Af hverju fjárfesti ég í eigin fyrirtæki Margrét Guðmundsdóttir Forstjóri Icepharma hf
Jan 18, 2016
Af hverju fjárfesti ég í eigin fyrirtæki
Margrét GuðmundsdóttirForstjóriIcepharma hf
Bakgrunnur
• Menntun:– Executive Managment Training frá Insead– Cand. Merc. CBS– Cand. Oecon HÍ
• Starfsreynsla:– Forstjóri Icepharma/Austurbakka– Framkvæmdastjóri hjá Skeljungi– Framkvæmdastjóri hjá Q8 í Kaupmannahöfn
Markmið í lífinu
• Að starfa í alþjóðlegu umhverfi• Að starfa hjá stóru fyrirtæki• Rekstrarleg ábyrgð• Stjórnunarleg ábyrgð• Að vera ekki í eigin rekstri
Icepharma hf
• Velta um 5 milljarðar• Starfssvið: markaðssetning og sala á vörum fyrir heilbrigðiskerfið:
– Lyfjasvið– Heilbrigðissvið– Neytendavörusvið– Nike umboðið
• Fyrirtækið byggir á gömlum grunni og varð til eftir samruna og yfirtöku ýmissa fyrirtækja t.d. Austurbakki, Ísmed, ThorarensenLyf, Lyfjaverslun Íslands m.m.
• Eignarhald: Eignarhaldsfélagið Lyng ehf. sem er í eigu Kristjáns Jóhannssonar og 5 lykilstjórnenda fyrirtækisins.
• Starfsmannafjöldi ca. 70 manns þar af um 60 með háskólamenntun
Þegar fyrirtæki skipta um eigendur
• Óvissuástand skapast• Viðskiptasambönd geta riðlast• Uppsagnarákvæði í samningum• Fyrirtækjamenning• Orsök sölu og forsendur kaupa
Icepharma til sölu
• Forsenda: Ný stefnumótun Atorku hf• Mjög faglega staðið að söluferli
Þættir til athugunar varðandi sölu
• Verðmæti fyrirtækisins lágu í starfsfólkinu og birgjum
• Fyrirtækið hafði farið í gegnum miklar breytingar á undanförnum árum sem gengið höfðu misvel
• Ekki alveg augljóst að fyrirtækið mundi fara vel út úr enn einu breytingarferlinu
Hvers vegna kaupa?
• Okkur hafði tekist á einu ári að gera Icepharma að góðu fyrirtæki; skemmtilegum vinnustað, góð samskipti við birgja og viðskiptavini auk þess sem við vorum að skila rekstrarárangri í samræmi við áætlanir
• Sterk ábyrgðatilfinning gagnvart starfsfólki• Mikil ánægja í starfi• Gott stjórnendateymi• Áhættan þekkt• “Engir óþolandi yfirmenn”• Starfstrygging
Var ákvörðunin rétt?
• Fyrirtækið losnaði algjörlega við neikvæð áhrif af eigendaskiptum
• Mikil sátt hjá starfsfólki og samstarfsaðilum• Mikil trú á fyrirtækinu og framtíðarmöguleikum
þess• Auðvelt að fá gott starfsfólk til starfa• ...og það er enn þá ótrúlega gaman í vinnunni og
svarið því Já, þetta var góð ákvörðun.