Page 1
Hugvísindasvið
„Lýðræðið eitt er vettvangurinn til að berjast á“
Samanburður á umbótahugmyndum Vilmundar Gylfasonar og
tillögum um samfélagsbreytingar eftir efnahagshrunið
Ritgerð til BA-prófs í sagnfræði
Markús Þ. Þórhallsson Maí 2014
Háskóli Íslands
Hugvísindasvið - sagnfræði
Page 3
2
„LÝÐRÆÐIÐ EITT ER VETTVANGURINN TIL AÐ BERJAST Á“
Samanburður á umbótahugmyndum Vilmundar Gylfasonar og tillögum um
samfélagsbreytingar eftir efnahagshrunið
Ritgerð til BA-prófs í sagnfræði
Markús Þ. Þórhallsson
Kt.: 171164-5759
Leiðbeinandi: Valur Ingimundarson
Maí 2014
Page 4
3
ÁGRIP
Skömmu eftir fall bankakerfisins árið 2008 heyrðist Vilmundar Gylfasonar getið á ný,
en hann hafði farið mikinn á stjórnmálasviðinu fyrir um 30 árum. Sumar þeirra
umbótatillagna sem þá komu fram virtust endurspegla hugmyndir hans. Hér verður
gerður samanburður á þeim breytingum sem Vilmundur boðaði og því sem krafist var
eftir efnahagshrunið með sérstakri áherslu á tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá.
Vilmundur vildi að stjórnarskránni yrði beitt til breytinga á innviðum samfélagsins og
kom fram með ýmsar tillögur til þess. Kannað er hvert Vilmundur sótti hugmyndir sínar
og hvaða samspil er milli þeirra og nálgunar stjórnlagaráðsliða að verki sínu. Horft er
til þróunar stjórnarskrárinnar og hvaða breytingar hafa verið gerðar á henni á
lýðveldistímanum. Fjallað er um ráðgefandi stjórnlagaráð og hvaða hlutverk því var
ætlað. Sjónum er beint að gagnrýni Vilmundar á ægivald stjórnmálaflokka og kröfu
hans um skýra aðgreiningu ríkisvaldsins og skipan hinna þriggja þátta þess – löggjafar-,
dóms- og framkvæmdarvalds – sem tengist m.a. hugmyndum um beint kjör
forsætisráðherra og skipan embættismanna. Jafnframt er skoðað hvernig Vilmundur og
stjórnlagaráð fjölluðu um málskotsrétt og þjóðaratkvæðagreiðslur. Hugað er að
mannréttindaákvæðum stjórnarskrár og ekki síst kjördæmaskipan og kröfunni um jafnt
vægi atkvæða. Afstaða Vilmundar og stjórnlagaráðs til fjölmiðla er einnig borin saman.
Eins og Vilmundi var stjórnlagaráði umhugað um mikil ítök stjórnmálaflokka og hafði
áhyggjur af spillingu og ónógri valddreifingu. Vinna stjórnlagaráðs hófst þegar
samfélagið var í upplausn og spjótin beindust að stjórnmálamönnum, regluverki og
eftirlitsstofnunum. Greina má sama baráttuanda og einkenndi Vilmund, jafnrétti og
frelsi og endurskipulagning voru mikilvægir þættir í endurreisninni. Margar hugmynda
hans voru reifaðar og ræddar innan ráðsins. Þar má einkum nefna beint kjör
forsætisráðherra og skipan kosninga til Alþingis, kjördæmamál og jafnt vægi atkvæða.
En þótt víða megi sjá hliðstæður var hér aðallega um óbein áhrif að ræða sem
endurspegluðu hugarfar og grundvallarhugmyndafræði Vilmundar; stjórnlagaráðið leit
síður til þeirra aðferða hans sem hann beitti sér fyrir til að endurskipuleggja samfélagið.
Page 5
4
EFNISYFIRLIT
ÁGRIP.................................................................................................................................................... 3
EFNISYFIRLIT ......................................................................................................................................... 4
INNGANGUR ......................................................................................................................................... 5
VILMUNDUR GYLFASON: „VILLIMAÐUR Í PÓLÍTÍK“ ............................................................................. 9
PÓLITÍSKAR TILRAUNIR UM STJÓRNARSKRÁNA .................................................................................... 14
ÁHRIF EFNAHAGSHRUNSINS: HUGMYNDIR VILMUNDAR OG TILURÐ STJÓRNLAGARÁÐS ..................... 15
STJÓRNLAGAÞING SEM VARÐ AÐ STJÓRNLAGARÁÐI ............................................................................ 18
SAMANBURÐUR Á TILLÖGUM VILMUNDAR OG STJÓRNLAGARÁÐS ...................................................... 22
OFURVALD STJÓRNMÁLAFLOKKANNA ............................................................................................. 24
SKIPTING RÍKISVALDSINS OG ÆÐSTA STJÓRN RÍKISINS .................................................................... 25
VALDMÖRK ALÞINGIS ..................................................................................................................... 26
FORSÆTISRÁÐHERRA KJÖRINN BEINNI KOSNINGU ........................................................................... 28
ÓHÁÐIR OG ÓVILHALLIR DÓMSTÓLAR ........................................................................................... 31
UM MÁLSKOTSRÉTT OG ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLUR .................................................................... 34
KJÖRDÆMASKIPAN – JAFNT VÆGI ATKVÆÐA – PERSÓNUKJÖR ........................................................ 36
AFNÁM EÐA SKERÐING ÞINGROFSHEIMILDAR ................................................................................. 40
EMBÆTTISMANNAVEITINGAR – SPILLING INNAN KERFIS ................................................................. 41
ÚTVÍKKUN MANNRÉTTINDAÁKVÆÐA .............................................................................................. 43
FRELSI OG SJÁLFSTÆÐI FJÖLMIÐLA .................................................................................................. 45
NIÐURSTÖÐUR ................................................................................................................................... 49
HEIMILDASKRÁ ................................................................................................................................... 55
PRENTAÐAR HEIMILDIR ................................................................................................................... 55
BÆKUR ............................................................................................................................................ 55
DAGBLÖÐ OG TÍMARIT ................................................................................................................... 57
ÓPRENTAÐAR HEIMILDIR ................................................................................................................ 57
VIÐTÖL ........................................................................................................................................... 59
VEFHEIMILDIR ................................................................................................................................ 59
Page 6
5
INNGANGUR
Vilmundur Gylfason setti ekki aðeins mark sitt á samtíð sína þau tæp 35 ár sem hann
lifði, heldur lifðu hugmyndir hans um endurbætur á íslensku stjórnkerfi áfram.1 Eftir að
hann sneri til Íslands frá námi í Bretlandi árið 1973 beitti hann sér fyrir umbótum á
íslensku samfélagi, ekki síst í stjórnsýslu, lagasetningu og dómsvaldi. Hann starfaði sem
menntaskólakennari og vann við ljósvaka- og prentmiðla. Síðan haslaði hann sér einnig
völl í stjórnmálum sem þingmaður og ráðherra. Hann var jafnaðarmaður að hugsjón líkt
og má sjá í orðum hans og sagðist sjálfur fremur aðhyllast franska jafnaðarmennsku en
þá þýsku. Í anda þess kvaðst hann vilja gera löglega uppreisn í grasrótinni meðal
fólksins og stokka upp gamla flokkakerfið.2 Til að sú uppreisn væri möguleg taldi
Vilmundur breytinga þörf á grundvallaratriðum stjórnarskrárinnar. Hann lagði til atlögu
við það sem hann kallaði samtryggingarkerfi stjórnmálaflokkanna með stofnun
Bandalags jafnaðarmanna árið 1983, en Kvennaframboðið varð til á svipuðum tíma,
sem hafði sömuleiðis veruleg áhrif á stjórnmál á Íslandi. Þótt flokkakerfið lifði það
herhlaup af má fulllyrða að tillögur Vilmundar hafi haft varanleg áhrif.
Í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008 mátti t.d. iðulega heyra nafn
Vilmundar nefnt í tengslum við endurreisn landsins. Áköf andstaða við kerfi sem
hyglaði vinum og vandamönnum kom upp ásamt háværu ákalli um skipulags- og
stefnubreytingar. Flokkakerfið var harðlega gagnrýnt og var því m.a. kennt um hvernig
fór ásamt veikum eftirlitsstofnunum. Einnig var vísað til slitinnar og óskýrrar
stjórnarskár.3 Svo var að sjá sem margir þeirra sem kröfðust breytinga eftir hrunið, þar á
meðal sumir þeirra sem buðu sig fram til stjórnlagaþings, hafi horft til kenninga
Vilmundar sem fyrirmyndar að umbótum.
Í þessari rannsókn verður fjallað um hugmyndafræði og umbótatillögur Vilmundar
Gylfasonar og þær bornar saman við orðræðuna eftir bankahrunið og tillögur
stjórnlagaráðs. Kannað verður hvert Vilmundur sótti hugmyndir sínar og hvaða samspil
1 Sjá t.d. Ágúst Einarsson: „Ég vil byltingu og blóð“ Viðtal Karls Th. Birgissonar ritstjóra við Ágúst
Einarsson sem birtist í Helgarpóstinum 2. nóvember 1995, Greinasafn fyrra bindi. Úrval greina og erinda
um stjórnmál, menningu og menntun, ([Reykjavík] 2007), bls. 141. Titill ritgerðarinnar er fenginn úr
hátíðarræðu sem Vilmundur Gylfason flutti á Húsavík 17. júní 1975, sjá: „Við viljum bætt og umfram allt
geðfelldara þjóðfélag. Hátíðarræða flutt á Húsavík 17. júní sl.“, Tíminn 24. júní 1975, bls. 10. 2 Vilmundur Gylfason: Ræða um vantraust, 23. nóvember 1982, gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Ræðuna er að finna í Alþingistíðindum B 1982-1983, d.801- 806 en hér verður stuðst við samhljóða
frumrit Vilmundar. 3 Vef. „Þarf að breyta stjórnarskránni?“, Spurt og svarað á vef Stjórnlagaráðs,
http://stjornlagarad.is/upplysingar/spurt-og-svarad/, skoðað 7. apríl 2014.
Page 7
6
er milli þeirra og nálgunar stjórnlagaráðsliða að verki sínu. Jafnframt verður horft til
samfélagsástands á hvorum tíma. Þótt nafn hans hafi orðið fyrirferðarmikið í orðræðu
samfélagsins eftir efnahagshrunið og vitnað í ræður hans og rit verða færð fyrir því rök
að tillögur hans hafi fremur haft óbein en bein áhrif á niðurstöður stjórnlagaráðs.
Hugmyndir þess komu víða að, rétt eins og Vilmundar sjálfs. Hugmyndafræði hans átti
sér almennt uppruna í lýðræðis- og frelsishugsjónum 17. og 18. aldar, í kenningabanka
franskra jafnaðarmanna, anarkista og fleiri pólítískra hugsuða. Svipað á við um vinnu
stjórnlagaráðs sem leitaði fanga við vinnu sína hvaðanæva að og komst jafnvel að svo
róttækum niðurstöðum að það hlaut ákúrur fyrir.
Umbótatillögur Vilmundar höfðu sumar náð framgangi gegnum stjórnmálin á Íslandi.
Breytingar og þróun hafa orðið verulegar á sviði fjölmiðlunar, innan dómskerfisins og
stjórnsýslu síðan hann lagði fram hugmyndir sínar. Því lagði stjórnlagaráð aðrar og oft
minni áherslu á fjölmarga þætti en þótt hefði þurfa þrjátíu árum fyrr. Greint verður hvar
stjórnlagaráð og Vilmundur áttu samleið og hvar ekki, sem virðist oft frekar
endurspeglast í hugarfari því sem er að baki tillögunum en niðurstöðunni sjálfri. Sýnt
verður að samhljóm má sjá í andstöðu við vald stjórnmálaflokka, leit að leiðum til að
draga úr spillingu og löngun til að efla beint lýðræði. Stjórnlagaráð líkt og Vilmundur
lagði áherslu á valddreifingu og aðhald milli valdþátta ríkisins. Sú mikla áhersla sem
ráðið lagði á að ná taumhaldi á einstökum þáttum ríkisvaldsins með auknu valdboði og
eftirlitsstofnunum er varla sú leið sem Vilmundur hefði valið enda var hann þeirrar
skoðunar að fækka bæri stofnunum ríkisins. Eitt og annað er líkt með hugmyndum
stjórnlagaráðs og Vilmundar um hvernig bregðast skuli við áratugalöngum deilum um
jöfnun atkvæðisréttar milli kjördæma en annað er ólíkt. Stjórnlagaráðliðum þótti einna
byltingakenndast í tillögum sínum að gefa kjósendum kost á greiða atkvæði þvert á
framboðslista sem hafði einnig verið meðal hugmynda Vilmundar. Viðhorf til
mannréttinda hefur víkkað út og breyst mjög undanfarin þrjátíu ár; því eru tillögur
stjórnlagaráðs efnislega nokkuð lagt frá kenningum Vilmundar og á suman hátt svo
byltingakenndar að ráðið hefur legið undir ámæli fyrir þær. Á hinn bóginn má víða sjá
keimlíka sanngirnis- og réttlætiskröfu og hann hélt fram í öllum málflutningi sínum. Sú
tillaga Vilmundar að kjósa forsætisráðherra beinni kosningu var mjög í anda hrifningar
hans á franskri stjórnskipan og mikilvæg leið til að treysta valdmörk í stjórnsýslunni. Sú
aðferð var í upphafi nokkrum stjórnlagaráðsliðum hugstæð og hún rædd í þaula.
Page 8
7
Niðurstaða ráðsins var að slíkt beint kjör æðsta yfirmanns framkvæmdarvaldsins gæti
m.a. ógnað þingræðinu og því varð önnur leið ofan á sem þótti heldur styrkja það.
Eftir Vilmund liggja mikil skrif, bókakaflar, viðtöl og blaðagreinar sem hér verður
stuðst við til að útskýra hugmyndafræði hans. Einnig verða þingmál hans og ræður
teknar til skoðunar, einkum tvær þar sem hann annars vegar tilkynnti um stofnun
Bandalags jafnaðarmanna og hins vegar útlistaði grundvallaratriði þau sem lágu að baki
stjórnmálastefnu þess. Jafnframt verður byggt á ævisögu hans, Löglegt en siðlaust eftir
Jón Orm Halldórsson, frá árinu 1985 og námsritgerð eftir Jón Egilsson.4 Fyrsta mál
Vilmundar sem þingmanns Bandalags jafnarðarmanna var þingsályktunartillaga um
gerð frumvarps til stjórnskipunarlaga um aðgreiningu löggjafar- og framkvæmdarvalds.5
Sú tillaga verður skoðuð, en fylgiskjöl með henni voru greinar eftir Gylfa Þ. Gíslason
og Ólaf Jóhannesson sem birtust í tímaritinu Helgafelli árið 1945 ásamt yngri grein eftir
flutningsmanninn sjálfan.6 Þau skrif skipa veigamikinn sess, enda byggði Vilmundur
hugmyndir sínar mjög á þeim. Einnig verður horft til skrifa fræðimanna um ríki og
ríkisvald á borð við Svan Kristjánsson, Ragnheiði Kristjánsdóttur, Ólaf Jóhannesson og
Gianfranco Poggi.7
Nokkur meginatriði í íslenskri stjórnsýslu og stjórnskipan, sem Vilmundi voru ofarlega í
huga,verða greind í ritgerðinni. Þau verða borin saman við þær hugmyndir sem komu
upp eftir hrun, einkum skrif og tillögur stjórnlagaráðs. Við greininguna verður stuðst við
viðtöl höfundar og annara við nokkra stjórnlagaráðsliða og greinaskrif þeirra fyrir og
eftir veru þeirra í ráðinu. Leitast var við að hafa kynjaskiptingu þeirra sem jafnasta og
að þeir hefðu komið að störfum mismunandi nefnda innan ráðsins. Sumir vildu ræða
störf sín og hugmyndir við höfund en aðrir vildu fremur fá sendan spurningalista.8
4 Jón Ormur Halldórsson: Löglegt en siðlaust. Stjórnmálasaga Vilmundar Gylfasonar (Reykjavík 1985)
og Jón Egilsson: „Siðspilling og siðbót: þjóðfélagsgagnrýni Vilmundar Gylfasonar 1975-1978“, óbirt BA
ritgerð í sagnfræði (HÍ), 1997. 5 Alþingistíðindi A 1982, bls. 802.
6 Ólafur Jóhannesson: „Hugleiðingar um stjórnarskrána“, Helgafell (1945), bls. 104-113; Gylfi Þ.
Gíslason: „Lýðræði og stjórnfesta. Hugleiðingar um stjórnskipunarmálið“, Helgafell (1945), bls 114-123
og Vilmundur Gylfason: „Franskt stjórnarfar og íslenskar aðstæður. Hugleiðingar um breytta
stjórnarskrá“, Tímaritið Málþing (1979). 7 Svanur Kristjánsson: „Frá nýsköpun lýðræðis til óhefts flokkavalds. Fjórir forsetar Íslands 1944-1996“,
Skírnir 186 (Vor 2012); „Lýðræðisbrestir íslenska lýðveldisins. Frjálst framsal fiskveiðiheimilda.“ Skírnir,
187. ár (Haust 2013); Ragnheiður Kristjánsdóttir: „Efasemdir um þingræði.“, Þingræði á Íslandi. Samtíð
og saga, ritstjórn: Ragnhildur Helgadóttir o.fl. (Reykjavík 2011); Ólafur Jóhannesson: Lög og réttur
(Reykjavík 1985) og Gianfranco Poggi: „The Formation of the Modern State and the Institutionalization
of Rule“, Handbook of Historical Sociology (London 2003), ritstjórar Gerard Delanty og Engin F. Isin. 8 Spurningar til stjórnlagaráðsiða sneru að hversu mikilvægt þeim hefði þótt að uppræta spillingu, íhuga
kjör embættismanna og vald stjórnmálamanna auk myndunar valdablokka. Rætt var um þrískiptingu
Page 9
8
Einhverjir vildu ekki láta nafns síns getið og verður það virt í hvívetna. Fræðimenn
hafa rýnt nokkuð í ástæður og mögulegar afleiðingar efnahagshrunsins og tengsl þess
við kröfu um endurreisn og endurskipulagningu samfélagsins. Nokkur slík rit voru höfð
til hliðsjónar til að skerpa skilning höfundar. Má þar nefna skrif tveggja
stjórnlagaráðsliða, þeirra Eiríks Bergmanns Einarssonar, stjórnmálafræðings og
Þorvaldar Gylfasonar, hagfræðings og bróður Vilmundar.9 Þorvaldur líkt og fleiri hefur
bent á að stjórnarskrám hafi iðulega verið breytt eftir samfélagsáföll eða miklar
breytingar. Guðni Th. Jóhannesson, Ólafur Arnarson, Guðrún Johnsen, Ásgeir Jónsson
og breski blaðamaðurinn Roger Boyes hafa allir velt hruninu, ástæðum þess og
afleiðingum fyrir sér og var horft til þeirra.10
Við skrifin voru einnig höfð til hliðsjónar
nokkur rit um heimspeki stjórnmálanna, um eðli ríkis og ríkisvalds og sögulegan
bakgrunn vestræns lýðræðisskipulags.11
Loks verður vikið að frumvarpi stjórnlagaráðs
og greinargerð með því ásamt ritinu Ný stjórnarskrá Íslands sem er niðurstaða vinnu
ráðsins.12
Nokkuð hefur verið skrifað um stjórnarskrármál og störf stjórnlagaráðs á liðnum árum.
Iðulega hefur verið horft til ástæðna þess að stofnað var til ráðsins, einstakra greina
frumvarpsins, og hvað standi í vegi stjórnarskrárbreytinga.13
Frumvarp stjórnlagaráðs
ríkisvaldsins, kjördæmamál og jöfnun atkvæðaréttar. Rædd var sú hugmynd að kjósa forsætisráðherra
beint. Sömuleiðis var vikið að hve ofarlega stjórnlagaráðsliðum hefði afnám þingrofsréttar eða þrenging
hefði verið þeim í huga, beint lýðræði, ákvæði um mannréttindi svo sem eignarrétt, tjáningarfrelsi og eðli
hagsmunasamtaka. Þeir voru einnig spurðir hvað hefði orðið til þess að þeir buðu sig fram, hvaða
hugmyndafræði hefði verið þeim efst í huga og hvort hugmyndir Vilmundar Gylfasonar hefðu haft áhrif á
þá,fyrir og á meðan störfum stjórnlagaráðs stóð. 9 Eiríkur Bergmann Einarsson: Iceland and the International Financial Crisis:Boom, bust and Recovery
(Basingstoke 2014) og Þorvaldur Gylfason: „From Collapse to Constitution: The Case of Iceland“,
CESifo Working Paper Series No. 3770, (June 2012). 10
Guðni Th. Jóhannesson: Hrunið:Ísland á barmi gjaldþrots og upplausnar (Reykjavík 2009); Ólafur
Arnarson: Sofandi að feigðarósi (Reykjavík 2009); Guðrún Johnsen: Bringing Down the Banking System:
Lessons from Iceland (Basingstoke 2014); Ásgeir Jónsson: Why Iceland: How One of the World's
Smallest Countries Became the Meltdown's Biggest Casualty (New York 2009) og Roger Boyes:
Meltdown Iceland: How the Global Financial Crisis Bankrupted an Entire Country (London 2009). 11
Atli Harðarson: „Neyddur til að vera frjáls“, Afarkostir. Greinasafn um heimspeki (Reykjavík 1995);
Guðmundur Hálfdanarson: Íslenska þjóðríkið uppruni og endimörk (Reykjavík 2001); John Locke:
Ritgerð um ríkisvald, íslenzk þýðing eftir Atla Harðarson (Reykjavík 1986); Michael Mann: „The
Autonomous Power of the State“, States in History, ritstjóri John A. Hall (Oxford 1989); Páll Skúlason:
„Réttlæti, velferð og lýðræði. Hlutverk siðfræðinnar í stjórnmálum“, Pælingar II (Reykjavík 1989);
James Rachels: Stefnur og straumar í siðfræði (Reykjavík 1997) og Stefanía Óskarsdóttir: „Þingræði
verður til“, Þingræði á Íslandi, samtíð og saga, Ritstjórn Ragnhildur Helgadóttir og fleiri (Reykjavík
2011). 12
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum.“ Stjórnlagaráð. Umsjón með útgáfu: Agnar Bragi
Bragason, Andrés Ingi Jónsson, Guðbjörg Eva H. Baldursdóttir, Sif Guðjónsdóttir, Þorsteinn Fr.
Sigurðsson, (Reykjavík 2011) og Ný stjórnarskrá Íslands. Frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga
2011, útgefandi Daði Ingólfsson í samstarfi við Stjórnarskrárfélagið ([Reykjavík] 2011). 13
Sjá: Sigurður Hólmar Kristjánsson: „Stjórnlagaráð, saga þess og hlutverk“, óbirt BA ritgerð í lögfræði
(HA), 2012; Brynhildur Bolladóttir: „Tillögur stjórnlagaráðs að ákvæði í stjórnskipunarlögum um framsal
Page 10
9
hefur hins vegar ekki verið borið saman við kenningar pólítísks áhrifavalds á borð við
Vilmund Gylfason, líkt og gert verður hér.
Ritgerðin skiptist í fimm meginkafla auk niðurstaðna. Í fyrsta kafla er greint frá
kenningum Vilmundar og áhrifavalda hans og þær settar í samfélagslegt samhengi.
Næstu þrír kaflar eru einskonar millistef þar sem horft er til orðræðunnar sem varð til í
kjölfar hrunsins, kröfunnar um breytt samfélag og hvernig nafn Vilmundar bar á góma í
því samhengi. Uppruni og þróun stjórnarskrárinnar verður rakinn og gerð grein fyrir
tilurð stjórnlagaráðs. Þar verða skrif ýmissa þeirra sem sóttust eftir eða náðu kjöri til
stjórnlagaráðs greind og hugað að í hvaða smiðjur þeir leituðu eftir hugmyndum.
Fimmti og efnismesti kaflinn snýr að samanburði á meginatriðum hugmynda Vilmundar
og stjórnlagaráðsins. Um er að ræða gagnrýni hans á ægivald stjórnmálaflokka og kröfu
hans um skýra aðgreiningu ríkisvaldsins og skipan hinna þriggja þátta þess – löggjafar-,
dóms- og framkvæmdarvalds – sem tengist m.a. hugmyndum um beint kjör
forsætisráðherra. Því skyld eru sjónarmið sem snerta skipun embættismanna ríkisins.
Að sama skapi verður horft til þess hvernig Vilmundur og stjórnlagaráð fjölluðu um
málskotsrétt og þjóðaratkvæðagreiðslur. Sjónum verður beint að mannréttindaákvæðum
stjórnarskrár og ekki síst kjördæmaskipan og kröfunni um jafnt vægi atkvæða. Afstaða
Vilmundar og stjórnlagaráðs til fjölmiðla verður einnig borin saman.
VILMUNDUR GYLFASON: „VILLIMAÐUR Í PÓLÍTÍK“
Vilmundur Gylfason lýsti stjórnmálaskoðunum sínum þannig að þær væru í anda
lýðræðis-jafnaðarmennsku.14
Eins og faðir hans Gylfi Þ. Gíslason, ráðherra og einn
helsti leiðtogi Alþýðuflokksins, var hann talsmaður frelsis og jafnréttis; auk þess var
hann fylgjandi markaðsbúskap,en aðhylltist jafnframt mannúð og sígildar
siðgæðishugmyndir. Hann taldi að ríkinu bæri að tryggja réttláta tekjuskiptingu og
afkomuöryggi almennings, en hafa aðeins hæfileg afskipti af atvinnulífinu til hagsbóta
ríkisvalds til alþjóðastofnana“, óbirt BA ritgerð í lögfræði (HÍ), 2012; Ásgeir Einarsson: „Málskotsréttur
forseta Íslands“, óbirt BA ritgerð í stjórnmálafræði (HÍ), 2012; Salka Margrét Sigurðardóttir: „Er vilji allt
sem þarf? Hvers vegna norræna velferðarstjórnin hafði ekki erindi sem erfiði við breytingar á stjórnarskrá
lýðveldisins Íslands“, óbirt BA ritgerð í stjórnmálafræði (HÍ), 2014 og Einar Franz Ragnars: „Frá
Búsáhaldabyltingu til Stjórnlagaþings : hver eru tengslin á milli Búsáhaldabyltingarinnar og
Stjórnlagaþings?“, óbirt BA ritgerð í stjórnmálafræði (Bifröst) 2011. 14
Sjá: Vilmundur Gylfason: Flokksþingið, trúnaðarskjal, Fréttabréf nr. 4 frá Vilmundi Gylfasyni á
Alþingi, 11. nóv. 1980, bls. 1. og ódagsett viðtal sem Helgi H. Jónsson fréttamaður átti við Vilmund
Gylfason eftir að hann hafði fallið í kosningu um embætti varaformanns í Alþýðuflokknum. Gögn úr
fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Page 11
10
fyrir fjöldann jafnframt því að annast heilsugæslu og menntun.15
Frelsi einstaklingsins
var Vilmundi alltaf mjög ofarlega í huga og kvaðst hann vera andvígur því að
ríkisvaldið ráðskaðist um of með það.16
Hann sagðist samt sjálfur rekast illa í flokki
vegna þess hve hann væri íhaldssamur á sumum sviðum en róttækur á öðrum.17
Hrifning Vilmundar á þeirri hugmyndafræði er skóp Bandaríkin og franska lýðveldið er
í anda trúarinnar á frelsið, enda var það honum mjög ofarlega í huga í öllum hans
málflutningi. Hann sagðist einnig styðja valddreifingu í líkingu við hugmyndafræði
stjórnleysisstefnu 19. aldarinnar og taldi franska jafnaðarmenn sækja kenningakerfi sitt
að hluta þangað.18
Vilmundur hafði reyndar haldið því fram að notkun hugtakanna
„hægri“ og „vinstri“ í pólítískri orðræðu væri úrelt og þjónaði ekki framtíðinni.19
Honum varð einnig tíðrætt um valdið og hvernig því mætti beita jafnt til góðs og ills, en
fannst hugmyndir Thomas Jeffersons þriðja forseta Bandaríkjanna um það í senn
einfeldingslegar og jákvæðar. Hann virtist sammála forsetanum og þar með Rousseau
um að því færri sem valdastofnanirnar væru, því betra.20
Áhuga hans á dreifingu valds
og andstöðu við vald á fárra höndum mátti því sjá sem rauðan þráð í málflutningi hans.
Eðli og mörk valdsins hafa verið ofarlega á baugi í umræðu samtímans og fræðimenn á
borð við ítalska lög- og félagsfræðinginn Gianfranco Poggi hafa t.a.m. gagnrýnt mjög
stofnanavæðingu þá sem einkennir nútímaríkið.21
Á áttunda áratugnum hóf Vilmundur Gylfason hugmyndafræðilega baráttu sína fyrir
breytingum og umbótum á íslensku stjórnkerfi. Megnið af þeim áratug og fram eftir
þeim níunda einkenndust stjórnmál á Íslandi af baráttu við verðbólgu og
verkalýðsátökum, deilum um veru bandarísks hers í landinu, um byggðastefnu og af
átökum við Breta um stækkun íslenskrar fiskveiðilögsögu. Vilmundur og fylgismenn
hans töldu einnig að berjast þyrfti gegn spillingu, frændhygli og sukki með fjármuni
15
Sjá Gylfi Þ. Gíslason: Viðreisnarárin ([Reykjavík] 1993), bls. 18-19 og 140, einnig Vilmundur
Gylfason: „Við viljum bætt og umfram allt geðfelldara þjóðfélag“, bls. 10. 16
Anna Ólafsdóttir Björnsson: „ „Smátt er fagurt“. Vikuviðtal við Vilmund Gylfason sem segir að
jafnaðarmenn hafi mikið til anarkista að sækja“, Vikan 47. tbl. 1981, bls. 18-21. 17
Viðtal Sigmars B. Haukssonar við Vilmund Gylfason í ágústbyrjun 1981 um Alþýðublaðsmálið, bls. 5.
Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 18
Anna Ólafsdóttir Björnsson: „ „Smátt er fagurt“ “, bls. 18-21. 19
Vilmundur Gylfason: „Hægri og vinstri – fortíð og framtíð“, Skutull 3.- 4. tbl, L. árgangur, 27. júní
1974, bls. 8. 20
Vilmundur Gylfason: „Frelsishugtakið í öndverðri sögu Bandaríkjanna“, Söguslóðir. Afmælisrit helgað
Ólafi Hanssyni sjötugum 18. september 1979, ritnefnd Bergsteinn Jónsson o. fl. (Reykjavík 1979),
bls.379. 21
Poggi, „The Formation of the Modern State and the Institutionalization of Rule“, bls. 253.
Page 12
11
Vilmundur var þeirrar skoðunar að spillingu linnti ekki nema með tilkomu öflugrar
rannsóknarblaðamennsku, líkri þeirri sem hann hafði kynnst á námsárum sínum í
Bretlandi.22
Í augum sinnar kynslóðar væri gamla flokkakerfið úrelt og gera þyrfti
róttækar breytingar á umgjörð íslenskra stjórnmála. Hann leit svo á að nauðsynlegt
væri að endurskoða stjórnarskrána, óbreytt ýtti hún undir veldi stjórnmálaflokkanna,
misbeitingu valds og ójafnrétti. Það er til marks um þann baráttuanda sem í Vilmundi
bjó að hann nafngreindi þrjá fyrrverandi forsætisráðherra og sagði þá hafa misnotað
vald sitt vegna þess hve veik stjórnarskráin og dómsvaldið á Íslandi væru.23
Einn þeirra
var Ólafur Jóhannesson sem hafði verið nágranni fjölskyldu hans um áratugaskeið, faðir
æskuvinar hans og vinsæll stjórnmálamaður. Þrátt fyrir slíka gagnrýni vitnaði
Vilmundur iðulega til Ólafs þegar hann viðraði kenningar sínar og hugsjónir.24
Vilmundur hafði mikinn áhuga á að kosið yrði til sérstaks stjórnlagaþings til að
endurskoða lýðveldisstjórnarskrána. Efni gamallar blaðagreinar eftir Gylfa Þ. Gíslason,
föður Vilmundar, var meginröksemd hans fyrir hugmyndum að stjórnlagabreytingu. Það
kann að vera til sannindamerkis um að megnið af stefnu sinni hafi hann sótt til Gylfa og
litlu bætt við sjálfur líkt og haldið hefur verið fram.25
Greinilegt var að honum þótti
stjórnarskráin hafa gengið sér til húðar, enda væri hún að grunni til frá árinu 1874.26
Það er ekki allskostar rétt, enda hafði stjórnarskránni í ýmsu verið breytt og talsverðu
fyrir lýðveldisstofnun, m.a. í atriðum er snertu embætti forseta Íslands. Ekki fer milli
mála að stjórnmálamenn þ. á m. Gylfi, töldu að lýðveldisstjórnarskráin væri til
bráðabirgða, enda tóku stjórnarskrárnefndir á vegum þingsins þegar til starfa eftir
lýðveldisstofnun. Gylfi hafði snemma áhyggjur af miklum ítökum stjórnmálaflokka og
Vilmundur lagði mikla áherslu á að dregið yrði úr völdum þeirra.27
Þeir hefðu gríðarleg
ítök í verkalýðshreyfingu og innan samtaka atvinnurekenda, auk þess að hafa mikil áhrif
á aðra samfélagsþætti eins og menningu og listir. Að hans dómi hefðu flokkarnir
skapað eigið valdakerfi sem endurspeglaðist m.a. í kjördæmakerfi þar sem háð væri
„byggðastríð“. Hann virðist hafa trúað snemma að breytinga væri að vænta í
stjórnmálum á Íslandi og var þeirrar skoðunar í upphafi að Alþýðuflokkurinn gæti haft
22
Jónas Haraldsson: „ „Vil heldur vera stutt á þingi, og vera þar með svolítilli reisn““, Vikan, 40. tbl.
1978, bls. 7. 23
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna – dómsmál – lög og réttur – stjórnkerfi, handrit 1982, bls. 4. Gögn
úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 24
Sjá t.d. þingsályktunartillögu Vilmundar; Alþingistíðindi A 1982, bls. 802. 25
Jón Ormur Halldórsson: Löglegt en siðlaust, bls. 43-46. 26
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna, bls. 3. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 27
Gylfi Þ. Gíslason: „Lýðræði og stjórnfesta“, bls. 116.
Page 13
12
forystu í uppstokkun efnahags- og stjórnkerfi landsins.28
Honum átti eftir að snúast
hugur hvað það varðaði.
Vilmundur ýjaði að því að kenningin um þrískiptingu ríkisvaldsins væri úrelt að mörgu
leyti, en honum fannst mikilvægt að valdþættir ríkisins væru óháðir hverjir öðrum.29
Hann leit svo á að upplausn, stjórnleysi og efnahagshringlandi einkenndu íslensk
stjórnmál. Til að snúa við blaðinu vildi hann stuðla að virkara lýðræði, t.d. með því að
taka upp einmenningskjördæmi að nýju.30
Þeirri ráðstöfun hafði verið hætt, hugsanlega
vegna þess að slíkar kosningar snerust fremur um persónulegar vinsældir en hugsjónir.
Hann vildi jafnframt að kjördæmum yrði fækkað með fleiri uppbótarsætum til að gera
skiptingu þingmanna milli kjördæma réttlátari. Það mundi tryggja að öll kjördæmi
fengju mann á þing, í versta falli uppbótarmann.31
Þriðji þáttur hugmynda Vilmundar
sneri að því að kjósendur gætu valið frambjóðendur þvert á lista í samræmi við fjölda
þingmanna síns kjördæmis, hugnaðist þeim að gera svo.
Í upphafi níunda áratugarins var efnahagsástand á Íslandi örðugt sem aldrei fyrr.
Óðaverðbólga geisaði og var jafnvel svo langt gengið að tala um upplausnarástand.32
Það var í þessu umhverfi sem umbótatillögur Vilmundar voru settar fram. Þingpallar
voru þéttskipaðir fólki þegar Vilmundur tók til máls í umræðu um vantraust á ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen í nóvember 1982 og tilkynnti um stofnun Bandalags
jafnaðarmanna.33
Í ræðunni sem snerist frekar um stjórnmálahugmyndir Vilmundar en
vantraustið sjálft lýsti hann því sem hann kallaði spillt flokkskerfi í landinu og ónýtt
stjórnkerfi sem þyrfti á algerri uppstokkun að halda. Hann boðaði hugmyndir sínar um
viðamikla endurnýjun með breytingum á kjördæmaskipan og stjórnarskrá lýðveldisins.
Vilmundur var þeirrar skoðunar að valdakerfið hefði algerlega brugðist, enda væri vinna
stjórnarskrárnefnda fram til þessa lítils eða einskis virði. Vilmundur vildi koma að
ákvæðum um eignarrétt, mannréttindi, tjáningarfrelsi og eðli hagsmunasamtaka.
Hann fullyrti að stjórnarskrárnefnd undir forystu Gunnars Thoroddsen, forsætisráðherra,
hefði aðeins umskrifað nokkrar af greinum gömlu stjórnarskrárinnar, enda hefðu
28
Vilmundur Gylfason: Stjórnmálaviðhorfin, fréttabréf nr. 2 frá Vilmundi Gylfasyni á Alþingi, 6. mars
1980. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 29
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna, bls. 7. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 30
Vilmundur Gylfason: „Nýjar leiðir í kjördæmaskipan“, Skutull 1. tbl., L. árgangur, 12. júní 1974, bls. 4. 31
Sama heimild. 32
„Tillögur Vilmundar ræddar á þingi. Verið að spila á upplausnarástand.“ Þjóðviljinn,10. mars 1983, bls.
6. 33
„Vilmundur yfirgefur Alþýðuflokkinn og stofnar nýjan flokk: Bandalag jafnaðarmanna – bandalag
gegn flokkunum“, DV, 19. nóvember 1982, bls. 4.
Page 14
13
stjórnmálamenn vélað þar um eigin hag gegn hagsmunum almennings og væru að reyna
að beina sjónum kjósenda frá efnahagsvandanum með því að kynna drög að nýrri
stjórnarskrá.34
Við nánari skoðun má þó sjá að ýmislegt var nútímalegt í drögunum.
Nefna má t.d. mannréttindakaflann auk þess sem gert var ráð fyrir þrengingu
þingrofsréttar og breytingum á kosningafyrirkomulagi ásamt staðfestingu á
þingræðisreglu.35
Nokkur atriða stjórnarskrárfrumvarps Gunnars hafa komist í
framkvæmd síðan.
Vilmundur taldi almannaviljann væri æðsta vald samfélagsins og vildi hann stuðla að
beinna lýðræði. Í þeim anda lagði hann til að forsætisráðherra yrði kosinn beinni
kosningu á landsvísu, en við kjör til alþingis yrði kjördæmaskipan óbreytt.36
Hann vildi
einnig að algerlega yrði skilið milli framkvæmdar - og löggjafarvalds og því væri
áríðandi að afnema þingrofsrétt með öllu.37
Árið 1974 hafði þing verið rofið og Gylfi Þ.
Gíslason lýst yfir að hann ásamt Geir Hallgrímssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins,
hygðist leggja til breytingu á stjórnarskrá til að koma í veg fyrir þingrof.38
Úr því varð
ekki, en Vilmundur taldi að bann við þingrofi yki valddreifingu og leiddi til styrkrar
stjórnar.
Meginhugmyndir Vilmundar sneru því að styrkingu hvers þáttar ríkisvaldsins fyrir sig
t.a.m. með því að forsætisráðherra væri kjörinn sérstaklega og ákvæði ráðuneyti sitt
sjálfur. Helsta áhyggjuefni Vilmundar var þó hið mikla vald sem hann sagði
stjórnmálaflokkana hafa yfir fjölmörgum þáttum þjóðfélagsins auk óljósra valdmarka
stofnana ríkisins. Fyrst og fremst lastaði hann samtryggingarkerfi stjórnmálamannanna
sem hann sagði fótum troða mannréttindi, skapa spillingu með umdeilanlegum
embættismannaveitingum og átaldi dómstóla sem að hans mati voru hallir undir valdið,
hvaða nafni sem það nefndist. Það sama má segja um fjórða valdið svokallaða:
34
Vilmundur Gylfason: Stjórnarskráin, Fréttabréf frá Vilmundi Gylfasyni á Alþingi, 4. okt. 1982, bls. 1.
Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 35
Sjá Gunnar Helgi Kristinsson: „Ágrip af þróun stjórnarskrárinnar“, (Reykjavík 2005), bls. 17-18. 36
Alþingistíðindi A 1982, bls. 802. 37
Sama heimild. 38
Guðni Th. Jóhannesson, Völundarhús valdsins. Stjórnarmyndanir, stjórnarslit og staða forseta Íslands í
embættistíð Kristjáns Eldjárns, 1968-1980, (Reykjavík 2005), bls. 107. Sú varð og raunin, þótt bið yrði á.
Í tillögum stjórnarskrárnefndar um breytingar á stjórnarskránni árið 1983 var gert ráð fyrir að einungis
væri unnt að rjúfa Alþingi með meirihlutavilja þess sjálfs. Ekki var gengið svo langt með
stjórnarskrárbreytingunni 1991 en þess í stað var því ákvæði bætt við 24. grein – þingrofsgreinina – að
þingmenn skyldu ætíð halda umboði sínu til kjördags. Eftir þingrof gæti meirihluti þingmanna því haldið
þingstörfum áfram og þótt þeir gætu tæpast afturkallað þingrofið gætu þeir samþykkt vantraust á
ríkisstjórn, myndað nýja og gert aðrar samþykktir.
Page 15
14
Vilmundi þótti þeir vera hluti af því samtvinnaða spillingarkerfi sem hann taldi
gegnsýra samfélagið.
PÓLITÍSKAR TILRAUNIR UM STJÓRNARSKRÁNA
Á lýðveldistímanum hafa verið gerðar nokkrar breytingar á stjórnarskránni. Flestar
miðuðu að breytingum á kjördæmaskipan, en þó var veigamiklum mannréttindaköflum
bætt inn í hana um miðjan tíunda áratug 20. aldar. Breytingatillögur við stjórnarskrána
hafa verið mun fleiri. Fljótlega eftir lýðveldisstofnun var sett saman stjórnarskrárnefnd á
vegum Alþingis sem átti að hafa það hlutverk að endurskoða stjórnarskrána. Skemmst
er frá að segja að hún skilaði litlu sem engu. Hlutverk og tilgangur nefndarinnar virðist
hafa verið óskýr og óljóst hvaða kröfur stjórnmálaflokkarnir gerðu til hennar.39
Þær
stjórnarskrárnefndir sem sigldu í kjölfarið náðu heldur ekki ætlunarverki sínu.
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra lagði fram stjórnarskrárfrumvarp í eigin nafni árið
1983, sem byggði á störfum stjórnarskrárnefndar sem hafði starfað frá árinu 1972.
Vilmundur Gylfason taldi allt of mikla leynd hafa hvílt yfir störfum þeirrar nefndar og
fullyrti að þröngva hefði átt kjördæmamálinu gegnum þingið framhjá öðrum málum.
Forsætisráðherra svaraði að allsherjarsamkomulag þyrfti ekki að vera um það mál frekar
en önnur þegar frumvarpið væri lagt fram.40
Svo fór að frumvarp Gunnars var ekki
afgreitt í heild, en samþykktar voru tillögur um breytingar á kosningakerfi, fjölgun
þingsæta og lækkun kosningaaldurs. Þingsályktunartillaga Vilmundar var viðkvæði við
frumvarpi Gunnars og varð ekki útrædd í þinginu. Í frumvarpi forsætisráðherrans gaf að
líta allmargar hugmyndir sem síðar voru teknar upp til frekari umræðu eins og
breytingar á ákvæðum um skipun og setningu ríkisstarfsmanna. Í frumvarpinu voru
sömuleiðis boðaðar breytingar á kosningafyrirkomulagi auk ákvæða um náttúruvernd og
auðlindir Íslands.41
Athyglivert er að í niðurstöðum viðamikillar könnunar Samtaka um
jafnan kosningarétt í Reykjavík og á Reykjanesi sem birtar voru í marsbyrjun 1983 kom
fram að meirihluti vildi fulla jöfnun atkvæðisréttar, fækkun þingmanna og að landið
yrði gert að einu kjördæmi. Stjórnmálamenn hunsuðu áskorun samtakanna að taka tillit
til þess áður en kosningalögum yrði breytt.42
39
Sjá: Alþingistíðindi D 1951, d. 358. 40
„Stjórnarskrá í janúar“, Þjóðviljinn, 17. desember 1982, bls. 1. 41
Alþingistíðindi A 1982-3, bls. 2731-2. 42
„Niðurstöður skoðanakönnunar um jafnan kosningarétt“, Morgunblaðið, 1. mars 1983, bls. 30-31.
Page 16
15
Vilmundur Gylfason var sannfærður um að stjórnarskrármálið yrði eitt helsta átakamál
kosninganna árið 1983 og kosningabarátta Bandalags jafnaðarmanna snerist mjög um
það.43
Jón Ormur Halldórsson heldur því fram í ævisögu Vilmundar að
stjórnmálaflokkarnir hefðu vísvitandi fjarlægt þau úr þjóðfélagsumræðunni til að tryggja
hagsmuni flokkanna.44
Hvort sem sú tilgáta var rétt eða ekki varð stjórnarskrármálið
ekki að kosningamáli.
Að Vilmundi gengnum lágu umræður um grundvallarþætti samfélagsins nokkuð í
láginni, með nokkrum undantekningum þó. Eins og áður sagði hafa verið gerðar
allnokkrar breytingar á stjórnarskránni síðan árið 1983. Tillögur Vilmundar hlutu ekki
hljómgrunn þá frekar en hin nýja stjórnarskrá Gunnars Thoroddsen. Deildaskipting
Alþingis var afnumin með stjórnarskrárbreytingu árið 1991 og nýr mannréttindakafli
var samþykktur 1995. Árið 1999 var kjördæmaskipan breytt að nýju. Auk þessa komu
fram nokkrar tillögur aðrar um stjórnarskrárbreytingar, sem ekki fengu hljómgrunn.
Djúpstæðar breytingar hafa vitaskuld orðið á íslensku samfélagi frá þessum tíma;
rekstur ljósvakamiðla var gefinn frjáls, enda hafði einkaréttur ríkisins á slíkri miðlun
þótt brjóta í bága við prentfrelsisákvæði stjórnarskrár. Dagblaðaútgáfa færðist að mestu
úr höndum stjórnmálaflokka til einkaaðila og ríkisfyrirtæki á „samkeppnismarkaði“
voru seld. Veigamiklar breytingar voru gerðar á dómskerfi landsins í upphafi tíunda
áratugarins þegar skilið var á milli stjórnsýslu og dómsvalds með stórvægilegum
lagabreytingum. Enn fremur má nefna virkjun málkotsákvæðis stjórnarskrárinnar árið
2004, þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, kvaðst ætla að vísa umdeildum
fjölmiðlalögum til þjóðaratkæðagreiðslu.
ÁHRIF EFNAHAGSHRUNSINS: HUGMYNDIR VILMUNDAR OG TILURÐ
STJÓRNLAGARÁÐS
Þegar fjármálakerfi Íslands hrundi haustið 2008 varð mikil hugarfarsbreyting og kröfur
kviknuðu um upprætingu spillingar, um endurskipulagningu grunnstoða samfélagsins.
Ekki síst varð ákallið hávært um nýja stjórnarskrá. Auðvitað hafði ekki ríkt alger þögn í
25 ár um það sem aðfinnsluvert þótti í íslenskri stjórnsýslu, stjórnmálum, ríkisstjórn og
hvað snerti ráðningar embættismanna. Oft var hart deilt á skipun stjórnmálamanna í
stöður sendiherra, bankastjóra og önnur mikilvæg embætti þar sem í raun hefði þurft að
43
Jón Ormur Halldórsson: Löglegt en siðlaust, bls. 386. 44
Ragnheiður Kristjánsdóttir: „Efasemdir um þingræði“, bls. 143.
Page 17
16
horfa til sérmenntunar og mikillar reynslu. Sömuleiðis var iðulega fundið að
einkavæðingunni sem hófst í forsætisráðherratíð Davíðs Oddssonar og viðkvæðið var
að þar væru stjórnmálaflokkarnir enn að hygla vildarvinum sínum. Þótt Ísland teldist lítt
spillt í alþjóðlegum könnunum fór ekki milli mála að stjórnmálamenn véluðu um helstu
þætti samfélagsins og gerðu harla fátt til að sporna við ofþenslu bankakerfisins sem
leiddi til hrunsins. Einn meginvandi Íslands virtist líkt og Vilmundur Gylfason hafði
bent á aldarfjórðungi fyrr vera ónóg valddreifing og skortur á aðhaldi valdþátta hvers
með öðrum.45
Ýmis grundvallaratriði komu til umræðu eftir efnahagshrunið þegar auðsætt þótti að
hvorki stjórnmálin eins og þau voru rekin né markaðsöflin leystu allan vanda. Orðræðan
tók að snúast um uppgjör við fortíðina og jafnframt var kallað eftir umbótum á ýmsum
sviðum samfélagsins. Menn spurðu sig hvort lýðræði ætti ekki að vera virkt milli
kosninga, þ.e. beint lýðræði, hvort ekki kvæði of rammt að tangarhaldi
framkvæmdarvalds og þings á flestum þáttum samfélagsins og um gallað flokkakerfi
sem hefði alltof mikil samfélagsítök. Vitaskuld voru bankamenn og útrásarvíkingar
harðlega gagnrýndir vegna þáttar þeirra í hruninu. Fjölmiðlum var sömuleiðis sagt til
syndanna á þeim forsendum að þeir hefðu brugðist skyldum sínum með því að hafa af
auðtrú og andvaraleysi mært íslenska „efnahagsundrið“.
Kallað var eftir ábyrgð, uppstokkun og kerfisbreytingum. Almenningur þusti út á stræti
og torg til að mótmæla ástandinu. Fólk sem hafði lítil eða engin afskipti haft af
þjóðmálum jafnt og vanir þjóðfélagsrýnar töldu brýnt að færa í orð hvernig komið væri,
hvað hefði farið úrskeiðis og hvernig hægt væri að bæta úr stöðunni. Margt þess sem
sagt var einkenndist af reiði og örvæntingu, en annað virtist skrifað eftir yfirlegu og
ígrundun. Njörður P. Njarðvík, rithöfundur og prófessor emeritus, fullyrti t.d. í
áhrifamikilli blaðagrein að efnahagshrunið hefði leitt í ljós rótgróinn galla íslensks
stjórnkerfis þar sem þrískipting valdsins væri hunsuð af spilltum og hrokafullum
stjórnmálamönnum flokksveldisins sem hefðu óspart hvatt fjárglæframenn til dáða. Því
væri ekki annað til ráða en fara að dæmi Frakka og stofna nýtt lýðveldi á grundvelli
nýrrar stjórnarskrár sem samin væri af neyðarstjórn valinkunnra einstaklinga.46
45
Sjá t.d. viðtal höfundar við Gísla Tryggvason 28. apríl 2014. 46
Njörður P. Njarðvík: „Nýtt lýðveldi“, Fréttablaðið,14. janúar 2009, bls. 10.
Page 18
17
Sennilega hefði hugnast Vilmundi Gylfasyni betur að stofna stjórnlagaþing til þess, en
önnur ámæli Njarðar voru af svipuðum toga og hann hafði fyrrum látið falla.
Þessi orð Njarðar og ærin umræða önnur í samfélaginu um pólitískt vald, peningaöfl og
spillingu urðu tilefni þess að fjallað var um þingræðu Vilmundar frá 23. nóvember 1982
í þættinum Krossgötum á Rás1 í janúar 2009. Henni var eftir það deilt víða um
veraldarvefinn og margvíslega um hana fjallað á annan hátt.47
Í kjölfarið bar nafn
Vilmundar víða á góma í vangaveltum um leiðir til umbóta. Atorkusamur bloggari, Lára
Hanna Einarsdóttir, taldi afar mikilvægt að rifja upp ræður Vilmundar og birti þrjár
þeirra á ritvelli sínum. Hún staðhæfði að ræðan sem heyrðist í útvarpsþættinum væri
sennilega sú frægasta sem flutt hefði verið á Alþingi.48
Ræðan og bollaleggingar um
inntak hennar og boðskap fóru víða og var getið í blaðagreinum, rædd á kaffistofum og í
heitum pottum sundlauganna; hugmyndir Vilmundar bættust í vopnabúr þeirra sem
kröfðust breytinga. Jón Baldvin Hannibalsson, sem í formannstíð sinni hafði boðað
nútímalega jafnaðarstefnu í Alþýðuflokknum, tók nú undir sjónarmið Vilmundar m.a.
um að kjósa þyrfti forsætisráðherra beinni kosningu og veita honum sjálfstætt umboð til
stjórnarmyndunar.49
Vilhjálmur Þorsteinsson, síðar stjórnlagaráðsliði, sem hafði ungur
gengið til liðs við Bandalag jafnaðarmanna hafði mikinn áhuga á endurbótum á
stjórnarskránni og stjórnkerfi Íslands og þakkaði það Vilmundi. Vilhjálmur talaði á
opnum borgarafundi rúmri viku eftir að Geir H. Haarde bað Guð að blessa Ísland
haustið 2008. Þar sagði hann þá áskorun sem stjórnmálin í landinu stæðu frammi fyrir
um uppstokkun og opnun með þátttöku almennings hefðu líkast til fallið Vilmundi vel í
geð. Augljóst er að um margt var hann sammála Vilmundi, t.d. um ofurvald
stjórnmálaflokkanna og taldi hugmyndir hans myndu þýða gjörbreytingu á stjórnkerfi
landsins.50
47
Svar við ástæðum þess að ræðan var spiluð í útvarpi. Tölvupóstur frá Hjálmari Sveinssyni til höfundar
23. apríl 2014. 48
Vef. Lára Hanna Einarsdóttir: „Þrjár ræður Vilmundar“, Lára Hanna, 25. nóvember 2008,
http://blog.pressan.is/larahanna/2008/11/25/thrjar-thingraedur-vilmundar-gylfasonar/, skoðað 1. apríl
2014. 49
Jón Baldvin Hannibalsson: „Afhjúpunin“, Morgunblaðið, 25. nóvember 2008, bls. 21. 50
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Eiga hugmyndir Vilmundar Gylfasonar erindi í umræðuna?“ Erindi á
opnum borgarafundi á vegum framtíðarhóps Samfylkingarinnar, Vilhjálmur Þorsteinsson, 15. nóvember
2008.
http://vthorsteinsson.blog.is/users/56/vthorsteinsson/files/fundur_framti_arhops_s_um_vilmund_ofl.pdf,
skoðað 2. nóvember 2010.
Page 19
18
Gísli Tryggvason, lögfræðingur og síðar stjórnlagaráðsliði vann að því innan
Framsóknarflokksins að boða til stjórnlagaþings og setti flokkurinn það sem skilyrði
fyrir stuðningi við minnihlutastjórn Samfylkingar og VG.51
Með þingsályktun um
viðbrögð við rannsóknarskýrslu Alþingis í september 2010 var m.a. samþykkt að
endurskoða þyrfti stjórnarskrána en um sumarið höfðu verið samþykkt lög um að efna
til stjórnlagaþings.52
Draumur Vilmundar Gylfasonar, Jóhönnu Sigurðardóttur og fleiri
jafnaðarmanna virtist ætla að rætast á miklum umbrotatímum í sögu Íslands. Útlit var
fyrir að möguleiki yrði á endurnýjun stjórnarskrárinnar grundvölluð á hugmyndum
fólksins í landinu án beinna afskipta alþingismanna og framkvæmdarvalds. Alþingi varð
engu að síður að ákveða hvernig farið yrði að því.
STJÓRNLAGAÞING SEM VARÐ AÐ STJÓRNLAGARÁÐI
Ný stjórnarskrá eða breyting á lýðveldisstjórnarskránni var meðal krafna sem settar
höfðu verið fram á mótmælafundum á Austurvelli. Hópur sem kallaði sig Nýtt lýðveldi
hvatti til þess að efnt yrði til þjóðfundar og í kjölfarið til stjórnlagaþings um gerð nýrrar
stjórnarskrár. Gjörvallur þingheimur samþykkti þingsályktun um viðbrögð við skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis í lok september 2010. Þar var eitt af tólf yfirlýstum
markmiðum að breyta stjórnarskránni og fleiri mikilvægum lögum sem snertu starfsvið
Alþingis og ríkisstofnana ýmissa auk fjármálafyrirtækja og fjölmiðla. Alþingi þótti
brýnt að endurskoða starfshætti sína og að taka bæri gagnrýni á íslenska
stjórnmálamenningu mjög alvarlega.
Hugmyndin um stjórnlagaþing, skipað almennum borgurum, á sér nokkuð langa sögu
og á lýðveldistímanum komu snemma fram hugmyndir um að halda slíkt þing. Karl
Kristjánsson fulltrúi Framsóknarflokks í stjórnarskrárnefnd lagði það til skömmu eftir
lýðveldisstofnun, en ekki náðist samkomulag um það.53
Bandalag jafnaðarmanna með
Vilmund í broddi fylkingar lagði ríka áherslu á að efnt yrði til stjórnlagaþings til að
hægt yrði að breyta stjórnarskránni með lýðræðislegum hætti. Fleiri hafa viðrað
samskonar hugmyndir; Jóhanna Sigurðardóttir bar t.d. upp tillögu þess efnis á Alþingi
árið 1994. Skemmst er frá því að segja að frumvarp Jóhönnu var ekki útrætt á þingi, en
51
Viðtal höfundar við Gísla Tryggvason 28. apríl 2014 og „Stjórnlagaþing gæti tekið til starfa í haust.
Breytt stjórnarskrá er skilyrði Framsóknar fyrir stuðningi við minnihlutastjórn“, Morgunblaðið 30. janúar
2009, bls. 10. 52
Sjá: Lög um stjórnlagaþing, nr. 90, 25. júní 2010 og Þingsályktun um viðbrögð Alþingis við skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis 2010, 28. september 2010. 53
Ragnheiður Kristjánsdóttir: „Efasemdir um þingræði“, bls. 143.
Page 20
19
þar gaf að líta kunnugleg stef sem stjórnlagaráð ársins 2011 ákvað að taka til
gaumgæfilegrar skoðunar, eins og nánar verður vikið að síðar.54
Margt í tillögum
Jóhönnu um hvernig staðið skyldi að stjórnlagaþingi rímar við framkvæmdina árið
2010, þegar hún var orðin forsætisráðherra í stjórn Samfylkingar og Vinstri
hreyfingarinnar græns framboðs.
Þessar hugmyndir skutu svo upp kollinum eftir efnahagshrunið, m.a. í tengslum við
kosningu stjórnlagaþings. Eyjólfur Ármannsson, aðstoðarsaksóknari í
efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra, sem bauð sig fram til stjórnlagaþings árið 2010
sagði sorglega lítið hafa breyst frá tíma Vilmundar og að skoðanir hans um breytingar á
stjórnarskránni væru enn í fullu gildi.55
Meðal þess sem Eyjólfur lagði áherslu á í
kosningabaráttu sinni var að valdið kæmi frá þjóðinni sem kjósa skyldi leiðtoga
framkvæmdarvaldsins beinni kosningu. Hér var samhljómur með hugmyndafræði
Vilmundar og Bandalags jafnaðarmanna. Sá munur var þó á að hann vildi að embætti
forsætisráðherra og forseta yrði sameinað. Hann taldi lýðræðislegra ef fólk vissi að
kosningum loknum hvers konar ríkisstjórn tæki við völdum. Sömuleiðis lagði Eyjólfur
ríka áherslu á þrískiptingu ríkisvaldsins og mikilvægi sanngjarnrar kjördæmaskipanar.56
Annar frambjóðandi til stjórnlagaþings, Eiríkur Bergmann Einarsson rakti hvernig
hugmyndir Vilmundar hefðu falið í sér alsherjaruppbrot á stjórnmálakerfinu og hvernig
þær hefðu strandað á samtryggingarkerfi stjórnmálaflokkanna. Hann ræddi um laskað
stjórnkerfi og gerði sér vonir um að fulltrúar á stjórnlagaþingi „dustuðu rykið“ af
hugmyndum Vilmundar og öðrum umbótahugmyndum til aukinnar lýðræðisáttar.57
Baldvin Jónsson, þingmaður Hreyfingarinnar, beitti orðfæri Vilmundar í jómfrúrræðu
sinni á Alþingi í októberbyrjun 2010, kallaði eftir lýðræðisumbótum og krafðist nýrrar
stjórnarskrár, með framtíðarhagsmuni almennings í huga.58
54
Vef. Jóhanna Sigurðardóttir: „Breytt kjördæmaskipan – forsenda framfara“, Jóhanna Sigurðardóttir, 13.
september 1996, http://www.althingi.is/johanna/greinar/safn/000010.shtml, skoðað 30. ágúst 2013. 55
Vef. Eyjólfur Ármannsson: „Flokksræðið gegn fólkinu – Ræða Vilmundar Gylfasonar 23. nóvember
1982“, eyjolfurarmannsson.com, 8.nóvember 2010,
http://eyjolfurarmannsson.com/2010/11/08/flokksr%C3%A6%C3%B0i%C3%B0-gegn-folkinu-
r%C3%A6%C3%B0a-vilmundar-gylfasonar-23-november-1982/, skoðað 30. ágúst 2013. 56
Vef. Eyjólfur Ármannsson: „Verkefni stjórnlagaþings“, Eyjólfur Ármannsson blogg, 25. nóvember 2010,
http://eyjolfurarmannsson.blog.is/blog/eyjolfurarmannsson/, skoðað 22. febrúar 2014. 57
Vef. Eiríkur Bergmann: „Lýðræðishugmyndir Vilmundar“, Eiríkur Bergmann, 18. október 2010,
http://www.dv.is/blogg/eirikur-bergmann/2010/10/18/lydraedishugmyndirvilmundar/, skoðað 30. ágúst
2013. 58
Vef. Baldvin Jónsson: Ræða á 139. Löggjafarþingi, 3. fundi, 4. okt. 2010.
Page 21
20
Ákveðið var á Alþingi að boða til ráðgefandi stjórnlagaþings sem koma skyldi saman
snemma árs 2011, skipað minnst 25 fulltrúum og mest 31, kosnum persónukosningu.59
Það þótti djarfleg ákvörðun í ljósi þess að persónukjöri hafði ekki verið beitt á Íslandi
um áratuga skeið. Í athugasemdum með frumvarpi að lögum um stjórnlagaþing sagði
berum orðum hugmyndin að efna til þingsins hafi kviknað vegna víðtækrar
þjóðfélagsumræðu eftir hrunið um nauðsyn endurskoðunar íslensks stjórnkerfis. Til að
svo mætti verða yrði að breyta stjórnarskrá. Sjónum var einkum beint að aðskilnaði
löggjafarvalds og framkvæmdarvalds, reglum um ábyrgð handhafa
framkvæmdarvaldsins, eflingu eftirlits með starfsháttum stjórnvalda og nokkurs konar
beinu lýðræði með þátttöku almennings í ákvarðanatökum með
þjóðaratkvæðagreiðslum.60
Ríkisstjórn og Alþingi tóku þarna undir hugmyndir
almennings um að lýðveldisstjórnarskráin væri komin að fótum fram og væri jafnvel
einn orsakavalda hrunsins. Sigurður Líndal prófessor emeritus í lögfræði var hins vegar
efins um hugmyndina um stjórnlagaþing; hann taldi að skilgreina þyrfti hvað væri að
gildandi stjórnarskrá áður en hafist yrði handa við smíði nýrrar og óttaðist að til
stjórnlagaþings veldist fólk sem hefði ekki vit á gerð stjórnarskrár. Mat hans var að
gildandi stjórnarskrá væri ágæt þó að endurskoða mætti einhverja þætti hennar, t.d. um
þrískiptingu ríkisvaldsins.61
Þetta viðhorf endurspeglaði þá hugmynd að almenningi
væri ekki treystandi til að kjósa fulltrúa til setu á Alþingi og enn síður að gefa kost á sér
sjálfur enda kallar lagasetning í eðli sínu á sérhæfða þekkingu á ýmsum sviðum. Þótt
ekki hafi margir tekið undir orð Sigurðar á þessum tíma er ljóst að hann var ekki einn
um þessa skoðun. Ýmsir áttu síðar eftir að draga í efa að nauðsynlegt væri að semja
nýja stjórnarskrá á þeirri forsendu að aðrir þættir hefðu valdið hruninu, enda kom það
hvergi fram í rannsóknarskýrslu Alþingis. Gunnar Helgi Kristinsson
stjórnmálafræðingur benti á að meint ójafnvægi milli þings og framkvæmdarvalds væri
birtingarmynd þingræðisins, og engin ástæða til að breyta stjórnarskrá þess vegna.62
„Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana“ á vef Alþingis,
http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20101004T213121.html, skoðað 30. ágúst 2013. 59
Vef. Lög um stjórnlagaþing, nr. 90, 25. júní 2010, 2.gr., á vef Alþingis,
http://www.althingi.is/altext/stjt/2010.090.html, skoðað 30. ágúst 2013. 60
Vef. Sjá 6. lið athugasemda með frumvarpi til laga um stjórnlagaþing, þskj. 168, 152. mál., á vef
Alþingis, http://www.althingi.is/altext/138/s/0168.html, skoðað 30. ágúst 2013. 61
Vef. „Sigurði Líndal líst ekki á stjórnlagaþing - Fulltrúar pólitískir og kunna ekki lögfræði“, á
vefsíðunni Pressan, http://www.pressan.is/m/Article.aspx?catID=6&ArtId=23074, skoðað 30. ágúst 2013. 62
Vef. Gunnar Helgi Kristinsson: „Ráðskast með stjórnarskrá“, Stjórnmál & stjórnsýsla, 2. tbl., 8. árg.
2012, bls. 565, http://skemman.is/stream/get/1946/15936/37977/1/b.2012.8.2.1.pdf, skoðað 7. maí 2014.
Page 22
21
Nýstárlegri aðferð var beitt við kjör fulltrúa til þingsins í nóvember 2010 þar sem hver
kjósandi valdi 25 fulltrúa persónukosningu óháð listum og kjördæmum. Kjörsókn var
fremur dræm á íslenskan mælikvarða eða tæp 37%. Atkvæði voru talin með svokallaðri
„forgangsröðunaraðferð“ (e. Single Transferable Vote) sem hefur verið notuð með
góðum árangri í kosningum á Írlandi um árabil.63
Að kosningum loknum var
framkvæmdin gagnrýnd nokkuð og meint vandkvæði henni fylgjandi notuð sem rök
gegn persónukjöri í almennum kosningum. Þorkell Helgason stærðfræðingur, sem náði
kjöri til stjórnlagaþings, taldi þær efasemdir fyrst og fremst byggjast á óvana og ónógri
kynningu.64
Frambjóðendur voru fjölmargir og því var óttast að athygli kjósenda
beindist að þjóðþekktum eða fjársterkum einstaklingum.65
Það var líklega ekki að
ósekju enda voru niðurstöður kosninganna á þann veg að meirihluti kjörinna
stjórnlagaþingsfulltrúa hafði verið áberandi á ýmsum sviðum þjóðlífsins, mis mikið
þó.66
Fleira þótti gallað við kosningarnar, framkvæmd þeirra var kærð og komst
Hæstiréttur Íslands að þeirri niðurstöðu að ómerkja bæri þær á grundvelli þeirra
annmarka sem kærendur töldu á þeim. Fyrrverandi formaður landskjörstjórnar, Ástráður
Haraldsson, var einn þeirra sem mótmælti þeim úrskurði Hæstaréttar og fullyrti að þeir
ágallar sem rétturinn taldi á kosningunum hefðu ekki haft áhrif á niðurstöðuna.67
En
niðurstaðan var skýr: Af stjórnlagaþingi yrði ekki að óbreyttu.
63
Vef. „Aðferðafræði við kosningu til stjórnlagaþings. Hvernig er kosið til stjórnlagaþings?“ á vef
Landskjörstjórnar, http://www.landskjor.is/stjornlagathing/adferdafraedi-vid-kosningu-til-
stjornlagathings/, skoðað 30. ágúst 2013. 64
Sjá: Vef. Þorkell Helgason: „Greining á úrslitum kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010“,
Stjórnmál & stjórnsýsla, 1. tbl., 7. árg. 2011.
http://skemman.is/stream/get/1946/9664/24605/3/b.2011.7.1.2.pdf, skoðað 2. maí 2014. 65
Sjá t.d.: Sverrir Jakobsson: „Persónukjör að fornu og nýju“, Fréttablaðið, 19. október 2010, bls. 13; Vef.
„Gagnrýnir „óvissuferð“ stjórnlagaráðs“, á vefsíðunni mbl.is,
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/12/13/gagnrynir_ovissuferd_stjornlagarads/, skoðað 10. apríl 2014.
og Vef. Friðrik Friðriksson: „Framboð til stjórnlagaþings nr. 5779“, Friðrik Friðriksson, 17. nóvember
2001, http://blog.pressan.is/fridrikf/2010/11/17/frambod-til-stjornlagathings-nr-5779/, skoðað 2. maí 2014. 66
Eftirtaldir voru kjörnir til setu á stjórnlagaþingi: Andrés Magnússon, læknir, Ari Teitsson, bóndi,
Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor, Ástrós Gunnlaugsdóttir, nemi og stjórnmálafræðingur, Dögg
Harðardóttir, deildarstjóri, Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent, Erlingur Sigurðarson, fyrrverandi
forstöðumaður og kennari, Freyja Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri, Gísli Tryggvason, umboðsmaður
neytenda, Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, Illugi Jökulsson, blaðamaður,
Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlamaður, Katrín Fjeldsted, læknir, Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur, Lýður
Árnason, læknir, Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður, Pawel Bartoszek, stærðfræðingur, Pétur
Gunnlaugsson, lögmaður, Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar, Silja Bára Ómarsdóttir,
alþjóðastjórnmálafræðingur, Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP, Þorkell Helgason,
stærðfræðingur, Þorvaldur Gylfason, prófessor, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Örn Bárður Jónsson,
sóknarprestur. Allir þessir einstaklingar nema Inga Lind Karlsdóttir, þáðu skipan í stjórnlagaráð þegar til
þess var stofnað. Hennar sæti tók Íris Lind Sæmundsdóttir sem hafði við úthlutun landskjörstjórnar raðast
í 26. sæti. 67
„Fyrrverandi formaður landskjörstjórnar gagnrýnir úrskurð Hæstaréttar: Ekki átti að ógilda kosningar“,
Fréttablaðið, 1. febrúar 2011, bls. 2.
Page 23
22
Sjálfstæðismenn, sem alltaf virtust andvígir því að kjósa til stjórnlagaþings, virtust
fagna niðurstöðunni og hvöttu Alþingi að taka stjórnarskrármálið að nýju á forræði sitt,
enda væri það í eðli sínu stjórnlagaþing.68
Ekki var vilji fyrir því og til að bregðast við
þeirri stöðu sem upp kom samþykkti meirihluti þingsins ályktun 24. mars 2011 um að
skipa skyldi 25 manna ráðgefandi stjórnlagaráð. Það skyldi taka við og fjalla um skýrslu
stjórnlaganefndar og gera tillögur um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins. Allir nema
einn þeirra sem kjörnir höfðu verið til stjórnlagaþings þáðu skipunina.69
Þetta var
vitaskuld umdeild ákvörðun, enda má segja að hún hafi grafið undan lögmæti
stjórnarskrármálsins. En augljóst var að stjórnvöld vildu ekki að hugmyndir um
umbætur á stjórnarskránna sigldu í strand vegna úrskurðar Hæstaréttar.
SAMANBURÐUR Á TILLÖGUM VILMUNDAR OG STJÓRNLAGARÁÐS
Á heimasíðu stjórnlagaráðs gaf að líta margt þess efnis sem ráðið lagði til grundvallar
vinnu sinni; þar má. t.d. nefna stjórnarskrár ýmissa ríkja, skýrslur, bókakafla og
blaðagreinar um stjórnarskrármál, þ. á m. grein Gylfa Þ. Gíslasonar sem Vilmundur
lagði til grundvallar þingsályktunartillögu sinni. Þar mátti einnig sjá eldri stjórnarskrár
Íslands, frumvörp þeirra ásamt tillögum að stjórnarskrárbreytingum og fleira þess eðlis.
Stjórnlagaráð leit svo á að vilji þjóðfundar 2010 væri leiðbeinandi fyrir stefnumótun
þess, „leiðarvísir um vilja þjóðarinnar“.70
Ráðið þurfti og að taka tillit til margvíslegra
alþjóðasáttmála sem Ísland er aðili að og hafa áhrif á innlenda lagasetningu.
Stjórnlagaráð afhenti forseta Alþingis tillögur sínar að nýrri stjórnarskrá 29. júlí 2011 og
með þingsályktun samþykkti þingið að efna til ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um
þær 20. október 2012. Frumvarp stjórnlagaráðs er í níu köflum sem skiptast í 114
greinar og um margt kveður þar við nýjan tón frá lýðræðisstjórnarskránni. Þótt
68
Vef. Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í samráðsnefnd um viðbrögð við ákvörðun Hæstaréttar um
ógildingu kosninga til stjórnlagaþings, á vef Forsætisráðuneytisins,
http://www.forsaetisraduneyti.is/media/frettir1/Birgir-alit-24-2.pdf, skoðað 7. maí 2014. 69
Verkefni stjórnlagaráðs: Stjórnlagaráð taki sérstaklega til umfjöllunar eftirfarandi þætti:
1. Undirstöður íslenskrar stjórnskipunar og helstu grunnhugtök hennar.
2. Skipan löggjafarvalds og framkvæmdarvalds og valdmörk þeirra.
3. Hlutverk og stöðu forseta lýðveldisins.
4. Sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkisvalds.
5. Ákvæði um kosningar og kjördæmaskipan.
6. Lýðræðislega þátttöku almennings, m.a. um tímasetningu og fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu,
þar á meðal um frumvarp til stjórnarskipunarlaga.
7. Framsal ríkisvalds til alþjóðastofnana og meðferð utanríkismála.
8. Umhverfismál, þar á meðal um eignarhald og nýtingu náttúruauðlinda. 70
Vef. „Er Stjórnlagaráði skylt að fara eftir niðurstöðu þjóðfundarins 2010?“, Spurt og svarað á vef
Stjórnlagaráðs, http://stjornlagarad.is/upplysingar/spurt-og-svarad/, skoðað 7. apríl 2014.
