauftré, skrautrunnar, lyngrósir alparósir, berjarunnar, ávaxtatré, sígrænir dvergrunnar, þekjurunnar, klifurplöntur, villirósir, antikkrósir, limgerðisplöntur,

skógarplöntur og skjólbeltaplöntur.

Allt á gól ð á einum stað

Ástandsskoðun sumarhúsa

ráðgjöf, verðmat, kostnaðarmat vegna galla, tjóna ofl.

Páll TryggvasonBakkatjörn 4, 800 SelfossS: 866 0337, [email protected]

www.aburdur.is

Gott í garðinn

Arnar, Kamínur og fylgihlutirArinvörur Krókhálsi 10 110 Reykjavík 898 1931 www.arinvorur.is

Funi ehf Smiðjuvegi 74 200 Kópavogur 515 8700

ÁburðurÁburðarverksmiðjan hf Korngörðum 12 104 Reykjavík 580 3200 www.aburdur.is

BílaþjónustaBílaþjónusta Péturs Vallholti 17 800 Selfoss 482 2050 www.mmedia.is/billinn

BlómaverslanirGarðheimar Stekkjarbakka 6 109 Reykjavík 540 3300 www.gardheimar.is

BlöndunartækiTengi ehf Smiðjuvegur 76 200 Kópavogur 414 1000 www.tengi.is

ByggingavörurÁlfaborg ehf Skútuvogi 6 104 Reykjavík 568 6755 www.alfaborg.is

Verslunin Brynja Laugavegi 29 101 Reykjavík 552 4320 www.brynja.is

Þ. Þorgrímsson & co Ármúla 29 108 Reykjavík 553 8640 www.thco.is

Bækur og blöðVeiðiútgáfan ehf Sportveiðiblaðið Box 5305 461 1719

DráttarbeisliVíkurvagnar ehf Dvergshöfða 27 110 Reykjavík 577 1090 www.vikurvgnar.is

DælurLandvélar ehf Smiðjuvegi 66 200 Kópavogur 580 5800 [email protected] www.landvelar.is

EndurvinnslaEndurvinnslan hf Knarrarvogi 4 104 Reykjavík 588 8522 www.endurvinnslan.is

FánarÍslenska fánasaumastofan Suðurbraut 9 565 Hofsós 453 7366 / 893 0220 [email protected]

FlísarVídd ehf Bæjarlind 4 201 Kópavogur 554 6800 [email protected] www.vidd.is

FöndurvörurVerslunin Brynja Laugavegi 29 101 Reykjavík 552 4320 www.brynja.is

GarðaþjónustaLóðaþjónustan ehf Eirhöfði 12 / 110 Reykjavík Sími: 568-0250 / Fax: 568-0251 Netfang: [email protected] www.lod.is

GarðhúsgögnGluggar og garðhús ehf Smiðsbúð 10 210 Garðabæ 554 4300 www.laufskalar.is

GarðlýsingGosbrunnar ehf Verslun Langholtsvegi 109, 104 Reykjavík 517-4232 / 695-4220 www.gosbrunnar.is

GarðskálarGluggar og garðhús ehf Smiðsbúð 10 210 Garðabæ 554 4300 www.laufskalar.is

Glæsileg garðyrkjubókFæst í bókabúðum og í áskrift

Áskriftarsími 578 4800Merkurlaut 25 ehfHamrahlíð 31, 105

Reykjavík

GarðskrautSteinasteinn ehf Eyjaslóð 9 101 Reykjavík 551 5720 www.steinasteinn.is

Vörufell Suðurlandsvegi 850 Hella 487 5470 www.vorufell.is [email protected]

GarðyrkjustöðvarGarðplöntusalan Borg Þelamörk 54 810 Hveragerði 483 4438 [email protected] www.simnet.is/borghveragerdi

70 Sumarhúsið og garðurinn 2.2009

Þ J Ó N U S T U A U G L Ý S I N G A R

Page 71: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

GröfuþjónustaJarðvegsskipti

DrenlagnirVörubíll

Auðveldum vinnuna í garðinum

Gsm 892 8511

Gisting í sumarbústaðer þægilegur

ferðamáti.

Sími 615 4550www.bustadur.is

-Tjarnardúkar-Gosbrunnadælur & vörur-Lækjareiningar-Lýsing og garðskraut-Saltsteinar & gjafavörur

Langholtsvegi 109 - s:517-4232

Gæðamold í garðinn Íblönduð mold með húsdýra-áburði, skeljasandi og vikursandi eða grjóthreinsuð mold. Bjóðum einnig uppá heimkeyrslu. Mold í pokum 20 ltr.

