Fjarðabyggð/Leiknir/Höur - Einherji 2. deild kvenna Norðarðarvöllur 14. maí 2017
Fjarðabyggð/Leiknir/Höttur - Einherji
2. deild kvenna
Norðfjarðarvöllur
14. maí 2017
Eftirtaldir aðilar styrkja liðið
Landsbankinn
Hótel Capitano
Sparisjóður Norðfjarðar
TM
Olís
Þvottabjörn
Flugfélag Íslands
Bílaleiga akureyrar
Orkusalan
Launafl
austfjarðaleið
Íslandsbanki
Efla, verkfræðistofa
Kaffihús Eskifjarðar
Icelandair
VÍS
Samhentir, umbúðalausnir
Saltkaup
Sjóvá
Fiskmið
Eimskip
Egersund
Arion banki
VHE
GP sónar
Samskip
Brammer
Rarik
Geskur
KFF/Leiknir/Höttur - Einherji
Góðan daginn góðir hálsar og velkomnir á sígrænan Norðfjarðarvöll. Deildarkeppni að hefjast hjá
konunum okkar en mið-austurland teflir fram sameiginlegu liði Fjarðabyggðar, Leiknis og Hattar. Hvalreka
bar að landi fyrir helgi en þá samdi Vala Ormarsdóttir við liðið. Vala hafði söðlað um í vetur og farið í
rangan Þrótt en er nú komin til baka. Fyrir þau sem ekki vita er hún systir Almarrs Ormarssonar og hefur
hún eflaust gaman af því að vera auðkennd af því.
Liðið datt út úr bikarnum fyrir gestum dagsins en úrslit réðust í vítaspyrnukeppni eftir að flautað var af í
1-1. Mark okkar kvenna gerði Elísabet Eir Hjálmarsdóttir en hún er skráð í Leikni F.
Sara Atladóttir stýrir liðinu í sumar og er það í fyrsta sinn sem Sara stýrir m.fl. Hún hefur þó góða
reynslu af þjálfun og hefur verið aðstoðarþjálfari í m.fl. sem dæmi.
Þetta er annað sumarið í þessu samstarfi og eru margar efnilegar stelpur að fá að spreyta sig í m.fl. og
er markmiðið að með tímanum verði liðið stöndugt 1. deildarlið sem eigi góða möguleika á að fara í Pepsi.
Að lokum vil ég hvetja fólk fyrir austan til að vera duglegt að skella sér á völlinn. Líka á kvennaleiki!
Fjarðabyggð/Leiknir/Höttur
1. Steinunn Lilja Jóhannesdóttir (M)
2. Natalía Gunnlaugsdóttir (F)
6. Tinna Hrönn Guðmundsdóttir
8. Katrín Björg Pálsdóttir
11. Adna Mesetovic
15. Elísabet Eir Hjálmarsdóttir
16. Halldóra Birta Sigfúsdóttir
17. Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir
18. Halla Helgadóttir
20. Kristín Inga Vigfúsdóttir
21. María Jóngerð Gunnlaugsdóttir
Varamenn:
4. Embla Eir Björgvinsdóttir
7. Berglind Eir Ásgeirsdóttir
9. Rebekka Ýr Unnarsdóttir
10. Sasithorn Phuangkaew
14. Brynja Rún Steinþórsdóttir
19. Brynja Þorsteinsdóttir
Þjálfari: Sara Atladóttir
Miðað er við skýrslu síðasta leiks
Einherji
1. Doris Bacic (M)
2. Hugrún Ingólfsdóttir
3. Debóra Dögg Jóhannsdóttir
9. Karen Ósk Svansdóttir (F)
10. Justyna Walejko
13. Emilía Brá Höskuldsdóttir
14. Borghildur Arnarsdóttir
17. Viktoría Einarsdóttir
18. Sigurrós Halldórsdóttir
19. Barbara Kopacsi
21. Bernadett Viktoria Szeles
Varamenn:
12. Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir (M)
6. Harpa Lind Sigurðardóttir
20. Alexandra Einarsdóttir
Þjálfari: Dilyan Nikolaev Kolev
Miðað er við skýrslu síðasta leiks
Leikmannakynning: Natalía Gunnlaugsdóttir
Spámaðurinn að þessu sinni er engin önnur en Elly Vilhjálms! Eða allavega sú
sem túlkar hana á stórbrotin hátt í leiksýningunni Elly. Við erum að sjálfsögðu
að tala um Katrínu Halldóru Sigurðardóttur. En hvernig fer leikurinn Kata?
„Þetta fer 2-1 fyrir okkar stelpum á fallega vellinum okkar á Norðfirði.
Þessar stelpur eru bara lang flottastar.“
Spámaðurinn
Í dag fáum við að kynnast fyrirliðanum Natalíu Gunnlaugsdóttir.
Það stóð nu ekki á svörum hjá þessari skemmtilegu stelpu.
Aldur: 20.
Staða á velli: Miðja.
Uppeldisfélag: Höttur.
Hver er þinn uppáhalds fótboltamaður? Neymar ástin mín.
Með hverjum heldurðu í enska? Arsenal.
Hvaða land vinnur Eurovision? Góð spurning. Ef ég væri bara búin að hlusta á eitt lag.
Ertu með einhverjar hefðir á leikdegi? Ég fæ mér alltaf amino og kúka rétt fyrir leik. Þá er ég góð.
Hver er fyndnust í liðinu? María.
Hver er með versta tónlistarsmekkinn? Sara þjálfari.
Hvaða tvær úr liðinu tækirðu með þér á eyðieyju? Ef ég tæki Maríu
og Ársól með mér þá myndi mér allavega pottþétt ekki leiðast.
Hvað gerirðu annað en að spila fótbolta? Sófaklessa.
Eitthvað að lokum? Ég vil brjálaða stemmingu í stúkunni!!! Áfram
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir!