V innumálastofnun V esturlandi Stillholti 18, 2. hæð, 300 Akranesi Sími: 515-4800 Fax: 430-5301 Heimasíða: www.vinnumalastofnun.is Netfang: [email protected]14. september 2015 LAUS STÖRF Akranes HVE (www.starfatorg.is 24.08.2015) Auglýstar eru að nýju lausar stöður heilsugæslulækna við Heilsugæslustöðina á Akranesi, áður með fresti til 15. ágúst sl. Sérfræðimenntun í heimilislækningum er æskileg eða staðgóð reynsla af læknisstörfum á heilsugæsluviði. Vaktskylda fylgir starfinu svo og þátttaka kennslu heilbrigðisstétta. Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is undir flipanum útgefið efni.Umsóknarfrestur um störfin er til 18. september 2015. Upplýsingar gefa: Þórir Bergmundsson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 432 1000, netfang [email protected] og Guðjón S. Brjánsson, forstjóri í s. 432 1010, netfang [email protected]Vakin er athygli á möguleika fyrir 2 – 3 áhugasama heilsugæslulækna að koma til starfa og fá tækifæri til að móta og þróa starfsemina í ljósi ýmissa hugmynda um aukið samstarf við sveitarfélagið á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu. Akranes er stærsta bæjarfélagið á Vesturlandi en þar búa tæplega 7000 manns. Hröð íbúafjölgun hefur verið á Akranesi síðasta áratuginn en það tekur aðeins um 40 mínútur að keyra frá Reykjavík upp á Akranes ef farið er um Hvalfjarðargöng. Reglubundnar strætisvagnaferðir eru á milli Akraness og Reykjavíkur. Yfirbragð bæjarins er friðsælt og barnvænt. Stofnanir bæjarins eru rómaðar fyrir gott faglegt starf og íþrótta- og menningarlíf er í miklum blóma. Frábær aðstaða er til útivistar, meðal annars með 18 holu golfvelli. Þjónustusvæði heilsugæslustöðvarinnar er Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit og íbúafjöldi er um 7,600. Á stöðinni starfa 4-5 heilsugæslulæknar auk 7 hjúkrunarfræðinga í ungbarna- og mæðravernd, heimahjúkrun, skólahjúkrun, heilsueflandi móttöku og öðrum almennum og sérstökum verkefnum. Næringarfræðingur, sálfræðingar og iðjuþjálfi starfa í tengslum við heilsugæslustöðina. Við stöðina er starfar sérhæft teymi fagfólks við greiningu hegðunar- og þroskafrávika barna. HVE (www.starfatorg.is 24.08.2015) Auglýst er að nýju staða yfirlæknis Heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi, áður með fresti til 15. ágúst s.l. Sérfræðimenntun í heimilislækningum er skilyrði ásamt staðgóðri reynslu af stjórnunarlegum verkefnum. Vaktskylda fylgir starfinu svo og þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta. Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Leitað er að áhugasömum einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við endurskipulag og þróun nútímalegrar þjónustu á heilsugæslusviði þar sem leiðarljós er lýðheilsa og forvarnir. Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is undir flipanum útgefið efni. Umsóknarfrestur er til 18. september 2015. Upplýsingar gefa: Þórir Bergmundsson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 432 1000, netfang [email protected] og Guðjón S. Brjánsson, forstjóri í s. 432 1010, [email protected]Akraneskaupstaður (www.akranes.is 11.09.2015) Störf við leiðveislu laus til umsóknar. Um er að ræða hlutastörf í liðveislu með fötluðu fólki. Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 20 ára og hafi þekkingu á málefnum fatlaðra og/eða reynslu af vinnu með fötluðum. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bílpróf og hafi aðgang að bíl. Vinnutíminn er að öðru jöfnu seinnipart dags og/eða um helgar þannig að starfið hentar vel t.d. háskólanemum. Launakjör eru skv. kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga. Karlar jafnt sem konur eru hvött til þess að sækja um störfin. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2015. Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða með því að skila inn umsókn í þjónustuver á 1. hæð að Stillholti 16-18. Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Andrésdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi í tölvupósti eða í síma 433-1000. Verkís (Skessuhorn 10.09.2015) Verkfræðingar og tæknifræðingar. Verkís óskar eftir að ráða verkfræðing eða tæknifræðing á starfsstöð fyrirtækisins á Akranesi. Menntunar og hæfinskröfur: Byggingar-, véla eða rafmagnsverkfræðingur/tæknifræðingur A.m.k. 3ja ára starfsreynsla Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.
Borgarbyggð Flutningastöðin í Borgarnesi (Skessuhorn 02.09.2015) Flutningastöðin í Borgarnesi óskar eftir starfskrafi í vöru hús við útkeyrslu og önnur tilfallandi störf sem fyrst
vinnutími er frá kl. 7 - 12 virka daga og jafnvel lengur eftir samkomulagi.
Hæfniskröfur:
Bílpróf er skilyrði
Meirapróf er kostur
Stundvísi og góð þjónustulund
Æskilegt er að viðkomandi hfi búsetu í Borgarnesi eða næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 860 7230 eða á [email protected]
Blossi ehf. Grundarfirði (VMST.is ) Óskað er eftir að ráða starfsmann í hlutastarf. Íslenskukunnátta, verður að tala íslensku og búseta í Grundarfirði eða
nágrenni skilyrði. Starfið felst m.a. í að brjóta saman þvott, við útkeyrslu og afgreiðslustörf ásamt fl.
Vinnutími er frá 8:00/9:00-16:00. Upplýsingar hjá Ingibjörgu á netfangið [email protected]
Leikskólakennari (www.mosfellsbaer.is 3.09.2015) Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Hlíð. Hlíð er fimm deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á einingakubba,
umhverfismennt og skapandi starf. Unnið er með PALS sem er markviss undirbúningur lestrarnáms. Leikskólinn Hlíð er
staðsettur miðsvæðis í Mosfellsbæ í fallegu umhverfi þar sem stutt er í fjölbreytta náttúru.
Helstu verkefni og ábyrgð: Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara,
þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Stundvísi
Góð íslenskukunnáttak
Um er að ræða framtíðarstarf og getur starfshlutfall verið á bilinu 75% til 100% . Karlar jafnt sem konur eru hvött til að
sækja um stöðuna. Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðin starfsmaður með aðra menntun og /eða reynslu af
leikskólastarfi. Umsóknafrestur er til 15. september n.k. Umsóknum skal skila á netfangið [email protected] ásamt
upplýsingum um menntun og reynslu. Launakjör eru skv.samningi Mosfellsbæjar við Félag leikskólakennara eða
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar.Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Halldórsdóttir leikskólastjóri og Ása Jakobsdóttir
aðstoðarleikskólastjóri í síma 566 7375 og 666 1118
Sigurplast ehf óskar eftir vaktmanni við framleiðslu (Vmst. Rvk.) Um fullt starf er að ræða og er unnið á vöktum við frágang og pökkun á framleiðsluvörum fyrirtækisins. Vaktir skiptast
vikulega og eru tveir menn á vakt hverju sinni. Vinnutími: Fyrsta vika frá kl. 07:30 - 15:30. Önnur vika frá kl. 15:30 -
23:30. Þriðja vika frá kl. 23:30 - 07:30. Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferilskrá á netfangið:
Húsasmiðjan í Grafarholti (www.visir.is / www.radum.is 12.9.2015)
Húsasmiðjan leitar að metnaðarfullum og þjónustulunduðum sölumanni í timburráðgjöf. Helgarvinna. Í starfinu felst
þjónusta við viðskiptavini og söluráðgjöf á byggingarefnum. Viðkomandi þarf að hafa haldgóða þekkingu á timbri og
byggingarvörum, viðhafa sjálfstæð og vönduð vinnubrögð auk ríkrar samskiptahæfni. Hentugt starf fyrir nema í húsasmíði
og öðrum iðngreinum. Umsóknir berist fyrir 1. október n.k. á netfangið [email protected]
Ölgerðin – vélamaður á tæknisviði (www.visir.is / www.radum.is 12.9.2015) Ölgerðin óskar eftir að ráða iðinn og samviskusaman einstakling í framleiðslusal fyrirtækisins. Í starfinu felst ábyrgð á
framleiðsluvélum m.a. á breytingum og fínstillingum á vélbúnaði sem notaður er við framleiðslu á vatni, gosi og öli. Leitað
er að starfsmanni með iðnmenntun, t.d. vélstjórn, vélvirkjun eða bifvélavirkjun. Um vaktavinnu er að ræða og eru konur
jafnt og karlar hvattar til að sækja um. Um er að ræða dag- og kvöldvakt. Kvöldvakt vinnur af sér föstudagsvaktina í hverri
viku.
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar á netfangið [email protected], merkt “Vélamaður".