Afgreiðslustaður í Gufunesi. Opið maí til og með júlí virka daga frá kl. 8.00 - 19.00 og laugardaga 9.00 - 16.00.

Sími: 892-1479

Hrein FjárfestingDalbraut 3, 104 ReykjavíkSími 567 7773www.markisur.comnetfang: [email protected]

567 7773 og 893 6337 kvöld og helgar

VILTU SKJÓL Á VERÖNDINA?WWW.MARKISUR.COM

Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma 567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar

Garðplöntusalan Hvammur 2 845 Flúðir 486 6640, 895 6014, 864 2154 [email protected]

Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur Heiðmörk 38, 810 Hveragerði 483 4800 www.ingibjorg.is

Garðyrkjustöðin Gróandi Grásteini, Mosfellsdal 270 Mosfellsbæ 566 7339, 895 7339

Gróðrarstöðin Gleym-mér-ei Sólbakka 18-22 v/iðnaðarhverfið í Borgarnesi 310 Borgarnes 894 1809

Gróðrarstöðin Glitbrá Stafnesvegi 22 245 Sandgerði 868 1879

Gróðrarstöðin Kjarr Kjarri, Ölfusi 801 Selfoss 482 1718, 846 9776 [email protected]

Gróðrarstöðin Mörk Stjörnugróf 18 108 Reykjavík 581 4550 www.mork.is

Gróðrarstöðin Þorgautsstöðum II Hvítársíðu, 320 Reykholt 435 1372 / 895 1372 [email protected]

Ræktunarstöðin Lágafelli Snæfellsnesi 892 5667 [email protected]

GasvörurSkorri hf Bíldshöfða 12 112 Reykjavík 577 1515 www.skorri.is

GámarBOS á Íslandi Stórhöfða 35 110 Reykjavík 557 2470 www.bos.is

GlerGlertækni ehf Völuteigur 21 270 Mosfellsbær 566 8888

Gluggar og hurðirGluggar og garðhús ehf Smiðsbúð 10 210 Garðabæ 554 4300 www.laufskalar.is

GK gluggar Völuteigur 21, 270 Mosfellsbæ 566 6787 [email protected] www.gkgluggar.is

GosbrunnavörurGosbrunnar ehf Verslun Langholtsvegi 109, 104 Reykjavík S:517-4232 / 695-4220 www.gosbrunnar.is

Gólfefni, parketÁlfaborg Skútuvogi 6 568 6755

Steinasteinn ehf Eyjaslóð 9 101 Reykjavík 551 5720 [email protected] www.steinasteinn.is

GólfhitakerfiHringás ehf Skemmuvegi 10 (blá gata) 200 Kópavogur 567 1345 [email protected] www.hringas.is

GröfuþjónustaGröfuleiga Hlöðvers Sími 892 8511

HeimilistækiÁrvirkinn ehf Eyrarvegi 32 800 Selfoss 480 1160 www.arvirkinn.is

Johan Rönning hf Sundaborg 15 104 Reykjavík 520 0800 [email protected] www.ronning.is

Th. Daníelsson TIVOLI-útvörp Ármúla 38 108 Reykjavík 893 6515 [email protected]

Heitir pottarTengi ehf Smiðjuvegi 11a 200 Kópavogur 564 1088 www.tengi.is

HellurSteinasteinn ehf Eyjaslóð 9 101 Reykjavík 551 5720 [email protected] www.steinasteinn.is

Steindir Hellusteypa Vagnhöfða 17 587 2222 www.hellusteypa.is

HitalagnirHringás ehf Skemmuvegi 10 (blá gata) 200 Kópavogur 567 1345 [email protected] www.hringas.is

Ísrör ehf Hringhellu 12 221 Hafnarfjörður 565 1489

Lagnaþjónustan ehf Gagnheiði 53 800 Selfoss 482 2311 / 696 2311 [email protected]

HreinlætistækiÁlfaborg ehf Skútuvogi 6 104 Reykjavík 568 6755

Tengi ehf Smiðjuvegur 76 200 Kópavogur 414 1000 www.tengi.is

HreinsivörurBesta Reykjavík - sími 510 0000 Reykjanesbæ - sími 420 0000 Egilsstöðum - sími 470 0000

Örhreinsir Framtak blossi Vesturhrauni 1 210 Garðabær 555 5850

HúsgögnGluggar og garðhús ehf Smiðsbúð 10 210 Garðabæ 554 4300 www.laufskalar.is

Heimilisprýði Hallarmúla 108 Reykjavík 553 8177

Húsgagnaverslunin Toscana Smiðjuvegi 2 200 Kópavogi 587 6090

InternetþjónustaHringiðan Tæknigarði, Dunhaga 5 107 Reykjavík 525 2400 www.vortex.is

