-
Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.
12. kafli – blóðrásin
Section A: yfirlit Blóðrásin flytur súrefni, næringarefni og
úrgang, þessi efni geta ferðast með flæði,”diffunderað” yfir
nokkarar frumubreiddir í vefjunum. Fjölfrumulíkamar þurfa æðakerfi
sem flytur nauðsynleg efni, áðurnefnd súrefni, næringarefni og
úrgang til og frá frumunum. Fyrir utan það að flytja efni hefur
blóð margþáttað hlutverk. Það er t.d. miðstöðvakerfi (stjórnar
hita). Í hvert skipti sem ATP sameind myndast eða er brotin niður
fer 50% af orkunni í hitamyndun. Þegar við reynum á okkur er mikið
niðurbrot og við hitnum. Blóðið flytur hita til húðarinnar, þegar
við hitnum er súrefnisríkt blóð sendt til húðar til að kæla en
blóðið kemur jafn súrefnisríkt tilbaka. Geta okkar er háð því
súrefni sem fer til vöðva. Auk þess verndar blóðið líkamann gegn
framandi efnum og efni í blóðinu – chemical buffers – breytir
sterkar sýrur og basar í veikara sýrur og basar til þess að halda
pH-gildið á bilinu 7,35-7,45. Plasmaprótein myndar osmóþrýsting sem
hefur áhrif á flæði sameinda á milli blóðsins og millifrumuvökvans
og hefur líka áhrif á osmóstyrk hans. Blóðið er ekki bara vökvi
heldur lífandi bandvefur með 45% frumuþættir og 55% millifrumuvökva
(plasma). Frumuþættirnir eru erythrocytes – rauð blóðkorn,
leukocytes – hvít blóðkorn og thrombocytes – platelets /
blóðflögur. Það hlutfall blóðs, sem er rauð blóðkorn, heitir
hematcrit. Ef blóð stendur (án þess að það storkni) sökkva rauðu
frumurnar til botns, hvítu raða sig ofan á og plasma verður efst.
Hvítu blóðkornin og blóðflögurnar, sem raðast ofan á hematcrit,
nefnast þá “buffy coat”. Hraðinn þetta gerist á er kallaður
Sedimentation rate (SR). 6-8% af líkamsþyngd okkar er blóð, 4,5-5,5
l hjá konum og 5,0-6,0 l hjá körlum. Fyrst og fremst er magnið í
okkur rauð blóðkorn, ca. 45% alls blóðsins (eða um 2,5 l.). plasmað
í blóðinu er ca. 3 l. Við þolum að missa 10%, blóðbankinn tekur 0,5
l. Blóðmagnið er þó minna hjá konum vegna þess að um 10-20 ml blóð
hverfur í blæðingum. Normovolemia; venjulegt blóðmagn,
hypervolemia; meira en venjulegt blóðmagn, hypovolemia; minna en
venjulegt blóðmagn. normovolemia; venjulegt blóðmagn, hypervolemia;
meira en venjulegt blóðmagn, hypovolemia; minna en venjulegt
blóðmagn. Uppbygging hjarta- og blóðrásaarkerfisins Hjarta –
slagæðar (arteries) – arteriolur – háræðar (capillaries) – venulur
– venur (bláæðar) – hjarta. Um 5% blóðsins eru í háræðunum. Hver
háræð er um 1 mm löng, flestar frumur líkamans eru mjög nálægt
næstu háræð, eða um 0,02 mm, að meðaltali. Þess vegna geta
sameindir dreifst hratt frá frumu að næstu háræð og öfugt.
Háræðaveggirnir eru bara ein fruma á þykkt. Microcirculation:
slagæðlingar – háræðar – bláæðlingar.s Súrefni, næring, koldíoxíð
og úrgangsefni diffundera milli fruma og háræðanna.
H.blk og blóðflögur => “buffy coat”
-
Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.
Hjarta og blóðrásarkerfi: helstu þættir Systemíska blóðrásin
Vinstri slegill – left ventricle Ósæð – aorta Slagæðar –
arteries Slagæðlingar - arterioles Háræðar – capillaries
Bláæðlingar - venules Bláæðar – veins Vena cava inferior og
superior Hægri gátt – right artrium
Lungnablóðrásin
Hægri slegill - right ventricle Lungnaslagæð – pulmonary
arteries (er bláæð) Háræðar í lungum – capillary beds of lungs
Lungnabláæð – pulmonary veins (er slagæð) Vinstri gátt – left
artrium
Hvert fer blóðið úr ósæðinni (í hvíld)?