Page 24
23
stjórnlagaráðsmenn hefðu ekki verið sammála um einstaka greinar styrkti það tillöguna
að allt stjórnlagaráðið skyldi hafa staðið að henni. Þorvaldur Gylfason taldi að sá tími
sem stjórnlagaráði hefði verið ætlaður til verksins hefði verið vel nægur, enda hefði
stjórnarskrá Bandaríkjanna verið samin á fjórum mánuðum.71
Norski fræðimaðurinn Jon
Elster benti réttilega á að nútímasamfélag væri öllu flóknara og því hefði mátt gefa
ráðinu rýmri tíma til verksins, enda fór svo að starfstíminn var framlengdur nokkuð.72
Í
upphafi var tekin sú ákvörðun að allar niðurstöður yrðu einróma. Það þýddi alls ekki að
allir væru alltaf sammála eða að stjórnlagaráðsliðar þegðu um hugmyndir sínar, heldur
voru mál rædd uns sameiginleg niðurstaða náðist.73
Í lokin var þó kosið um nokkrar
veigamiklar breytingartillögur – þar sem meirihlutavilji réði – og þær atkvæðagreiðslur
höfðu áhrif á lokaniðurstöðuna.
Kjörsókn var ekki mikil á íslenskan mælikvarða í atkvæðagreiðslunni um tillögur
stjórnlagaráðs, eða um 49%. Það gæti bent til að viljinn til að breyta stjórnarskránni
hafi ekki verið jafn almennur og haldið hafði verið fram. Einar Franz Ragnars leiðir
einnig líkum að því í lokaritgerð sinni í stjórnmálafræði.74
Nokkur ágreiningur hafði
skapast um frumvarpið sjálft og þær tillögur sem bornar voru undir atkvæði, og kann
það að skýra dræma kjörsókn. Niðurstaðan var þó afgerandi; tæp 70% þeirra sem
greiddu atkvæði voru því meðmælt að tillögurnar yrðu lagðar til grundvallar frumvarpi
að nýrri stjórnarskrá.75
Eftir atkvæðagreiðsluna var tekið til við að búa frumvarpið undir
þinglega meðferð. Þorvaldur Gylfason var mjög áfram um að stjórnarskrárfrumvarpið
hlyti brautargengi og óttaðist að færi svo að Alþingi gengi gegn vilja fólksins eftir
samþykki tillagna stjórnlagaráðs yrðu pottar og pönnur á ný teknar út úr
eldhússkápunum.76
Þorvaldur hefur ekki reynst sannspár þar. Björg Thorarensen
lagaprófessor hafði reyndar talið að ótímabært hefði verið að ganga til atkvæðagreiðslu
um tillögurnar á þeim tíma sem gert var.77
71
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason á vefsvæðinu Hjari veraldar, http://hjariveraldar.is/,
skoðað 26. ágúst 2013. 72
Vef. „Að takmarka áhrif hagsmuna, ástríðna, fordóma og hlutdrægni“, á vefsíðunni mbl.is,
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1375206/, skoðað 7. maí 2014. 73
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014. 74
Einar Franz Ragnars: „Frá Búsáhaldabyltingu til Stjórnlagaþings : hver eru tengslin á milli
Búsáhaldabyltingarinnar og Stjórnlagaþings?“, óbirt BA ritgerð í stjórnmálafræði (Bifröst) 2011, bls. 28.
Page 25
24
OFURVALD STJÓRNMÁLAFLOKKANNA
Frumvarp stjórnlagaráðs er mikið að vöxtum enda er þar litið til fjölmargra þátta
samfélagsins. Framundan er samanburður á nokkrum veigamiklum atriðum þess borin
saman við hugmyndir Vilmundar Gylfasonar frá því nokkrum áratugum áður. Auk þess
munu ýmsar aðfinnslur, ábendingar og lof sem ráðið fékk varðandi hvert atriði verða
tíunduð.
Aðfinnslur Vilmundar á íslenskt stjórnmálalíf sneru ekki síst að áhrifum
stjórnmálaflokkanna, sem honum fannst drottna yfir samfélaginu á nánast öllum sviðum
þess. Í þingræðunni 23. nóvember 1982 talaði hann um mikilvægi frelsis, en lokað
valdakerfi flokkana hefði brugðist fólkinu í landinu og að „varðhundar valdsins“ hefðu
teygt anga sína um allt samfélagið, dregið úr möguleikum fólks til allra tækifæra og
aðeins verið fulltrúar sjálfra sín og sinna hagsmuna. Hann fullyrti að valdakerfið væri
ósæmilegt og andlýðræðislegt, það hefði gert hvað það gæti til að bæla þá niður sem
krefðust breytinga. 78
Hluti gagnrýni hans snerist einnig um að stjórnmálamaður sem léti
flokkinn taka of mikið af tíma sínum gæti lent í að vanrækja kjósendur sína og
viðurkenndi að á annatímum hefði það hent hann sjálfan.79
Svipuð viðhorf mátti greina
innan stjórnlagaráðs. Vilhjálmur Þorsteinsson var t.d. þeirrar skoðunar að styrkur
flokkanna hefði verið of mikill og þeir nánast stjórnað lýðræðinu. Hann vildi draga
hæfilega úr valdi þeirra, auka persónukjör og virtist sammála Vilmundi um að gefa
kjósendum kost á að að kjósa frambjóðendur þvert á flokka.80
Sú
grundvallarhugmyndafræði sem Vilmundur starfaði eftir hafði meiri áhrif á Katrínu
Oddsdóttur en orð hans sjálfs.81
Hún hafði vakið athygli fyrir skörulega framgöngu á
útifundum á Austurvelli haustið 2008 þar sem hún sakaði ráðamenn um svik við þjóðina
og mannréttindabrot.82
Aðkoma hennar og fleiri að stjórnlagaráði virðist endurspegla
þær kröfur sem uppi voru í samfélaginu eftir hrun. Henni þótti afar mikilvægt að takast
á við spillingu í stjórnmálum og embættismannakerfinu auk þess sem hún taldi sig geta
gert samfélaginu gagn innan stjórnlagaráðs án þess að stíga inn í það sem hún kallaði
78
Vilmundur Gylfason: Ræða um vantraust. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 79
Ódagsett viðtal, Helgi H. Jónsson við Vilmund Gylfason. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 80
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Stefnumál“, Vilhjálmur Þorsteinsson fulltrúi í stjórnlagaráði, ódagsett.
http://vthorsteinsson.wordpress.com/stefnumal/, skoðað 10. apríl 2014. 81
Viðtal höfundar við Katrínu Oddsdóttur, 21. apríl 2014. 82
Vef. „Mikill hiti í mótmælafundi dagsins: „Ef ráðamenn ekki hypja sig munum við bera þá út“ “, á
vefsíðunni Eyjan 22. nóvember 2008, http://eyjan.pressan.is/frettir/2008/11/22/mikill-hiti-i-
motmaelafundi-a-austurvelli-ef-radamenn-ekki-hypja-sig-vid-munum-vid-bera-tha-ut/, skoðað 22. apríl
2014.
Page 26
25
„ógnarspilltan heim“ stjórnmálanna.83
Hugmyndir og samfélagsgreining Vilmundar
mótuðu að töluverðu leyti skoðanir Gísla Tryggvasonar. Hann taldi skort á
valddreifingu vera einn meginvanda samfélagsins, en var þeirrar skoðunar að bætt
regluverk um embættismenn, stjórnmálamenn og um valdablokkir væri hluti af
lausninni.84
SKIPTING RÍKISVALDSINS OG ÆÐSTA STJÓRN RÍKISINS
Í greinum þeim sem Vilmundur lét fylgja með þingsályktunartillögu sinni árið 1983
töldu Gylfi Þ. Gíslason og Ólafur Jóhannesson báðir mikla þörf á að þrískipting
ríkisvaldsins væri skýr.85
Vilmundur bætti því við að valdþættirnir ættu að vera óháðir
hver öðrum einkum við alla ákvarðanatöku til að tryggja réttaröryggi fólks.86
Katrín
Oddsdóttur var á sama máli, en hún taldi jafnframt þætti ríkisvaldsins fleiri en þrjá, t.d
fjölmiðlavald og auðvald.87
Ríkisvaldið hefur líkt og samfélagið sjálft gerst æ flóknara
og því er mat Katrínar og Gísla Tryggvasonar um margskiptingu ríkisvalds án efa á
rökum reist. Þættir á borð við fyrirsvar í utanríkismálum, fjárstjórnarvald og jafnvel
eftirlitshlutverk gætu talist sjálfstæðir hlutar ríkisvaldsins.88
Almennt má greina mikinn
vilja innan stjórnlagaráðs til að skerpa á aðgreiningu þátta ríkisvaldsins og auka aðhald
milli þeirra; það virðist í raun vera meginstefið í drögum stjórnlagaráðs hvað ríkisvaldið
snertir. 89
Vilmundur bar saman franskt stjórnkerfi sem byggist á fjölflokkakerfi þar sem
forsetaþingræði ríkir og tveggja flokka kerfi Bandaríkjanna með forsetaræði og fullyrti
að fjölflokkakerfið á Íslandi hafi ekki dugað til að koma saman starfhæfri ríkisstjórn.
Sú var reyndin eftir tvennar kosningar með stuttu millibili á árunum 1978 og 1979 þegar
langan tíma tók að mynda starfhæfar ríkisstjórnir og atgangur í stjórnmálunum var
gríðarlegur. Reyndar er fullyrðing Vilmundar fremur pólítískt álitamál en fræðilegt og
kann menn að greina á um hæfi ríkisstjórna á lýðveldistímanum öllum en ástandið eftir
fyrrnefndar kosningar minnti mjög á pólítíska vandræðaganginn á árunum kringum
lýðveldisstofnun. Þá fór svo að ríkisstjóri myndaði utanþingsstjórn sem ætla má að
flokkshollir stjórnmálamenn hafi aldrei viljað láta henda aftur. Sömuleiðis má deila um
83
Viðtal höfundar við Katrínu Oddsdóttur, 21. apríl 2014. 84
Viðtal höfundar við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014. 85
Gylfi Þ. Gíslason: „Lýðræði og stjórnfesta“, bls. 121. 86
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna, bls. 7. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 87
Viðtal höfundar við Katrínu Oddsdóttur, 21. apríl 2014. 88
Viðtal höfundar við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014. 89
Viðtal höfundar við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014.
Page 27
26
hvort beint kjör forsætisráðherra tryggi alltaf bestu og starfhæfustu ríkisstjórn á hverjum
tíma. Samkvæmt tillögum stjórnlagaráðs væri það í höndum Alþingis að kjósa
forsætisráðherra, sem hlýtur að styrkja þingræðið mjög, en gæti hins vegar dregið úr
pólítísku sjálfstæði ráðherrans.
Líklegt er að forsætisráðherra sem hefði algert sjálfræði um skipan ríkisstjórnar sinnar
myndi velja til starfa fólk með sérþekkingu á hverju sviði, þótt ekki sé útilokað að hann
gæti látið aðrar ástæður ráða vali sínu. Á Íslandi hafa pólítískir ráðherrar sjaldan verið
sérfræðingar í sínum málaflokki þótt undantekningar séu á því. Það veldur því að þeir
sem fara með æðstu stjórn framkvæmdarvaldsins þurfa að reiða sig mjög á
embættismenn sem eiga þó í orði kveðnu að teljast undirmenn þeirra.90
Til marks um
hve sú skipan mála þykir eðlileg í íslensku stjórnsýslunni má nefna að Þórhildur
Þorleifsdóttir var ekkert endilega hlynnt því að ráðherrar væru sérfræðingar, enda sæju
embættismenn um þá hlið mála.91
Nokkrir stjórnlagaráðsliða vildu byggja á fyrirliggjandi þingræðisfyrirkomulagi sem
ekki er reist á aðgreiningu valdþáttanna heldur samþættingu þeirra. Löggjafar- og
framkvæmdarvaldið er í því kerfi samþætt nánast á sömu hendi sem sumir telja vera
eina af meinsemdum ríkjandi kerfis. Aðrir vildu skilja algerlega milli valdþátta og vildu
taka upp forsetaræði, sem felst í því eins og áður sagði, að leiðtogi ríkisstjórnar verði
kosinn sérstaklega. Þar með situr framkvæmdarvaldið ekki í skjóli þingsins.
Niðurstaðan varð sú að byggja áfram á þingræðisfyrirkomulaginu, en skilja eins vel á
milli valdþáttanna og hugsast gæti.92
VALDMÖRK ALÞINGIS
Eftir efnahagshrunið dalaði traust almennings til Alþingis mjög. Svanur Kristjánsson
stjórnmálafræðingur virðist rekja það til þess að lagasetning þingsins sé um of í þágu
sérhagsmuna og forréttindahópa.93
Það leiðir hugann að harðorðri gagnrýni Vilmundar
Gylfasonar sem fullyrti að þingmenn væru þröng valdaklíka sem hefði brugðist fólkinu í
landinu. Hugmyndir Vilmundar til úrbóta gerðu ráð fyrir að löggjafarþingið yrði kosið
90
Sjá Ólafur Jóhannesson: Lög og réttur, bls. 22. 91
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014. 92
Vef. Kynning stjórnlagaráðs á störfum sínum, í Borgarbókasafni 24. október 2011, ræða Eiríks
Bergmanns Einarssonar á vefsíðunni Hjari veraldar, http://video.hjariveraldar.is/19_Stj_kynning_3.html,
skoðað 28. ágúst 2013. 93
Svanur Kristjánsson: „Lýðræðisbrestir íslenska lýðveldisins“, bls. 242.
Page 28
27
til fjögurra ára í senn á ári sem forsætisráðherra væri ekki kosinn. Hann gerði ráð fyrir
að Alþingi starfaði í einni málstofu, eins og raunin varð árið 1991. Einhver
mikilvægasta hugmyndin í tillögu Vilmundar var að yrðu þingmenn ráðherrar vikju þeir
sæti og varamaður tæki við. Með þessu vildi hann tryggja þingræðið enn frekar og
skerpa á þrískiptingu valdsins. Svipaðar hugmyndir voru uppi í stjórnlagaráði. Þótt
Þórhildur Þorleifsdóttir segðist ekki hafa leitt hugann að kenningum Vilmundar þótti
henni mikilvægt að stuðla að valddreifingu með slíkum aðskilnaði löggjafar- og
framkvæmdarvalds. Í raun vildi hún styrkja löggjafarvald á kostnað
framkvæmdarvaldsins með því t.d. að ráðherrar væru ekki þingmenn heldur tækju
varamenn sæti þeirra.94
Sú varð enda niðurstaða stjórnlagaráðs.
Í annarri grein draga stjórnlagaráðs segir að Alþingi fari með löggjafarvald í umboði
þjóðarinnar; forseti, ráðherrar og ríkisstjórn ásamt öðrum stjórnvöldum með
framkvæmdarvaldið og Hæstiréttur Íslands með dómsvald ásamt öðrum dómstólum.
Ekki er annað að sjá en hér sé á ferðinni hefðbundin þrískipting ríkisvaldsins sem
Vilmundur taldi harla marklitla. Ekki er óeðlilegt að vangaveltur komi upp um
raunverulega þrískiptingu ríkisvaldsins þegar raunin hefur verið sú að Alþingi velur
ráðherra sem síðan skipar dómendur. Stjórnlagaráðið hafði í huga að skerpa þessi mörk,
og skýra verkefni og ábyrgð hvers þáttar ríkisvaldsins.95
Forseti er ekki lengur sagður
fara með löggjafarvald ásamt þinginu í frumvarpi stjórnlagaráðs, heldur er hann fremur
hluti framkvæmdavarldsins. Hann getur áfram synjað lögum staðfestingar sem halda þó
gildi sínu en þurfa staðfestingar með í þjóðaratkvæðagreiðslu.96
Valdmörk og mótvægi valdþáttanna þriggja gerir að verkum að þeir fylgist hver með
öðrum og fara hver inn á vettvang annars sem hafði verið grunnhugsunin að baki
stjórnarskrár Bandaríkjanna og þingræðisríkja; frumvarp stjórnlagaráðs er engin
undantekning frá þeirri reglu.97
Vilhjálmur Þorsteinsson lagði upp með hugmyndir um
að Alþingi annaðist eftirlit og aðhald með framkvæmdarvaldinu til að gæta
almannahagsmuna. Jafnframt skyldi stefnumótun á helstu sviðum samfélagsins vera á
hendi þingsins sem það svo fæli ríkisstjórninni til framkvæmdar.98
Það taldi Vilhjálmur
94
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014. 95
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum“, bls. 35. 96
Sama heimild. 97
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason. Skoðað 26. ágúst 2013. 98
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Stefnumál“. Skoðað 10. apríl 2014.
Page 29
28
að yki sjálfstæði þings gagnvart framkvæmdarvaldinu enn frekar. Niðurstaða
stjórnlagaráðs varð að þriðjungur þingmanna gæti krafið stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd til að rannsaka athafnir og ákvarðanir ráðherra. Þó var ekki að sjá að
nefndinni bæri að fara að þeirri kröfu nema henni þætti ástæða til. Sömuleiðis gerðu
tillögurnar ráð fyrir möguleika á skipun ýmiskonar rannsóknarnefnda um mál mikilvæg
almenningi.99
FORSÆTISRÁÐHERRA KJÖRINN BEINNI KOSNINGU
Forsætisráðherra hefur fram til þessa verið oddviti þess flokks sem best gengi hlýtur í
alþingiskosninum þótt einhverjar undantekningar hafi verið á því. Einatt hefur orðið að
skipa samsteypustjórnir sem hafa þurft að komast að samkomulagi um skipun helstu
stefnumála sinna. Þingsályktunartillaga Vilmundar gerði ráð fyrir að landið allt yrði eitt
kjördæmi við kosningu á forsætisráðherra sem væri valinn til fjögurra ára í senn.100
Um
miðjan tíunda áratuginn lagði Jóhanna Sigurðardóttir til að mörkuð yrðu skýrari skil
milli löggjafar- og framkvæmdarvalds. Henni þótti og mikilvægt að kveða úr um hvort
ráðherrar sætu á þingi og að ótvíræðar reglur giltu um ábyrgð ráðherra.101
Samkvæmt
tillögum stjórnlagaráðs skyldi Alþingi kjósa forsætisráðherra að tillögu forseta eftir
ábendingum þingflokka og þingmanna.102
Slík ráðstöfun er líkt og lögfesting þeirrar
aðferðar sem tíðkast hefur um áratugaskeið.
Vilmundur taldi að kjördæmahallinn breyttist með því að landið yrði eitt kjördæmi við
kjör forsætisráðherra en kjördæmaskipun óbreytt við alþingiskosningar. Þannig myndi
þéttbýli hagnast á breytingunni.103
Sú mikla búsetubreyting sem varð á Íslandi á 20. öld
skapaði misvægi atkvæða, dreifbýli í hag. Ekki hefur enn náðst fullkomlega að vinda
bug á því. Í þingsályktunartillögu sinni gerði Vilmundur ráð fyrir að forsætisráðherra
skipaði ríkisstjórn sína úr hópi manna utan eða innan þings.104
Þetta taldi Vilmundur að
tryggði jafnvægi atkvæða og minnkaði ítök þingsins við stjórnarmyndun.
99
Ný stjórnarskrá Íslands, bls. 34. 100
Alþingistíðindi A 1982, bls. 802. 101
Vef. Jóhanna Sigurðardóttir: „Breytt kjördæmaskipan – forsenda framfara“. Skoðað 30. ágúst 2013. 102
Ný stjórnarskrá Íslands, bls.47. 103
Alþingistíðindi A 1982, bls. 802. 104
Sama heimild.
Page 30
29
Í stjórnlagaráðinu tók Vilhjálmur Þorsteinsson undir þessi sjónarmið og taldi einnig að
draga myndi úr valdi stjórnmálaflokka og frelsi þingsins aukast.105
Sömuleiðis var hann
þeirrar skoðunar að þessi aðferð mundi styrkja jafnt framkvæmdarvald og löggjafarvald
auk þess sem vönduð vinnubrögð ráðherra yrðu tryggari með þessari leið.106
Mikilvægast þótti Vilmundi að stjórnarmyndunarviðræður færu í þessu nýja kerfi í raun
fram fyrir kosningar, sem væri réttmætast gagnvart kjósendum.107
Nokkrir
stjórnlagaráðsliðar tóku í svipaðan streng m.a. Þorvaldur Gylfason og Pétur
Gunnlaugsson, en hinn síðarnefndi átti sæti í valdþáttanefnd stjórnlagaráðsins sem
skyldi meta hvers konar stjórnkerfi skyldi verða á Íslandi til framtíðar.108
Þýðingarmikið
væri að viðhalda tryggu þingræði með því að forsætisráðherra myndaði ríkisstjórn sem
nyti trausts þingsins.109
Þingræðisregla gerir ráð fyrir að þing styðji eða umberi ríkisstjórn og ekki er að sjá að
tillögur Vilmundar gangi í bága við þá grundvallarhugmynd. Hins vegar vildi hann
ógna valdi stjórnmálaflokka í þeim yfirlýsta tilgangi að draga úr spillingu. Vilmundur
taldi að þjóðkjör styrkti forsætisráðherrann í sessi, en á móti gæti það veikt stöðu hans
að hafa ekki heimild til þingrofs.110
Andstæðingum tillögu Vilmundar fannst einum
manni falið of mikið vald, að hún væri atlaga að þingræðinu og fæli í sér
spillingarhættu.111
Þórhildur Þorleifsdóttir taldi að beinni kosningu forsætisráðherra
fylgdu kostir, en ekki síður gallar, þar sem slíkar hugmyndir einkenndust af kröfu um
sterkan leiðtoga byggðum á feðraveldishugmyndum nánast um fulltrúa guðs á
toppnum.112
Ástæðan til þess að ekki var ákveðið að fara þá leið að forsætisráðherra yrði kosinn
beinni kosningu var sú að þjóðkjör stjórnmálamanna og embættismanna tíðkaðist ekki í
þingræðisríkjum á borð við Ísland heldur væru þeir kjörnir óbeint. Forsetinn er
þjóðkjörinn, en ekki valinn af þinginu eins og víða tíðkast. Völd forsetans samkvæmt
105
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Eiga hugmyndir Vilmundar Gylfasonar erindi í umræðuna?“ Skoðað 2.
nóvember 2010. 106
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Stefnumál“. Skoðað 10. apríl 2014. 107
Vilmundur Gylfason: „Franskt stjórnarfar og íslenskar aðstæður“. 108
Viðtal höfundar við Pétur Gunnlaugsson í ágúst 2013. 109
Vilmundur Gylfason: Vinnuplagg fyrir þingflokksfund Alþýðuflokks, bls. 1. Gögn úr fórum Jóns
Orms Halldórssonar. 110
„Á herinn að vera? Símar flokkanna. Vilmundur Gylfason á beinni línu hjá DV“, DV, 29. mars 1983,
bls. 15. 111
„Tillögur Vilmundar ræddar á þingi“, Þjóðviljinn,10. mars 1983, bls. 6. 112
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014.
Page 31
30
tillögum stjórnlagaráðs, t.d. að vísa lögum til þjóðaratkvæðagreiðslu og að synja skipun
dómara, byggðust á því að hann væri kjörinn af þjóðinni. Það væri til marks um
valdmörk og mótvægi um hvernig ólíkir þættir stjórnskipulagsins hefðu eftirlit hver með
öðrum til að girða fyrir misbeitingu.113
Þórhildur Þorleifsdóttir taldi að ef stjórnlagaráð
hefði lagt fram tillögu um beina kosningu forsætisráðherra hefði það getað valdið
miklum deilum og tekið athyglina frá öðrum og mikilvægari málum.114
Í valdþáttanefndinni skutu fleiri hugmyndir upp kollinum t.d. um forsetaþingræði líkt
og tíðkast í Frakklandi.115
Vilmundur Gylfason hafði mjög aðhyllst franska
stjórnskipan, franskt forsetaræði og franskan sósíalisma eins og áður hefur komið fram.
Sumir stjórnlagaráðsmenn, eins og t.d. Eiríkur Bergmann Einarsson, töldu að slíkt
fyrirkomulag væri ekki til staðar á Íslandi ólíkt Þorvaldi Gylfasyni. Þórhildur var
sammála Eiríki og fannst ekki vera til áþreifanleg sönnun fyrir að forsetaræði væri betri
lausn fyrir íslenskt stjórnkerfi en sú aðferð sem hér hefur tíðkast. Enda mun
hugmyndinni fljótlega hafa verið ýtt til hliðar þótt ýmsir stjórnlagaráðsliðar væru af
ýmsum ástæðum áhugasamir fyrir þeirri leið.116
Gísli Tryggvason sem hafði verið
hlynntur hugmyndafræði Vilmundar um beint kjör forsætisráðherra féll frá þeirri
hugmynd, enda taldi hann forsetaræði ekki leysa vanda íslensks samfélags. Á hinn
bóginn studdi hann og vann að breytingum á stjórnarskránni innan ramma
þingræðisins.117
Greina má ágreining meðal fræðimanna um hvort á Íslandi ríki forsetaþingræði. Svanur
Kristjánsson hefur fullyrt að Sveinn Björnsson ríkisstjóri og þjóðin hafi hafnað alvaldi
Alþingis og stjórnmálaflokka í aðdraganda lýðveldisstofnunar. Hann segir að í
lýðveldisstjórnarskránni sé kveðið á um forsetaþingræði sem byggi á þjóðkjöri forsetans
og málsskotsrétti hans samkvæmt 26. gr. stjórnarskrárinnar, eins konar „tvíveldi“
forseta og þings.118
Með beinu kjöri forsætisráðherra virðist Vilmundur hafa litið svo á
að skref væri stigið í átt til beins lýðræðis og boðaði fleiri breytingar til að sporna við
því sem hann kallaði þröngt og lágkúrulegt flokksræði.119
Svo er að sjá að Svanur telji
að með lýðveldisstjórnarskránni hafi orðið til skjal sem tryggði styrka stjórn landsins af
113
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason. Skoðað 27. ágúst 2013. 114
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014. 115
Vef. Kynning stjórnlagaráðs á störfum sínum. Skoðað 28. ágúst 2013. 116
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014. 117
Viðtal höfundar við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014. 118
Svanur Kristjánsson: „Frá nýsköpun lýðræðis“, bls.58-60. 119
Vilmundur Gylfason: Ræða um vantraust. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Page 32
31
hálfu Alþingis og ríkisstjórnar með beinni aðkomu fólksins í landinu gegnum
þjóðaratkvæðagreiðslur.120
Óhætt er að fullyrða að þróunin hafi orðið á annan veg, enda
upphófst hörð gagnrýni á stjórnarskrána strax eftir að hún var samþykkt. Það var ekki
fyrr en tæpum sjötíu árum eftir lýðveldisstofnun að fyrst var gengið til
þjóðaratkvæðagreiðslu á grundvelli 26. greinarinnar, sem fram að þeim tíma hafði
jafnvel verið talin dauður bókstafur. Í sextíu ár fengu Íslendingar aldrei að greiða
atvæði um mikilvægar ákvarðanir stjórnvalda. Sú beina aðkoma sem greina mátti í
stjórnarskránni var aldrei virkjuð og til varð fámennt ríkisvald sem stóð vörð um eigin
sérréttindi.121
Tillögum stjórnlagaráðs var ætlað að breyta því líkt og nánar verður vikið
að síðar.
ÓHÁÐIR OG ÓVILHALLIR DÓMSTÓLAR
Þingsályktunartillaga Vilmundar Gylfasonar sneri ekki að dómsvaldinu beint þótt hann
væri alla tíð mjög gagnrýninn á íslenskt dómskerfi.122
Hann hafði bent á að það væri
valdhlýðið, of háð framkvæmdarvaldinu og hefði hagað sér í takti við vilja þess. Auk
þess taldi hann langt í frá að allir væri jafnir fyrir lögunum, sem væri þó grundvöllur
réttláts samfélags.123
Að hans dómi yrðu Hæstaréttardómarar að vera algerlega
sjálfstæðir, óbundnir framkvæmdar- og löggjafarvaldi og tilbúnir að dæma aðeins eftir
eigin sannfæringu og lögum.124
Um tíma velti Vilmundur jafnvel fyrir sér að taka upp
notkun kviðdóms í undirrétti sem virðist eiga ágætlega við kenningar hans um jafnræði
einstaklinga.125
Hann talaði einnig um að mannréttindi væru brotin af hálfu dómstóla til
að þjóna hagsmunum ríkisvaldsins og nefndi dæmi af því sem honum fannst athugavert
við embættisfærslu sýslumanns eins í því sambandi.126
Í kjölfarið sagði Vilmundur að
allir samtryggingarþættir samfélagsins hafi farið af stað til varnar sýslumanninum.127
Aðrir hafa tekið undir orð Vilmundar; Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður
snupraði t.d. dómstóla fyrir að vera of hallir undir framkvæmdarvaldið og að þeir felldu
athugasemdalaust dóma byggða á lögum sem færu á svig við alþjóðasamninga og
stjórnarskrá.128
Í ljósi þeirra orða er kaldranlegt að í eðli sínu var stjórnlagaráðið sjálft
120
Svanur Kristjánsson: „Frá nýsköpun lýðræðis“, bls. 61. 121
Svanur Kristjánsson: „Lýðræðisbrestir íslenska lýðveldisins“, bls. 282. 122
Ólafur Jóhannesson: „Hugleiðingar um stjórnarskrána“ og Gylfi Þ. Gíslason: „Lýðræði og stjórnfesta“,
bls. 122. 123
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna, bls. 7-9. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 124
Sama heimild, bls. 15. 125
Sama heimild, bls. 13. 126
Alþingistíðindi A 1982, bls. 384. 127
Vilmundur Gylfason: Ræða um vantraust. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 128
Jón Steinar Gunnlaugsson: Deilt á dómarana (Reykjavík 1987), bls. 11-22.
Page 33
32
skipað að fenginni niðurstöðu þingnefndar sem felldi úrskurð Hæstaréttar um ógildingu
stjórnlagaþingskosninganna úr gildi. Löggjafarvaldið gekk þar með inn á svið
dómstólsins í meintu hagræðingarskyni.
Þegar Vilmundur varð dómsmálaráðherra árið 1979 sagðist hann ekki ætla að taka fram
fyrir hendur dómsvaldsins í nokkrum umdeildum sakamálum vegna þess hve þrískipting
ríkisvaldsins væri honum mikilvæg.129
Vilmundur sagði að það væri ekki hægt að
umbylta kerfi á nokkrum mánuðum og hefur sennilega áttað sig á að daglegt amstur
stjórnmálanna tekur oft athyglina frá grundvallaratriðum.130
Það er til marks um ólguna
í stjórnmálum þessa tíma að hann varð fyrir allmikilli gagnrýni þótt hann sæti ekki í
embætti nema um nokkurra mánaða skeið. Jónas Kristjánsson ritstjóri sakaði Vilmund
t.d. um spillingu, undir rós þó, eftir að hann skipaði flokksbróður sinn í embætti
umboðsmann almennings.131
Svipaða gagnrýni mátti hann þola af hálfu fleiri dagblaða.
Sömuleiðis þótti sem hann skreytti sig stolnum fjöðrum hvað snerti nokkur umbótamál
sem höfðu verið til umfjöllunar í ráðuneytinu, þar á meðal löggjöf um svokallaða
lögréttu.132
Svo lyktaði að sérstök umræða varð á Alþingi þar sem nokkuð hart var
gengið að Vilmundi vegna embættisveitinga hans.133
Eldhuganum kann að hafa fundist
heldur hægt ganga að gera breytingar innan frá í kerfinu, enda fékk hann ekki marga
mánuði til þess á ráðherrastóli. Með því að skipa flokksbræður sína og félaga í mikilvæg
ný embætti gaf hann sömuleiðis færi á harðri gagnrýni sem varð að líkum óvægnari
vegna fyrri afstöðu hans sjálfs. Þótt hann hafi hugsanlega talið að skipun manna sem
hann þekkti og treysti gæti hraðað framþróun skapaðist sú hætta að þær ákvarðanir
snerust upp í andstæðu sína um leið og umbótamaðurinn tók upp siði þeirra sem hann
átaldi hvað harðast.
Sú orðalagsbreyting er í tillögum stjórnlagaráðs að Hæstiréttur Íslands og aðrir
dómstólar fari með dómsvald. Skipan dómstóla utan hæstaréttar skal ákveðin með
129
„Vilmundur Gylfason dómsmálaráðherra: Haukur verður ekki náðaður – mál Sólness vandlega
kannað“, Dagblaðið, 16. október 1979, bls. 1. 130
„Það er óravegur frá kerfinu til fólksins“. Vilmundur Gylfason ráðherra í samtali við Helgarblaðið“,
Vísir, 20. nóvember 1979, bls. 6. 131
Jónas Kristjánsson: „Fjölgun í möppudýralandi“, Dagblaðið,15. janúar 1980, bls. 10. 132
„Eiríkur Tómasson um yfirlýsingar Vilmundar: „Nær öll málin voru í vinnslu““, Dagblaðið,10.
nóvember 1979, bls. 7. Sjá einnig „Steingrímur Hermannsson: Allt tal Vilmundar Gylfasonar sem
dómsmálaráðherra er eintóm auglýsingastarfsemi“, Tíminn,17. nóvember 1979, bls. 13. 133
„Umræður um embættisveitingar dómsmálaráðherra á Alþingi“, Morgunblaðið, 11. janúar 1980, bls.
15.
Page 34
33
lögum líkt og nú er, og dómendur skulu eingöngu fara að lögum í embættisverkum
sínum. Gert virðist ráð fyrir að ráðherra skipi alla dómara og veiti þeim lausn en
sjálfstæði þeirra skuli tryggt með sérlögum. Ráðherra skipar sömuleiðis ríkissaksóknara
sem skal vera sjálfstæður og verndaður með sama hætti og dómarar, með lögum.134
Landsdómur hverfur úr stjórnarskrá. Þótt ekki sé tilgreint í frumvarpinu hvaða ráðherra
skipi þessa embættismenn má líta svo á að dómsmála- eða innanríkisráðherra geri það.
Án efa væri hægt að deila um hversu mjög þessi ráðstöfun styrkir þrískiptingu ríkisvalds
þar sem fulltrúi framkvæmdarvaldsins hefur með beinum hætti áhrif á skipan
dómsvaldsins. Þótt gert sé ráð fyrir að forseti Íslands staðfesti ákvörðun ráðherra og
Alþingi til þrautavara synji forseti er dómsvaldið enn háð hinum þáttum ríkisvaldsins að
þessu leyti. Stjórnlagaráð taldi að markmið um vandaða löggjöf, réttindi borgaranna og
endurskoðun athafna æðstu ráðamanna næðist með auknu eftirliti með svokallaðri
Lögréttu og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis.135
Þessi hugmynd kemur frá
stjórnlaganefnd um ráðgefandi stjórnlagaráð og umfangsmeiri tillögum Eiríks
Tómassonar lagaprófessors, en slík ráðgefandi nefnd mun starfandi bæði í Finnlandi og
Svíþjóð.136
Álit Lögréttu er þó aðeins ætlað að vera ráðgefandi og þingmannanefnd getur
orðið fyrir þrýstingi frá framkvæmdarvaldinu sem hún á að hafa eftirlit með. Þó dregur
úr þeirri hættu með því að ráðherrar sitji ekki á löggjafarþinginu.
Þorvaldur Gylfason hefur nefnt sem dæmi um þýlyndi dómstóla við aðra þætti
ríkisvaldsins að Hæstiréttur Íslands hefði söðlað algerlega um árið 1999 í áliti um hvort
fiskveiðilöggjöfin og framkvæmd hennar væru brot á núgildandi stjórnarskrá.137
Þetta
fullyrti Þorvaldur að ylli því að þjóðin gæti ekki treyst hlutleysi dómstóla því að
134
Ný stjórnarskrá Íslands, bls.5 og 53-55. 135
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum“, bls. 183. 136
Sama heimild, bls. 128-129. 137
Í desember 1998 kvað Hæstiréttur Íslands upp dóm sinn í máli Valdimars Jóhannessonar gegn íslenska
ríkinu og taldi þær takmarkanir á atvinnufrelsi sem felast í 5. gr. laga um fiskveiðistjórn brjóta í bága við
jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Hæstiréttur taldi 5. gr. laganna fela í sér fyrirfarandi tálmun á
getu einstaklinga til að stunda fiskveiðar í atvinnuskyni. Rökstuðningur Hæstaréttar var sá að skv.
gildandi takmörkunum á þeim tíma væru veiðileyfi einungis veitt til ákveðinna skipa sem höfðu verið
hluti af fiskiflotanum á tilteknu tímabili, eða til nýrra skipa sem koma í þeirra stað, og að þessar
takmarkanir brytu í bága við stjórnarskrána. Hinn dómur Hæstaréttar sem skiptir máli, dagsettur 6. apríl
2000, varðar málið Ákæruvaldið gegn Birni Kristjánssyni, Svavari Guðnasyni og Hyrnó Ltd. Með tilliti
til 7. gr. laganna ályktaði Hæstiréttur að takmarkanir á frelsi einstaklinga til að stunda fiskveiðar í
atvinnuskyni brytu ekki í bága við 65 gr. og 75. gr. stjórnarskrárinnar þar sem þær væru byggðar á
málefnalegum forsendum. Rétturinn tók sérstaklega fram að sú tilhögun að aflaheimildir séu varanlegar
og framseljanlegar styddist við þá röksemd að hún gerði mönnum kleift að gera áætlanir um starfsemi
sína til lengri tíma og auka eða minnka aflaheimildir sínar í einstökum tegundum eftir hentugleikum. (Sjá
Vef. Á vef Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands: Haraldsson og Sveinsson gegn Íslandi.
http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/haraldsson_og_sveinsson_gegn_islandi, skoðað 26. ágúst
2013).
Page 35
34
úrskurður hefði fallið undir þrýstingi frá framkvæmdarvaldinu eftir öndverðan dóm árið
1998.138
Þrátt fyrir slíkar hugrenningar verður að hafa í huga að viðurhlutamiklar
breytingar voru gerðar á dómstólaskipan Íslands árið 1992 til aðskilnaðar dómsvalds og
framkvæmdarvalds. Sú staðfesting á valdmörkum ríkisvaldsins er nokkuð í anda þess
sem Vilmundur krafðist enda kvað Þorsteinn Pálsson þáverandi dómsmálaráðherra
þarna mikið mannréttindamál á ferð. Í raun mátti greina á orðum hans og annarra
lögfræðimenntaðra að breytingarnar vægju þungt á metum í samfélagi sem vildi kalla
sig réttarríki.139
Þótt lagareglur um starfsemi dómstóla séu orðnar nokkuð ótvíræðar
hafa verið uppi efasemdaraddir um hlutleysi dómstóla og getu til að kveða upp dóma í
viðamiklum málum í kjölfar bankahrunsins. Hér er ekki vettvangur til að reifa slík mál í
smáatriðum, en nefna má álitaefni sem tengjast meintum lögbrotum innan ýmissa
fjármálastofnana og varðandi lögmæti gengislána og verðtryggingar. Mikilsvert hlýtur
að vera að dómstólar geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir í öllum dómsmálum enda áleit
stjórnlagaráð áríðandi að styrkja stjórnarskrárvarin réttindi borgaranna.140
Eitt þess sem
bíður nýrrar stjórnarskrárnefndar er að fjalla nánar um skipan dómsvalds á Íslandi.
UM MÁLSKOTSRÉTT OG ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLUR
Í stjórnlagaþingshugmyndum Jóhönnu Sigurðardóttur frá tíunda áratugnum vildi hún að
tekið væri á vandamálum í stjórnmálum og stjórnsýslu sem henni þóttu blasa við, svo
sem jöfnun atkvæðavægis og takmörkunum stjórnarskrárinnar til
þjóðaratkvæðagreiðslna.141
Nýmæli í tillögu Vilmundar var heimild til hins þjóðkjörna forsætisráðherra að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu um hvaða mál sem væri. Það taldi hann vera brýnt ef upp kæmu
andstæðar skoðanir löggjafarþings og forsætisráðherra.142
Eins og komið hefur fram var
hann mjög fylgjandi beinu lýðræði og taldi að almenningur ætti að koma að málum með
ríkulegum hætti, enda hafði hann t.d. lagt til að gengið yrði til þjóðaratkvæðis um
efnahagstillögur forsætisráðherra árið 1979.143
Í þingsályktunartillögu sem Vilmundur
Gylfason og Sighvatur Björgvinsson lögðu fram árið 1979 um setningu laga um
þjóðaratkvæðagreiðslur var gert ráð fyrir að Alþingi tæki ákvörðun um hvort
138
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason á vefsvæðinu Hjari veraldar, http://hjariveraldar.is/,
skoðað 26. ágúst 2013. 139
„Ný dómstólaskipan tekur gildi: Meiri breytingar hafa ekki orðið á réttarfarinu segir
dómsmálaráðherra.“, Morgunblaðið, 2. júlí 1992, bls. 24. 140
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum“, bls. 183. 141
Vef. Jóhanna Sigurðardóttir: „Breytt kjördæmaskipan – forsenda framfara“. Skoðað 30. ágúst 2013. 142
Vilmundur Gylfason: Vinnuplagg, bls. 2. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 143
Alþingistíðindi A 1978-9, bls. 1577-78.
Page 36
35
atkvæðagreiðslan skyldi vera bindandi eða ekki.144
Að mati margra er buðu sig fram og
náðu kjöri til stjórnlagaráðs var þjóðaratkvæði mikilvægur þáttur í endurnýjun
stjórnarskrár, enda hafði krafa um slíkt verið býsna hávær í kjölfar hruns.
Beint lýðræði og aðhald með valdþáttunum með atbeina kjósenda var Pétri
Gunnlaugssyni ofarlega í huga þegar hann bauð sig fram til stjórnlagaþings.145
Nokkuð
afgerandi stuðningur var við að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna gæti krafist
málskots því rúm 73% þeirra sem atkvæði greiddu um frumvarp stjórnlagaráðs voru
fylgjandi.146
Svanur Kristjánsson og fleiri fræðimenn hafa talið afar mikilvægt að
ákveðið hlutfall kjósenda gæti kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.147
Í niðurstöðu
stjórnlagaráðs var einmitt það nýmæli að 10% kjósenda gætu krafist
þjóðaratkvæðagreiðslu um lög með undantekningum varðandi fjárlög,
þjóðréttarsamninga og slíkt án atbeina forseta.148
Sigríður Andersen
héraðsdómslögmaður velti fyrir sér hví slíkir þættir væru undanskildir og benti á að
almenningur hefði t.d. ekkert haft um Icesave-málið að segja gilti slík regla.149
Vilhjálmur Þorsteinsson taldi áríðandi að í nýrri stjórnarskrá væru skýrar reglur um
þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál, að undanskildum fjárlögum.150
Á grundvelli
þess að stjórnarskrá er ætlað að vera samfélagssáttmáli er vert að velta upp hvort skylda
bæri Alþingi að bera ákvarðanir um mikilsverðar fjárskuldbindingar ríkissjóðs undir
skattgreiðendur. Slíkt á einkum við ef fyrir dyrum stendur að binda almannafé með
stórfelldum lántökum eða ef stefnt er að miklu fjárstreymi úr Seðlabankanum, líkt og
gerðist í aðdraganda efnahagshrunsins. Sigríður taldi brýnt að þjóðaratkvæðagreiðslur
væru bindandi til að geta talist marktækar, annars væru þær eins og hverjar aðrar
skoðanakannanir.151
Líkur hljóta að vera á að stjórnvöld reyndu hvað þau gætu að
komast hjá bindandi atkvæðagreiðslum hefðu þau sjálfdæmi um hvernig þeim væri
háttað hverju sinni.
144
Alþingistíðindi A 1978-79, bls. 1755-57. 145
Viðtal höfundar við Pétur Gunnlaugsson í ágúst 2013. 146
Vef. „Fyrstu umræðu um stjórnarskrárfrumvarp lokið“, á vef Lögfræðingafélags Íslands,
http://www.logfraedingafelag.is/um-felagid/frettabref/nr/349/, skoðað 26. ágúst 2013. 147
Vef. Framtíð lýðræðis á Rás 1, 13. apríl 2014. Svanur Kristjánsson um lýðræði og fleira. Sjá:
https://soundcloud.com/larahanna/svanur-kristj-nsson-um-l-rae-i á 40´25. Skoðað 15. apríl 2014. 148
Ný stjórnarskrá Íslands, bls. 34-36. 149
„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist
þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu?“, Fréttablaðið,19. október 2012, bls. 12. 150
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Stefnumál“. Skoðað 10. apríl 2014. 151
„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist
þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu?“, Fréttablaðið,19. október 2012, bls. 12.
Page 37
36
Í tillögum stjórnlagaráðs var gert ráð fyrir því að forseti gæti áfram synjað lögum
staðfestingar, líkt og gert er ráð fyrir í 26. grein stjórnarskrárinnar, og færu þau þá í dóm
kjósenda.152
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt að
nauðsynlegt væri að festa ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur um lagafrumvörp í
stjórnarskrá og að ekki þyrfti að safna undirskriftum til að skora á „einstaka menn“ eins
og hann orðaði það til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslur. Katrín Jakobsdóttir
formaður Vinstri grænna hefur tekið undir það sjónarmið Bjarna.153
Ekki var tilgreint hvert kjósendur skyldu beina kröfu um atkvæðagreiðsluna, aðeins að
það verði ákveðið með lögum. Gunnari Helga Kristinssyni fannst hugmyndin alltof
róttæk, hlutfall kjósenda lágt og óttaðist að það gæti dregið úr djörfung
framkvæmdarvaldsins til óvinsælla aðgerða, og jafnvel leitt til þess sem hann kallaði
þörf fyrir „ofurmeirihluta“ á þingi.154
Líklegt má telja að Vilmundur Gylfason hefði að
einhverju leyti fagnað þessum hugmyndum stjórnlagaráðsins, enda vildi hann mikið
aðhald að valdþáttum ríkisins.
KJÖRDÆMASKIPAN – JAFNT VÆGI ATKVÆÐA – PERSÓNUKJÖR
Vilmundur Gylfason sagði greinar Gylfa Þ. Gíslasonar og Ólafs Jóhannessonar í
tímaritinu Helgafelli, sem hann notaði sem fylgiskjöl með þingsályktunartillögu sinni,
meðal annars ritaðar vegna þess að þeir hefðu áhyggjur af kosningakerfinu og því að
fjögurra flokka kerfið væri þingræðinu óhollt og gengi illa upp á Íslandi.155
Kjördæmaskipanin hefur vakið deilur um langan aldur og illa gengið að finna lausn sem
stjórnmálaflokkar og kjósendur virðast geta fellt sig við.
Vilmundur horfði til hugmynda Ólafs Jóhannessonar sem vildi gera gagngerar
breytingar á kjördæmaskipan og kosningafyrirkomulagi til að draga úr flokkavaldinu og
til að tryggja lýðræðið frekar og draga úr valdi hagsmunahópa. Best hafði Ólafi hugnast
að stækka kjördæmin, en vafasamt þótti honum að landið yrði eitt kjördæmi. Þetta taldi
hann að styrkti og yki virðingu þingsins sem hann taldi að yrði að vera í einni málstofu,
líkt og síðar varð raunin. Vilmundur var samþykkur því í þingsályktunartillögu sinni, en
gerði þar ekki ráð fyrir breytingu á kosningalögum og kjördæmaskipan. Það kemur á
óvart í ljósi fyrri ummæla um galla kjördæmaskipulagsins á Íslandi og að
152
Ný stjórnarskrá Íslands, bls.34-35. 153
Viðtal við Bjarna Benediktsson og Katrínu Jakobsdóttur í þættinum Sprengisandur í umsjón Sigurjóns
M. Egilssonar á Bylgjunni 25. ágúst 2013. 154
Vef. „Gagnrýnir „óvissuferð“ stjórnlagaráðs“. Skoðað 10. apríl 2014. 155
Vilmundur Gylfason: „Franskt stjórnarfar og íslenskar aðstæður“.
Page 38
37
stjórnarskrárbreytingar þýddu í hugum flestra, ekki síst hans sjálfs, leiðréttingar og
aukningu jafnréttis hvað varðar skiptingu atkvæða.156
Hann taldi kerfi, þar sem misvægi
atkvæða væri svo mikið sem raun bæri vitni, í raun óstjórnhæft og að kenna mætti því
um efnahagslega óstjórn liðinna ára.157
Áður hafði Vilmundur verið nokkuð andvígur
fjölgun þingmanna og jafnvel velt upp þeim möguleika til að komast hjá fjölgun þeirra
með að fækka kjördæmum og stækka.158
Gylfi Þ. Gíslason hafði álitið vænlegast að
kjördæmin yrðu fimm; Reykjavík og landsfjórðungar, þingmönnum fækkað og að
þingið starfaði í einni málstofu. Sú skipan mála var reyndar viðruð í
þingsályktunartillögu þingmanna Alþýðuflokksins í mars 1982 þótt hvorki væri gert ráð
fyrir að landið yrði eitt kjördæmi né endurbætur á ríkjandi skipan útilokuð.159
Þrisvar hafa breytingar verið gerðar á núgildandi stjórnarskrá vegna kjördæmaskipunar.
Í tillögum stjórnlagaráðs var gert ráð fyrir að kjördæmin yrðu mest átta og að atkvæði
skyldu vega jafnt alls staðar á landinu og þingmannafjöldi skyldi vera í samræmi við
atkvæðamagn hvers framboðs.160
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hefur
gert athugasemdir við misvægi atkvæða hér á landi, enda fer fjarri að viðmiðum
stofnunarinnar um 10–15% frávik sé fylgt.161
Mikilvægi úrræða varðandi
kjördæmaskipanina var stjórnlagaráðsmönnum því ljós. Yfirlýstur tilgangur ráðsins var
að efla lýðræði með því að auka bein áhrif kjósenda á val alþingismanna, að reyna að
girða fyrir einsleitni á þinginu og tryggja að hlutfall kynja væri svo jafnt sem verða
mætti.162
Líkast til verður seint hægt að tryggja slíkt til fullnustu, en áhyggjur af
kjördæmaskipan hljóta að teljast raunhæfar í ljósi athugasemda ÖSE og eins þess að
þorra lýðveldistímans hafa þingmenn komið fram sem sérstakir fulltrúar síns kjördæmis
og oft og tíðum ívilnað sveitungum sínum með margvíslegum hætti. Íris Lind
Sæmundsdóttir lögfræðingur og fulltrúi í stjórnlagaráði sagði jafnframt að núverandi
kjördæmaskipan hyglaði kjósendum á landsbyggðinni og bryti þannig í bága við
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu.163
156
Vilmundur Gylfason: Stjórnarskráin, bls. 1. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 157
Vilmundur Gylfason: „Franskt stjórnarfar og íslenskar aðstæður“. 158
Vilmundur Gylfason: Kjördæmamálið, Fréttabréf frá Vilmundi Gylfasyni á Alþingi, 4. ágúst 1982, bls.
2. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 159
Alþingistíðindi A 1981-82, bls. 1827-28. 160
Ný stjórnarskrá Íslands, bls.22-23. 161
Vef. „Jafnt atkvæðavægi?“, á vef Ríkisútvarpsins, 10. Október 2012, http://www.ruv.is/frett/jafnt-
atkvaedavaegi, skoðað 1. maí 2014. 162
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum“, bls. 99. 163
„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi
jafnt?“, Fréttablaðið,19. október 2012, bls. 12.
Page 39
38
Í tillögum stjórnlagaráðs er gert ráð fyrir persónukjöri eða hefðbundnu listakjöri eins og
tíðkast hefur.164
Það var m.a. hugsað til að bæta mannvalið á vettvangi stjórnmálanna til
muna og skerða getu stjórnmálaflokkanna til að raða mönnum að vild í örugg sæti. .165
Haukur Arnórsson stjórnsýslufræðingur telur hins vegar að flokkakerfinu standa ógn af
persónukjöri, enda virtist hann telja stjórnmálaflokka hornstein lýðræðis á Íslandi. Ef
kjósa ætti einstaklinga yrði það að gerast fyrir tilstuðlan flokkanna því betra væri að
velja fólk sem hefði sannað sig innan þeirra en á öðrum vettvangi.166
Hann vill því efla
flokkakerfið frekar en veikja.
Gert er ráð fyrir jöfnu vægi atkvæða, hvar sem er á landinu í tillögum stjórnlagaráðs.167
Enn fremur taldi ráðið að persónukjör væri mikilvægt mótvægi við flokkakerfið.168
Kjósendur tóku nokkuð ólíka afstöðu til þessara þátta því rúm 78% voru því fylgjandi
að persónukjör í kosningum yrði heimilað. Á hinn bóginn voru 66,5% þeirrar skoðunar
að atkvæði kjósenda alls staðar á landinu skyldu vega jafnt.169
Ef til vill má hér greina
ugg um að landsbyggðin bæri skarðan hlut frá borði færi svo að atkvæðavægi yrði
jafnað.
Í tillögum ráðsins gætu kjósendur átt val um alla frambjóðendur í landinu, sýnist þeim
svo, en þeir sem í kjöri eru verða að bjóða sig fram í ákveðnum kjördæmum.170
Þorvaldur Gylfason kallaði þessa leið „bombu“ og mjög mikilvægt mannréttindamál
enda hefði misvægi atkvæða legið eins og mara á þjóðinni í yfir 100 ár. Hann útskýrði
áhugaleysi einstakra stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka með því að
stjórnmálaflokkarnir hefðu raunverulegan hag af misvægi atkvæða vegna búsetu. Þess
vegna hefði heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar aldrei farið fram þrátt fyrir
margvíslegar yfirlýsingar um að það yrði gert.171
Ágúst Einarsson fyrrum samherji
Vilmundar hefur líkt og fleiri tekið undir þessi sjónarmið, og sagði þingmenn iðulega
164
Ný stjórnarskrá Íslands, bls.22-24. 165
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason. Skoðað 26. ágúst 2013. 166
„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú
er?“, Fréttablaðið,18. október 2012, bls. 10. 167
Viðtal höfundar við Katrínu Oddsdóttur, 21. apríl 2014. 168
„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú
er?“, Fréttablaðið,18. október 2012, bls. 10. 169
Vef. „Fyrstu umræðu um stjórnarskrárfrumvarp lokið“. Skoðað 26. ágúst 2013. 170
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum“, bls. 100. 171
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason. Skoðað 26. ágúst 2013.
Page 40
39
hafa látið kjördæmasjónarmið ráða ákvörðunum sínum.172
Svo virðist vera sem mjög
fáir stjórnlagaráðsliðar hafi verið þeirrar skoðunar að jöfnun atkvæðisréttar væri ekki
mikilvæg. Gísli Tryggvason taldi þó að fara ætti hægt í slíkar breytingar. Hann barðist
þó ekki á móti jöfnun atkvæðisréttar, þótt hann teldi kjördæmakerfið mikilvægt til að
halda tengslum kjörinna fulltrúa við kjósendur og kannski ekki síst til að bæta stöðu
landsbyggðarinnar.173
Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar um tillögur stjórnlagaráðs sagðist Reimar Pétursson
lögfræðingur telja að útfæra þyrfti frekar hvernig vægi atkvæða yrði gert jafnt í landinu.
Hann sagði að til að það gengi upp yrði landið að vera eitt kjördæmi sem væri vont því
erfitt yrði fyrir frambjóðendur til Alþingis að kynna sig fyrir kjósendum.174
Hér mætti
einnig velta upp þeim möguleika að skipta landinu upp í fjölda smærri kjördæma, þar
sem frambjóðendur væru skyldaðir til að vera heimamenn. Vilhjálmur Þorsteinsson taldi
einmitt best fara á að gera landið að einu kjördæmi, þótt niðurstaða stjórnlagaráðs yrði
önnur.175
Hægt er að færa rök fyrir að stjórnlagaráð hafi tekið undir sjónarmið Reimars,
enda þyrftu íbúar hvers svæðis að hafa eitthvað um eigin mál að segja og tengsl
kjósenda við þingmenn gætu versnað væri landið eitt kjördæmi.176
Gegn þeim rökum
má horfa til þess að raunveruleg tengsl kjósenda við þingmenn sína nú á tímum virðast
ekki mikil, návist þeirra er í gegnum sjónvarp og aðra fjölmiðla en á hinn bóginn eiga
kjósendur hvar sem er á landinu þess kost að senda þingmönnum skilaboð og
hvatningarorð gegnum tölvupóst. Sú leið hefur verið notuð á síðari árum, jafnvel með
skipulögðum hætti eins og þegar Hagsmunasamtök heimilanna hvöttu fólk til að senda
þingmönnum póst vegna fyrirhugaðs greiðsluverkfalls og í aðdraganda fyrirhugaðs
verkfalls háskólakennara á vordögum 2014.177
Á hinn bóginn var réttilega bent á að
kosningin til stjórnlagaráðs hefði sýnt greinilegan landsbyggðarhalla suðvesturhorninu í
vil, auk þess sem stjórnsýsla nánast öll væri á því svæði.178
172
Ágúst Einarsson: „Dreifum valdi í fyrirtækjum og flokkum“, Greinasafn fyrra bindi. Úrval greina og
erinda um stjórnmál, menningu og menntun, ([Reykjavík] 2007), bls. 93. 173
Viðtal höfundar við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014. 174
„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi
jafnt?“, Fréttablaðið,19. október 2012, bls. 12. 175
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Stefnumál“. Skoðað 10. apríl 2014. 176
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum“, bls. 100. 177
Vef. Sjá t.d. vef Hagsmunasamtaka heimilanna,
http://www.heimilin.is/varnarthing/rammaadgerdir/greidsluverkfall/skrifadu-thingmonnum.html og Vef.
„Þrjú þúsund tölvupóstar til þingmanna“, á vefsvæðinu visir.is, http://www.visir.is/thrju-thusund-
tolvupostar-til-thingmanna/article/2014140409076, skoðað 20. apríl 2014. 178
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum“, bls. 100.
Page 41
40
AFNÁM EÐA SKERÐING ÞINGROFSHEIMILDAR
Þingrof er í raun heimild til að ógilda kjör alþingismanna áður en kjörtímabili þeirra
lýkur. Þótt álitið hafi verið að þarna væri á ferðinni mótvægi við möguleika þingsins á
að lýsa yfir vantrausti á ríkisstjórn byggir þingrof á pólítískri ákvörðun fárra meðan
vantraust þarf meirihlutastuðning á þingi. Ekki er heimilt að stytta kjörtímabil
sveitastjórna með sambærilegum hætti svo dæmi sé tekið. Með því að veita æðsta
handhafa framkvæmdavaldsins rétt til að rjúfa störf löggjafarvaldsins með einfaldri
aðgerð hefur þótt geta skapast hætta á misbeitingu valds. Reglan var sú að ríkisstjórn
sæti áfram eftir að þingið var sent heim. Þingrof árið 1931 og árið 1974 ollu hörðum
deilum í samfélaginu og háværar raddir voru uppi um að lýðræðið væri fótum troðið.
Eftir að Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra rauf þing í maí 1974 saumaði Vilmundur
harkalega að honum í sjónvarpsviðtali. Vilmundi þótti greinilega réttur forsætisráðherra
– að geta sent þingmenn heim – fara á svig við þá meginreglu að framkvæmdarvaldið
lyti vilja þingsins en ekki öfugt.179
Hann taldi afnám réttar forsætisráðherra til þingrofs
leiða til styrkrar stjórnar og valddreifingar.180
Félagar Vilmundar í Bandalagi
jafnaðarmanna lögðu fram tillögur um afnám þingrofsréttar og fleiri hugðarefni hans
sem aldrei voru útræddar.181
Sú breyting varð á þingrofsreglu árið 1991 að þing situr til
kjördags, en þarf ekki ljúka störfum umsvifalaust. Slík tilhögun viðheldur þingræði í
landinu og dregur úr mögulegri hættu af ofurvaldi ráðherra. Þrátt fyrir að svo væri
málum komið hafði Jóhanna Sigurðardóttir nokkrum árum síðar lagt til að fyrirhugað
stjórnlagaþing tæki þingrofsréttinn til umfjöllunar.182
Ekki er að sjá að þingrofsrétturinn hafi nauðsynlega verið ofarlega í hugum þeirra sem
buðu sig fram til stjórnlagaþings.183
Þingrof var án efa mun meira hitamál þegar umboð
þingmanna var afnumið tafarlaust og ríkisstjórn sat án aðhalds frá þingi fram að
kosningum. Stjórnlagaráð tók þá ákvörðun að færa heimildina úr höndum
forsætisráðherra til þingsins sjálfs og virtist með því taka undir með þeim sem talið hafa
þingrof fara á svig við þingræðisreglu. Þingmenn sjálfir þyrftu því að hafa frumkvæði
að því. Stjórnlagaráðið vildi ekki að forseti gæti stöðvað ákvörðun þingsins og að
ríkisstjórn gæti ekki notað þingrof sem vörn gegn vantrausti. Auðvitað má velta fyrir sér
179
Guðni Th. Jóhannesson, Völundarhús valdsins, bls. 106-107. 180
Vilmundur Gylfason: Ræða um vantraust. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 181
Sjá Gunnar Helgi Kristinsson: „Ágrip af þróun stjórnarskrárinnar“, bls. 22. 182
Vef. Jóhanna Sigurðardóttir: „Breytt kjördæmaskipan – forsenda framfara“. Skoðað 30. ágúst 2013. 183
Sjá t.d. viðtöl höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, Katrínu Oddsdóttur og Arnfríði Guðmundsdóttur.
Page 42
41
hvaða aðstæður gætu orðið til þess að þingið ákvæðið að rjúfa sjálft sig. Líklegast er að
það gæti gerst við afar erfiðar aðstæður í samfélaginu svipaðar þeim sem uppi voru
haustið 2008, enda rauf Geir H. Haarde þing árið 2009 og boðaði til kosninga.
EMBÆTTISMANNAVEITINGAR – SPILLING INNAN KERFIS
Eftir efnahagshrunið varð mikil umræða um spillingu í íslensku samfélagi. Við því
þurfti að bregðast. Sá raunveruleiki var frambjóðendum til stjórnlagaþings mörgum
ofarlega í huga og nefndi t.d. Arnfríður Guðmundsdóttir það sem einn mikilvægasta
þáttinn enda fannst henni að réttlæti og jafnrétti skipti mestu máli þegar hugað væri að
grunnstoðum samfélagsins.184
Valdþáttanefnd ráðsins var nokkur vandi á höndum hvað
snerti embættismannaveitingar og ræddi þar ýmsa möguleika.185
Niðurstaða ráðsins var
að ráðherrar og „önnur stjórnvöld“ veittu embætti að tillögu sérstakrar nefndar og skyldi
hæfni ráða við skipun embættismanna.186
Þannig brást stjórnlagaráðið við mikilli
umræðu um að annað en hæfni hefði um áratugaskeið ráðið við
embættismannaveitingar.187
Sú leið var farin til að tryggja að löggjafinn ætti óhægara
um vik að breyta reglum á þessu sviði, enda væru stjórnarskrárbreytingar mun
viðurhluta meira mál en lagabreyting. Þorvaldur Gylfason fullyrti þessa breytingu til
komna vegna þess að vantraust almennings á dómstólum og spilling og getuleysi
embættismannakerfisins hafi kallað á hana. Álitið var að hluti af lausninni væri að bæta
regluverkið, enda áttu hin nýju ákvæði að koma í veg fyrir misnotkun
stjórnmálaflokkanna og áráttu þeirra að setja óhæfa menn í mikilvæg embætti.188
Vilmundur Gylfason hafði álitið að mikil spilling ríkti innan stjórnkerfisins og
embættismannastéttarinnar á Íslandi og vildi að á því yrði tekið af hörku með breyttum
aðferðum við val embættismanna og kjör æðstu stjórnenda ríkisins. Hann talaði
tæpitungulaust um hvernig fara ætti að. Gylfi Þ. Gíslason hafði einnig sérstakar
áhyggjur af spillingu ýmiss konar, óvönduðum vinnubrögðum og því sem í dag hefur
verið nefnt frændhygli og andverðleikar, það er að annað en dugnaður og hæfileikar ráði
framgangi manna í opinberum stöðum.189
Til að bregðast við var því velt upp að forseti
skipaði embættismenn beint án atbeina ráðherra, en yfirmenn ríkisstofnana hefðu
184
Viðtal höfundar við Arnfríði Guðmundsdóttur, 12. Apríl 2014. 185
Vef. Kynning stjórnlagaráðs á störfum sínum. Skoðað 28. ágúst 2013. 186
Ný stjórnarskrá Íslands, bls.51. 187
Kynning stjórnlagaráðs á störfum sínum. Skoðað 28. ágúst 2013. 188
Sbr. 96.- 104. gr. nýrrar stjórnarskrár Íslands, Ný stjórnarskrá Íslands, bls. 51-55. : Sjá jafnframt Vef.
Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason og viðtal höfundar við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014. 189
Gylfi Þ. Gíslason: „Lýðræði og stjórnfesta“, bls. 117.
Page 43
42
sjálfdæmi um ráðningar starfsmanna sinna.190
Í stjórnlagaþingshugmyndum Jóhönnu
Sigurðardóttur var gert ráð fyrir að embættisfærslur í opinberri stjórnsýslu skyldu
metnar og hvort rétt væri að setja reglur um ráðstöfun opinberra fjármuna og draga úr
afskiptum stjórnmálamanna af sjóða- og bankakerfinu.191
Innherjaviðskipti og önnur vafasöm starfsemi innan fjármálakerfisins varð mjög til
umræðu eftir hrunið. Lög og reglugerðir sett af stjórnmálamönnum, jafnvel stundum
byggð á reglum EES samningsins hefðu gert bankamönnum kleift að taka allt of mikla
áhættu án virks aðhalds og eftirlits.192
Þrátt fyrir það eru engin ákvæði um fjármál í
tillögum stjórnlagaráðs, ekkert um eignarhald á bönkum eða um fyrirkomulag starfsemi
þeirra, ekkert um útgáfu og dreifingu peninga, ekkert um uppfræðslu fyrir almenning,
um lánakjör eða þak á lántökur og ekkert um eftirlit með fjármálastofnunum.
Stjórnlagaráð tók samt nokkrar ákvarðanir í þessu samhengi; ákveðið var að heimila
ríkisvaldinu áfram að stofna til skulda eða reka ríkissjóð með halla því stundum væri
slíkt gert af illri nauðsyn. Bann við þess háttar ráðstöfunum með ákvæðum stjórnarskrár
taldi stjórnlagaráð að kæmi algerlega í veg fyrir að stjórnvöld gætu gripið til lántaka og
hallarekstur tímabundið. Hér hefði ef til vill mátt setja ákvæði sem heimilaði að grípa til
slíkra aðgerða, með samþykki kjósenda eða með auknum meirihluta á þingi.
Efnahagsmál hafa frá lýðveldisstofnun verið þraut hverrar ríkisstjórnarinnar á fætur
annarri. Oftar en ekki hefur ágreiningur um leiðir til lausnar efnahagsþrengingum
sprengt stjórnarsamstarf og jafnvel valdið stjórnarkreppum. Vilmundur Gylfason átaldi
stjórnmálamenn iðulega vegna fylgispektar við fjármálavaldið auk þess sem hann taldi
tengsl stjórnmálaflokka við önnur öfl í samfélaginu oft of mikil. Hann hafði á hinn
bóginn verið fylgjandi upptöku verðtryggingar á sínum tíma, enda brann sparifé
landsmanna upp á verðbólgutímum. Nú á tímum veldur framkvæmd verðtryggingar
miklum deilum, jafnvel dómsmálum, en Gísli Tryggvason og fleiri hafa verið þeirrar
skoðunar að hún feli beinlínis í sér ójafnvægi á valdi og í aðgengi að gæðum, valdi
jafnvel spillingu. Því hafi þurft að koma því til leiðar að í stjórnarskrá væri skýrt að
eignarrétti fylgdu skyldur.193
190
Sama heimild, bls. 122. 191
Vef. Jóhanna Sigurðardóttir: „Breytt kjördæmaskipan – forsenda framfara“. Skoðað 30. ágúst 2013. 192
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason . Skoðað 26. ágúst 2013. 193
Viðtal höfundar við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014.
Page 44
43
Vandlæting Vilmundar gæti hæglega átt við um það fjármálakerfi sem einkavæðingin
gat af sér og olli að lokum hruni efnahagskerfisins á Íslandi. Sú hugmyndafræði að
ríkisvaldið ætti ekki að skipta sér um of af fjármálakerfinu leiddi til veikburða
eftirlitskerfis sem réð illa við hlutverk sitt. Þrátt fyrir það varð niðurstaða stjórnlagaráðs
að ekki væri hægt að setja ákvæði í stjórnarskrá um eignarhald banka heldur skyldi
„sökum eðlis þeirra“ hafa ákvæði um þá í lögum.194
Stjórnlagaráðið taldi stofnun
eftirlitsnefnda verða til hvatningar til vandvirkni við stöðuveitingar í opinbera kerfinu
og þannig yrði spornað við spillingu. Sömuleiðis gæti slíkt regluverk einnig átt við um
valdablokkir utan hins opinbera kerfis.195
Með því girða þannig fyrir spilltar
embættismannaveitingar og auka sjálfstæði dómstóla gæti værið komið á laggirnar
lagakerfi sem gæti reist fjármálakerfinu skorður. Á áttunda áratugnum höfðu Vilmundur
Gylfason og Sighvatur Björgvinsson haft áhyggjur af að völd hefðu flust til hagsmuna-
og þrýstihópa. Það hefði skapað mikla óvissu í efnahagsmálum vegna vangetu kjörinna
stjórnvalda til að grípa til aðgerða gagnvart ofureflinu. Þeir töldu að með heimild til
þjóðaratkvæðagreiðslu væri að hluta hægt að leysa úr slíkum þrýstingi á stjórnvöld.196
Það er auðvelt að taka undir þau rök að slík aðferð gæti minnkað álag á kjörna fulltrúa
og færði jafnframt ábyrgð og skipunarvald yfir til samfélagsins, sem erfitt væri fyrir
þrýstihópa eða stórfyrirtæki að hunsa.
ÚTVÍKKUN MANNRÉTTINDAÁKVÆÐA
Mannréttindi hafa iðulega verið jafnaðarmönnum eins og Vilmundi Gylfasyni ofarlega í
huga, en hugtakið hefur smám saman víkkað út; samhliða þróun samfélaga hafa æ fleiri
þættir talist til mannréttinda. Vilmundi fannst harla lítið koma til mannréttindaákvæða
lýðveldisstjórnarskrárinnar.197
Hann fullyrti að íslensk stjórnvöld brytu mannréttindi
þegar það þjónaði hagsmunum valdsins og nefndi að koma pólitíska flóttamannsins
Patrick Gervasonis hefði ógnað valdinu og viðbrögð yfirvalda væru dæmi um
birtingarmynd yfirgangs ríkisvaldsins.198
Að hans dómi var áríðandi að frelsi og
friðhelgi borgaranna væri tryggt og jöfnuður hafður að leiðarljósi.199
Honum varð t.d.
tíðrætt um að á Íslandi væru ekki allir jafnir fyrir lögunum, að það hafi alltaf skipt miklu
194
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason. Skoðað 26. ágúst 2013. 195
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014 og við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014. 196
Alþingistíðindi A 1978-79, bls. 1755-57. 197
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna, bls. 3. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 198
Vilmundur Gylfason: Ræða um vantraust, bls. 4. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 199
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna, bls. 2. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Page 45
44
máli hver braut af sér og hvernig, þegar kemur að málsmeðferð fyrir dómi.200
Þarna
fullyrti Vilmundur að einn af meginþáttum mannréttinda væri brotinn þrátt fyrir ákvæði
um annað í stjórnarskrá og lögum, sem vekur upp þá spurningu hvort dugi að setja
reglur í stjórnarskrá ef ekki er farið eftir þeim. Vilmundur benti á að lög ættu að vera fá
og einföld, þau væru fyrir borgara landsins en ekki til að verja óljósa hagsmunahópa
fyrir fólki.201
Þótt mannréttindakafli gildandi stjórnarskrár væri nýjasti kafli hennar, og stjórnlagaráði
ekki ætlað að fjalla sérstaklega um hann, varð ráðið strax ásátt um að kaflanum þyrfti að
breyta og víkka út skilgreiningar hugtaksins mannréttindi. Þórhildur Þorleifsdóttir sem
er yfirlýstur femínisti, sagði mannréttindakafla stjórnarskrárinnar hafa verið sér ofarlega
í huga og mikilvægur þáttur í endurnýjun samfélagsins að hann væri skýr og
skilmerkilegur.202
Stjórnlagaráðið ákvað að spyrða saman mannréttindi, auðlindir og
náttúruvernd til að undirstrika samspil þessara þátta innbyrðis. Greinilega voru
kjósendur fylgjandi slíkri áherslubreytingu því tæp 83% greiddu atkvæði með í nýrri
stjórnarskrá yrðu náttúruauðlindir sem ekki væru í einkaeigu lýstar þjóðareign.203
Eitt af yfirlýstum markmiðum stjórnlagaráðsins var að auðvelda venjulegu fólki að leita
réttar síns teldi það á sér brotið með náttúruspjöllum. Mannréttindakaflinn samanstendur
af klassískum mannréttindaákvæðum og ýmsu nýmæli, eins og um auðlindir, sjálfbæra
þróun og náttúru. Álit ýmissa stjórnlagaráðsliða var að náttúruverndarákvæðin gætu átt
erindi út fyrir landsteinana, enda náttúrunni sjálfri fengin réttindi gagnvart manninum,
að suðuramerískri fyrirmynd. Ákvæðum um fjölmiðla var komið fyrir í
mannréttindakafla eins og vikið verður að síðar. Auk þess var ákvæðum um trú og
trúfrelsi valinn staður innan mannréttindakaflans. Greinilegt er að beint lýðræði var
stjórnlagaráðsliðum ofarlega í huga varðandi kirkjuskipanina enda ætla tillögur ráðsins
þjóðinni að ákvarða kirkjuskipan landsins.204
Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar
um stjórnarskrárdrögin í október 2012 var uppi nokkur ágreiningur um hvernig haga
200
Sama heimild, bls. 9. 201
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna, bls. 12. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 202
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014. 203
Vef. „Fyrstu umræðu um stjórnarskrárfrumvarp lokið“. Skoðað 26. ágúst 2013. 204
Vef. Sjá t.d. Arnfríður Guðmundsdóttir: „Tillögur Stjórnlagaráðs um tengsl ríkis og kirkju. Bakgrunnur
og merking.“, 4. íslenska söguþingið 7. - 10. júní 2012. Ráðstefnurit, ritstjóri: Kristbjörn Helgi
Björnsson, (Reykjavík 2013), bls. 32-33.
http://skemman.is/stream/get/1946/17296/40366/1/r%C3%A1%C3%B0stefnurit_9_final.pdf, skoðað 24.
apríl 2014.
Page 46
45
bæri ákvæðum um þjóðkirkjuna en um 57% greiddu atkvæði með að í nýrri stjórnarskrá
skyldi slíkt ákvæði vera.205
Vilmundur sagðist eins og aðrir jafnaðarmenn leggja áherslu á að land væri í þjóðareigu
og nýting þess þar með.206
Niðurstaða stjórnlagaráðs varð sú og töldu sumir
stjórnlagaráðsmenn, eins og Þorvaldur Gylfason, að með slíku ákvæði væri komið til
móts við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna að íslensk fiskveiðilöggjöf
hafi beinlínis verið mannréttindabrot í skilningi alþjóðalaga. Sé sú niðurstaða Þorvaldar
rétt má búast við miklum deilum innan og utan dómstóla verði málum skipað með þeim
hætti. Deilur gætu enn magnast ef ákvæðið ætti einnig við um orkuna í iðrum jarðar og
veitt þannig eigendum auðlindanna tryggingu fyrir eðlilegum arði af þeim.207
Í huga
Gísla Tryggvasonar var hins vegar afar mikilvægt að hagsmunasamtök nytu jafnræðis
við undirbúning löggjafar, en niðurstaðan varð að það gerist með óbeinum hætti.208
Það
er harla ólíkt viðhorfi Vilmundar sem fannst á sinni tíð hagsmunasamtök ýmis vera
orðin of mikils ráðandi og vildi draga úr áhrifum þeirra. Lára Magnúsardóttir
sagnfræðingur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Íslendingar hafi ekki verið og séu
ekki í framvarðarsveit setningar mannréttindaákvæða og því séu drög stjórnlagaráðs
ekki til þess fallin að ná þeim markmiðum sem sóst virðist eftir. Þau séu einfaldlega of
framúrstefnuleg, einkum hvað snertir ímynduð réttindi náttúrunnar.209
FRELSI OG SJÁLFSTÆÐI FJÖLMIÐLA
Vilmundur Gylfason sá fyrir sér valddreifingu, ekki aðeins í stjórnmálum heldur líka í
fjölmiðlun. Hann vildi að fjölmiðlar yrðu frjálsir undan oki flokkakerfisins og
ríkisvaldsins.210
Hann vildi gefa útvarpsrekstur frjálsan, líkt og varð um miðjan níunda
áratuginn. Þegar myndbanda-byltingin svokallaða varð á öndverðum níunda áratugnum
ályktuðu alþýðuflokksmenn um að ótvírætt yrði að vera að dreifa mætti myndefni á
lokuðum rásum en tryggja jafnframt hagsmuni höfunda.211
Sú umræða minnir
205
Vef. „Fyrstu umræðu um stjórnarskrárfrumvarp lokið“. Skoðað 26. ágúst 2013. 206
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna, bls. 2. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 207
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason.Skoðað 26. ágúst 2013. 208
Sjá 2. mgr. 57. gr. í Ný stjórnarskrá Íslands. Frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga 2011,
útgefandi Daði Ingólfsson í samstarfi við Stjórnarskrárfélagið, ([Reykjavík] 2011), bls. 31 og viðtal og
við Gísla Tryggvason, 28. apríl 2014. 209
Vef. Sjá: Lára Magnúsardóttir: „Náttúran í eigin rétti. Stjórnarskrá á mannamáli. Aðferðafræðileg
tilraun.“ http://stofnanir.hi.is/skagastrond/sites/files/skagastrond/Lara%20M%20-
%20Natturan%20%C3%AD%20eigin%20retti%202012%20%28-14%29.pdf, skoðað 24. apríl 2014. 210
Vilmundur Gylfason til Kjartans Jóhannssonar: Athugasemdir um stefnuatriði vegna kosninga.
(Trúnaðarmál. Ekki til dreifingar), bls. 2. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 211
Alþingistíðindi A 1981, bls. 722-23.
Page 47
46
óneitanlega á þann vanda sem nú er staðið frammi fyrir um leiðir til að dreifa
höfundavörðu efni á internetinu.
Þótt gert sé ráð fyrir ýmiss konar skýrslugjöf af hálfu framkvæmdarvaldsins til
löggjafarvaldsins virðist stjórnlagaráðið ekki hafa viljað setja sérstakt ákvæði um
mikilvægi sannsögli ráðherra í drög sín. Margvísleg reynsla Vilmundar Gylfasonar af
því fjölmiðlaumhverfi sem hann ólst upp við og starfaði sjálfur í sannfærði hann um að
þeir skyldu vera sjálfstæðir þjónar almennings gegn spillingu, samtryggingu og
misbeitingu hvers konar valds.212
Honum virtist þó lítið til íslenskra blaðamanna koma,
að þeir væru illa menntaðir og kallaði Blaðamannafélag Íslands „eina druslu
valdsins“.213
Hann taldi augljóslega vald örfárra stjórnmálamanna yfir fjölmiðlum alltof
mikið, enda voru flestir prentmiðlar tengdir stjórnmálaflokkum á einn eða annan hátt.
Auk þessa vildi hann að stjórnmálamenn hyrfu alfarið með ítök sín úr ráðum og
nefndum ríkisins, þ.á m. úr útvarpsráði.214
Í því fjölmiðlaumhverfi hefur án efa verið
bæði djarflegt og nauðsynlegt að stofna Dagblaðið 1975 og segja það vera „frjálst og
óháð“. Síðan þá hafa orðið miklar breytingar í rekstri fjölmiðla á Íslandi;
ljósvakamiðlun var gerð frjáls frá og með árinu 1986, prentmiðlar eru orðnir harla
laustengdir stjórnmálaflokkum og netið hefur breytt tjáskiptum og miðlun efnis svo um
munar.
Fjallað er um fjölmiðla í mannréttindakafla draga stjórnlagaráðs. Yfirlýstur tilgangur
þeirra ákvæða hljómar nánast eins og Vilmundur hefði getað orðað hann því markmiðið
er að gera aðhald almennings virkara gagnvart valdhöfum og að frýja fjölmiðla til dáða.
Líkast til hefur stjórnlagaráðið litið til áranna fyrir efnahagshrunið þegar varðstaða
margra fjölmiðla var sama og engin og þeir klöppuðu efnahagslífinu og jafnvel
stjórnmálamönnum sífellt lof í lófa. Frelsi þeirra og sjálfstæði er getið í
mannréttindakafla stjórnlagaráðs. Vernd blaðamanna og heimildarmanna þeirra, leyfi til
upplýsingaöflunar og -söfnunar er tilgreint en gert ráð fyrir frekari tryggingu þeirra með
sérstökum lögum.215
Raunar mætti fullyrða að ákvæði stjórnlagaráðsins hvað þetta
snertir séu ekki nógu afgerandi til að tryggja fjölmiðla sem skyldi, enda almenn lög
alltaf óæðri stjórnarskrá. Í því samhengi má velta fyrir sér hvort óskýrt eignarhald á
212
Jón Ormur Halldórsson: Löglegt en siðlaust, bls. 87. 213
Sama heimild, bls. 375. 214
Vilmundur Gylfason: Ræða um vantraust. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar. 215
Ný stjórnarskrá Íslands, bls. 10-12.
Page 48
47
fjölmiðlum nútímans sé hagfelldara neytendum sem þurfa iðulega að hafa sig alla við að
greina hvaða skoðunum reynt er að halda að þeim. Fjölmiðlar nútímans eru sömuleiðis
mun háðari auglýsendum en áður var, sem geta haft með beinum eða óbeinum hætti
áhrif á umfjöllun fjölmiðilsins. Sömuleiðis eru til dæmi um að stjórnmálamenn hafi
reynt að snupra fjölmiðla með því að eggja auglýsendur til sniðgöngu, líkt og einn
þingmaður Framsóknarflokksins gerði snemma árs 2014.216
Í drögum stjórnlagaráðs segir að öllum sé frjálst að safna og miðla upplýsingum og
aðeins megi setja skorður þess í lýðræðislegum tilgangi.217
Þessi grein átti við um öll
gögn, ekki aðeins opinber, en nauðsynlegt er þó að lesa greinina saman með öðrum
ákvæðum sem t.d. eiga við um friðhelgi einkalífs. Jafnframt á að tryggja frelsi vísinda,
fræða og lista og með jafnræðisreglu er bannað að mismuna fólki eftir
stjórnmálatengslum.218
Í því samhengi má greina að stjórnlagaráð hafi verið sammála
Vilmundi Gylfasyni og viljað koma í veg fyrir að listamenn margskonar, vísinda- og
fræðimenn gætu lent í því að fá ekki tækifæri vegna stjórnmálaskoðana sinna.
Þýðingarmikið væri að skapandi þættir samfélagsins töpuðu ekki á hinum miklum
áhrifum stjórnmálamanna.219
Hart var tekist á um stjórnarskrármálið á þingi en ekkert varð af nýrri stjórnarskrá. Fyrir
þinglok 2013 var ákveðið að fresta afgreiðslu málsins fram á nýtt kjörtímabil, og
samþykkt afbrigði á núgildandi stjórnarskrá til að einfaldara yrði að ganga til atkvæða
um nýja.220
Í júlí 2013 óskaði forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, eftir
tilnefningum stjórnmálaflokka til níu manna stjórnarskrárnefndar. Nefndin skyldi meðal
annars taka mið af tillögum stjórnlagaráðs og stjórnlaganefndar, niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslu í október 2012 og starfi stjórnarskrárnefndar á árunum 2005–
2007.221
Sigurður Líndal, sem hafði áður borið brigður á að ráð skipað fulltrúum
216
Vef. „Vigdís hvetur EGF snyrtivörur til að sniðganga Kvennablaðið“, á vefsíðunni visir.is, 27. febrúar
2014, http://www.visir.is/vigdis-hvetur-egf-snyrtivorur-til-ad-snidganga-
kvennabladid/article/2014140228992, skoðað 3. maí 2014. 217
Ný stjórnarskrá Íslands, bls. 10-11. 218
Sama heimild, bls. 12. 219
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason. Skoðað 26. ágúst 2013. 220
Sjá Vef.: Lög nr. 91, 11. júlí 2013, Stjórnarskipunarlög um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins
Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum, á vef Alþingis:
http://www.althingi.is/altext/stjt/2013.091.html, skoðað 1. maí 2014. 221
Vef. „Skipa nýja stjórnarskrárnefnd“, á vefsíðunni mbl.is, 9. júlí 2013,
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/07/09/skipa_nyja_stjornarskrarnefnd/, skoðað 30. ágúst 2013.
Page 49
48
almennings gæti samið nýja stjórnarskrá, var skipaður formaður nefndarinnar.222
Nefndinni er ætlað að ljúka störfum í tíma svo hægt verði að samþykkja frumvarp til
stjórnskipunarlaga fyrir lok kjörtímabils 2017.223
Allir flokkar á þingi náðu
samkomulagi um skipan nefndarinnar. Meðferð stjórnarskrár var þar með horfin úr
höndum borgaranna og að nýju komin á forræði stjórnmálaflokkanna.
222
Vef. „Sigurði Líndal líst ekki á stjórnlagaþing - Fulltrúar pólitískir og kunna ekki lögfræði“, á
vefsíðunni Pressan, http://www.pressan.is/m/Article.aspx?catID=6&ArtId=23074, skoðað 30. ágúst 2013. 223
Vef. „Forsætisráðherra skipar stjórnarskrárnefnd“, á vef Forsætisráðuneytisins, 6. nóvember 2013,
http://www.forsaetisraduneyti.is/frettir/nr/7766, skoðað 20. apríl 2014.
Page 50
49
NIÐURSTÖÐUR
Lýðveldisstjórnarskráin var þegar í upphafi álitin vera til bráðabirgða, en fyrirhuguð
heildarendurskoðun hennar hefur ekki enn verið lokið þrátt fyrir störf fjölmargra
stjórnarskrárnefnda. Eins og hér hefur verið rakið á sú hugmyndafræði að boða til
stjórnlagaþings í þeim tilgangi að endurskoða stjórnarskrána á sér langa forsögu;
Vilmundur Gylfason var einn þeirra sem vildu efna til stjórnlagaþings en af því varð
ekki. Eftir efnahagshrun voru síðan ýmis skref í átt til breytinga uns stjórnlagaráð tók til
við að skapa nýja stjórnarskrá.
Í þessari ritgerð hefur verið leitast við að varpa ljósi á tengsl frumvarps stjórnlagaráðs
og umbótatillagna Vilmundar Gylfasonar sem hann setti fram fyrir rúmum þremur
áratugum. Hugmyndir um frelsi einstaklinga, beint lýðræði, ákall um valddreifingu og
andstaða við mikil völd stjórnmálaflokka voru sem rauður þráður í kenningum
Vilmundar. Sömuleiðis varð honum tíðrætt um almannaviljann. Svipað mátti greina í
umfjöllun stjórnlagaráðs sem taldi stjórnmálaflokka vera of valdamikla og skortur á
skiptingu valds áberandi. Ráðið var þeirrar skoðunar að besta lausnin til að sporna við
spillingu og auka valddreifingu væri að auka eftirlit og aðhald valdþáttanna innbyrðis
og að stofna til ýmiskonar eftirlitsnefnda. Líklegt má því teljast að Vilmundur hefði
lagst gegn slíkum hugmyndum, enda var hann þeirrar skoðunar að valdastofnunum bæri
að fækka fremur en fjölga. Traust til stofnana samfélagsins hafði dalað mjög eftir
efnahagshrunið og má ætla að stjórnlagaráð hafi viljað finna leiðir til að efla það að
nýju.
Ýmsir þeirra sem fengu sæti í ráðinu höfðu vitnað í hugmyndir Vilmundar í aðdraganda
kosninganna og nokkrir sögðu í viðtölum við höfund þessarar ritgerðar að sú
hugmyndafræði hefði verið þeim ofarlega í huga þegar starf ráðsins hófst. Sá aragrúi
lesefnis sem ráðið notfærði sér við vinnu sína hefur án efa orðið til þess að kenningar
hans urðu aðeins hluti af því hugmyndasafni sem að lokum varð að frumvarpi
stjórnlagaráðs. Sömuleiðis byggði ráðið á vinnu þjóðfundar og stjórnarskrárnefnda
þannig að efniviðurinn var mikill. Sumir þeirra þátta sem Vilmundur hafði lagt hvað
mesta áherslu á höfðu misst vægi svo löngu eftir að hann lagði fram sínar
bollaleggingar.
Page 51
50
Horft hefur verið til þingsályktunartillögu Vilmundar sem var viðbót við
stjórnarskrárfrumvarp Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra. Margir stjórnlagaráðsliðar,
líkt og Vilmundur fyrrum, álitu þætti ríkisvaldsins vera fleiri en hina hefðbundnu þrjá,
en töldu mikilvægt að þeir yrðu minna háðir hver öðrum og veittu hver öðrum meira
aðhald. Vilmundur horfði til þeirra ríkja þar sem forsetaræði ríkir og að hans dómi var
það lýðræðinu mikilvægt að forsætisráðherra væri kjörinn beinni kosningu. Það styrkti
beint lýðræði í sessi, enda yrði landið eitt kjördæmi við það val auk þess sem sjálfstætt
val forsætisráðherra á ráðuneyti sínu gæti ýtt undir frekari aðskilnað framkvæmdar- og
löggjafarvalds. Nokkrir fulltrúar í stjórnlagaráði aðhylltust þessa hugmyndafræði í
upphafi, en hurfu frá henni einkum til að festa þingræðið frekar í sessi. Ráðinu fannst,
líkt og Vilmundi, að skýr mörk þyrftu að vera milli valdþátta ríkisins, að
þingræðisreglan væri tryggð, en tók að lokum þá ákvörðun að þingið kysi
forsætisráðherra eftir ábendingum þingmanna. Þarna virðist núgildandi aðferð gerð
formlegri. Sá einstaklingur, sem stjórnmálaflokkar mæla með við forseta, fær umboð til
stjórnarmyndunar, en höfuð framkvæmdarvaldsins öðlast ekki umboð sitt beint frá
kjósendum. Mikilvægast væri að forsætisráðherra myndaði ríkisstjórn sem nyti trausts
þingsins. Sömuleiðis kom fram sú hugmynd að sameina embætti forsætisráðherra og
forseta, en hún hlaut ekki brautargengi. Þó er forseti eftir skilgreiningu stjórnlagaráðs
hluti framkvæmdarvalds en ekki löggjafar eins og nú er. Stjórnlagaráði fannst mikilvægt
að styrkja löggjafarvaldið, jafnvel á kostnað framkvæmdarvalds. Gert var ráð fyrir í
tillögum þess að þingmenn sem yrðu ráðherrar vikju sæti af þingi og varamenn þeirra
tækju við, líkt og Vilmundur hafði lagt til með sínum hugmyndum.
Eins og hér hefur komið fram var Vilmundur afar harðorður í gagnrýni sinni á spillt
embættismannakerfi sem hann sagði þjóna hagsmunum valdsins, en birtingarmynd þess
væru stjórnmálaflokkarnir. Hann var sömuleiðis harðorður um þjónkun og tengsl
stjórnmálamanna við fjármálavaldið. Hann lagði ríka áherslu á að stjórnmálamenn hættu
afskiptum sínum af embættismannaveitingum. Í fylgiskjali með þingsályktunartillögu
Vilmundar hafði Gylfi Þ. Gíslason stungið upp á að forseti skipaði embættismenn beint
án afskipta stjórnmálamanna og yfirmenn stofnana bæru sjálfir ábyrgð á ráðningum
lægra settra embættismanna, sem líklegt má telja að Vilmundur hafi álitið vandaða
aðferð. Leið stjórnlagaráðsins virðist ekki eiga samleið hugarheimi þeirra feðga, en
ráðið stóð frammi fyrir sams konar vanda og taldi að skipan embættismanna þyrfti að
vera hafin yfir allan vafa. Niðurstaða ráðsins varð sú að sérstök nefnd skyldi annast val
Page 52
51
á embættismönnum til að koma í veg fyrir að annað en kunnátta og hæfileikar réðu
hverja ráðherra og önnur stjórnvöld skipuðu til starfa. Ráðið gerði einnig ráð fyrir
stofnun eftirlitsnefnda; aðferð sem enn má fullyrða að hefði vart hugnast Vilmundi, sem
vildi fækka stofnunum ríkisins.
Óhætt er að fullyrða að stjórnlagaráð hafi gengið lengra en Vilmundur varðandi
þjóðaratkvæðagreiðslur og málskot almennings, en heimildir til slíks eru auknar mjög.
Hann hafði áður stungið upp á rýmkun reglna um þjóðaratkvæðagreiðslur og vildi að
almenningur kæmi meira að ákvörðunum. Vilmundur hafði lagt til að Alþingi ákvæði
hvort atkvæðagreiðslur væru bindandi, en rök má færa fyrir að séu þær það ekki hafi
þær svipað gildi og skoðanakannanir. Hann vildi að þjóðkjörinn forsætisráðherrann gæti
efnt til atkvæðagreiðslu um nánast hvaða mál sem væri, sem gæti talist einskonar
útvíkkun á málskotsrétti 26. gr stjórnarskrárinnar.
Þingrofsréttinn færði ráðið til þingsins sjálfs sennilega til að treysta þingræðið.
Vilmundur hafði viljað afnema þingrof með öllu, enda væri það brot á
þingræðisreglunni. Sú mikilvæga breyting að nú heldur þingið umboði sínu til kjördags
þrátt fyrir þingrof hefur án efa dregið úr vægi þess í hugum stjórnlagaráðsliða.
Stjórnlagaráði þótti lítil ástæða til að hrófla við núverandi reglum um dómsvald enda
var gerð mikil lagabreyting í þeim málaflokki á öndverðum tíunda áratug síðustu aldar.
Vilmundur hafði verið afar harðorður í garð dómstóla, hafði fullyrt að þeir væru
verkfæri valdastofnana og ítrekaði mikilvægi sjálfstæðis hæstaréttardómara. Fyrrnefnd
endurskoðun á lagaumhverfi dómstóla hefur líklega dregið mjög úr mörgum þeim
ávirðingum sem Vilmundur hafði haft í frammi; tilgangurinn var að draga úr tengslum
framkvæmdar- og dómsvalds og tryggja jafnræði fólks fyrir lögum. Tengsl valdþáttanna
eru enn fyrir hendi því ráðherra skipar dómara þrátt fyrir að tryggja eigi sjálfstæði
dómstóla með lögum og eftirlitsstofnunum. Sömuleiðis hefur dómsvaldið iðulega legið
undir ámæli eftir hrun og er því mikilvægt að ný stjórnarskrárnefnd fjalli ítarlega um
það í sínu starfi.
Áhugi margra stjórnlagaráðaráðsliða á mannréttindum var auðsær þegar kom að
umsköpun þess málaflokks. Hugtakið er víkkað verulega út, enda falla trúmál, verndun
náttúru, frelsi fjölmiðla, hlutleysi vísinda- og listamanna og fleira þess háttar undir
Page 53
52
mannréttindakaflann. Á þeim áratugum sem liðnir eru síðan Vilmundur háði sína
baráttu hefur skilgreiningin á hvað teljist til mannréttinda breyst mjög, en niðurstaða
stjórnlagaráðs hefur samt verið gagnrýnd nokkuð og þótt ganga lengra en efni standa til,
einkum hvað snertir hugsanleg réttindi náttúrunnar sjálfrar. Þau mannréttindi sem
Vilmundur barðist fyrir voru klassísk fyrstu kynslóðar mannréttindi sem hann áleit
stjórnvöld brjóta margvíslega gagnvart almenningi í þágu valdsins. Hann taldi einnig
fjarri lagi að allir væru jafnir fyrir lögunum sem hefðu það hlutverk að verja hagsmuni
almennings en ekki fáeinna. Hann var þess fullviss að með því að færa valdið frekar til
almennings yrði breyting á. Vitaskuld horfði stjórnlagaráð ekki framhjá þáttum eins og
frelsi, jöfnuði og friðhelgi, en virtist leggja aðra áherslu á þá en Vilmundur í
málflutningi sínum. Vilmundur áleit afar brýnt að draga úr vægi hagsmunahópa, en
stjórnlagaráð komst að þeirri niðurstöðu að eðlilegt væri að hagsmunaðilar kæmu með
óbeinum hætti að lagasetningu, enda hefur það verið snar þáttur í undirbúningi
lagasmíða á undanförnum áratugum. Með því er þessum hópum þó fært víðtækara vald
en almenningi í landinu og beinni aðgangur að löggjafanum, sem var meðal þess sem
Vilmundur barðist af hörku gegn. Þótt upptaka kvótakerfis í sjávarútvegi, möguleg
olíuvinnsla og gríðarlegur ferðamannastraumur væru harla lítið til umræðu fyrir þrjátíu
árum fannst Vilmundi mikilvægt að land væri í þjóðareigu og nýting þess með. Á
síðastliðnum árum hefur verið mjög horft til þessa og deilur verið uppi um hvort
auðlindir gætu verið í eigu þjóðar. Stjórnlagaráð tók undir þá túlkun og leit svo á að
mikilvægt væri að skipa því sess í stjórnarskrá, einkum til að skerpa á eignarhaldi
sjávarauðlindarinnar, en aðrar þekktar og óþekktar auðlindir hljóta falla þar undir
sömuleiðis.
Bent hefur verið á að kjördæmaskipan á Íslandi uppfylli ekki skilyrði ÖSE um heimil
frávik, en viðamikil breyting var gerð á kjördæmaskipan í tillögum stjórnlagaráðs. Þar
skutu upp kollinum hugmyndir skyldar Vilmundar um persónukjör með því að hægt
yrði að kjósa þingmenn þvert á framboðslista auk þess sem gert er ráð fyrir að vægi
atkvæða væri jafnt hvarvetna á landinu. Jöfnun atkvæðavægis hafði verið Vilmundi
ofarlega í huga, en að hans mati gætu einmenningskjördæmi skapað af sér réttlátari
skiptingu þingsæta. Sú leið hefur ekki verið farin á Íslandi síðan kjördæmaskipan var
breytt í lok sjötta áratugarins og varð ekki hluti af tillögum stjórnlagaráðs. Því þótti
mikilvægt að þingmannafjöldi hvers framboðs væri í samræmi við atkvæðamagn og að
Page 54
53
girt yrði fyrir einsleitni og kynjaskipting tryggð, sem má fullyrða að væri í samræmi við
jafnaðarhugmyndir Vilmundar.