KerrurVíkurvagnar ehf Dvergshöfða 27 110 Reykjavík 577 1090 www.vikurvgnar.is

Kjörbúðir, verslanirVerslunin Borg Grímsnesi, 801 Selfoss 486 4408 Sumaropn. 15/6–15/8, 10-22 Vetraropn. 10-18 og 11-18 sun

KurlSkógrækt ríkisins 480 1821

Þ J Ó N U S T U A U G L Ý S I N G A R

Sumarhúsið og garðurinn 2.2009 71

Page 72: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

LagnaefniHringás ehf Skemmuvegi 10 (blá gata) 200 Kópavogur 567 1345 [email protected] www.hringas.is

Ísrör ehf Hringhellu 12 221 Hafnarfjörður 565 1489

Leiktæki í garðaJóhann Helgi og co ehf Póstbox 166 220 Hafnarfirði 565 1048 www.johannhelgi.is

Ljós inniÁrvirkinn Austurvegi 9 800 Selfoss 480 1160, neyðarsími 660 1160 [email protected] www.arvirkinn.is

Ljósin í bænum Suðurveri Stigahlíð 45-47 105 Reykjavík 553 7637

LóðaþjónustaLóðaþjónustan ehf Eirhöfði 12 / 110 Reykjavík Sími: 568-0250 / Fax: 568-0251 Netfang: [email protected] www.lod.is

MarkísurHrein Fjárfesting Dalbraut 3, 104 Reykjavík Sími 567 7773 www.markisur.com [email protected]

MeindýravarnirMeindýravarnir Suðurlands Gagnheiði 59 800 Selfoss S: 482-3337 www.meindyravarnir.is

Öryggismiðstöð Vesturlands Skólabraut 2 300 Akranes 431 5100, 864 5510 [email protected] www.omv.is

NeysluvatnshitararRafhitun ehf Kaplahrauni 7a 220 Hafnarfjörður 565 3265 [email protected]

RaftækiÁrvirkinn Austurvegi 9 800 Selfoss 480 1160, neyðarsími 660 1160 [email protected] www.arvirkinn.is

Johan Rönning hf Sundaborg 15 104 Reykjavík 520 0800 [email protected] www.ronning.is

RafverktakarÁrvirkinn Austurvegi 9 800 Selfoss 480 1160, neyðarsími 660 1160 [email protected] www.arvirkinn.is

Rafsól Skipholti 33 105 Reykjavík 553 5600

Rafstöðin ehf. rafverktakar Jörundarholti 36 300 Akranesi 431 1201 [email protected]

RotþrærÖrhreinsir, hreinsiefni Framtak blossi Vesturhrauni 1 210 Garðabær 555 5850

SkrúðgarðyrkjaBorgarprýði Sefgörðum 1-3 300 Akranesi 431 5055, 893 8200 [email protected]

Garðmenn ehf 695 1934, 893 5788 [email protected] www.gardamenn.is

Lóðaþjónustan ehf Eirhöfði 12 / 110 Reykjavík Sími: 568-0250 / Fax: 568-0251 Netfang: [email protected] www.lod.is

Stokkar og steinar Guðjón Kristinsson Árbær, Ölfusi 801 Selfoss 482 1087, 894 2934 [email protected]

SólarrafhlöðurSkorri Bíldshöfða 12 110 Reykjavík 577 1515 www.skorri.is

Stigar og handriðStigalagerinn ehf Dalbrekku 26 200 Kópavogi 564 1890 www.stigalagerinn.is [email protected]

Stýribúnaður fyrir hitaveiturTengi ehf Smiðjuvegi 76 200 Kópavogur 414 1000 www.tengi.is

SumarhúsBiskverk ehf Reykholti, Biskupstungum 801 Selfoss 893 5391

Borgarhús ehf Minni-Borg, Grímsnesi 801 Selfoss 468 4411 www.borgarhus.is

G. Pálsson ehf 462 2272 og 896 0423 [email protected]

72 Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009

BjálkahúsHús og heimiliKrókhálsi 5a, 110 Reykjavík,Sími 511 1818,www.bjalkahus.iswww.husogheimili.is

Smágröfuleiga

Vélaleiga

S e n d u m o g s æ k j u m

U p p l ý s i n g a r v e i t i rK r i s t j á n K r i s t j á n s s o n

S í m i 4 8 6 4 5 4 6G S M 6 9 5 1 4 4 6k k k @ e m a x . i s

Útileiktæki, rólur, vegasölt, leikkastalar ofl.Járnrimlagirðingar, hjólabrettapallar

Gúmmíhellur og gúmmímotturMörk, körfur og útiþrektæki

Bekkir, skýli, ljósastaurar, blómaker ofl.Leikföng, húsgögn og búnaður

fyrir leikskóla.

Bjóðum heildarlausnir á leiksvæðum, uppsetning, viðhald og þjónusta.

Leitið tilboða

Jóhann Helgi & Co ehf . “Stofnað 1990”Sími 565-1048 – 820-8096

[email protected], www.johannhelgi.is

TVÖFALDURvöxtur trjáplantnaMEÐ HLÚPLASTI

Sími: 580 5600 • www.plastprent.is

Lóðaþjónustan ehfEirhöfði 12 / 110 Reykjavík

Sími: 568-0250 / Fax: 568-0251Netfang: [email protected]

www.lod.is

Músavarnir í bústaðinn eigum við

Vanti þig ráð kemur þú til okkar og talar við kallinn.

Opið mán. – fim. 9.00 – 13.00Fös. 9.00 – 18.00

og Lau. 11.00 – 14.00

Meindýravarnir SuðurlandsGagnheiði 59, 800 SelfossS: 482-3337 og 893-9121

http://www.meindyravarnir.is/

Þ J Ó N U S T U A U G L Ý S I N G A R

Page 73: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Sólarrafhlöður og fylgihlutir.

10-80w

Bíldshöfða 12 – 110 ReykjavíkSími 577 1515 – www.skorri.is

Sumarbústaðavörur

TúnþökusalaOddsteins

Túnþökur og túnþökurúllur

til sölu í garðinn eða

sumarbústaðinn!

steini, s: 663 6666Visa/euro

Skilti fyrir sumarhús

Hörður SkarphéðinssonSími 565 8321

Handskorin skilti í mörgum stærðum

Hafið samband og leitið tilboða.

Vallholt 17, 800 Selfoss. S:482-2050

Velkomin í Garðyrkjufélag Íslands!

Skoðaðu kosti þessað vera félagi Öflug heimasíða www.gardurinn.is

Frakkastíg 9 - 101 Reykjavík - Sími 552 7721 og 896 9922 - [email protected]

Hús og heimili Krókhálsi 5a 110 Reykjavík 511 1818 www.bjalkahus.is www.husogheimili.is

Pálmi Ingólfsson Hálsum, Skorradal 311 Borgarnes 437 0134 / 896 5948

SumarhúsalóðirPálmi Ingólfsson Hálsum, Skorradal 311 Borgarnes 437 0134 / 896 5948

TjarnardúkurGosbrunnar ehf Verslun Langholtsvegi 109, 104 Reykjavík 517-4232 / 695-4220 www.gosbrunnar.is

TrésmíðiBisk-verk ehf Reykholti, Biskupstungum 486 8782, 893 5391 [email protected]

Pálmi Ingólfsson Hálsum, Skorradal 311 Borgarnes 437 0134 / 896 5948

TúnþökurGunnarshólmi Grasvinafélag Gunnarshólma 203 Kópavogur 896 0700

Túnþökusala Oddsteins Túnþökur og túnþökurúllur til sölu í garðinn eða sumarbústaðinn. Steini s: 663 6666 eða 663 7666

Umhverfisvæn hreinsiefniÖrhreinsir Framtak blossi Vesturhrauni 1 210 Garðabær 555 5850

ÚtiljósÁrvirkinn Austurvegi 9 800 Selfoss 480 1160, neyðarsími 660 1160 [email protected] www.arvirkinn.is

Stansverk ehf Hamarshöfða 7 112 Reykjavík 567 4015 www.stansverk.is

VarmadælurRafstjórn ehf Stangarhyl 1a 110 Reykjavík 587 8890

VeðurstöðvarEico Skútuvogi 6 104 Reykjavík 570 4700 www.eico.is

VerkfæriVerslunin Brynja Laugavegi 29 101 Reykjavík 552 4320 www.brynja.is

VerktakarBisk-verk ehf Reykholti Biskupstungum 486 8782, 893 5391 [email protected]

Lóðaþjónustan ehf Eirhöfði 12 / 110 Reykjavík Sími: 568-0250 / Fax: 568-0251 Netfang: [email protected] www.lod.is

Pálmi Ingólfsson, trésmiður Hálsum, Skorradal 311 Borgarnes 437 0134 / 896 5948

Trégaur ehf Viðhald sumarhúsa og almenn trésmíðavinna 898 6248 [email protected]

