1 Ferðaskrifstofan Íslandsvinir – Sumarferðir 2013 Norður Spánn Spennandi gongu- og menningarferð Fararstjóri: Hildur Sif Hreinsdóttir Dagsetning: 26. mars - 1. apríl 2013 Spánn í huga margra er sól, sjór, ein stór strönd og afslöppun. En Spánn hefur mjög fjölbreytt landslag og menningu og það er mikill munur á þessu tvennu á milli landshluta. Norðurhluti Spánar er kallaður græni Spánn (España verde) enda eru það iðagrænar fjallshlíðar, hæðir og hólar sem einkennir þennan landshluta. Landslagið er mjög ólíkt því sem íslendingar þekkja frá Spáni. Hér eru ekki langar gular strendur, heldur fallegar víkur og klettóttir vogar. Útsýnið er stórbrotið, fjöllin tignarleg og eitthvað óvænt ber fyrir augu á hverjum degi. Hellar, skógar, ár og lækir, friðsæl lítil þorp og vinalegt fólk. Þetta er ferð fyrir alla, óháð gönguformi. Það verða nokkrar gönguferðir, þó ekki erfiðar en fólk þarf að geta gengið í 1-3 tíma um mishæðótt landslag. Gönguferðirnar eru á sumum stöðum nauðsynlegar til að komast að fallegum stöðum. Einnig munum við skoða hinn fræga helli Altamira, þorpið Guernica – sem þýskar Luftwaffe orustuvélar lögðu í rúst í Spænska borgarastríðinu, við munum prófa týpískan mat og drykk frá svæðinu, fara um þjóðgarða, fiskiþorp, skoða fallegar kirkjur, miðaldabæ og hinn stórbrotna fjallgarð Picos de Europa. Það verður eitthvað óvænt og skemmtilegt að sjá á hverjum degi. Lágmarks fjöldi 12 manns. Við munum ferðast um í þægilegri rútu á milli staða og gista á 3* hótelum. Innifalið í þessari ferð er fræðslukvöld þar sem farið verður yfir sögu og menningu svæðisins. Með þessa fræðslu í farteskinu verður upplifunin af svæðinu svo miklu betri.
4
Embed
Spennandi go ngu og menningarferð · Norður Spánn Spennandi go ngu- og menningarferð Fararstjóri: Hildur Sif Hreinsdóttir Dagsetning: 26. mars - 1. apríl 2013 Spánn í huga
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.