Ísland - Lettland rafræn leikskrá 2015
Post on 23-Jul-2016
231 Views
Preview:
DESCRIPTION
Transcript
Ísland - Lettland10. október - Kl. 16:00
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Þú kemst alltaf í bankann á L.is
Farsímabanki Landsbankans hefur fengið nýtt útlit og viðbætur sem veita þér enn betri yfirsýn yfir fjármálin. Á L.is geturðu framkvæmt allar helstu bankaaðgerðir og þarft engan auðkennislykil.
Ísland tryggði sætið í lokakeppni EM 2016 í Frakklandi með 0-0 jafntefli gegn Kasakstan í seinasta leik. Það var því ljóst að Tékkar og Íslendingar myndu verma tvö efstu sæti riðilsins sem gefa sæti á lokakeppninni og að ekki kæmi til þess að Ísland þyrfti að leika í umspili.
Holland og Tyrkland geta ekki náð Íslandi og Tékkum að stigum og berjast um 3. sætið sem gefur sæti í umspili. Markmið íslenska liðsins er því núna að vinna riðilinn og svo það gangi upp þarf íslenska liðið að vinna þá leiki sem eftir eru.
Íslenska liðið hefur fengið frábæran stuðning úr stúkunni. Leikmenn jafnt og þjálfarar hafa hrósað þeirri stemningu sem komin er á leiki Íslands þar sem stúkurnar syngjast á og áhorfendur láta í sér heyra frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
Leikmenn liðsins vilja þakka stuðningsmönnum íslenska liðsins fyrir magnaðan stuðning í undankeppni EM og vonast leikmenn til að sjá sem flesta á lokamótinu í Frakklandi.
Við eigum þennan árangur saman!
KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS | FOOTBALL ASSOCIATION OF ICELANDLAUGARDAL | 104 REYKJAVIK | +354 510 2900 | KSI@KSI.IS | WWW.KSI.IS
FACEBOOK.COM/FOOTBALLICELAND | TWITTER @FOOTBALLICELAND | INSTAGRAM @FOOTBALLICELAND
TAKK FYRIROKKUR!
Borgun býður fjölbreyttar lausnir og góða þjónustu fyrir þá sem vilja
taka við öllum greiðslukortum gegnum vefsvæði eða app.
Kannaðu málið á borgun.is.
Ertu með vefverslun?
Borgun er stoltur styrktaraðili íslenska landsliðsins.
Borgun býður fjölbreyttar lausnir og góða þjónustu fyrir þá sem vilja
taka við öllum greiðslukortum gegnum vefsvæði eða app.
Kannaðu málið á borgun.is.
Ertu með vefverslun?
Borgun er stoltur styrktaraðili íslenska landsliðsins.
KSÍ er byrjað að fá fyrirspurnir um miða
á lokakeppni EM í Frakklandi. Það er
skemmst frá því að segja að upplýsingar
um miða á leiki Íslands liggja ekki
fyrir. Riðlakeppnin mun klárast áður en
einhverjar upplýsingar verða gefnar út
að hálfu UEFA og mun KSÍ birta nánari
upplýsingar þegar þær liggja fyrir.
Það er því einhver tími í að það liggur fyrir
með miða á lokamótið sem haldið verður
í Frakklandi.
MIÐAR Á EM Í FRAKKLANDI
Svíinn Lars Lagerbäck heftur verið þjálfari karlalandsliðsins undanfarin fjögur ár. Minnstu munaði að Ísland kæmist á HM undir hans stjórn en íslenska liðið tókst svo ætlunarverk sitt núna þegar það tryggði sér sæti í lokakeppni EM í Frakklandi. Lars segist ánægður með alla umgjörðina hjá landsliðinu og segir að þetta lið gæti náð langt í framtíðinni.
Hvernig líður þér með að vera kominn á EM?
Auðvitað líður mér frábærlega, ekki bara með það að
liðið hafi tryggt sér sæti á EM heldur líka með það
að hafa tryggt okkur sætið og eiga enn tvo leiki eftir
í undankeppninni. Ef ég hefði verið spurður að því
fyrirfram hvort ég hefði átt von á þessu þá hefði svarið
verið nei. Þetta er erfiður riðill og auðvitað taldi ég að
við ættum möguleika á að ná góðum úrslitum, en mig
dreymdi ekki um að vera komnir í lokakeppnina þegar
tveir leikir væru ennþá eftir.