Fjölmiðlun, eðli hennar og inntak hafa tekið örum breytingum á undanförunum árum.
Stjórnlagaráðið færði skipan fjölmiðlunar í mannréttindakafla stjórnarskrárdraga sinna,
en fjölmiðlun var að sönnu með allt öðrum hætti en nú en á tíma Vilmundar. Það á við
jafnt um form sem efnistök. Ítök stjórnmálaflokka voru gríðarleg þá, en hann vildi auka
vægi rannsóknarblaðamennsku. Til þess þurftu fjölmiðlar allir að verða sjálfstæðari,
frjálsari, óháðari. Þótt frelsi í fjölmiðlun hafi síðan að nokkru verið tryggt á Íslandi
hefur valdið yfir þeim færst úr höndum stjórnmálamanna til fyrirtækjaeigenda,
hagsmunahópa og fjármagnseigenda. Í því breytta umhverfi lagði stjórnlagaráð ríka
áherslu á að frelsi og sjálfstæði miðlanna væri tryggt og aðhald með þeim og frá þeim
væri gert virkara. Sömuleiðis var öllum veitt heimild til upplýsingaöflunar, svo fremi
sem friðhelgi einkalífsins væri virt. Ráðið horfir þarna án efa til þeirrar miklu byltingar
sem orðið hefur með tilkomu internetsins; þar sem ný tegund fjölmiðlunar hefur orðið
til á öflugum samskiptavefjum.
Að framansögðu sést að víða átti stjórnlagaráð samleið með Vilmundi Gylfasyni í þeim
þáttum sem bornir voru saman og annars staðar ekki. Eins og áður sagði bar nafn hans á
góma fljótlega eftir hrun og fjölmörgum þótti mikið til einarðlegs málflutnings hans
koma. Í þjóðfélagi í upplausn hlaut að vera huggun að geta horft til skörulegs
stjórnmálamanns úr fortíð sem með óvægnu orðalagi benti á brotalamir samfélagsins og
hvernig væri hægt að snúa til betri vegar. Fram hefur komið að margir þeirra sem buðu
sig fram til stjórnlagaþings voru aðdáendur Vilmundar og skoðana hans en aðrir síður.
Ritun nýrrar stjórnarskrár er viðamikið verkefni, enda leitaði stjórnlagaráðið víða fanga
í efnisöflun sinni. Meðal þess sem það horfði til og ræddi var hugmyndafræði
Vilmundar og lærifeðra hans.
Helst má heyra samhljóm í andstöðu við vald stjórnmálaflokka og ósk um aukið réttlæti.
Ráðið var einnig, líkt og Vilmundur áfjáð í að draga úr spillingu, efla valddreifingu og
aðhald milli valdþátta ríkisins, en fann leiðir til þess sem að hluta hefðu vart hugnast
Vilmundi með því að treysta á talsvert eftirlitskerfi. Þættir eins og jöfnun atkvæðavægis
og sanngjörn kjördæmaskipting hafa um áratuga skeið verið til umræðu á Íslandi og er
nú svo komið að erlendar eftirlitsstofnanir hafa gert athugasemdir við ástandið. Það er
Page 55
54
því fyrir löngu orðin þörf á sátt, og mátti í tillögum ráðsins greina hugmyndir keimlíkar
Vilmundar, sérstaklaga um heimild kjósenda til að velja þvert á lista. Margt þess sem
gefur að líta í drögum ráðsins byggist á klassískum hugmyndum um hvað ritað skuli í
stjórnarskrá og annað er ívið byltingarkenndara, líkt og náttúruverndarhluti
mannréttindakaflans. Stjórnlagaráð ræddi möguleika á beinu kjöri forsætisráðherra, en
vildi ekki ógna þingræðinu með að fara þá leið. Á undanförnum áratugum hefur
sömuleiðis ýmsu af því sem Vilmundur taldi þurfa breytinga við verið komið fyrir með
nýjum hætti. Frelsi í fjölmiðlum, þrenging þingrofsréttar og nýskipan dómsmála eru til
marks um það. Það voru ekki bein tengsl milli niðurstöðu stjórnlagaráðs og hugmynda
Vilmundar Gylfasonar. Hins vegar áttu þær margt sameiginlegt, eins og hér hefur sýnt
fram á. Hin óbeinu áhrif – ræður Vilmundar, kenningar og hugmyndafræði – fékk
marga til að velta fyrir sér hvernig unnt væri snúa vörn í sókn og breyta samfélaginu til
betri vegar.
Page 56
55
HEIMILDASKRÁ
PRENTAÐAR HEIMILDIR
BÆKUR
Alþingistíðindi A 1978, 1979, 1981, 1982, 1983.
Alþingistíðindi D 1951.
Atli Harðarson: „Neyddur til að vera frjáls“, Afarkostir. Greinasafn um heimspeki
(Reykjavík 1995).
Ágúst Einarsson: „Dreifum valdi í fyrirtækjum og flokkum“, Greinasafn fyrra bindi.
Úrval greina og erinda um stjórnmál, menningu og menntun ([Reykjavík] 2007).
Ágúst Einarsson: „Ég vil byltingu og blóð“ Viðtal Karls Th. Birgissonar ritstjóra við
Ágúst Einarsson sem birtist í Helgarpóstinum 2. nóvember 1995, Greinasafn fyrra bindi.
Úrval greina og erinda um stjórnmál, menningu og menntun ([Reykjavík] 2007).
Ásgeir Jónsson: Why Iceland: How One of the World's Smallest Countries Became the
Meltdown's Biggest Casualty (New York 2009).
Boyes, Roger: Meltdown Iceland: How the Global Financial Crisis Bankrupted an
Entire Country (London 2009).
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga ásamt skýringum.“ Stjórnlagaráð. Umsjón með útgáfu:
Agnar Bragi Bragason, Andrés Ingi Jónsson, Guðbjörg Eva H. Baldursdóttir, Sif
Guðjónsdóttir, Þorsteinn Fr. Sigurðsson (Reykjavík 2011).
Eiríkur Bergmann Einarsson: Iceland and the International Financial Crisis: Boom,
bust and Recovery (Basingstoke 2014).
Guðmundur Hálfdanarson: Íslenska þjóðríkið uppruni og endimörk (Reykjavík 2001).
Guðni Th. Jóhannesson: Völundarhús valdsins. Stjórnarmyndanir, stjórnarslit og staða
forseta Íslands í embættistíð Kristjáns Eldjárns, 1968-1980 (Reykjavík 2005).
Guðni Th. Jóhannesson: Gunnar Thoroddsen. Ævisaga (Reykjavík 2010).
Guðni Th. Jóhannesson: Hrunið:Ísland á barmi gjaldþrots og upplausnar (Reykjavík
2009).
Guðrún Johnsen: Bringing Down the Banking System: Lessons from Iceland
(Basingstoke 2014).
Gunnar Helgi Kristinsson: „Ágrip af þróun stjórnarskrárinnar“ (Reykjavík 2005).
Gylfi Þ. Gíslason: Viðreisnarárin ([Reykjavík] 1993).
Page 57
56
Hannes Hólmsteinn Gissurarson: Hvernig getur Ísland orðið ríkasta land í
heimi?(Reykjavík 2001).
Jón Ormur Halldórsson: Löglegt en siðlaust. Stjórnmálasaga Vilmundar Gylfasonar
(Reykjavík 1985).
Jón Steinar Gunnlaugsson: Deilt á dómarana (Reykjavík 1987).
Locke, John: Ritgerð um ríkisvald, íslenzk þýðing eftir Atla Harðarson (Reykjavík
1986).
Mann, Michael: „The Autonomous Power of the State“, States in History, ritstjóri John
A. Hall (Oxford 1989).
Ný stjórnarskrá Íslands. Frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga 2011, útgefandi
Daði Ingólfsson í samstarfi við Stjórnarskrárfélagið ([Reykjavík] 2011).
Ólafur Arnarson: Sofandi að feigðarósi (Reykjavík 2009).
Ólafur Jóhannesson: Lög og réttur (Reykjavík 1985).
Páll Skúlason: „Réttlæti, velferð og lýðræði. Hlutverk siðfræðinnar í stjórnmálum“,
Pælingar II (Reykjavík 1989).
Poggi, Gianfranco: „The Formation of the Modern State and the Institutionalization of
Rule“, Handbook of Historical Sociology , ritstjórar Gerard Delanty og Engin F. Isin
(London 2003).
Rachels, James: Stefnur og straumar í siðfræði (Reykjavík 1997).
Ragnheiður Kristjánsdóttir: „Efasemdir um þingræði.“, Þingræði á Íslandi. Samtíð og
saga, ritstjórn: Ragnhildur Helgadóttir o.fl. (Reykjavík 2011).
Stefanía Óskarsdóttir: „Þingræði verður til“, Þingræði á Íslandi. Samtíð og saga,
ritstjórn Ragnhildur Helgadóttir og fleiri (Reykjavík 2011).
Svavar Gestsson: Hreint út sagt – ævisaga (Reykjavík 2012).
Vilmundur Gylfason: „Frelsishugtakið í öndverðri sögu Bandaríkjanna“, Söguslóðir.
Afmælisrit helgað Ólafi Hanssyni sjötugum 18. september 1979, ritnefnd Bergsteinn
Jónsson o. fl. (Reykjavík 1979).
Page 58
57
DAGBLÖÐ OG TÍMARIT
Anna Ólafsdóttir Björnsson: „ „Smátt er fagurt“. Vikuviðtal við Vilmund Gylfason sem
segir að jafnaðarmenn hafi mikið til anarkista að sækja“, Vikan 47. tbl. 1981.
Dagblaðið (Reykjavík) 1979, 1980.
DV (Reykjavík) 1982, 1983.
Fréttablaðið (Reykjavík) 2009, 2010, 2011, 2012.
Gylfi Þ. Gíslason: „Lýðræði og stjórnfesta. Hugleiðingar um stjórnskipunarmálið“,
Helgafell (1945), bls. 114-123.
Jónas Haraldsson: „ „Vil heldur vera stutt á þingi, og vera þar með svolítilli reisn““,
Vikan, 40. tbl. 1978.
Morgunblaðið (Reykjavík) 1980, 1983, 1992, 2008, 2009.
Ólafur Jóhannesson: „Hugleiðingar um stjórnarskrána“, Helgafell (1945), bls. 104-113.
„Samruni löggjafar- og framkvæmdavalds“ - Efni umræðufundar á vegum Orators 8.
desember 1983 þar sem Vilmundur Gylfason og Sigurður Líndal fluttu framsöguerindi,
Úlfljótur tímarit laganema, 35 (1:1983), bls. 52-55.
Svanur Kristjánsson: „Frá nýsköpun lýðræðis til óhefts flokkavalds. Fjórir forsetar
Íslands 1944-1996.“, Skírnir 186 (Vor 2012), bls. 50-97.
Svanur Kristjánsson: „Lýðræðisbrestir íslenska lýðveldisins. Frjálst framsal
fiskveiðiheimilda.“ Skírnir, 187. ár (Haust 2013), bls. 241-248.
Tíminn (Reykjavík) 1975, 1979.
Vilmundur Gylfason: „Franskt stjórnarfar og íslenskar aðstæður. Hugleiðingar um
breytta stjórnarskrá“, Tímaritið Málþing (1979).
Vilmundur Gylfason: „Hægri og vinstri – fortíð og framtíð“, Skutull 3.- 4. tbl, L.
árgangur.
Vísir (Reykjavík) 1979.
Þjóðviljinn (Reykjavík) 1982, 1983.
Þorvaldur Gylfason: „From Collapse to Constitution: The Case of Iceland“ CESifo
Working Paper Series (June 2012), No. 3770.
ÓPRENTAÐAR HEIMILDIR
Ásgeir Einarsson: „Málskotsréttur forseta Íslands“, óbirt BA ritgerð í stjórnmálafræði
(HÍ), 2012.
Page 59
58
Brynhildur Bolladóttir: „Tillögur stjórnlagaráðs að ákvæði í stjórnskipunarlögum um
framsal ríkisvalds til alþjóðastofnana“, óbirt BA ritgerð í lögfræði (HÍ), 2012.
Einar Franz Ragnars: „Frá Búsáhaldabyltingu til Stjórnlagaþings : hver eru tengslin á
milli Búsáhaldabyltingarinnar og Stjórnlagaþings?“, óbirt BA ritgerð í stjórnmálafræði
(Bifröst) 2011.
Jón Egilsson: „Siðspilling og siðbót: þjóðfélagsgagnrýni Vilmundar Gylfasonar 1975-
1978“, óbirt BA ritgerð í sagnfræði (HÍ), 1997.
Ódagsett viðtal sem Helgi H. Jónsson fréttamaður átti við Vilmund Gylfason eftir að
hann hafði fallið í kosningu um embætti varaformanns í Alþýðuflokknum. Gögn úr
fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Salka Margrét Sigurðardóttir: „Er vilji allt sem þarf? Hvers vegna norræna
velferðarstjórnin hafði ekki erindi sem erfiði við breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins
Íslands“, óbirt BA ritgerð í stjórnmálafræði (HÍ), 2014.
Sigurður Hólmar Kristjánsson: „Stjórnlagaráð, saga þess og hlutverk“, óbirt BA ritgerð í
lögfræði (HA), 2012.
Viðtal Sigmars B. Haukssonar við Vilmund Gylfason í ágústbyrjun 1981 um
Alþýðublaðsmálið. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Viðtal við Bjarna Benediktsson og Katrínu Jakobsdóttur í þættinum Sprengisandur í
umsjón Sigurjóns M. Egilssonar á útvarpsstöðinni Bylgjunni 25. ágúst 2013.
Vilmundur Gylfason til Kjartans Jóhannssonar: Athugasemdir um stefnuatriði vegna
kosninga. (Trúnaðarmál. Ekki til dreifingar). Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Vilmundur Gylfason: Flokksþingið, trúnaðarskjal, Fréttabréf nr. 4 frá Vilmundi
Gylfasyni á Alþingi, 11. nóv. 1980. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Vilmundur Gylfason: Jafnaðarstefna – dómsmál – lög og réttur – stjórnkerfi, handrit
1982. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Vilmundur Gylfason: Kjördæmamálið, Fréttabréf frá Vilmundi Gylfasyni á Alþingi, 4.
ágúst 1982. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Vilmundur Gylfason: Ræða um vantraust, 23. nóvember 1982, gögn úr fórum Jóns
Orms Halldórssonar.
Page 60
59
Vilmundur Gylfason: Stjórnarskráin, Fréttabréf frá Vilmundi Gylfasyni á Alþingi, 4. okt.
1982. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Vilmundur Gylfason: Stjórnmálaviðhorfin, fréttabréf nr. 2 frá Vilmundi Gylfasyni á
Alþingi, 6. mars 1980. Gögn úr fórum Jóns Orms Halldórssonar.
Vilmundur Gylfason: vinnuplagg fyrir þingflokksfund Alþýðuflokks, bls. 1. Gögn úr
fórum Jóns Orms Halldórssonar.
VIÐTÖL
Viðtal höfundar við Arnfríði Guðmundsdóttur, 12. apríl 2014.
Viðtal höfundar við Gísla Tryggvason 28. apríl 2014.
Viðtal höfundar við Katrínu Oddsdóttur, 21. apríl 2014.
Viðtal höfundar við Pétur Gunnlaugsson í ágúst 2013.
Viðtal höfundar við Þórhildi Þorleifsdóttur, 15. apríl 2014.
VEFHEIMILDIR
Vef. „Að takmarka áhrif hagsmuna, ástríðna, fordóma og hlutdrægni“, mbl.is,
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1375206/, skoðað 7. maí 2014.
Vef. „Aðferðafræði við kosningu til stjórnlagaþings. Hvernig er kosið til
stjórnlagaþings?“ á vef Landskjörstjórnar,
http://www.landskjor.is/stjornlagathing/adferdafraedi-vid-kosningu-til-stjornlagathings/,
skoðað 30. ágúst 2013.
Vef. Arnfríður Guðmundsdóttir: „Tillögur Stjórnlagaráðs um tengsl ríkis og kirkju.
Bakgrunnur og merking.“, 4. íslenska söguþingið 7. - 10. júní 2012. Ráðstefnurit,
ritstjóri: Kristbjörn Helgi Björnsson, (Reykjavík 2013),
http://skemman.is/stream/get/1946/17296/40366/1/r%C3%A1%C3%B0stefnurit_9_fina
l.pdf, skoðað 24. apríl 2014.
Vef. Baldvin Jónsson: Ræða á 139. löggjafarþingi, 3. fundi, 4. okt. 2010.
„Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana“ á vef Alþingis,
http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20101004T213121.html, skoðað 30. ágúst
2013.
Vef. Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í samráðsnefnd um viðbrögð við ákvörðun
Hæstaréttar um ógildingu kosninga til stjórnlagaþings, á vef Forsætisráðuneytisins,
http://www.forsaetisraduneyti.is/media/frettir1/Birgir-alit-24-2.pdf, skoðað 7. maí 2014.
Page 61
60
Vef. „Er Stjórnlagaráði skylt að fara eftir niðurstöðu þjóðfundarins 2010?“, Spurt og
svarað, á vef Stjórnlagaráðs, http://stjornlagarad.is/upplysingar/spurt-og-svarad/,
skoðað 7. apríl 2014.
Vef. „Forsætisráðherra skipar stjórnarskrárnefnd“, á vef Forsætisráðuneytisins, 6.
nóvember 2013, http://www.forsaetisraduneyti.is/frettir/nr/7766, skoðað 20. apríl 2014.
Vef. „Fyrstu umræðu um stjórnarskrárfrumvarp lokið“, á vef Lögfræðingafélag Íslands,
http://www.logfraedingafelag.is/um-felagid/frettabref/nr/349/, skoðað 26. ágúst 2013.
Vef. „Gagnrýnir „óvissuferð“ stjórnlagaráðs“, á vefsíðunni mbl.is,
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/12/13/gagnrynir_ovissuferd_stjornlagarads/,
skoðað 10. apríl 2014.
Vef. Gunnar Helgi Kristinsson: „Ráðskast með stjórnarskrá“, Stjórnmál & stjórnsýsla, 2.
tbl., 8. árg. 2012, bls. 565,
http://skemman.is/stream/get/1946/15936/37977/1/b.2012.8.2.1.pdf, skoðað 7. maí 2014.
Vef. „Jafnt atkvæðavægi?“, á vef Ríkisútvarpsins, 10. Október 2012,
http://www.ruv.is/frett/jafnt-atkvaedavaegi, skoðað 1. maí 2014.
Vef. „Mikill hiti í mótmælafundi dagsins: „Ef ráðamenn ekki hypja sig munum við bera
þá út“ “, á vefsíðunni Eyjan 22. nóvember 2008,
http://eyjan.pressan.is/frettir/2008/11/22/mikill-hiti-i-motmaelafundi-a-austurvelli-ef-
radamenn-ekki-hypja-sig-vid-munum-vid-bera-tha-ut/, skoðað 22. apríl 2014.
Vef. „Sigurði Líndal líst ekki á stjórnlagaþing - Fulltrúar pólitískir og kunna ekki
lögfræði“, á vefsíðunni Pressan,
http://www.pressan.is/m/Article.aspx?catID=6&ArtId=23074, skoðað 30. ágúst 2013.
Vef. „Skipa nýja stjórnarskrárnefnd“, á vefsíðunni mbl.is, 9. júlí 2013,
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/07/09/skipa_nyja_stjornarskrarnefnd/, skoðað 30.
ágúst 2013.
Vef. Eyjólfur Ármannsson: „Flokksræðið gegn fólkinu – Ræða Vilmundar Gylfasonar
23. nóvember 1982“, eyjolfurarmannsson.com, 8.nóvember 2010,
http://eyjolfurarmannsson.com/2010/11/08/flokksr%C3%A6%C3%B0i%C3%B0-gegn-
folkinu-r%C3%A6%C3%B0a-vilmundar-gylfasonar-23-november-1982/, skoðað 30.
ágúst 2013.
Vef. Eyjólfur Ármannsson: „Verkefni stjórnlagaþings“, Eyjólfur Ármannsson blogg, 25.
nóvember 2010, http://eyjolfurarmannsson.blog.is/blog/eyjolfurarmannsson/, skoðað 22.
febrúar 2014.
Page 62
61
Vef. Framtíð lýðræðis á Rás 1, 13. apríl 2014. Svanur Kristjánsson um lýðræði og fleira.
Sjá: https://soundcloud.com/larahanna/svanur-kristj-nsson-um-l-rae-i, á 40´25. Skoðað
15. apríl 2014.
Vef. Friðrik Friðriksson: „Framboð til stjórnlagaþings nr. 5779“, Friðrik Friðriksson, 17.
nóvember 2001, http://blog.pressan.is/fridrikf/2010/11/17/frambod-til-stjornlagathings-
nr-5779/, skoðað 2. maí 2014.
Vef. Hagsmunasamtök heimilanna.
http://www.heimilin.is/varnarthing/rammaadgerdir/greidsluverkfall/skrifadu-
thingmonnum.html, skoðað 20. apríl 2014.
Vef. Jóhanna Sigurðardóttir: „Breytt kjördæmaskipan – forsenda framfara“, Jóhanna
Sigurðardóttir, 13. september 1996,
http://www.althingi.is/johanna/greinar/safn/000010.shtml, skoðað 30. ágúst 2013.
Vef. Kynning stjórnlagaráðs á störfum sínum, í Borgarbókasafni 24. október 2011.
Ræða Eiríks Bergmanns Einarssonar, á vefsvæðinu Hjari veraldar,
http://video.hjariveraldar.is/19_Stj_kynning_3.html, skoðað 28. ágúst 2013.
Vef. Lára Hanna Einarsdóttir: „Þrjár ræður Vilmundar“, Lára Hanna, 25. nóvember
2008, http://blog.pressan.is/larahanna/2008/11/25/thrjar-thingraedur-vilmundar-
gylfasonar/, skoðað 1. apríl 2014.
Vef. Lára Magnúsardóttir: „Náttúran í eigin rétti. Stjórnarskrá á mannamáli.
Aðferðafræðileg
tilraun.“ http://stofnanir.hi.is/skagastrond/sites/files/skagastrond/Lara%20M%20-
%20Natturan%20%C3%AD%20eigin%20retti%202012%20%28-14%29.pdf, skoðað
24. apríl 2014.
Vef. Lög um stjórnlagaþing, nr. 90, 25. júní 2010, 2.gr., á vef Alþingis:
http://www.althingi.is/altext/stjt/2010.090.html, skoðað 30. ágúst 2013.
Vef. Lög nr. 91, 11. júlí 2013, Stjórnarskipunarlög um breytingu á stjórnarskrá
lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum, á vef Alþingis:
http://www.althingi.is/altext/stjt/2013.091.html, skoðað 1. maí 2014.
Vef. Á vef Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands: Haraldsson og Sveinsson gegn
Íslandi.
http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/haraldsson_og_sveinsson_gegn_islandi,
Skoðað 26. ágúst 2013
Vef. Viðtal Péturs Fjeldsted við Þorvald Gylfason á vefsvæðinu Hjari veraldar,
http://hjariveraldar.is/, skoðað 26. ágúst 2013.
Page 63
62
Vef. „Vigdís hvetur EGF snyrtivörur til að sniðganga Kvennablaðið“, á vefsíðunni
visir.is, 27. febrúar 2014, http://www.visir.is/vigdis-hvetur-egf-snyrtivorur-til-ad-
snidganga-kvennabladid/article/2014140228992, skoðað 3. maí 2014.
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Eiga hugmyndir Vilmundar Gylfasonar erindi í
umræðuna?“ Erindi á opnum borgarafundi á vegum framtíðarhóps Samfylkingarinnar,
15. nóvember 2008, Vilhjálmur Þorsteinsson,
http://vthorsteinsson.blog.is/users/56/vthorsteinsson/files/fundur_framti_arhops_s_um_
vilmund_ofl.pdf, skoðað 2. nóvember 2010.
Vef. Vilhjálmur Þorsteinsson: „Stefnumál“, Vilhjálmur Þorsteinsson fulltrúi í
stjórnlagaráði, ódagsett. http://vthorsteinsson.wordpress.com/stefnumal/, skoðað 10.
apríl 2014.
Vef. „Þarf að breyta stjórnarskránni?“, Spurt og svarað á vef Stjórnlagaráðs,
http://stjornlagarad.is/upplysingar/spurt-og-svarad/, skoðað 7. apríl 2014.
Vef. „Þrjú þúsund tölvupóstar til þingmanna“, á vefsíðunni visir.is,
http://www.visir.is/thrju-thusund-tolvupostar-til-thingmanna/article/2014140409076,
skoðað 20. apríl 2014.
Vef. Þorkell Helgason: „Greining á úrslitum kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember
2010“, Stjórnmál & stjórnsýsla, 1. tbl., 7. árg. 2011.
http://skemman.is/stream/get/1946/9664/24605/3/b.2011.7.1.2.pdf, skoðað 2. maí 2014.