Árið 1985 var blásið til hugmyndasamkeppni um búnað á tjaldsvæðum og hönnun á þjónustuhúsum. Alls bárust 19 tillögur og hlaut 1. verðlaun tillaga Grétars Markússonar og Stefáns Arnar Stefánssonar arkitekta FAÍ og Björns Jóhannssonar og Einars E. Sæmundsen landslagsarkitekta FILA, en Gunnar St. Ólafsson sá um verkfræðilega ráðgjöf. Þjónustuhús þessi, sem nú eru smíðuð í ýmsum útgáfum á Trésmíðaverkstæði Kára Lárussonar í Dalabyggð, urðu strax vinsæl og hafa verið sett upp á mörgum helstu ferðamannastöðum landsins. Þeim sem hafa hug á að kynna sér húsin betur og nýta þau er bent á að hafa samband við Trésmíðaverkstæði Kára Lárussonar, s. 434 1516.
Welcome message from author
This document is posted to help you gain knowledge. Please leave a comment to let me know what you think about it! Share it to your friends and learn new things together.