Eftir reynsluna af umspilsleikjunum við Króatíu um
sæti á HM - taldirðu að liðið væri betur í stakk búið
núna til að komast áfram?
Algjörlega. Þegar þú ert að þjálfa landslið þá vinnur
tíminn með þér. Leikmennirnir verða eldri og reyndari
og þegar þú ert með góða umgjörð utan um liðið
og gott starfsfólk þá eykur það alltaf líkurnar á að
gengið verði betra. Þú átt að ná betri árangri ef þú
ert að vinna rétt með liðið og leikmennirnir fá meiri
reynslu. Miðað við hvernig hefur verið staðið að
málum í undankeppninni þá finnst mér eðlilegt að við
séum komnir á þennan stað. Það hefur allt verið til
fyrirmyndar.
Hvernig finnst þér blandan á leikmannahópnum
núna?
Ég myndi segja að blandan sé mjög góð. Við erum
með frekar ungan leikmannahóp sem á eftir að bæta
sig þannig að hópurinn núna á eftir verða betri og á
eftir að fara langt.
Hvernig leggurðu upp leikina gegn Lettlandi og
Tyrklandi eftir að hafa þegar tryggt sætið á EM?
Við munum hafa sömu umgjörð á öllum leikjunum.
Það kemur svo í ljós hvaða leikmenn spila leikinn og
hvort við reynum nýja hluti. Það gæti gerst núna að
þjálfararnir og leikmenn fari í þægindasvæði sem
er eitthvað sem við viljum ekki gera. Þessir leikir
eru mikilvægir fyrir styrkleikaflokkun og dráttinn í
desember. Svo er Tyrkland líka að keppa við Holland
um 3. sætið og því þurfum við að sýna af okkur
heiðarlegan leik gagnvart þeim. Við gætum litið á
þessa leiki sem undirbúningsleiki en það viljum við
alls ekki. Við viljum að allir okkar leikir séu 100% leikir
og við ætlum að halda því þannig áfram.
Þú hefur leitt mörg lið í lokakeppni. Hefur Ísland það
sem þarf til að ná langt?
Við höfum alltaf raunverulega möguleika á að vinna
VIÐ GETUM UNNIÐ ÖLL LIÐ
LARS LAGERBÄCK
alla leiki og eftir leikina í undankeppninni þá getum
við bætt liðið enn meira og verið öllum liðum erfiður
mótherji. Hversu langt við getum náð á eftir að koma
í ljós, en allavega þá getum við unnið leikina eða tekið
stig úr þeim - sama hver mótherjinn er.
Hvernig finnst þér umgjörðin hafa breyst síðan þú
tókst við?
Umgjörðin hefur verið mjög góð síðan ég og Heimir
tókum við liðinu. Andrúmsloftið hefur verið frábært
bæði á vellinum og utan vallar. Frá byrjun hafa allir
sýnt mikla fagmennsku, sama hvort um er að ræða
leikmenn eða starfsfólk í kringum liðið. Ég er mjög
glaður að hafa unnið með þessu fólki og satt að segja
þá myndi ég segja það forréttindi að fá að vinna með
þessum einstaka hópi.
Að lokum, einhver skilaboð til stuðningsmanna
liðsins?
Stuðningsmenn liðsins eiga gríðarlega mikið í
velgengi liðsins og andrúmsloftið á vellinum hefur
verið frábært. Það má þakka öllum stuðningsmönnum
og sérstaklega Tólfunni fyrir stemninguna sem er á
leikjunum. Að vera á vellinum og heyra alla syngja Ég
er kominn heim snart mig djúpt.
Vonarðu að sjá stuðningsmennina í Frakklandi?
Það væri frábært að fá sem flesta til Frakklands að
styðja okkur. Stuðningurinn í Hollandi og Tékklandi
var magnaður og ég væri til í að fá þann stuðning í
Frakklandi.
MIÐALEIKUR KSÍ Á FACEBOOKSMELLTU HÉRNA
Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna
sjálfboðaliðastarfs við úrslitakeppni EM
karlalandsliða 2016, en keppnin fer fram
í Frakklandi sumarið 2016. Alls munu um
6.500 sjálfboðaliðar starfa við mótið, sem
fer fram í 10 borgum víðs vegar um
Frakkland. Mótið er gríðarlega umfang-
smikið og mun þáttur sjálfboðaliða vera
stór í því að sem best til takist og til að
mótið verði sem glæsilegast.
Skráning umsókna fer fram á vef-síðunni
www.volunteers.euro2016.fr og er opið
fyrir umsóknir til loka nóvembermánaðar.
Sérstakur verndari sjálfboðaliðaverkef-
nisins er Christian Karembeu, fyrrverandi
landsliðsmaður Frakka.
Viltu starfa við úrslita-keppni EM 2016?
SÆTIÐ Á EM 2016 TRYGGT!
SÆTIÐ Á EM 2016 TRYGGT!
Sæti í lokakeppni EM 2016 var tryggt með jafntefli gegn Kasakstan. Hérna eru svipmyndir úr leiknum sem fór fram fyrir troðfullum Laugardalsvelli.
Gunnleifur Gunnleifsson er einn af eldri leikmönnum landsliðsins en hann hefur leikið undir stjórn nokkurra landsliðsþjálfara og kappinn hefur sjaldan verið í betra standi. Gunnleifur er á því að margt jákvætt hafi gerst síðan Heimir og Lars tóku við og auðvitað stefnir kappinn á Frakkland.
Þú sem einn af eldri leikmönnum liðsins, hvernig
finnst þér liðið hafa breyst í gegnum tíðina?
Eins og oft hefur komið fram þá tók liðið stórt
skref upp á við þegar Lars og Heimir tóku við
liðinu. Það voru allir samstíga, leikmenn og
sambandið, að lyfta þessu upp á næsta þrep. Ég
held að tímapunkturinn hafi líka hentað vel, Ólafur
Jóhannesson - landsliðsþjálfari, hafði verið að leyfa
yngri leikmönnum að spreyta sig sem höfðu spilað á
t.d. EM U21 í Danmörku. Þeir voru komnir með meiri
reynslu og voru líka gríðarlega metnaðarfullir strákar.
Lars og Heimir halda áfram með þann kjarna og þessi
hópur varð strax mjög samheldinn, sem hefur gert
mikið fyrir liðið.
En hverju má þakka þennan góða árangur sem er að
nást núna?
Ég myndi segja gríðarlegri samheldni og vinnusemi.
Og það á ekki bara við um þá 11 sem eru inn á
vellinum heldur er þetta allur leikmannahópurinn
og allt starfsfólkið í kringum liðið. Það eru allir að
leggjast á eitt og við það að leikmenn fái eins góðan
undirbúning og mögulegt er þá skilar það sér í betri
árangri.
Það var líka önnur tíð og önnur hugsun. Kannski
höfðum við bara ekki trú á því að komast svona langt
eins og raunin er núna. Ég man eftir fyrsta fundinum
sem Lars og Heimir voru með í Kórnum með stórum
hópi leikmanna og sögðust vilja koma liðinu sem fyrst
á stórmót. Það voru margir sem pískruðu og hlógu en
þeir sýndu það að með mikilli vinnu og fagmennsku
þá er þetta allt hægt.
Það fá skiljanlega ekki allir að spila alla leiki, eru samt
ekki allir í hópnum jafn mikilvægir?
Það spila bara 11 og sumir koma inn á og sumir ekki.
Við viljum auðvitað allir spila alla leiki en við erum
orðnir það þroskaðir og hugsunarhátturinn er þannig
að við gerum allt sem við getum til að hjálpa þeim
sem spila til að ná sem bestum leik. Það er auðvitað
hagur okkar allra að það gangi sem best inn á
vellinum. Ef ég tala um sjálfan mig, þá vinn ég mikið
með Hannesi og reyni að hjálpa honum sem mest.
Auðvitað vil ég spila leikina og ég veit að ef ég fæ
tækifærið þá mun ég standa mig.
Hverju þakkarðu þínu atgervi núna, þú hefur sjaldan
verið í betra standi?