13%
4%
24%
20%
20%
9%
10%
650 ml/mín
215 ml/mín
1200 ml/mín
950 ml/mín
1030 ml/mín
430 ml/mín
525 ml/mín
-
Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.
Blóðrásin: þrýstingur, flæði, viðnám Í æðunum flæðir blóð úr æð
með hærri þrýstingi í æð með lægri þrýstingi. Æð með hærri
þrýstingi eru slagæðar, en þær æðar sem eru með lægri þrýsting eru
þá bláæðar. Hydrostatískur þrýstingur er þrýstingur í vökva og er
hann mældur í mmHg (millimetrum kvika-silfurs). Blóðþrýstingur er
mælieining fyrir kraftinn sem lætur blóðið flæða gegnum æðarnar.
Til þess að blóðið flæði þarf þrýstingurinn að vera hærri en
viðnámið (núningskraftur á milli blóðs og æðaveggja og á milli
sameinda og frumna í blóðinu) Venjulegur slagæðaþrýstingur –
arterial pressure – er um 100 mmHg. Minnkun blóðþrýstings sýnir
orkumissir vegna viðnáms. Viðnám gegn flæði er hversu erfitt það er
fyrir blóðið að flæða á milli tveggja staða í æðakerfinu. -Viðnám í
kerfishringrásinni (systemic cyrculation) er um 5 sinnum meira en í
lungnahringrásinni (100 mmHg vs 10 mmHg), mest viðnám í
slagæðlingum. Flæði blóðs er mælt í lítrum á mínútu (L/mín.).
Virkur vefur fær meira blóð en vefur sem er ekki eins virkur.
Systola => þegar blóðið flæðir inn gáttirnar (artriurnar)
Distola: þegar blóðið flæðir úr gáttum og inn í sleglana, eða
hvolfin (ventricules). -Slagæðaþrýstingur er lægstur í lok
diastola, eykst mjög hratt og er hæstur við systola. Hluti af
þrýstingnum sem hjartað myndar í systola geymist í veggjum slagæða
(þegar þær eru útvíkkaðar) og losast hægt í diastola þegar blóðið
flæðir hægt út úr slagæðakerfinu. Blóðflæðið sem pumpast út í
púlsum frá hjartanu breytist í meira samfellt flæði. Hámark
slagæðaþrýstingur: systolic pressure, lágmark slagæðaþrýstingur:
diastolic pressure. Blóðþrýstingur = systóliskur/diastóliskur
þrýstingur (t.d. 120/80 mmHg). Púlsþrýstingur = systóliskur –
diastóliskur þrýstingur (t.d. 120 – 80 = 40 mmHg)
Viðnám í æð:
Um æðar líkamans gilda ákveðnar reglur: Mismikið flæði á ýmsum
tímum
Hægt er að breyta flæði =>- líffæri og vefir geta sjálf
stjórnað staðbundið blóðflæði með því að breyta þvermál
slagæða.
Hræðsluviðbragð: veitir meira blóði til þverráka vöðva og
minnkar blóð til meltingarvegar.
Breytinagar sem verða í viðnámi æða:
Breyta radius (í arteriolum) herpa/slaka. Ef radius minnkar um
helming, þá eykst viðnám um 24 = 16 falt! Vasodilation – víkkun
slagæða, minna
viðnám, meira flæði. Vasoconstriction – þrengun slagæða,
meira viðnám, minna flæði
-
Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.
Þessar tvær æðar eru með mismunandi styrk í blóðflæðinu; efri
mynd er slagæð með 100 mmHg sem fer niður í 75 mmHg og neðri myndin
er bláæð með efri styrk upp á 40 mmHg sem fer niður í 15 mmHg.
Þrátt fyrir þennan mismun á þrýstingi, þá er blóðflæðið það sama,
eða um 25 mmHg. Þvermál æða er mikilvægt fyrir viðnámið, litlar
breytingar í þvermáli orsakar miklar breytingar í viðnámi. Ef maður
helmingar þvermálið (breytir 2mm æð í 1mm) eykst viðnámið með 16.
Vöðvar í veggjum slagæða geta dregist saman og þannig breytt
þvermáli þeirra. Þrengri æðar - meira viðnám – minna flæði.
Total peripheral resistance – TPR, samtals viðnám frá aortu til
hægri atriu, breytingar á viðnámi koma eingöngu vegna breytinga á
þvermáli æða.