Viðhald og smíði Bröttukinn 9 220 Hafnarfjörður 899 1877

Vélaleiga og gröfu-þjónustaKristján Kristjánsson 486 4546 695 1446

VídeóleigurGrensássvídeó Grensássvegi 24 108 Reykjavík 568 6635

ÞakrennurÁlfaborg Skútuvogi 6 568 6755

Öryggisvörur og -vöktunÁrvirkinn Austurvegi 9 800 Selfoss 480 1160, neyðarsími 660 1160 [email protected] www.arvirkinn.is

Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 73

Þ J Ó N U S T U A U G L Ý S I N G A R

Page 74: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

lausnuM skal skila Fyrir 10. FeBrúar 2010:Sumarhúsið og garðurinn – krossgáta –Hamrahlíð 31,105 Reykjavík

Verðlaunahafi í siðustu krossgátu: Sigrún SveinbjörnsdóttirKirkjubraut 8, 780 Höfn

Hlýtur hún bókina Íslensk þjóðfræðiÚtgefandi Skrudda.

Í verðlaun að þessu sinni er bókin Á fjöllumÚtgefandi: Skrudda

Verðlaunakrossgáta

74 Sumarhúsið og garðurinn 3. 2009.

Page 75: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Sumarhúsið og garðurinn 1. 2009 75

Page 76: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Konungur hálendisins – himbriminn

Angurvært vein berst til eyrna í kvöldkyrrðinni. Við erum stödd í Veiðivötnum, einum sérstæðasta stað á jörðinni, en gígvötnin

þar eiga varla sinn líka. Hljóðið minnir á bakgrunnshljóð í amerískri bíómynd sem gerist í barrskógabeltinu. Hvaða skrýtna vein er þetta? jú, það er konungur hálendisins, himbriminn, að tilkynna eignarrétt sinn á einu vatnanna.

Tex t i og myndi r : Jóhann Ól i H i lmarsson

76 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 77: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Himbrimi er stór, glæsilegur og sérkennilegur fugl. Hann telst til svokallaðra brúsa, ættbálks sem telur aðeins fimm fuglategundir. Auk himbrimans er lóminn að finna hérlendis. Eitt af því sem er sérkennilegt við himbrimann er hvernig hann dreifir sér um heiminn. Hann er Norður-Amerískur og verpur í Kanada, Alaska, norðurríkjum Bandaríkjanna, á vestanverðu Grænlandi og eitthvað á austurströndinni. Ísland er eini varpstaður hans í Evrópu. Á veturna dvelur hann með ströndum N.-Ameríku suður til Mexíkó og einnig finnst hann við strendur V.-Evrópu. Hér er hann bæði farfugl og staðfugl, hluti stofnsins er hér á sjó allan veturinn.

Himbrimi, ásamt straumönd og húsönd, er Ameríkani sem sest hefur að hér á landi. Að öðru leyti er íslenska fuglafánan upprunnin í Evrópu. Þessir fuglar eru afar vinsælir hjá evrópskum fuglaskoðurum og óvíða jafngott að komast í tæri við þá. Sérstaklega á þetta við um straumöndina, sem finnst annars á fremur óaðgengilegum stöðum í fjalllendi N.-Ameríku.

Hér á landi verpur himbrimi við vötn og stærri tjarnir frá sjávarmáli og upp í 600 m hæð. Hann er algengastur á vatnaklösum eins og Veiðivötnum, Arnarvatnsheiði og á Skaga. Himbrimar þola ekki mikla nánd á varpstöðvum og er því oftast aðeins eitt par á hverju vatni. Undantekningar eru stærri vötn. Fimm hjón verpa við norðanvert

Þingvallavatn og fuglar af smærri vötnum í nágrenninu sækja á vatnið eftir æti. Nokkur hjón verpa í Mývatnssveit, flest á minni vötnum og tjörnum í nágrenni Mývatns, en sækja síðan á vatnið eftir æti. Á Veiðivötnum eru ein hjón við hvert vatn, nema stundum tvenn við þau stærstu. Fuglar sækjast talsvert í fisk á þau vötn

Himbrimi á hreiðri í rigningu Himbrimi með unga á bakinu.

Himbrimi er þungur til flugs og þarf langa „flugbraut„ til að ná sér til flugs á vatni.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 77

Page 78: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

þar sem himbrimar hafa ekki orpið eða varp hefur misfarist, þaðan eru þeir ekki hraktir í burtu. Þrenn hjón verpa á vatnasvæði Elliðavatns svo að ekki þurfa íbúar Innnesja að sækja langt yfir skammt til að skoða þennan glæsilega fugl. Einnig verpa himbrimar stöku sinnum í Mosfellssveit.

Himbrimar koma á varpstöðvarnar um mánaðamótin apríl–maí eða þegar ísa tekur að leysa. Þá upphefja þeir raust sína og tilkynna um eignarrétt sinn á óðali. Fuglarnir verja óðalið af

miklum krafti, þeir gera leifturárásir úr kafi á óboðna gesti, bæði tegundasystkin, aðra fugla eða jafnvel menn, þyki þeim stafa ógn af þeim. Beittur goggurinn er hættulegt vopn.

Á varpstöðvunum eru fuglarnir venjulega í pörum, en stundum sjást litlir geldfuglahópar þar einnig. Annars dvelja geldfuglar mest á sjó. Lítið er vitað um hópamyndun utan varptíma, en allstór hópur, allt að 200 fuglar, hefur sést á Þingvallavatni á haustin.

Himbriminn flýgur með kraftmiklum vængjatökum. Á flugi er hálsinn niðursveigður og fæturnir skaga aftur fyrir stélið. Hann er fimur sundfugl, mikill kafari og fremur djúpsyndur, þungur til flugs og lendir á maganum en ber ekki fæturna fyrir sig eins og flestir fuglar.

Brúsar geta ekki gengið og koma ekki á land nema til að verpa og skríða þá á maganum til og frá hreiðrinu. Hreiðrið er stórt en grunn laut á vatnsbakka eða í litlum hólma og myndast vel troðin slóð milli hreiðurs og vatns. Þegar ungarnir klekjast yfirgefa þeir strax hreiðrið og fæða foreldrarnir þá þangað til þeir fara að veiða sjálfir. Fyrstu vikurnar skríða þeir oft upp á bakið á foreldrunum og kúra milli vængja þeirra.

Það er óviðjafnanleg upplifun að fylgjast með lífi og starfi himbrima á varpstöðvunum, erjum milli nágranna eða aðkomufugla, ungauppeldinu og að hlusta á hinn mikilfenglega „aftansöng„ þessa konungs íslenskra fjallavatna. n

Himbrimahreiður á vatnsbakka.

Himbrimahjón með hálfvaxna unga. Þeir verpa ávalt tveimur eggjum.

78 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 79: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Mikið úrval af lömpum, lugtum og öðrum gjafavörum, sjón er sögu ríkari.

Gott verð. Götukort, ljósmyndasýnishorn og verðdæmi á heimasíðu.

Öll hárþjónusta notalegt andrúmsloft – gott verð

Næg bílastæði – verið velkomin – Lára og Eva

,,Litla leyndarmálið í Starmýri”Full búð af fallegum vörum fyrir heimilið og sumarhúsið

EVÍTA – hárgreiðsla og gjafavörur - Starmýri 2 – 108 Reykjavík – S: 553 1900 – www.evita.is

Páll

Jöku

ll ©

200

9

Himbrimi magalendir með miklum gusugangi. Hann þarf líka langa lendingarbraut.

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 79

Page 80: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Grýla er ævagömul kerling og nefnd meðal tröllkvenna í snorra eddu en hún er ekki bendluð við

jólin fyrr en í kvæði frá 17. öld. kerlingunni er lýst sem fullkominni andstæðu kvenlegrar fegurðar.

Grýla er með klær og hófa, kjaftstór, með vígtennur, horn og augu í hnakkanum og í þeim logar eldur, eyrun ná langt út á axlir, nefið er stórt og hlykkjótt og úr vitum hennar kemur helblá gufa. Sögur um Grýlu eru fremur fáar en því meira fer fyrir henni í kvæðum og þulum.

Grýla reið fyrir ofan garðhafði hala fimmtán,en á hverjum halahundrað belgi,en í hverjum belgbörn tuttugu.Þar vantar í eitt,og þar skal fara í barnið leitt.

Kerlingin á sér hliðstæðu í Færeyjum, á Shetlands-eyjum og víðar. Í Færeyjum er Grýlu lýst sem gamalli og ljótri kerlingu sem líkist gamalli rollu sem gengur upprétt á tveimur fótum. Á Shetlands-eyjum þekkist tröllkerling sem kallast Skekla og er hún á ýmsan hátt lík Grýlu í háttum. Skekla kemur ríðandi til byggða á svörtum hesti með hvíta stjörnu í enni, hesturinn er með fimmtán tögl og á hverju tagli eru fimmtán börn.

grýluBörnKerlingarskarið hefur búið með

þremur tröllkörlum í gegnum tíðina og heitir núverandi bóndi hennar Leppalúði. Hinir tveir hétu Boli og Gustur og átti hún tæplega 80 börn með þeim; þekktust þeirra eru jólasveinarnir. Leppalúði átti einn son, Skrögg, áður en hann hóf sambúð með Grýlu og tók hún Skrögg í fóstur.

Jólasveinar ganga um gáttmeð gildan lurk í hendi.Móðir þeirra hrín við háttog hýðir þá með vendi.

Í gömlum kvæðum er Grýlu lýst sem beiningakerlingu sem fer á milli bæja og biður foreldrana að gefa sér óþekku börnin en hörfar ef henni er rétt eitthvað matarkyns eða er rekin burt með látum. Í Grýlukvæði séra Jóns Guðmundssonar (1815--1856) segir:

Farðu til hunda,herjans kerling,ekki er ég skyldurað skaffa þér vistir;mér er fullstéttaðmeð hana Gunnu,þótt ekki aukist þarofan á meira.

Grýla er mannæta eins og önnur tröll og óþekk börn eru eftirlætismatur hennar en hún er lítið gefin fyrir fisk, súpur og grauta. Mestur tími Grýlu fer í að afla matar handa sér og fjölskyldu sinni. Kerlingin hefur lengi verið notuð sem barnafæla og flestir hafa einhvern tíma verið hræddir með Grýlu gömlu.

einMana kerlingÍ seinni tíma frásögnum er Grýla

búin að taka upp fasta búsetu og býr í helli, fjarri mannabyggðum. Þegar hér er komið sögu fer allur tími hennar í að sjóða mat í stórum potti, stjana við Leppalúða og gefa krakkaófétunum að éta. Grýla er hætt að fylgjast með tíðarandanum og verður sífellt forneskjulegri, hún er einmanaleg gömul kerling sem hefur gleymst í öllum látunum í kringum jólin.

Í Kóngulóarkvæði talar Leppalúði til dóttur sinnar þegar Grýla er komin í kör og hætt að afla fanga. Leppalúði segir Kónguló að nú verði hún að taka við og annast háaldraða foreldrana:

Kæra dóttir Kóngulókarlinn þá svo orti,meðan hún Grýla móðir þín bjó,mat oss aldrei skorti.

Vön var sú að veiða börn,verka síðan og sjóða.Hún kramdi þau sem kankvís örner krakkarnir voru að hljóða.

Ellimóð er orðin sú,en ég farinn af lúa,víst er það að verður þúvegna okkar að búa.

Ertu bæði ung og hraustokkur að veita fóður,á þig set ég allt mitt traust,að annast föður og móður.

er grýla yFirValdið?Hugmyndin um Grýlu hefur

breyst mikið í tímans rás þótt meginhlutverk hennar hafi alla tíð verið að temja börn. Árni Björnsson segir með nokkrum fyrirvara í bók sinni, Sögu daganna, að Grýla endurspegli grimmd yfirvalda gagnvart alþýðunni og að hún hafi farið að mildast eftir að einveldi var afnumið.

Því hefur einnig verið haldið fram að Grýla og hyski hennar séu tákngervingar náttúruafla, skammdegismyrkurs eða flökkulýðs sem fór um landið. Grýla er með úlfgrátt hár og svartar brúnir, með tennur eins og ofnbrunnið grjót, augu sem loga eins og eldur og granir þar sem út stendur helblá gufa, líkari virkri eldstöð en konu. Hún var ekki talin mennsk og hyski hennar rennur saman við kletta og landslag og sést ekki nema við sérstakar aðstæður.

grýla í uPPeldisFræðiGrýla hefur mildast mikið á

síðastliðnum áratugum og útlit hennar skánað. Hún er að vísu enn stórvaxin og tröllsleg en það er eitthvað góðlegt og umkomulaust við hana. Í Grýlukvæði Þórarins Eldjárns frá 1992 eru Grýla og

Leppalúði hætt að eltast við börn, búin að klára öldungadeildina og eru við nám í uppeldis- og kennslufræði.

Er börnin uxu upp og burtellimóð þá sátu kjurtveslings Grýla og Leppalúði.Á lífið hvorugt þeirra trúði.

Uns Grýla mælti mædd og rám:- Það mætti reyna að hefja nám.Og uppi í Hamrahlíðarskólaháöldruð þau vermdu stóla.

Í Háskólann þau héldu inner höfðu klárað öldunginn.Innrituð þau eru bæðií uppeldis- og kennslufræði.

síðasta trölliðTröllin eru þær verur sem minnst

fer fyrir í þjóðsögum síðustu alda og flest hefur dagað uppi fyrir löngu. Þrátt fyrir það er langt frá því að Grýla sé dauð úr öllum æðum og virðist reyndar vera við hestaheilsu og farin að sinna mannúðarmálum því fyrir stuttu birtist mynd af henni í fjölmiðlum þar sem hún var að gefa blóð. Grýla er síðasta tröllið og jafnframt samnefnari fyrir þessar fornu vættir. Ef hugmyndin um að Grýla sé táknmynd yfirvaldsins á við rök að styðjast er greinilegt góðæri í landinu og gaman verður að fylgjast með breytingum á henni á komandi árum, eða eins og Eggert Ólafsson segir í Grýlukvæði sínu:

Afturgengin Grýlagægist yfir mar.Ekki verður hún börnunumbetri en hún var. n

Heimildir:Árni Björnsson, Saga daganna.Gunnel, Terry, The Origins of Drama in Scandinavia.www.jol.ismennt.is.

Grýlu þykir barnakjöt besti maturTex ti : V i lmundur Hansen M ynd: Pá l l Jökul l

80 sumarhúsið og garðurinn 3. 200980 Sumarhúsið og garðurinn 1. 2009

Page 81: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Raflagnir Loftnetsþjónusta

Rafeindaviðgerðir Viðgerðarþjónusta

Verslun Öryggiskerfi

Jólaskógurinn í Hjalladal Heiðmörk

opnar laugardag 12. desember – opinn tvær helgar fram að jólum kl. 11-16

Komið og höggvið eigið jólatré.Í boði eru úrvals íslensk jólatré.

Sama verðið og í fyrra, 4.900 kr – óháð stærð,félagsmenn fá 500 kr. afslátt.

Heitt kakó og piparkökur handa öllum!

Jólamarkaðurinn á Elliðavatni

opnar laugardag 28. nóvember – opið allar helgar fram að jólum kl. 11-17Íslensk jólatré, handverk, hönnun, og nytjalist.

Fallegar jólaskreytingar úr skógarefni.Jólasveinar heilsa upp á gesti,

rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum.Barnastund í Rjóðrinu, harmonikkuleikur

og trúbadorar.

Kort og upplýsingar á heidmork.is

Skógræktarfélag Reykjavíkur

Page 82: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

Frá vinstri kristþyrnir, einir, garðaýr, himalajaeinir og bergfura. Fyrir ofan er silfurkambur og hreindýramosi.

Hér má sjá lítil græn epli, gráelri rekla, sitkagreni köngla, snjóber og fræhýði af draumsól.

Hér hefur verið notast við efnivið úr garðinum fyrir utan kertið og jólakúlur.

Það styttist óðum í jólin og margir eru farnir að huga að jólaskreyt-ingum ýmiss konar og þá getur verið sniðugt að líta út í garð eftir efnivið.

Ég kíkti út í garð um daginn til þess að viða að mér efni til skreytinga. Það verður að viðurkennast að kunnáttan var og er engin í slíku en töluvert af góðu skreytingarefni fannst þó í garðinum. Ýmiss konar sígrænan trjágróður er hægt að nota í jólaskreytingar eins og garðaýr (Taxus x media), kristþyrni (Ilex x meserve) og bergfléttu (Hedera helix). Margar tegundir af eini er líka gott að nota, t.d. íslenska eininn (Juniperus communis) og himalajaeini (J. squamata. ´Meyeri´) en sabínueinir (J. sabina) og kínaeinir (J. chinensis) koma líka til greina. Sýprusar (Chamaesyparis lawsoniana) og lífviður (Thuja occidentalis) eru líka flott skreytingarefni ásamt furum (Pinus sp.) og greni (Picea sp.). Þinur er mjög vinsæll í jólaskraut og sem jólatré og eru fjallaþinur (Abies lasiocarpa) og Síberíuþinur (A. sibirica) töluvert ræktaðir hér. Þeir eru ekkert síðri en innfluttu tegundirnar og eru mjög góð jólatré.

Það eru ekki bara trjágreinar sem hægt er að nota úr garðinum í skreytingar heldur er líka hægt að nota köngla af sitkagreni (Picea sitchensis) og stafafuru (Pinus contorta). Könglar rauðgrenis (P. abies) eru líka mjög fallegir ásamt reklum sitkaelris (Alnus sinuata) og gráelris (A. incana). Smá epli, græn eða rauð, er líka gaman að nota og búa sumir svo vel að hafa slík tré í garði sínum. Þurrkuð aldinhýði af draumsól (Papaver somniferum) eru líka mjög falleg efni í skreytingar og eins af Tyrkjasól (Papaver oriantale). n

Skreytingarefni úr garðinumTex ti : Jón Guðmundsson. M yndi r : Jón Guðmundsson og Pá l l Jökul l Pétursson

Norðmannsþinur er mjög gott jólatré.

82 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009

Page 83: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

sumarhúsið og garðurinn 3. 2009 83

Page 84: Sumarhusid og gardurinn 3.2009

84 sumarhúsið og garðurinn 3. 2009