Það er margt sem kemur að því. Ég hef blessunarlega
GUNNLEIFURTOPPURINN YRÐI AÐ SPILA Í FRAKKLANDI
verið heppinn með meiðsli, ég er líka náttúrlega
grannur og því á ég auðveldara með að halda mér í
góðu formi. Svo er það kannski stærsti þátturinn að
ég er gríðarlega vel giftur. Konan mín hefur mikinn
áhuga á fótbolta og hún skilur fótbolta. Bæði varðandi
undirbúning á leikjum og allt sem kemur að þessu.
Það er gríðarlega mikilvægt að hafa gott bakland
þegar maður er í þessari vinnu.
Nú er þekktur áhugi þinn á Man.City og hennar á
Man.Utd. Hvernig virkar heimilislífið með það?
Hún er nú búin að sætta sig við það að City er
stóra liðið í Manchester. Það er auðvitað hiti og
fjör í kringum leikina hjá United og City en ég enda
undirtekningalítið sem sigurvegarinn í þessari rimmu.
Að lokum, Frakkland næsta sumar. Þú munt
væntanlega reyna að halda þínu sæti á EM?
Auðvitað horfir maður hýru auga til Frakklands. Við
erum auðvitað að einblína á leikina núna til vinna
riðilinn og fókusinn er á því. En ég er nógu þroskaður
til að játa að auðvitað langar öllum að spila í
Frakklandi. Það yrði toppurinn á mínum ferli að leika
á lokamóti í fótbolta og ég mun gera allt sem í mínu
valdi stendur til að verða valinn í hópinn sem fer á
EM. En ekki hvað?
Í tengslum við leiki í undankeppni EM karlalandsliða
2016, sem leiknir eru dagana 8. til 22. október, notar
evrópska knattspyrnuhreyfingin tækifærið og efnir til
sérstakra baráttudaga gegn mismunun í Evrópu.
Undankeppni EM 2016 gefur okkur flott tækifæri
til að fylgjast með ferðalagi knattspyrnunnar um
Evrópu. Við hvetjum alla knattspyrnufjölskylduna
til að styðja við ákall UEFA um virðingu gagnvart
leikmönnum, dómurum, starfsmönnum leiksins og
stuðningsmönnum.
Rasismi og önnur mismunum af hvaða tagi sem er á
engan tilverurétt í fótbolta - Segjum „nei við rasisma“
og styðjum UEFA og önnur samtök í Evrópu í þessari
baráttu!
Rasismi og önnur mismunun á engan tilverurétt í
fótbolta!
SÉRSTAKIR DAGAR GEGNMISMUNUN Í EVRÓPU
Fylgstu með landsleiknum á Snapchat með N1 og KSÍ
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hluti af sterkri liðsheildN1 er bakhjarl Knattspyrnu-sambands Íslands
Skannaðu Snapchat táknið til að gerast vinur „LANDSLEIKURINN” á Snapchat og fylgstu með undirbúningnum fyrir æsispennandi landsleik Íslands og Lettlands á Laugardalsvelli þann 10. október.
Markmenn13 Gunnleifur Gunnleifsson
1975 | 2000-2015 | 29 | Breiðablik
1 Hannes Þór Halldórsson
1984 | 2011-2015 | 27 | NEC
12 Ögmundur Kristinsson
1989 | 2015 | 4 | Hammerby IF
Varnarmenn 2 Birkir Már Sævarsson
1984 | 2007-2015 | 50 | 0 | Hammerby IF
6 Ragnar Sigurðsson
1986 | 2007-2015 | 47 | 1 | FK Krosnodar
14 Kári Árnason
1982 | 2005-2015 | 43 | 2 | Malmö
23 Ari Freyr Skúlason
1987 | 2009-2015 | 31 | 0 | OB
3 Hallgrímur Jónasson
1986 | 2008-2015 | 14 | 3 | OB
5 Sölvi Geir Ottesen
1984 | 2005-2015 | 26 | 0 | Jiangsu Guoxin-S.
18 Theodór Elmar Bjarnason
1989 | 2005-2015 | 19 | 0 | AGF
4 Kristinn Jónsson
1990 | 2009-2015 | 4 | 0 | Breiðablik
17 Hólmar Örn Eyjólfsson
1990 | 2012-2015 | 2 | 0 | Rosenborg BK
Miðjumenn 16 Ólafur Ingi Skúlason
1984 | 2004-2015 | 26 | 1 | Gençlerbirliği S.K.
17 Aron Einar Gunnarsson
1989 | 2008-2015 | 53 | 1 | Cardiff City FC
Leikmenn Íslands8 Birkir Bjarnason
1988 | 2010-2015 | 40 | 6 | FC Basel
19 Rúrik Gíslason
1988 | 2009-2015 | 37 | 3 | FC Nürnberg
10 Gylfi Þór Sigurðsson
1989 | 2010-2015 | 32 | 10 | Swansea City FC
7 Jóhann Berg Guðmundsson
1990 | 2008-2015 | 39 | 5 | Charlton
20 Emil Hallfreðsson
1984 | 2005-2015 | 49 | 1 | Hellas Verona
Sóknarmenn 9 Kolbeinn Sigþórsson
1990 | 2010-2015 | 31 | 17 | FC Nantes
21 Viðar Örn Kjartansson
1990 | 2015 | 2 | 0 | Jiangsu Guoxin-S.
15 Jón Daði Böðvarsson
1993 | 2012-2015 | 15 | 1 | Viking FK
11 Alfreð Finnbogason
1989 | 2010 - 2015 | 26 | 5 | Real Sociedad
22 Eiður Smári Guðjohnsen
1978 | 1996 - 2015 | 80 | 25 | Shijiazhuang Yongchang
Liðsstjórn Lars Lagerbäck Þjálfari
Heimir Hallgrímsson Þjálfari
Guðmundur Hreiðarsson Markvarðaþjálfari
Sveinbjörn Brandsson Læknir
Friðrik Ellert Jónsson Sjúkraþjálfari
Stefán Stefánsson Sjúkraþjálfari
Óðinn Svansson Nuddari
Sigurður Sv. Þórðarson Búningastjóri
Ómar Smárason Fjölmiðlafulltrúi
Gunnar Gylfason Starfsmaður
Dagur Dagbjartsson Leikgreining
*Fæðingarár | Ár með landsliði | Leikir með landsliði | Mörk skoruð | Félag
Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er
fjöldi bílastæða í Laugardalnum er aðeins lítill hluti
þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni
hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði
í göngufæri við Laugardalsvöll. Við minnum svo
vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og
Lettlands sem hefst kl. 16:00.
Það er gott að vera á góðum tíma til að forðast
óþarfa biðraðir. Þá er minnt á að strætisvagnar
stoppa víðsvegar í kringum Laugardalinn og geta
verið afar góður kostur fyrir marga vallargesti.
Mörg hlið verða opin á leiknum til að koma
fótboltaþyrstum stuðningsmönnum sem fyrst í sætin sín
og biðjum við alla að dreifa álaginu á hliðin.
LaugardalurLaugardalur-enginn skortur á bílastæðum!
SUNDLAUGAVEGUR
RE
YK
JA
VE
GU
R
LA
UG
AR
ÁS
VE
GU
R
SU
ÐU
RLA
ND
SB
RAU
TEN
GJA
VEG
UR
Skautahöll, Grasagarður173 stæði
World Class110 stæði
Laugardalsvöllur530 stæði
Íþróttasvæði Þróttar130 stæði
ÍSÍ50 stæði
Á bak við Laugardalshöll160 stæði
Austan við Laugardalshöll115 stæði
Ofan við Fjölskyldu- og húsdýragarð100 stæði
TBR húsið80 stæði
Laugardalshöll100 stæði
Í Laugardal, einu allra vinsælasta Íþrótta- og útivistarsvæði landsins
er að finna yfir 1800 bílastæði.
Þó svo að ekki séu laus stæði næst þeim stað í dalnum sem þú ætlar á,
bendum við á að víða í Laugardal er að finna næg bílastæði.
Sýnum sjálfsagða tillitssemiog leggjum aldrei á gangstígum.
Laugardalslaug190 stæði
Bílastæðamál við Laugardalsvöll
Co
ca-C
ola
’ is
a tr
adem
ark
of
The
Co
ca-C
ola
Co
mp
any.
© 2
015
The
Co
ca-C
ola
Co
mp
any
er stoltur styrktaraðili íslenskrar knattspyrnu
#velduhamingju
Hvar er sætið þitt?
Vertu með okkur
VIÐ ERUM ÖLL Í SAMA LIÐI
Þökkum stuðninginn.Sjáumst á EM í Frakklandi 2016.
top related